Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANUAR 1993
15
að skoða skattafrumvörpin og hinar
furðulegu tillögur heilbrigðisráð-
herrans og reyndar var ábyrgðar-
hluti að afgreiða þessi lög á örfáum
dögum. Hafi einhveijar tafir átt sér
stað eru þær á ábyrgð ríkisstjórnar-
innar.
Hér er nauðsynlegt að rifja upp
hvert hlutverk stjórnarandstöðu er
óháð tíma og rúmi. Samkvæmt
mínum skilningi felst það í því að
veita stjómvöldum aðhald, að láta
þau standa fyrir máli sínu, spyija
spurninga og gagnrýna. Stjórnar-
andstöðu ber einnig að reyna að
koma í veg fyrir að mistök séu
gerð. í öllum lýðræðisríkjum er
stjómarandstaðan mjög mikilvæg.
Það ber vott um veika stöðu og
vondan málstað þegar ríkisstjóm
kvartar og kveinar undan stjórnar-
andstöðunni, eða hellir sér yfir hana
með óhróðri, nema að þar sé á ferð
valdhroki þeirra sem finnst þeir
ekki þurfa að standa einum né nein-
um skil gerða sinna. Hvor þessara
tilgáta skyldi skýra skrif Mbl. og
ráðherrarausið? Kannski báðar?
Lítið í eigin barm
Það kann vel að vera að núver-
andi stjórnarandstaða sé hörð í
horn að taka, en það er þá ekki
nýtt í sögu íslenska þingsins. Væri
sjálfstæðismönnum hollt að rifja
upp nokkur augnablik frá stjómar-
andstöðudögum þess gamla flokks.
Árið 1930 sat við völd ríkisstjórn
Tryggva Þórhallssonar með þann
umdeilda Jónas frá Hriflu innan-
borðs. Jónas fór hrikalega í taug-
arnar á sjálfstæðismönnum sem
djöfluðust gegn honum, héldu uppi
frammíköllum og ólátum á þingi
og eltu Jónas landshomanna á milli
til að rífast við hann. Sjálfstæðis-
menn voru tilbúnir til að gera Jón-
asi allt til bölvunar og gengu svo
langt að sjálfur formaður Sjálfstæð-
isflokksins, Jón Þorláksson, ætlaði
að hleypa upp þingfundi á Alþingis-
hátíðinni á Þingvöllum með ákveð-
inni tillögu, bara til þess að klekkja
á Jónasi. Sú aðgerð var stöðvuð af
þáverandi forseta þingsins.
Þá er þess skemmst að minnast
að stjórnarandstaða sjálfstæðis-
manna 1988-1991 þótti einkar
harðdræg og málglöð. Hún hélt
margar maraþonræður m.a. til að
stöðva ný grunnskólalög og núver-
andi landbúnaðarráðherra ræddi
þingsköp í tíma og ótíma, svo títt
að sagt er að enginn komist í hálf-
kvist við hann í núverandi stjórnar-
andstöðu. Sjálfstæðismenn kasta
því steinum úr glerhúsi er þeir
gagnrýna stjómarandstöðuna fyrir
málæði og þingskaparumræður og
væri hollast að líta í eigin barm
áður en þeir sleppa sér lausum í
fjölmiðlum landsins.
Það er svo annað mál að vel má
breyta þeim vinnubrögðum sem
tíðkast hafa áratugum saman á
Alþingi þannig að vinnutími og
vinnureglur verði með skaplegum
hætti og tillit tekið til þess að þing-
menn eiga fjölskyldur eins og annað
íslensk gjöf
til Lettlands
FYRIR skömmu var haldinn fund-
ur á vegum Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar í Kaup-
mannahöfn og heilbrigðisyfir-
valda í balknesku löndunum í Riga
í Lettlandi. Landlæknir var boðið
á fundinn ásamt nokkrum aðilum
frá Norður-Evrópu, segir í frétt
frá Landlækni. A fundinum var
rætt um aðstoð við balknesku rík-
in á sviði bólusetninga og farsótta.
Á fundinum færði landlæknir heil-
brigðisyfirvöldum í Lettlandi 5.000
dollara að gjöf frá heilbrigðisráð-
heira og Landlæknisembættinu til
kaupa á bóluefni. Jafnframt var rætt
við fulltrúa Norðmanna um áfram-
haldandi stuðning við Lettlendinga.
Undirtektir voru góðar og hafa
Norðmenn samþykkt að taka þátt í
verkefninu. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin hefur tekið málið upp við
World Bank sem hafa sýnt málinu
mikinn áhuga. Boðað hefur verið til
fundar á Skrifstofu Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar í Kaupmanna-
höfn í janúar.
fólk. Langar og ómarkvissar um-
ræður verða til þess eins að draga
alla snerpu úr pólitíkinni en breyt-
ingar munu ekki ná fram að ganga
nema um þær sé samstaða og jafn-
framt að ríkisstjórnin bæti vinnu-
brögð sín með betri undirbúningi
og langtímaáætlunum.
Af frium þingmanna
Morgunblaðinu finnst þingmenn
ekki of góðir til að vinna milli jóla
og nýárs og að allt tal um jólafrí
og margra mánaða sumarhlé sé
úrelt og út í hött. Hér gætir mikils
ókunnugleika. Þingmenn eru kjöm-
ir fulltrúar fólksins í landinu og
þeim ber skylda til að hafa sam-
band við kjósendur sína og að gefa
landsmönnum færi á að hitta sig.
Til þess þarf tíma sem ekki gefst
meðan þing starfar. Bæði stjórnvöld
og þingmenn þurfa frið til að und-
irbúa mál sem þeir hyggjast leggja
fyrir þing. Þá er þess að gæta að
a.m.k. 23 þingmenn eru búsettir
úti á landi og þeir eiga að sjálf-
sögðu rétt á að komast heim þó
ekki væri nema yfir jól og áramót.
Þó mætti hugsa sér að halda þing-
fundi milli jóla og nýárs væri þess
sérstök þörf ef vinnutími í desem-
ber væri að öðru leyti viðunandi.
Stjórnarflokkamir kusu nú að halda
þingmönnum á fundum fram á
rauða nótt, margar nætur í röð og
hefur slíkt aldrei tíðkast fyrr að því
er eldri og reyndari þingmenn segja.
Að morgni var svo ætlast til þess
að þingmenn mættu á nefndarfundi
kl. 8.15 eftir örfárra tíma hvíld. Það
gefur augaleið að vinnubrögð af
þessu tagi kunna ekki góðri lukku
að stýra og varla von á vel unnum
lagabálkum eða blíðlyndri stjómar-
andstöðu þegar þannig er staðið að
verki. Vinnubrögð af þessi tagi tíðk-
ast hvergí á byggðu bóli og myndi
ekkert verkalýðsfélag líða slíka
framkomu við félagsmenn sína.
Falli sá dómur sem fyrst
f
Að lokum vil ég vara Morgun-
blaðið við miklum samanburði við
hið forna Alþingi ef meiningin er
að höfða til þjóðarstolts þingmanna
og virðingar þeirra fyrir fomum
dyggðum, en þannig túlka ég niður-
lag leiðarans margumrædda. Það
er nokkuð langsótt að fá þingmenn
stjórnarandstöðunnar til að slíðra
sín núverandi vopn, hið talaða orð,
með tilvísun til Gissurar og Geirs,
Gunnars, Héðins og Njáls. Alþing
hið forna var allt annars konar
stofnun en þjóðþing okkar er nú
þótt margt sé líkt með skyldum.
Eins og textinn úr Þorgils sögu og
Hafliða hér að framan ber með sér
gekk á ýmsu á Þingvöllum. Þar á
völlunum var deilt harkalega, menn
særðir, vegnir og valdabarátta háð.
Alltaf voru þó margir menn sem
leituðu sátta og vildu ólögum eyða.
Hætt er við að virðing hins forna
þings hafi ekki alltaf risið hátt
meðan ribbaldar óðu þar uppi.
Virðing Alþingis stendur og fell-
ur með því fólki sem þar situr og
því hve málefnalega og vel er unn-
ið og stjórnað. Þar reynir bæði á
stjórn og stjómarandsstöðu og að
menn kunni sér hóf í yfirlýsingum
og yfirgangi. Sjaldan veldur einn
þá tveir deila, en svo mikið get ég
sagt Morgunblaðinu að stjórnar-
háttum eins og þeim sem ráðherrar
núverandi ríkisstjórnar iðka sumir
hveijir verður ekki tekið þegjandi
hér eftir fremur en hingað til. Ráð-
stöfunum og áframhaldandi niður-
rifsstarfsemi í fijálshyggjustíl sem
ógna því velferðarþjóðfélagi sem
tekið hefur áratugi að byggja upp
verður varist áfram af hörku. Það
væri slöpp stjórnarandstaða sem
ekkj veitti stjórn á við þá sem hér
situr kröftuga mótspyrnu.
Hafliði Másson fékk miklar
skaðabætur fyrir þann áverka sem
Þorgils veitti honum á þingi, en það
er mín trú að þjóðin mun launa þau
högg sem ríkisstjórnin hefur veitt
henni með löngum útlegðardómi.
Megi sá dómur falla sem fyrst.
Höfundur er þingmaður
Kvennalistans í Reykjavík.
V»y*vv,v,v.v. || i \m \ m
jV,;,v,v,vYw L \ \ .IHY
A M B R-A
ÞAR SEM VERÐ OG GÆDI
FARA EKKI SAMAIU
Þú færð mun meira en þú borgar fyrir þegar þú kaupir AMBRA tölvur, því þær
eru vandaðri og öflugri en verðið gefur til kynna.
Það er því engin furða hvað AMBRA hefur verið gríðarlega vel tekið, bæði af
fyrirtækjum og einstaklingum. Komdu í Nýherja og kynntu þér hvað þú færð
stórkostleg gæði fyrir skemmtilega lágt verð.
LOKSINS FÆRÐU TÖLVU ÞAR SEM VERÐ OG GÆÐI FARA EKKI SAMAN
Tegund Örgjörfi Tiftiðni Minni Diskur Skjár Tengi- raufar Stgr. verð
AMBRA Sprinta 386SX 25MH2 4MB (16MB) 85MB 14“SVGA 3 98.000 <
AMBRA Hurdla 386SX 25MHz 4MB (16MB) 170MB 14" SVGA 6 131.000
AMBRA Sprinta 486SX 25MHz 4MB (32MB) 107MB 14" SVGA 3 138.000 O u.
AMBRA Sprinta 486SX 25MHz 4MB (32MB) 212MB 14” SVGA 3 157.000 ►-
AMBRA Sprinta 486DX 33MHz 4MB (32MB) 107MB 14" SVGA 3 166.000 o o
AMBRA Hurdla 486DX 33MHz 4MB (32MB) 107MB 14" SVGA 6 173.000
AMBRA Hurdla 486DX 50MHz 4MB (32MB) 107MB 14"SVGA 6 199.000
■X
(D
A M B R, tA
Raðgroiðslur GREIÐSLUSAMNINGAR
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 • SlMI 69 77 00 & 69 77 77
AlltnJ’ skrefi á undan