Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993
Minning
Karl Guðmunds-
son frá Reykholti
Fæddur 4. maí 1903
Dáinn 10. maí 1993
Þeir sóttu svo fast sjóinn að í
minnum er haft, sagði einn gaml-
inginn þegar honum blöskraði
„glannaskapur" strákanna sem
reru dag eftir dag í suðursjóinn í
austanrumbu, en rótfískuðu! „Og
enn róa strákarnir. Það er mikið
að þeir skuli ekki vera búnir að
margdrepa sig.“ Þetta var sagt um
Karl Guðmundsson fímmtán ára og
félaga hans og jafnaldra er þeir
hófu sjómennsku sína á árabát.
Félagarnir voru Benóný Friðriks-
son (Binni í Gröf), Karl Guðmunds-
son þá kenndur við Goðaland, Þor-
geir Jóelsson á Sælundi og Magnús
Isleifsson í Nýjahúsi.
Lífsbaráttan var hörð í byrjun
þessarar aldar og segja má með
sanni að þeir hæfustu hafí komist
til þroska og manns. Ofangreind
ummæli voru höfð um „strákana"
1918 og þeir létu víða til sín taka
eftir það og voru m.a. flestir þátt-
takendur í því að stofna knatt-
spyrnufélagið Tý.
Nú eru þeir félagar allir horfnir
yfír móðuna miklu. Aðeins einn af
stofnendum Týs er nú á lífí, en það
er Gísli Fr. Johnsen. Sá grunnur
'hem lagður var 1921 var vel gerður
og í dag telst knattspyrnufélagið
Týr öflugt íþróttafélag á landsvísu.
Það er því margs að minnast þegar
forvígismaður er kvaddur, en þó
fyrst og fremst að þakka, þakka
áræði þeirra og þor sem einkenndi
þá til allra verka í harðri lífsbaráttu.
Karl Schiöth Guðmundsson
fæddist í Reykjavík 4. maí 1903.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Magnússon, trésmiður og bæjarfull-
trúi frá Amarhóli í Vestur-Landeyj-
um og kona hans Helga Jónsdóttir.
Ungur flyst hann með foreldrum
sínum til Vestmannaeyja og bjuggu
þau á Goðalandi. Hann byijaði
snemma að stunda sjómennsku eins
og fyrr er frá greint og varð formað-
ur á mótorbáti. Hann þótti dijúgur
aflamaður og farsæll formaður.
Hann var skipstjóri í 16 ár. Hætti
hann sjómennsku 1943, en það var
langt frá því að hann hætti afskipt-
um af útgerð og sjómennsku, því
1934 var hann orðinn meðeigandi
í m/b Ver ásamt Jóni bróður sínum
og mági, Björgvin Jónssyni frá
Garðstöðum.
1. nóvember 1957 verður Karl
trúnaðarmaður Báttaábyrgðafélags
Vestmannaeyja og gegnir því starfí
til 1973 ásamt því að taka saman
aflaskýrslur í Vestmannaeyjum fyr-
ir Fiskifélag íslands. 1974 veitti
Sjómannadagsráð Vestmannaeyja
Karli heiðursskjal fyrir gifturíkt
starf í þágu sjómannastéttarinnar
og byggðarlagsins.
Karl fluttist til Reykjavíkur 1973
ásamt eiginkonu sinni, Unni Jóns-
dóttur, en heimili þeirra stóð lengst
í Reykholti við Urðarveg. Þeim varð
þriggja barna auðið, eru þau Jón
(fæddur 12. ágúst 1934), Guð-
mundur (fæddur 9. júní 1936) og
Karl Ellert (fæddur 5. desember
1944).
Karl er heiðursfélagi Týs og hef-
ur stutt dyggilega við bakið á félag-
inu í gegnum árin. Það er hveiju
félagi lífsnauðsyn að hafa sér til
stuðnings flokk ósérhlífinna og
dugmikilla karla og kvenna sem
leita má til í blíðu og stríðu. Karl
fyllti þann flokk. Hann hafði sig
sjaldan í frammi en var traustur
þegar á reyndi. Knattspyrnufélagið
Týr vill með þessum fáu orðum
þakka fyrir það brautryðjendastarf
sem hann vann og ódrepandi dugn-
að hans við það að gera félagið að
því sem það er í dag.
F.h. knattspyrnufélagsins Týs,
Ólafur Týr, formaður.
-----♦ ♦ ♦-----
Opið hús í
Verzlunar-
skólanum
OPIÐ hús verður í Verzlunar-
skóla Islands laugardaginn 22.
maí nk. kl. 14-17. Nýútskrifuð-
um grunnskólanemum og að-
standendum þeirra gefst þá kost-
ur á að skoða húsakynni skólans
og ræða við kennara og nemend-
ur um skólalífið.
Kennarar verða til viðtals við
væntanlega umsækjendur og for-
eldra þeirra og nemendur skólans
kynna félagslíf sitt og nám. Bóka-
safn skólans, sérkennslustofur og
íþróttahús verða til sýnis fyrir gesti
sem og tækja- og tölvubúnaður
skólans.
í nútíma þjóðfélagi byggir af-
koma fólks og fyrirtækja í öllum
atvinnugreinum í vaxandi mæli á
verslun og viðskiptum. Verslunar-
fræðsla er því mikilvægur þáttur í
menntun þjóðarinnar sem ástæða
er til að fólk kynni sér vel þegar
það hugar að uppbyggingu náms
fyrir ungt fólk við loka grunnskóla.
(Fréttatilkynning)
-----♦ » 4-----
Fyrirlest-
ur Gloriu
Karpinski
GLORIA Karpinski heldur fyrir-
lestur í sal Stjórnunarskólans
(niðri), Sogavegi 69, Reylgavík,
miðvikudaginn 26. maí um mátt
okkar til sköpunar og heilunar.
Hvernig breytingar í lífinu geta
aukið sjálfsvitun okkar og leitt
okkur til frekari þroska og
hvernig við getum notað guðs-
kraftinn hið innra.
Gloria Karpinski er leiðbeinandi
og heilari frá Bandaríkjunum. Frá
árinu 1976 hefur hún starfað sem
kennari og andlegur leiðbeinandi
víðsvegar um heim, m.a. í Banda-
ríkjunum, Sviss, Þýskalandi, Japan
og á íslandi.
Súní 631000
Símaþjónusta í læknahúsinu Domus Medica, Egilsgötu 3, er alla virka
daga frá kl. 8.00-19.00 í aðalskiptiborði. Sími 631000. Upplýsingar
um viðtalstíma og tímapantanir hjá einstökum læknum, tannlæknum
og öðrum, sem starfa í húsinu, eru í eftirtöldum símanúmerum:
Læknar Sérgrein Sími Kristján Sigurjónsson Röntgengreining 631015
Agúst N. Jónsson Kvensjúkdómar og fæðingahjálp 631061 Lárus Helgason Tauga- og geðlækningar 631067
Bjarni Hannesson Heila- og taugaskurðlækningar 631067 Matthías Kjeld Meinafræði og rannsóknir 631042
Björgvin A. Bjarnason Heimilislæknir 631045 Oddur Fjalldai Svæfingalæknir 631047
Björn Tryggvason Svæfingalæknir 631055 Ólafur Einarsson Lýtalæknir og alm. skurðlæknir 631047
Daníel Guðnason Háls-, nef- og eyrnalæknir 631013 Ólafur Ingibjörnsson Heimilislæknir 631054
Einar Oddsson Lyflækningar og meltingarsjúkdómar 631063 Rafn Ragnanson Lýtalæknir 631055
Elías Ólafsson Taugalæknir. Neurology. 631067 Rannsóknastofan Domus Medica
Esra Pétursson Sálgreining og geðlækningar 631058 - Meinafræði og rannsóknir 631042
Frosti Sigurjónsson Heimilislæknir 631053 Ríkarður Sigfússon Bæklunarlækningar 631052
Geir Ólafsson Þvagfæraskurðlækningar 631044 Rögnvaldur Þorleifsson Bæklunarlækningar 631063
Guðjón Guðnason Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp 631057 Röntgen Röntgenmyndataka og röntgengreining 631015
Guðjón Sigurbjörnsson Svæfingalæknir 631046 Sigmundur Magnússon Lyflækningar og blóðsjúkdómar 631033
Guðjón Vilbergsson Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp 631064 Sigurður Jónsson Heimilislæknir 631038
Guðmundur Elíasson Heimilislæknir 631037 Sigurður Þ. Guðmundss. Efnaskiptasjúkdómar 631057
Guðmundur Guðjónsson Beina- og liðskurðlækningar 631011 Snorri Jónsson Barnalæknir 631051
Guðmundur Steinsson Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp 631064 Stefán Helgason Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp 631066
Gunnar Valtýsson Lyflæknir. Innkirtla- Svanur Sveinsson Heimilislæknir 631044
og efnaskiptasjúkdómar 631063 Sveinn Rúnar Hauksson Heimilislæknir 620622 - 631036
Gunnlaugur Snædal Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp 631061 Sverrir Bergmann Neurology 631039
Halldór Baldursson Bæklunarlækningar 631033 Valur Júlíusson Heimilislæknir 631035
Halldór Jónsson jr. Bæklunar- og hryggjarskurðlæknir 631051 Þorgeir Jónsson Heimilislæknir 631014
Helgi Jónsson Gigtarlækningar 631057 Þórir Njálsson Lýtalæknir 631052
Helgi Valdimarsson Ónæmis- og oínæmissjúkdómar 631057 Þórir Ragnarsson Heila- og taugaskurðlæknir 631038
Hulda Sveinsson Barnalæknir 631051 Örn Smári Arnaldsson Röntgengreining 631015
Ingólfur Hjaltalín Barnalæknir 631052
Jóhann G. Þorbergsson Lyflækningar og gigtarsjúkdómar 631039 Tannlæknar Sérgrein Sími
Jón Guðgeirsson Húðsjúkdómar 631036 Margrét Rósa Grimsdóttir Barnatannlæknir 631031
Jón H. Alfreðsson Kvensjúkdómar og fæöingahjálp 631062 Ólafur Höskuldsson Barnatannlæknir 631031
Jón Hannesson Skurðlæknir 631066 Pétur H. Ólafsson Tannréttingar 14723
Jón J. Nielsson Skurðlæknir 631054 Þórður Eydal Magnússon Tannréttingar 14723
Jón K. Jóhannsson Skurðlæknir 631045
jón Þ. Hallgrimsson Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp 631062 Önnur starfsemi Sérgrein Sími
Jón Þorsteinsson Lyflækningar og gigtarsjúkdómar 631057 Hilmar Herbertsson Contact-sjóngler 631013
Karl Strand Tauga- og geðfræði 631034 Hjúkrunarþjóaustan Hjúkrunarþjónusta 631084
Knútur Björnsson Lýtalæknir 631046 Medihár ísland Hárisetning 631010
(Fréttatilkynning)