Morgunblaðið - 06.05.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
ATVINNUA UGL YSINGAR
Sölumaður
Sölumaður óskast strax. Aðallega matvara.
Umsækjendur fylli út atvinnuumsókn í skrif-
stofu okkar.
John Lindsey,
Skipholti 33.
Vallarstjóri
Vallarráð Fimleikafélags Hafnarfjarðar óskar
að ráða vallarstjóra. Um er að ræða stjórnun-
ar- og umsjónarstarf.
Starfssvið vallarstjóra er umsjón með rekstri
og viðhaldi keppnis- og æfingasvæða félags-
ins, ásamt annarri umsýslu fyrir vallarráð FH.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um fyrri
störf, skal skilað í afgreiðslu íþróttahússins
í Kaplakrika fyrir 12. maí 1993.
Vallarráð FH.
Afgreiðslufulltrúi
Starf afgreiðslufulltrúa hjá Skattstjóranum í
Reykjavík er laust til umsóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun,
fyrri störf, meðmælendur og annað sem
umsækjandi vill taka fram, þurfa að berast
fyrir 11. maí nk.
Sveinbjörn Strandberg, starfsmannastjóri,
veitir nánari upplýsingar um starfið og tekur
á móti umsóknum.
5. maí 1993.
Skattstjórinn íReykjavík,
Tryggvagötu 19,
sími 603600.
Bókhald
- launauppgjör
Einkafyrirtæki í miðbæ Reykjavíkur leitar að
vönum starfskrafti við bókhald, launauppgjör
og alhliða skrifstofustörf. Góð bókhaldskunn-
átta nauðsynleg. Þarf að geta byrjað strax.
Framtíðarstarf.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 14. maí, merktar: „Bókhald".
Laust starf
atvinnuráðgjafa
Héraðsnefnd Snæfellinga óskar að ráða í
fullt starf atvinnuráðgjafa til eins árs.
Um er að ræða nýtt starf.
Skilyrði er að viðkomandi búi eða flytji á
starfssvæðið sem er Snæfellsnes, æskileg
búseta í Grundarfirði.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Hilmar
Sverrisson, bæjarstjóri í Stykkishólmi,
í síma 93-81136.
Umsóknarfrestur er til 17. maí 1993.
Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu
Stykkishólmsbæjar, Skólastíg 11,340 Stykk-
ishólmi, merktar: „Atvinnuráðgjafi
Snæfellsness."
Héraðsnefnd Snæfellinga.
A UGL YSINGAR
Samstarfstilboð
til einkaskóla, íþróttafélaga og
annarra áhugamannafélaga
Skólamálaráð Reykjavíkur auglýsir eftir aðil-
um, er starfa á sviði fræðslu, íþrótta og lista
fyrir 6-15 ára börn, sem áhuga hafa á auknu
samstarfi við grunnskóla Reykjavíkur.
Til greina kemur að bjóða aðstöðu í grunn-
skólum borgarinnar.
Starfsemi þessi fari fram á tímabilinu jan.-
maí og sept.-des. frá kl 8-17.
Aðilar, sem óska eftir slíku samstarfi, hafi sam-
band við Skólaskrifstofu Reykjavíkur, kennslu-
máladeild, í síma 28544 fyrir 15. maí nk.
Orlofshús
F.S.V.
Félag starfsfólks í veitingahúsum auglýsir
laus til umsóknar orlofshús sín í Svigna-
skarði, Húsafelli og á Akureyri.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn
14. maí 1993. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu félagsins, Ingólfsstræti 5,
5. hæð.
/rx
w. w.?>
Orlofshús F.H.H.S.
Félag hárgreiðslu- og hárskerasveina auglýs-
ir laus til umsóknar orlofshús sín í Svigna-
skarði og á Akureyri.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn
14. maí 1993. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofu félagsins, Ingólfsstræti 5,
5. hæð.
Lions - Lionessur og Leó
Síðasti samfundur vetrarins verður hald-
inn föstudaginn 7. maí í Lionsheimilinu, Sig-
túni 9. Fundur hefst kl. 18.30.
Matur. Fjölbreytt dagskrá. Tökum maka
með. Fjölmennum.
Fjöiumdæmisráð.
Aðalfundur
Hraðfrystihúss Hellissands hf. verður haldinn
á skrifstofu félagsins fimmtudaginn 13. maí
nk. kl. 16.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Þroskaþjálfar
- aðalfundur
Aðalfundi Félags þroskaþjálfa, sem halda
átti í Munaðarnesi 8. maí, verður frestað til
föstudagsins 28. maí nk. Fundurinn verður
haldinn í Reykjavík á Grettisgötu 89, 4. hæð,
kl. 17.00.
Stjórnin.
Er landgrunnið blómagarður?
Eru krókar vistræn veiðarfæri?
Á að banna troll og dragnót?
Fiskifélag íslands auglýsir fund um um-
hverfisáhrif veiðarfæra. Fundurinn verður
haldinn laugardagin 8. maí 1993 kl. 14.00
í húsi Fiskifélagsins Höfn v/lngólfsstræti.
Einar Hreinsson, sjávarútvegsfræðingur, og
Sveinbjörn Jónsson, sjómaður, verða frum-
mælendur.
Allir áhugamenn um sjávarútvegsmál eru
hvattir til að mæta.
Fiskifélag íslands.
KAUPMANNASAMTOK
ÍSLANDS
Aðalfundur
Kaupmannasamtaka íslands
Aðalfundur Kaupmannasamtaka íslands
verður haldinn í dag, fimmtudaginn 6. maí,
á Hótel Holiday Inn og hefst kl. 10.00 f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Lagabreytingar.
Stjórnin.
Ármannsfell m.
Aðalfundur
Aðalfundur Ármannsfells hf. verður haldinn
föstudaginn 21. maí nk. kl. 16.00.
Fundurinn fer fram á skrifstofu félagsins á
Funahöfða 19, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál, löglega fram borin
Stjórn Ármannsfells hf.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Óskum eftir að taka á leigu um 100 fm skrif-
stofuhúsnæði.
Upplýsingum óskast skilað til auglýsinga-
deildar Mbl., merktum: „S - 10499".
Laugavegur - miðsvæðis
Verslunar- og þjónustubygging
Til leigu er 125 fm verslunareining.
í húsinu éru verslanir, kaffitería, líkamsrækt,
læknastofur o.fl. Sanngjörn leiga.
Upplýsingar í síma 682640 á skrifstofutíma.