Morgunblaðið - 16.07.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992
því að fyrirtækið eigi þar einhvern
hlut að máli. Þar er farið með stað-
lausa stafi. Sú spuming hlýtur að
vakna vegna þessara umræðna,
hvort lögregla og yfirvöld umferð-
armála hafi sérstakri upplýsinga-
skyldu að gegna, þegar umréeður
um hörmuleg slys fara inn á slíkar
brautir.“
Erindið var lagt fram á fundi
borgarráðs, utan dagskrár og var
afgreiðslu þess frestað að beiðni
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar for-
manns skipulagsnefndar.
Hekla hf.:
Mælt með lokun um-
ferðareyju án tafar
f BRÉFI sem Ingimundur Sigfússon sljórnarformaður Heklu hf.
hefur sent borgarstjóra, segir að rétt hljóti að vera að loka án tafar
umferðareyju á Laugavegi framan við fyrirtækið meðan frekari
athuganir fari fram en talsverð gagnrýni hefur komið fram innan
borgarstjórnar og víðar vegna þess að eyjan er opin. „Hekla hf. er
nú eins og jafnan áður fús til viðræðna við borgar- og umferðaryfir-
völd um hveija þá lausn, sem tryggir að mati hæfustu manna, fram-
tíðaröryggi í umferð á þessu svæði við Laugaveginn og jafnframt
sem greiðastan aðgang að lóð og athafnasvæði fyrirtækisins," segir
í bréfinu.
„Við höfum augljóslega orðið
fyrir miklum óþægindum vegna
þeirrar umræðu sem átt hefur sér
stað,“ sagði Ingimundur við Morg-
unblaðið. „Hún hefur verið neikvæð
í okkar garð og ósanngjöm. Fullyrð-
ingar um að við höfum nýtt okkur
stjómmálamenn á sér enga stoð.
Við snerum okkur beint til umferð-
aryfirvalda og þá aðallega vegna
þess að okkur líkaði ekki hvemig
staðið var að framkvæmdum. Við
heyrðum á skotspónum að til stæði
að loka gatinu og gerðum athuga-
semdir við þau vinnubrögð."
Fram kemur í bréfi Ingimundar
til borgarst.jóra, að í ljósi þeirra
umræðna sem fram hafí farið vilji
fyrirtækið koma á framfæri, að
borgaryfírvöld hafí í verki sýnt
skilning á nauðsyn þess, að sem
greiðastur aðgangur sé fyrir öku-
tæki að lóðinni sunnan Laugavegar
en þar eru starfandi fímm fyrirtæki
með um 200 starfsmenn. Það sé
fullljóst að frumskylda borgar- og
umferðaryfírvalda sé að tryggja
umferðaröryggi við athafnasvæði
fyrirtækisins sem annarsstaðar. I
samræmi við það sjónarmið vilji
fyrirtækið stuðia að farsælli niður-
stöðu er tryggi umferðaröryggi og
greiðan aðgang að lóðinni.
Síðar segir: „Umræður, sem orð-
ið hafa vegna slyss á þeim stað,
sem hér um ræðir, hafa að mati
Heklu hf. borið nokkum keim af
Aukaaðild að Vestur-
Evrópusambandinu:
Gengið til
viðræðna í
Róm í dag
FULLTRÚAR íslenzkra stjórn-
valda ganga í dag til viðræðna
í Róm um aukaaðild íslands að
Vestur-Evrópusambandinu.
Þingflokkur sjálfstæðismanna
fjallaði um málið á fundi sínum
í gær og sagði Geir H. Haarde
þingflokksformaður að engin
athugasemd hefði komið fram
við að þessar viðræður færu
fram.
Samstaða hefur verið í ríkis-
stjórninni um að þiggja boð Vestur-
Evrópusambandsins um viðræður
um aukaaðild og mun því, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, ekki vera talið að málið þurfi
sérstaka afgreiðslu í ríkisstjóm eft-
ir að um það hefur verið fjallað í
þingflokkum beggja stjómarflokk-
anna. Einnig hefur ákvæðum þing-
skaparlaga um samráð við utan-
ríkismálanefnd verið fullnægt.
Fulltrúar íslands í viðræðunum
sem hefjast í dag verða Gunnar
Pálsson, sendiherra íslendinga hjá
Ráðstefnunni um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu (RÖSE) í Vín, og
Benedikt Ásgeirsson, sendifulltrúi
í fastanefnd Islendinga hjá Atlants-
hafsbandalaginu í Brussel.
Samkvæmt upplýsingum úr ut-
anríkisráðuneytinu verður ákveðið
á fundinum í Róm hvemig fram-
haldi viðræðnanna verður háttað.
Til dæmis er ekki ljóst hvort rætt
verður við löndin, sem hafa fengið
boð um aukaaðild að VES, ísland,
Noreg og Tyrkland, öll í einu eða
hvert fyrir sig. Stefnt er að því af
hálfu Vestur-Évrópusambandsins
að viðræðunum Ijúki fyrir árslok.
Viðskiptavinir skoða útsöluvörur í verslun
Reykjavík.
Morgunblaðið/Emilía
á Laugaveginum
Tími sum-
arútsala
er kominn
TÍMI sumarútsala er runninn
upp og hafa fjölmargar verslan-
ir sett upp útsölur.
í Kringlunni er þeim tilmælum
m.a. beint tii verslunareigenda að
þeir haldi sig innan ákveðins tíma-
ramma. Ekki eru verslunareigend-
ur þó á eitt sáttir um tímasetningu
útsala. „Að mínu mati hefjast útsöl-
umar of snemma. Þær ættu í fyrsta
lagi að byija eftir verslunarmanna-
helgina“ sagði Guðrún Jóhanns-
dóttir, en hún rekur fatabúðina
Topphúsið.
Lilja Hrönn Hauksdóttir eigandi
tískuvöruversluninnar Cosmo var
aftur á móti á öðru máli. Hjá henni
hófst útsalan í upphafí þessarar
viku og hefur hún alltaf haft útsöl-
ur á þessum tíma. „Ég verð að
fylgja markaðinum. Sumarútsölur
í nágrannalöndunum eru þegar yf-
irstaðnar og þar er verið að rýma
fyrir vetrarvörum."
Vinnsla hefst á vegum Útgerðarfélagsins á Bíldudal í dag:
Skip Útgerðarfélagsins inn
í skipti Fiskvinnslunnar hf.
Landsbankinn segir að framlenging leigusamnings eftir 30. ágúst sé ekki á dagskrá
BU FISKVINNSLUNNAR á Bíldudal hf. var í gær tekið til gjald-
þrotaskipta. í gærkvöldi staðfesti skiptastjóri samning um leigu
Útgerðarfélags Bílddælinga hf. á öllum eignum Fiskvinnslunnar
til 1. september næstkomandi og hefst vinnsla í frystihúsinu árdeg-
is í dag. Togari Útgerðarfélagsins, Sölvi Bjarnason, var væntan-
legur til Bíldudals klukkan sex í morgun með rúm 110 tonn af
þorski. Aðstoðarbankastjóri Landsbankans segir að bankinn leggi
áherslu á að leiga eignanna sé tímabundin ráðstöfun og ekki sé
á dagskrá að framlengja leigusamninginn. Hann segir að bankinn
hafi veð í skipum Útgerðarfélagsins og dragist félagið því sjálf-
krafa inn í gjaldþrotaskipti Fiskvinnslunnar.
Forráðamenn Fiskvinnslunnar Skarphéðinn sagði í samtali við
hf. fóru með gjaldþrotabeiðni á Morgunblaðið að allra leiða yrði
fund Helga I. Jónssonar héraðs-
dómara í Héraðsdómi Vestfjarða á
ísafírði í gær og í framhaldi af því
var úrskurður um gjaldþrot kveð-
inn upp. Jafnframt var Skarphéð-
inn Þórisson hæstaréttarlögmaður
ráðinn skiptastjóri. Flaug hann til
Bíldudals síðdegis í gær til að
skoða eignir þrotabúsins og að
ræða við framkvæmdastjóra Út-
gerðarfélagsins. Útgerðarfélagið
greiðir þrotabúinu sem leigu fyrir
eignir Fiskvinnslunnar 4% af skila-
verði allrar framleiðslu í fyrirtækinu.
leitað til að losna við eignir búsins
á einhvern máta. Sagði hann að
Útgerðarfélagið hefði ekki for-
kaupsrétt að eignunum. „Leigan
er hrein og klár bráðabirgðaráð-
stöfun með það í huga að vinnsla
geti hafíst enda er það hagur bús-
ins og veðkröfuhafa að fyrirtækið
sé í rekstri," sagði hann.
Bjöm Líndal, aðstoðarbanka-
stjóri Landsbanka íslands, sagði í
gær að leiga Útgerðarfélagsins á
eignum þrotabúsins væri tíma-
bundin ráðstöfun til þess að nýta
eignimar á meðan skipti væru
undirbúin og til að opna möguleika
á vinnslu á staðnum næstu vikum-
ar. Sagði hann að bankinn legði
áherslu á að nú þegar yrði gefin
út tilkynning um að leigusamning-
urinn félli úr gildi 30. ágúst og
að framlenging væri ekki á dag-
skrá. Sagði Björn að Útgerðarfé-
lagið fengi ekki aðra lánafyrir-
greiðslu í bankanum en afurðalán.
Björn sagði að gjaldþrotaúr-
skurðurinn yfír Fiskvinnslunni
væri mikilvægur. Nú væri hægt
að hefja skiptameðferð sem tæki
nokkurn tíma. Þrotabú Fiskvinnsl-
unnar á rúmlega 70% hlutabréfa
í Útgerðarfélagi Bílddælinga hf.
Jafnframt á bankinn mikil veð í
skipum félagsins fyrir skuldum
Fiskvinnslunnar og sagði Björn að
Útgerðarfélagið myndi því sjálf-
krafa dragast inn í gjaldþrota-
skipti Fiskvinnslunnar. Sagði hann
að afstaða bankans til áframhald-
andi viðskipta við Útgerðarfélagið
eða aðra um fískvinnslu á Bíldudal
réðist af því hvort svo traustur
aðili fyndist að bankinn gæti rétt-
lætt viðskipti við hann. Sá kostur
yrði að vera bankanum jafn hag-
stæður og nauðungarsala skipanna
til hæstbjóðanda virtist nú vera.
Skarphéðinn sagði að fyrsti
skiptafundur þrotabúsins yrði í lok
október. Sagði hann að uppsagnar-
laun starfsfólks yrðu ekki greidd
út fyrr en eftir 4 til 6 mánuði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlúð að piltinum sem slasaðist á Miklubraut í gær.
Miklabraut:
Piltur varð fyrir jeppa
Unglingspiltur var fluttur á
slysadeild eftir að hafa hlaupið
í veg fyrir jeppa og lent á hon-
um á Miklubraut á móts við
Rauðagerði um kl. 16.03 í gær.
Pilturinn áttaði sig ekki á því
að vegna malbikunarvinnu var
umferð um nyrðri akreinar braut-
arinnar í báðar áttir og lagði af
stað yfír hana án þess að vara
sig á umferð úr austurátt. Þaðan
kom jeppinn en ökumanni hans
fipaðist, þegar hann sá piltinn,
með þeim afleiðingum að jeppinn
valt og lenti á hinum unga vegfar-
anda. Pilturinn var fluttur á slysa-
deild en er ekki talinn mikið slas-
aður. Jeppinn var fluttur af vett-
vangi með kranabíl.
Economist um kvikmyndagerð á íslandi:
Ahugi í Hollywood á
tökustöðum á íslandi
BRESKA tímarítið Economist birtir í nýjasta hefti sínu grein um
íslenska kvikmyndagerð. Segir i upphafi hennar að umræða um
íslenskar kvikmyndir veki ávallt kátínu meðal hinna forfrömuðu.
Sú kátína sé hins vegar byggð á þekkingarleysi, segir Economist
Þessi 250 þúsund manna þjóð ætli að frumsýna fimm kvikmyndir
á þessu ári og álíka margar á því næsta. Minnir tímaritið einnig á
að mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, hafi ver-
ið tilnefnd til Óskarsverðlauna á þessu ári.
„Af hveiju svona margar mynd-
ir fyrir svona fátt fólk,“ spyr tíma-
ritið og segir svarið liggja í því
að fyrir áratug hafi Kvikmynda-
sjóður verið settur á laggirnar til
að styðja fjárhagslega við bakið á
íslenskri kvikmyndagerð. Með
undantekningu af víkingamyndum
Hrafns Gunnlaugssonar hafi hins
vegar fáar myndir náð augum
kvikmyndagesta utan íslands.
„Það gæti hins vegar breyst. Óþol-
inmóð ný kynslóð íslenskra kvik-
myndagerðarmanna, sem alin hef-
ur verið upp á tónlistarmyndbönd-
um, ráðgerir að frumsýna þijár
kvikmyndir síðar í sumar sem eiga
að höfða til sama áhorfendahóps
og myndir á borð við „Tveir á
toppnum 3“ og „Leðurblökumað-
urinn snýr aftur“. Þessir ungu
kvikmyndagerðarmenn eru búnir
að fá sig fullsadda af jöklum og
eyðibýlum, hvort sem er á 12. eða
20. öld.“ Er minnst sérstaklega á
myndina „Sódómu Reykjavík" eft-
ir Óskar Jónasson í þessu sam-
bandi.
Tímaritið segir Sódómu hafa
kostað sáralítið fé í framleiðslu,
Iíkt og flestar aðrar íslenskar
myndir, sem sé töluvert afrek í
dýru landi á borð við ísland. „Er-
lendir framleiðendur dást að
þessu,“ segir Economist og bendir
á að franskir aðilar fjármögnuðu
„Svo á jörðu sem á himni“, mynd
Kristínar Jóhannesdóttur, sem
sýnd var á kvikmyndasýningunni
í Cannes nú í vor. „Kvikmynda-
framleiðendur í Hollywood Iíta
með vaxandi áhuga til hinna stór-
brotnu tökustaða á íslandi,“ segir
Economist að lokum.