Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993
Kínverskt sumar er
gengib í garb í Sjanghæ,
þar sem fjöldi girnilegra
rétta blómstrar ó
sumarmatseblinum.
Sumartiibob
Sjanghæ: ^
Moitai kokteill
Forréttur:
Chai-Tang grænmetissúpa meb
þrennskonar kjöti
Fabu veisluna heim!
Abalréttir:
Djúpsteiktur humar sumarsins
Szechuan súrsætt svínakjöt
Ma Lak lambakjöt
Swanton kjúklingur
Eftirréttir:
Við bjóðum þér matsefl
Sjanghæ, eða útbúum
hótíðarmatseðil fyrir þig.
Við sendum þér veisluna
heimefþúvilt.
Tilvalið fyrir fyrirtæki, hópa
og aftnælisveislur.
Lónum einnig hitaplötur,
skólar og önnur mataróhöld,
ef óskab er.
Pisang Goreng djúpsteiktir
bananar og ís
Kokteill, forréttur,4 réttir og
eftirréttur aðeins 1.390 d mann
45. Iðnþing Islendinga
Iðnaður gegn
atvinnuleysi
LANDSSAMBAND iðnaðar-
manna eru samtök atvinnurek-
enda í iðnaði. Innan vébanda
þeirra eru um 3.200 félagar, allt
frá einyrkjum upp í nálega 200
manna fyrirtæki. Æðsta stofnun
LI er Iðnþing íslendinga sem
haldið er á tveggja ára fresti.
Kjörorð þingsins er að þessu
sinni Iðnaður gegn atvinnuleysi.
A þinginu ræðst niðurstaða við-
ræðna sem átt hafa sér stað að
undanförnu um sameiningu sam-
taka iðnaðarins.
A iðnþinginu, sem haldið verður
föstudag 21. og laugardag 22.
maí, verður tekist á um mikilvæg-
ari mál en oft áður, bæði þau sem
lúta að innra skipulagi LI sem og
afstöðu til ytri breytinga í málefn-
um íslensks iðnaðar.
Síðastliðið ár hafa staðið yfir við-
ræður milli Landssambands iðnað-
armanna, Félags íslenskra iðnrek-
enda og Verktakasambands íslands
um sameiningu þessara samtaka í
ein heildarsamtök. Öll samtökin,
utan Landssambands iðnaðar-
manna hafa nú þegar samþykkt
slíka sameiningu. Sameiningarmál-
in verða til umræðu á þessu þingi
og endanleg afstaða til þeirra tekin
þar.
Ný stefnuskrá Landssambands
iðnaðarmanna verður afgreidd á
þinginu og má segja að hér kveði
við nýjan tón í mörgum málum,
ekki síst vegna margháttaðra breyt-
inga á alþjóðlegum vinnumarkaði.
Stefnuskráin tekur jafnt til efna-
hagsmála, atvinnumála, utanríkis-
viðskipta, menntamála og þróunar-
og tæknimála.
í formlegri setningarathöfn
þingsins sem hefst kl. 11 flytja
Haraldur Sumarliðason, forseti LI,
og Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
Haraldur Sumarliða- Jón Sigurðsson,
son, forseti LI. iðnaðarráðherra.
herra, ræður. Síðar um daginn
munu eftirtaldir fj'alla um kjörorð
þingsins: Þröstur Olafsson, aðstoð-
armaður utanríkisráðherra, ræðir
„Forsendur iðnþróunar í sjávarút-
vegssamfélagi“; Sveinbjörn Björns-
son, háskólarektor, flytur erindið
„Menntun og atvinna“ og erindi
Þorkels Sigurlaugssonar, fram-
kvæmdastjóra, nefnist „Sóknar-
stefna í atvinnumálum". Seinni
daginn fara fram almenn þingstörf
og kosningar.
Rúmlega 300 fulltrúar og gestir
munu sitja þetta Iðnþing íslendinga
og eru margir þeirra komnir um
langan veg, bæði utan af landi og
frá systursamtökum Landssam-
bands iðnaðarmanna erlendis.
(Fréttatilkynning)
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
ííflSÍÍfÉílp:
7 f? *'!
, IjS
Sýnendur á fyrstu ræstingasýningu á íslandi
Dynjandi sf. Sápugerðin Frigg hf/Besta
Rcestivörur Tandur sf.
Ide kemi íslenska umboðssalan hf.
Fönn Veitir hf.
Magnús Kjaran hf. Flreinn hf.
Blindravinnustofan Rafver hf.
íslenska verslunarfélagið hf. Rekstrarvörur
Karl K. Karlsson hf. Securitas hf.
Kristján Ó. Skagfjörð hf. Umhverfisráðuneytið
SYNINC A MOTEL L.OFTLEIÐUM
2 7. - 23. MAI
SYNINGIN ER OPIN:
Föstudaginn 21, maí kl. 14:0Q-i’. T
Laugardaginn 22. maí /</. 10:00-18/30^
Sunnudag 23. maí kl. 10:00-i 8:0^ \