Morgunblaðið - 05.01.1993, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993
UNDIRRITUN START II AFVOPNUNARSATTMALANS
Borís Jeltsín og George Bush á blaðamannafundi í Moskvu
„VonarsamingTjrinn“ gott
veganesti fyrir 21. öldina
Bush og Jeltsín lyfta kampavínsglösum til að fagna undirritun START II samkomulagsins.
Dregist hefur að ljúka afgreiðslu START I
Ukraínuforseti býst við
staðfestingu þingsins
Kievi Reuter.
LEONÍD Kravtsjúk, forseti Úkraínu, svaraði á sunnudag gagnrýni
erlendis frá þess efnis að Úkraínumenn stæðu afvopnun fyrir þrifum.
Hann kvaðst trúa því að þing landsins myndi fjalla jákvætt um START
I sáttmálann. Samningurinn kemur líklega til kasta þess í næsta mán-
uði en stjórnvöld höfðu heitið samþykkt hans fyrir árslok 1992.
Moskvu. Reuter. The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR Rússlands og
Bandaríkjanna sem undirrituðu
sögulegt afvopnunarsamkomu-
lag á sunnudag tengdu þennan
viðburð breyttum tímum og von-
um um áhyggjulausara líf mann-
kyns á næstu öld er þeir komu
saman fram á blaðamannafundi
i Moskvu. Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti sagði að þessi „Von-
arsamningur" væri gott vega-
nesti mannkyns fyrir 21. öldina.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði að nú stæðu menn í for-
dyri nýrra vonartíma.
„Siðferðileg þýðing þessa samn-
ings felst í þeirri staðreynd að okk-
ur verður kleift að afhenda börnum
okkar, bömum 21. aldarinnar, ör-
uggari heim,“ sagði Jeltsín á blaða-
mannafundinum í Kreml. „Ég
myndi vilja kalla þennan samning
Vonarsamninginn," sagði hann.
Jeltsín sagði að samningurinn tæki
öllum öðmm afvopnunarsamning-
um fram. Hann viðurkenndi að
harðlínumenn á rússneska þinginu
myndu reyna að koma í veg fyrir
staðfestingu sáttmálans. „Þeir em
á móti því að nokkuð jákvætt ger-
ist í Rússlandi, en sem betur fer
eru þeir ekki i meirihluta." Andrej
Kozyrev utanríkisráðherra Rúss-
lands var ekki alveg jafn bjartsýnn
er hann kom fram í bandarísku
sjónvarpi á sunnudag. Hann sagði
að það yrði engan veginn auðvelt
að koma START II í gegnum rússn-
eska þingið en þó væri hann fremur
bjartsýnn.
Það var Bush mikil kappsmál að
ljúka samningsgerðinni áður en
hann léti af embætti 20. janúar
næstkomandi. Hefur hann sagt að
það muni taka eftirmann sinn, Bill
Clinton, nokkum tíma að komast
inn í afvopnunarmálin. „[Samning-
urinn] leiðir til þess að foreldrar
og böm þeirra geta horft mun ótta-
lausari til framtíðarinnar," sagði
Bush á blaðamannafundinum.
Hann minntist þess að áratugum
saman hefðu risaveldin staðið and-
spænis hvort öðra, grá fyrir jámum.
Þá virtist hættan á kjarnorkustríði
„yfirvofandi og á stundum óumflýj-
anleg“. En nú stæðu leiðtogamir
saman „í þessari miklu borg í for-
dyri nýrra vonartíma.“
Bush beindi orðum sínum til þjóð-
ernissinna í Rúislandi sem telja að
með samningnum gefi Rússar of
mikið eftir gagnvart Vesturlöndum.
Sagði hann að jafnvægi ríkti í
samningnum og að sagan myndi
dæma samninginn í þeim anda.
í yfirlýsingu frá forsetanum sem
utanríkisráðuneyti Úkraínu sendi frá
sér er START II fagnað. Sáttmálinn
uppfylli þarfir alls mannkyns. Um
afstöðu Úkraínu til afvopnunarmála
segir í yfirlýsingunni: „Úkraína fetar
brautina í átt til markmiðsins sem
sett hefur verið um að verða kjarn-
orkuvopnalaust ríki og ég hef trú á
því að þingið muni fjalla jákvætt um
START I sáttmálann. Þar með verð-
ur Úkraína eitt af fyrstu ríkjunum
sem tekur það sögulega skref að
útrýma kjarnorkuvopnum af jörð-
unni.“ Framkvæmd START II er
því háð að START I verði staðfest.
I síðarnefnda samkomulaginu er
gert ráð fyrir að 176 langdrægar
kjarnaflaugar í Úkraínu verði fluttar
til Rússlands. Ennfremur er til þess
ætlast að Úkraína skrifi undir sátt-
mála um takmörkun við útbreiðslu
kjarnavopna og staðfesti þannig að
ríkið hyggist ekki eiga kjarnorku-
vopn. Andrej Kozyrev utanríkisráð-
herra Rússlands sagði í sjónvarps-
þætti bandarísku sjónvarpsstöðvar-
innar NBC á sunnudag að það væri
hagur Úkraínumanna að ljúka af-
greiðslu START I sem fyrst. „Það
vinnst ekkert með því að leika sér
að kjarnorkumálunum," sagði hann.
Frammámenn á þingi Úkraínu
segja að ekki verði hægt að ræða
START I fyrr en í fyrsta lagi í febr-
úar. Dmytro Pavlytsjko, formaður
þeirrar þingnefndar sem fjallar um
samninginn, segir að Úkraína ætti
að krefjast skriflegar tryggingar frá
Vesturlöndum í skiptum fyrir stað-
festingu START I. „Úkraína ætlar
að afsala sér kjarnorkuvopnum en
við viljum ekki að kjamorkuvopnum
eða hefðbundnum vopnum verði
beitt gegn okkur,“ sagði hann í sam-
tali við Reuíers-fréttastofuna. „Við
þurfum afdráttarlausan langtíma-
samning en ekki bara yfirlýsingu
sem ekki er beint til neins sérstaks
viðtakanda.“
Kravtsjúk og fleiri leiðtogar Úkra-
ínu hafa farið fram á fjárstuðning
útlanda til að hreinsa til eftir að
kjarnorkuvopnin eru komin til Rúss-
lands. Bandaríkjastjóm hefur boðið
175 milljónir dala í þessu skyni en
margir úkraínskir stjórnmálamenn
hafa sagt að það sé of lág upphæð.
Stanislav Shushkevitsj, forseti
Hvítarússlands, fagnaði START II
samkomulaginu í gær og sagði að
því fyrr sem kjarnorkuvopn hyrfu
af hvítrússneskri grundu því betra.
Þing Hvítarússlands á enn eftir að
staðfesta START I en öfugt við
Úkraínu er enginn ágreiningur þar
í landi um hvaða skilyrði eigi að
setja , fyrir að afhenda Rússum
kjarnavopnin.
FÆKKUN KJARNAVOPNA SKV. START II
Kjarnaoddar i langdrægum kjarnavopnum*
10.271 10.815 10.053
Ék 855
Heildar-
fjöldi: 10.875
Kjarnaoddar um borð
í sprengjuflugvélum
Kjarnaoddar í
kafbátaflaugum
Kjarnaoddar í
landflaugum
2.968
820
3.500
1.272
m
É1.728Í
^500? 7“* 500
1. september 1990 | 1.júnf1992 | 1.|anúar2003
Bandaríkin Rússland Bandaríkin Rússland Bandaríkin Rússland
‘Samkvæmt þeim reglum um talningu sem START kveður á um REUTER
START II í hnotskurn
Fækkun kjarnaodda
um 2/3 á tíu árum
Moskvu. Reuter.
AFVOPNUNARSÁTTMÁLI Rússlands og Bandaríkjanna sem undir-
ritaður var í Moskvu á sunnudag, START II eins og hann er nefnd-
ur, felur í sér að kjarnaoddum risaveldanna verður fækkað um tvo
þriðju á tíu árúm. Hér á eftir fara meginatriöi sáttmálans eins og
honum var lýst í fréttatilkynningu rússneska utanríkisráðuneytisins.
0 Samningurinn verður fram- ( Langdrægar fjölodda kjarna-
kvæmdur í tveimur þrepum fram flaugar verða upprættar með öllu.
til ársins 2003. Fyrra stigið á að | Hvort ríki mun fækka kjarna-
nást á sjö árum. oddum í kafbátaflaugum í 1.700-
| 1. janúar 2003 á fjöldi kjarna- 1.750.
odda í langdrægum kjarnavopnum ( Þak verður sett á fjölda kjarna--
að vera 3.000-3.500. Kjarnaoddum odda sem sprengjuflugvélar geta
mun fækka um 15.000 því þeir eru borið, 750-1.250 kjarnaoddar í
21.000 nú samanlagt. hverri tegund flugvéla.
Lands-
bergis
dregur sig
íhlé
VYTAUTAS Landsbergis, leið-
togi Sajudis-hreyfíngarinnar í
Litháen, tilkynnti á sunnudag
að hann yrði
ekki í fram-
boði í forseta-
kosningunum
14. febrúar og
hvatti aðra
frambjóðend-
ur til að víkja
fyrir einhverj-
um sem gæti
sameinað þjóðina. Landsbergis
hvatti kjósendur til að styðja
Stasys Lozoraitis, sendiherra
Litháens í Bandaríkjunum.
Lozoraitis ólst upp í Bandaríkj-
unum en var litháískur ríkis-
borgari þegar Litháen heyrði
undir Sovétríkin. Hann olli
nokkra uppnámi í fyrra þegar
hann lét svo um mælt að rússn-
eska borgin Kalíníngrad gæti
orðið hluti af Litháen.
Agreiningur
enn um GATT
FORSETUM Bandaríkjanna
og Frakklands, George Bush
og Francois Mitterrand, tókst
ekki að setja niður ágreining
ríkjanna vegna landbúnaðar-
kafla GATT-samkomulagsins
á fundi sínum í París á sunnu-
dag. „Það hafa verið deildar
meiningar í þessum efnum eins
og allir vita. Við útkljáðum
ekki þann ágreining," sagði
Bush á sameiginlegum fundi
forsetanna og Mitterrand bætti
við: „Við ræddum málið. Það
er ekki hægt að segja að neitt
hafi miðað áfram."
Lögreglumað-
ur myrtur í
ísrael
ARABAR myrtu óeinkennis-
klæddan liðsmann ísraelsku
öryggislögreglunnar er hann
var að störfum í fjölbýlishúsi
í vesturhluta Jerúsalem á
sunnudag. Þetta er í fyrsta sinn
í að minnsta kosti tíu ár sem
liðsmaður ísraelsku öryggis-
lögreglunnar er drepinn við
skyldustörf. Maðurinn var
stunginn með hnífi og laminn
með hamri á hrottalegan hátt
um allan líkamann. Hann var
að bíða eftir arabískum heim-
ildarmanni þegar tveir arabar
réðust á hann.
Sihanouk slít-
ur samstarfi
NORODOM Sihanouk prins,
leiðtogi Kambódíu, sleit á
mánudag samstarfi við örygg-
issveitir Sameinuðu þjóðanna
og stjórnina í Phnom Pehn.
Sihanouk, sem dvelst í Peking,
sagði ástæðuna þá að starfs-
menn SÞ hefðu ekki komið í
veg fyrir ofbeldi gegn stuðn-
ingsmönnum sínum. I bréfi til
Yasushis Akashis, yfirmanns
bráðabirgðastjórnar SÞ, segir
Sihanouk að andstæðingar sín-
ir hafi ítrekað brotið sáttmála
þann er undirritaður var í Par-
ís haustið 1991. Hann minnist
þó ekki á Rauðu khmerana,
fyrrum stuðningsmenn Sihano-
uks, sem eru almennt álitnir
eiga mesta sök á óöldinni í
landinu. Um 22.000 hermenn
og óbreyttir borgarar taka þátt
í verkefni Sameinuðu þjóðanna
í Kambódíu sem er hið stærsta
í sögu samtakanna.
Landsbergis