Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 59
seer inOr. .01 HUOAauxivaiM (iKMjaviu.ujiOM■
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
85
5 á
Reuter
Garríj Kasparov heimsmeistari í skák klappar ákaft fyrir Corazon Aquino forseta Fiiippseyja við opnun
Ólympíuskáakmótsins á mánudag. Aquino settist við taflborð gegn Kasparov og lék drottningarpeðinu fram
og eftir nokkra umhugsun bauð Kasparov henni jafntefli. Aquino hafði í setningarræðu sinni lýst því yfír
að hún tæki ekki mark á orðum Kasparovs og Karpovs að konur kunni ekki að tefla. Fyrir aftan sjást
meðal annara Fidel Ramos tilvonandi forseti Filippseyja og Florencio Campomanes forseti Alþjóðaskáksam-
bandsins.
Olympiuskákmótið á Filippseyjum:
ísland í efri hluta móts-
ins eftir tvær umferðir
íslendingar unnu íra, 3,5-0,5 í fyrstu umferð Ólympíuskákmótsins á
Filippseyjum, og höfðu yfir gegn Perúmönnum, 1,5-0,5 í annarri um-
ferð en tvær skákanna í þeirri viðureign fóru í bið og voru tefldar í
nótt að íslenskum tíma. Rússar eru efstir eftir tvær umferðir með 7,5
vinninga en næstir koma Svíar, Hollendingar, Lettar, ísraelsmenn og
Króatar með 7 vinninga og fleiri þjóðir, þar á meðal Islendingar, geta
náð þeim að vinningum þegar biðskákum lýkur.
íslendingar, sem eru 14. sterkasta
skáksveitin samkvæmt skákstigum
af um 100 sveitum á Ólympíumót-
inu, tefldu við íra í fyrstu umferð-
inni. Margeir Pétursson gerði jafn-
tefli við Orr á 1. borði eftir að hafa
verið með betri stöðu mestalla skák-
ina. Jón L. Ámason vann Brady á
öðru borði, Hannes Hlífar Stefáns-
son, sem teflir á sínu fyrsta Ólympíu-
móti, vann Daly á þriðja borði og
Þröstur Þórhallsson vann Ryan á
fjórða borði.
í annarri umferð tefldu íslending-
ar við Perúmenn. Jóhann Hjartarson
gerði jafntefli við Granda-Zuniga á
1. borði. Jóhann var lengst af með
frumkvæðið í skákinni en tókst ekki
að nýta sér það. Helgi Ólafsson vann
Utday á öðru borði, og skákir Hann-
esar Hlífars og Reyes og Þrastar og
Oblitas fóru í bið. Hannes hafði betri
stöðu í sinni skák þegar hún fór bið.
Þröstur átti lengi í erfíðleikum með
andstæðing sinn en náði gagnsókn
og þegar skákin fór í bið átti Þröstur
biskup og hrók gegn hrók. Sú staða
er fræðilegt jafntefli en Þröstur ætl-
aði samt að reyna að ná fram vinn-
ingi. Biðskákimar voru tefldar í nótt.
Rússar unnu Svisslendinga
3,5-0,5, í annari umferð en Viktor
Kortsjnoj þurfti að gangast undir
skurðaðgerð á auga og teflir því
ekki með Svisslendingum. Annar
gamalkunnur skákmeistari, Míkhaíl
Tal, liggur á sjúkrahúsi í Moskvu
eftir nýmaaðgerð en hann var skráð-
ur í lið Letta á Ólympíuskákmótinu.
Óvæntustu úrslit annarrar umferðar
voru tap Bandaríkjamanna fyrir Lit-
háum sem tefla aðeins fram einum
stórmeistara, Rosenthalis. í frétta-
skeytum kemur fram að Gata Kam-
sky, sem leiðir bandarísku sveitina,
lýsti yfir mikilli óánægju með sveit-
arfélaga sína og strunsaði í fússi út
úr skáksalnum þegar þessi úrslit
urðu ljós.
Ólympíuskákmótið var sett í Man-
ila á Filippseyjum á mánudag við
mikla viðhöfn af Corazon Aquino,
forseta landsins, en Fidel Ramos, til-
vonandi forseti landsins var einnig
viðstaddur. Sá fánaberi, sem bar
fána íslands við setningarathöfnina,
var handtekinn þegar öryggisverðir
heyrðu hann viðhafa ummæli um að
reka Aquino á hol með fánastöng-
inni. Enginn íslendinganna varð þó
var við þetta atvik, en nokkuð var
Qallað um það í blöðum á Filippseyj-
um. Fánaberinn hélt því fram að
hann hefði verið að segja brandara
sem hann hefði heyrt aðra fánabera
segja, og dómari lét hann skömmu
síðar lausan gegn jafnvirði 5.000
króna tryggingar.
Alls verða tefldar 14. umferðir á
Ólympíumótinu en því lýkur 24. júní.
íslendingarnir byrja vel
Skák______________
Bragi Kristjánsson
Á ÓLYMPÍUSKÁKMÓTINU
verða tefldar 14 umferðir eftir
svissneska kerfinu. íslendingar
senda sterka sveit til mótsins,
stórmeistarana Jóhann Hjartar-
son, Margeir Pétursson, Helga
Ólafsson og Jón L. Árnason, og
til vara eru alþjóðlegu meistar-
arnir Hannes Hlífar Stefánsson
og Þröstur Þórhallsson. Sveitin
byijaði vel, vann Ira 3'/j—Vi í
fyrstu umferð og hefur VA—Vi
og tvær betri biskákir gegn Perú
í annarri umferð.
Upplausn Sovétríkjanna og
Júgóslavíu setur mikinn svip á
þetta mót eins og sjá má á eftirfar-
andi lista yfir tuttugu sterkustu
sveitimar skv. stigaskrá FIDE, al-
þjóða skáksambandins:
1. Rússland (Kasparov, Khalifman,
Dolmatov, Dreev, Kramnik og Vys-
manavin), 2. England (Short, Spe-
elman o.fl.), 3. Ukraína (ívantsjúk,
Beljavskíj o.fl.), 4. Bandaríkin
(Kamsky, Jermólinskíj, Seirawan
o.fl.), 5. Bosnia-Herzegovina, 6.
Ungveijaland, 7. Holland, 8.
Þýskaland, 9. Armenía, 10. Lett-
land, 11. Georgía, 12. Svíþjóðj 13.
Tékkóslóvakía, 14. ísland, 15. Isra-
el, 16. Bulgaría, 17. Frakkland,
18. Indland, 19. Litháen og 20.
Eistland og aftar 35. Danmörk, 39.
Finnland og 45. Noregur.
Staða efstu sveita eftir 2. um-
ferð er þessi:
1. Rússland, 7 Vi v. (af 8 möguleg-
um).
2. -5. Svíþjóð, Holland, Lettland
og Króatía, 7 v. hver þjóð.
íslendingar hafa 5 v. og tvær
biðskákir og teljast því með 6 v.,
þegar raðað verður í þriðju umferð.
Við skulum að lokum sjá snagg-
aralegan sigur Þrastar Þórhalls-
sonar ! fyrstu umferð.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson.
Svart: J. Ryan (írland).
Frönsk vörn.
I. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. e5 -
c5, 4. c3 - Rc6, 5. Rf3 - Db6,
6. a3 - c4, 7. Rbd2 - Bd7, 8. g3
" f!»
(Önnur ieið er hér 8. - Ra5, t.d.
9. Bh3 - Re7, 10. 0-0 - h6, 11.
Rel 0-0-0, 12. Rg2 - Kb8, 13.
Hbl - Ka8!?, 14. Khl - Rec6, 15.
f3 - g6, 16. Re3 - h5 með nokkuð
jöfnu tafli (Lobron — Jóhann Hjart-
arson, millisvæðamótinu í Manila
1990).)
9. exf6 - gxf6
(eða 9. - Rxf6, 10. Bg2 - Bd6,
II. 0-0 - 0-0, 12. De2 - Hae8,
13. Re5 - He7 og hvítur á rýmri
stöðu.) ,
10. Bh3 - 0-0-0, 11. 0-0 - e5!?
(Irinn opnar taflið of fljótt. Hann
hefði betur reynt að koma í veg
fyrir að hvítur opni sóknarleiðir á
drottningarvæng með 11. - Ra5
o.s.frv.)
12. Bxd7+ - Hxd7,13. b3! - exd4
Eftir 13. - Ra5 fellur peðið á
e5 og 13. - e4, 14. Rh4 - Ra5,
15. bxc4 - Rxc4, 16. Rxc4 - dxc4,
17. De2 - Dc6, 18. Rf5 - Re7,
19. Re3 - b5, 20. a4 gefur hvítum
vinningsstöðu.)
14. cxd4 - Rxd4
(Eftir 14. - Ra5, 15. bxc4 -
dxc4, 16. De2 - Dc6, 17. Bb2 -
Re7, 18. Hfcl - b5, 19. a4 opnast
kóngsstaða svarts.)
15. bxc4 - dxc4, 16. Rxc4 -
Dc6, 17. Rxd4 - Dxc4, 18. Be3
- Kb8, 19. Bf4+ - Bd6 (Eftir 19.
- Ka8, 20. Hcl verður svartur mát
á áttundu reitaröð.)
20. Rf5! - Bxf4, 21. Dxd7 - Rh6
(Eða 21. - Be5, 22. Hacl -
Be3, 23. Rd6 og svartur getur
ekki varist máthótunum hvíts.)
22. Habl - Le4, 23. Hfel - Dxf5
(Eða 23. - Df3, 24. Rh4 o.s.frv.)
24. Dxb7+ mát.
Sala nautakjöts
jókst um 10,7%
Kindakjötssala dróst saman um 5,4%
Á TÍMABILINU frá 1. maí 1991 til 31. apríl 1992 varð 5,4% samdráttur
í sölu á kindakjöti, en það þýðir rúmlega 400 tonna minni sölu miðað
við síðustu 12 mánuði þar á undan. Á þessu tímabili hefur hins vegar
orðið 10,7% aukning í sölu nautakjöts, 1,3% aukning í sölu svínakjöts
og 3,8% aukning í sölu alifuglakjöts. Að sögn Þórhalls Arasonar,
starfsmanns Markaðsnefndar landbúnaðarins, eru það fyrst og fremst
verðsveiflur milli kjöttegundanna innbyrðis sem valda þessum breyt-
ingurn, en einnig hafi breyttar neysluvenjur hér á landi sívaxandi
áhrif og ýtt undir sölu á öðrum kjöttegundum en kindakjöti.
Á tímabilinu frá 1. febrúar til
aprílloka varð samdráttur í sölu
kindakjöts 0,7% miðað við sama
tímabil í fyrra. 16% aukning varð í
sölunni í febrúar miðað við sama
mánuð í fyrra, en hins vegar 5,2%
samdráttur í mars. Hvað nautakjötið
varðar þá jókst salan á þessu þriggja
mánaða tímabili um 21,9% miðað
við sama tímabil árið áður, en helsta
skýring á því er talin sú að naut-
gripabændur lækkuðu verðið til sín
um 10% í febrúar. Á tímabilinu jókst
sala á svínakjöti um 2,4%, sala ali-
fuglakjöts jókst um 14%, og sala
hrossakjöts jókst um 4,3%.
Sölutölur fyrir maímánuð liggja
ekki fyrir, en í apríl varð 10,1% sö-
lusamdráttur í kindakjöti miðað við
sama mánuð á síðasta ári. Salan á
nautakjöti jókst hins vegar um 9,5%
og sala á alifuglakjöti jókst um
16,4%, en sala á svínakjöti dróst
saman um 5,8%. Heildarkjötneysla
í mánuðinum dróst saman um 3,8%
miðað við sama mánuð í fyrra.
Þórhallur Arason sagði í samtali
við Morgunblaðið að á tímabilinu frá
1. maí 1991 til 31. apríl 1992 hefði
kjötneysla hér á landi dregist saman
um 0,45 miðað við árið á undan.
Markaðshlutdeild lambakjöts á
þessu tfmabili hefði verið 49,8%, en
það hefði verið í fyrsta sinn í nokk-
ur ár sem hún fer niður fyrir 50%.
Markaðshlutdeild nautakjöts væri
orðin 20,5%, svínakjöt væri með
16,1%, alifuglakjöt með 9,4% og
hrossakjöt með 4,2%.
„Það eru fyrst og fremst verð-
sveiftur milli kjöttegundanna inn-
byrðis sem ráða ferðinni. Lambakjöt
hækkaði síðastliðið haust um 8%,
en áhrif þess komu hins vegar ekki
í ljós fyrr en eftir áramótin. Verð-
lækkun á lambakjöti á lágmarks-
verði í febrúar skilaði sér í aukinni
sölu þá, en hún fór síðan rénandi.
Alifuglar hafa verið á tilboði síðustu
mánuði, én mikil samkeppni hefur
verið meðal framleiðenda og verðið
lágt, og helsta skýringin á upp-
sveiflu í nautakjötinu er verðlækkun
til bænda í byijun mars. Þá er ein
skýringin á breyttum hlutföllum tal-
in sú að í kjötvinnslu er nú notað
meira af nauta- og svínakjöti í
vinnsluvörur í stað kindakjöts. Síðan
er alveg ljóst að neysluvenjur á ís-
landi hafa verið að breytast á síð-
ustu árum. Við höfum hefð fyrir
mjög mikilli lambakjötsneyslu hér á
landi, en öll erlend áhrif hafa frekar
ýtt undir sölu á öðrum kjöttegund-
um. Nýjum réttum, eins og til dæm-
is pastaréttum, fylgja aðrar kjötteg-
undir en áður tíðkaðist, og lamba-
kjötið er ekki mikið þar inni,“ sagði
hann.
-----* * *-----
Neskaupstaður;
Bensíntankur
á flugröllinn
Neskaupstað.
í TENGSLUM við áætlunarfliq^^
Islandsflugs hingað var nýlega
settur upp eldsneytistankur fyrir
flugvélaeldsneyti á flugvellinum.
Flugvélaeldsneyti hefur ekki verið
hér til staðar í fjöldamörg ár eða
allt síðan Flugsýn hélt uppi áætlun-
arflugi hingað. Mikil þörf var fyrir
að fá þessa þjónustu á flugvöllin t.d.
þurftu hinar ýmsu flugvélar sem að
komu hingað með íþróttahópa til
keppni að fara til Egilsstaða til að
taka eldsneyti, Þá kemur þetta sér
vel fyrir Landhelgisgæsluna og nú á
dögunum kom hér eitt af varðskipum
þeirra og tók um 1.000 lítra af elds-
neyti á eina af þyrium sínum.
- Ágúst.
VANN ÞIN
FJÖLSKYLDA?
Heildarvinningsupphæðin :
97.344.702 kr.
Röðin : XX2-121-21X-X11X
13 réttir:
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
7 raðir á
182 raðir á
2.863 raðir á
23.455 raðir á
3.754.720 - kr.
90.920 - kr.
6.120 - kr.
1.570 - kr.
Nú er opiö fyrir sölu á EM-AUKASEÐLi þar sem danskir
peningar bætast í pottinn. Búist er viö aö 1. vinningur veröi
rúmar70 mllljónlr. Biöjiö um AUKASEÐILánæstasölustaö.
EM-sölu lýkur kl. 17:451 dag.