Morgunblaðið - 16.07.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992
39
LEITINIVIIKLA - Sýnd kl. 5.
Mamman tekur völdin
Kvikmyndlr
Arnaldur Indriðason
Stopp eða mamma hleyp-
ir af („Stop or My Mother
Will Shoot“). Sýnd í
Laugarásbíói. Leikstjóri:
Roger Spottiswoode. Að-
alhlutverk: Sylvester
Stallone, Estelle Getty.
Það er af sem áður var
þegar súperhlunkurinn
Sylvester Stallone tókst á
við allt frá rússneskum
steraskrýmslum til heilu
skriðdrekasveitanna í
myndum sínum. Undan-
farin ár hefur hann verið
að breyta um ímynd með
misjöfnum árangri. Hann
hefur viljað sýna á sér
mannlegri og kómískari
hliðar og ein afurð þess er
gamanmyndin Stopp eða
mamma hleypir af. Þar
fæst hann við aldraða móð-
ur sína.
Sú er leikin af Estelle
Getty úr sjónvarpsþáttun-
um Klassapíur og er hlut-
verkið nokkurn veginn
sniðið að persónu hennar í
þáttunum. Hún kemur til
borgarinnar að heimsækja
lögreglumanninn, son sinn,
sem Stallone leikur af
kunnuglegu andríki og set-
ur allt á annan endann í
lífi hans með pínlegri af-
skiptasemi af ástar- og
glæpamálum sonar síns.
Leikstjóri er Roger
Spottiswoode sem fær að
spreyta sig á nokkrum has-
arsenum, sem eru hans
fag, því í hliðarsögu er sagt
frá eltingarleik mæðgin-
anna við ólöglega vopna-
sala. En Spottiswoode er
kannski ekki rétti maður-
inn í gamanmyndir og
myndin gerir sáralítið fyrir
Stallone annað en að gera
hann vandræðalegan.
Hann hefur svo sterka
ímynd sem Rambó og
Rocky að það er eins og
hann geti aldrei verið rétt
staðsettur í léttum kómed-
íum eins og þessari þar sem
hann er mjúki og stillti
mömmudrengurinn og full-
komin andstæða harðhaus-
anna er gert hafa hann að
súperstjörnu.
Stallone fer í raun ekk-
ert afleitlega með hlutverk-
ið og Getty er skemmtileg
í hlutverki mömmunnar
sem hefur allt á hornum
sér en reynist lunkin lögga.
En myndin er fislétt af-
þreying og innihaldsrýr og
hefur á sáralitlu að keyra
nema sambandi Stallone
og Getty. Það virkar ekki
illa en reynist ekki nóg til
að halda uppi heilli bíó-
mynd. Og það er kominn
tími fyrir Stallone að snúa
sér að alvarlegum harð-
hausamyndum aftur.
Leiktæki við skólana
íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur hefur útbúið
leiktæki, sem börn í Reykja-
vík geta notfært sér endur-
gjaldslaust. Einnig er förð-
unarverkstæði á staðnum,
fyrir þá sem vilja láta mála
sig. Verkstjóri og unglingar
úr Vinnuskólanum stjóma
þessu starfi. Það sem eftir
er júlímánaðar verða leik-
tækin við Hólabrekkuskóla
þann 16. og 17., á Miklatúni
21. júlí, við Vogaskóla 22.
júlí og við Seljaskóla 27. og
28. júlí. Leiktækin verða á
þessum stöðum frá kl. 10.30
til 15 alla dagana. A mynd-
inni sjást nokkrir þáttakend-
ur einbeita sér við lukkuhjól-
ið.
■ HISPANO-AMERI-
CANA, félag spænsku-
mælandi á Islandi, heldur
Salsakvöld á Hótel Borg í
kvöld, fimmtudag, kl. 21-01.
Markmið félagsins er að
kynna menningu spænsku-
mælandi þjóða og á Hótel
Borg verður dansað salsa og
merengua.
BlÓHðUl
ÁLFABAKKA8, SÍMI 78 900
TOPPGRINMYND MEÐ TOPPFOLKI
TOPPMYND ÁRSINS
TVEIR Á TOPPINIUM 3
STÆRSTA MYND ARSINS ER KOMIN
TVEIR Á TOPPNUM 3
Toppgrínmyndin „MY COUSIN VINNY“ er komin, en hún er ein af
æðislegustu grínmyndum sem sést hafa. Það er Joe Pesci sem er
hér í algjöru banastuði eins og i „Lethal Weapon“-myndunum.
Myndin rusiaði inn 50 millj. dollurum í Bandaríkjunum og nú er
verið að frumsýna hana víðsvegar i Evrópu.
„MY COUSIH VINNY“ - ÆÐISGENGIN GRÍNMYND!
MAMBO KONGARNIR
ÓSÝNILEGI
MAÐURINN
ALLTLÁTIÐFLAKKA
★ ★★ A.I.MBL.
„LETHAL WEAPON 3“ er vinsælasta mynd ársins í Bandaríkjunum!
Fyndnasta, besta og mest spennandi „Lethal“-myndin til þessa.
Þeir Gibson, Glover og Joe Pesci er óborganlegir.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Joe Pesci og Rene Russo.
Framleiðandi: Joel Silver. Leikstjóri: Richard Donner.
Sýnd kl. 5,9 og 11.15 í sal A í THX.
Sýnd kl. 7 og 10.05 ísal B íTHX.
SJÁH) „LETHr í THX í 6UESILE6USTU BÍÓSÖLUM LAHDSIHS!
mtm
★ ★★MBL
Sýnd kl. 9.
Sýnd kl. S, 7,
9 og11.
Sýnd kl. 5 og 11.15.
MEL GfBSQftl . DAiyiMY GLOVER
MEL GIBSOIM Á DAIMIMY GLOVER
Aðalhlutverk: Joe Pesci, Ralph Macchio, Marisa Tomei, Fred Gwynne.
Framleiðandi: Dale Launer og Paul Schiff. Leikstjóri: Jonathan Lynn.
Sýnd kl. 4.50,6.55,9 og 11.10.
★ ★★ A.I.Mbl.
„LETHAL WEAPON 3“ er fyrsta myndin sem frumsýnd er í þremur
bíóum hérlendis.
„LETHAL WEAPON 3“: 3 sinnum meiri spenna, 3 sinnum meira grín.
Þú er ekki maður með mönnum nema að sjá þessa myndl
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Danny Glover, Joe Pesci og Rene Russo.
Framleiðandi: Joel Silver. Leikstjóri: Richard Donner.
Sýnd kl. 4.30,6.45,9 og 11.15. Bi.i4ára.
Sýnd kl. 11.
DDDD
Sýnd kl. 5,7 og 9,
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 78 900
GRANDCANYON
EINUSINNI
KRIMMI
ÁBLÁÞRÆÐI
BÍC)I9€K
SNORRABRAUT 37, SÍMI 11 384
HONDIN SEM
VÖGGUNNIRUGGAR
,á „ Ji.ii
I) HAND
THAfROCKS
"'LMDLE
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
STEFNUMOT VIÐ VENUS - sýnd kl. 6.45.