Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 44

Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGJJR: 20. MAÍ' 1903 44fc Bjarki Friðriks- son — Minning Fæddur 24. ágíist 1973 Dáinn 13. maí 1993 Bjarki, frændi okkar og dóttur- sonur, dó 13. þ.m. Okkur langar í nokkrum fátæklegum orðum að minnast hans þó að orð séu lítils megnug í þeirri sorg og söknuði sem fjölskylda hans og vinir standa nú frammi fyrir. Ósjálfrátt reynum við að finna tilgang með öllu sem ger- ist, sérstaklega þegar einhver er tekinn svo snögglega burtu frá okk- ur. Við viljum trúa því að kynni okkar af Bjarka og þessi sára reynsla sé til einhvers. Bjarki var eins og sólargeisli sem skein alltof stutt í lífi okkar. Við söknum þeirra stunda sem við áttum með þér en minningarnar lifa. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staðar og sjónhringar nýir sindra þér fýrir augum. (Hannes Pétursson) Afi og amma, Sigríður Bára, Kristín, Fanney, Jóhannes og fjölskyldur. Að kvöldi hins 13. maí lést ástkær vinur okkar Bjarki Friðriksson eftir mjög bráð veikindi. Þegar við frétt- um af þessum óvæntu og skyndilegu veikindum, óraði engan fyrir því að aðeins fáeinum stundum síðar yrði Bjarki allur. Slíkur atburður vekur auðvitað upp spurningar um réttlæti lífsins. Aðeins nítján ára gamall var þessi lífsglaði drengur hrifsaður frá okkur og eiga margir um sárt að binda því að ófáa átti hann vini og íirval af samfelium, toppum, leggings og sokkabuxum Laugavegi 30, gími 624225 kunningja. Tónlistin átti hug hans allan og sýndi hann þar mikinn metnað og áhuga. Skemmst er að minnast þess hve mikið hann hafði fyrir því að eignast forláta Hamm- ond-orgel. Hans æðsti draumur var að ná sem lengst í tónlistinni og var mikið framundan í þeim efnum. Góður vinur er fallinn frá. Því verður ekki breytt. Engin orð fá lýst söknuði okkar og sorg. Við vonumst til þess að geta styrkt fjölskyldu og ástvini Bjarka í sorg þeirra og viljum einnig þakka þeim stuðning þeirra á þessum erfiðu tímum. Því aðþrátt fyrir þennan hræðilega atburð held- ur lífið áfram og við verðum því að reyna að takast á við veruleikann í sameiningu og þakka fyrir að hafa átt Bjarka að þessi fáu ár sem okk- ur gafst tækifæri til þess. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Albert (Alli), Atli, Ágúst og Þorsteinn. Hinn 13. maí lést Bjarki vinur okkar okkur til mikillar sorgar og mun hann ávallt lifa í minningum okkar og eflaust margra annarra. Við gieymum aldrei þeim sorg- mædda degi er við ætluðum að styrkja Siggu bestu vinkonu okkar þá stund er Bjarki barðist af fullum krafti fyrir lífi sínu. Þegar við kom- um var okkur tilkynnt að þessi yndis- lega persóna væri farin að okkur óviðbúnum. Við fylltumst reiði og tómleika sem enginn gat bætt né svarað spurningum sem við spurðum Guð fram og til baka. Af hveiju hann? En þetta er víst ein af þeim spurn- ingum sem við fáum aldrei svar við. Við vorum í sama vinahópi og Bjarki öll okkar unglingsár okkur til mikillar gleði og voru það yndis- legir tímar. Hann var mikið gefinn fyrir tón- list og lék hana af mikilli snilld og eru það mörg lög sem munu ávallt minna okkur á á hann, ekki bara róleg og sorgmædd lög, heldur líka fjörug lög sem lýsir Bjarka á einstak- an hátt. Bjarki var vinmargur og dáður í sínum vinahópi, enda var hann góð- ur áheyrandi, vinur í raun, og gerði allt sem í hans valdi stóð til að hjálpa öðrum. Þó að Sigga systir hans væri þremur árum yngri en Bjarki leit hann aldrei á hana sem litlu systur sína, heldur var hún hans besti vinur og tekur það hana sárt að geta ekki leitað til hans framar. Mun hann örugglega ávallt fylgja henni og passa hana. Ætíð sækja erfiðar stundir á þá er missa þann sem nákominn er. Við kveðjum þig, Bjarki, með söknuði og þakklæti fyrir samfylgd- ina og vottum fjölskyldu þinni og nákomnum samúð. Við gleymum þér aldrei. Edda Rún og Anna María. Hann Bjarki Friðriksson er dáinn. Svona hljómuðu tíðindin sem ég fékk að kvöldi 13. maí sl. Viðbrögðum mínum er ekki hægt að lýsa, en fyrsta sem þaut í gegnum hugann var bílslys. Hann var svo ungur, tæplega tvítugur, heilbrigður og hraustur að annað gat vart verið. En bráð heilahimnubólga hafði lagt þennan vin minn að velli á einum sóiarhring. Þennan elskulega dreng sem alltaf var brosandi og kátur og alltaf til í að heilsa gömlum frænkum með kossi, eins og ég sagði stund- um. Við Bjarki vorum ekki skyld, en hann var samt miklu nákomnari mér en margur frændinn. Það koma ótal minningar í hug- ann, Jörfabakkaárin, þegar við bjuggum sitt á hvorri hæðinni, Dan- merkurárin er við fluttumst til Dan- merkur með árs millibili og enn bjuggum við í sömu blokkinni þar. Elsta dóttir mín, Hulda Maggý, og Bjarki voru jafnaldrar og miklir vinir frá bernskuárum og alla tíð síðan. Hin ljúfa lund Bjarka kom best í ljós þegar við komum til Dan- merkur ári á eftir hans fjölskyldu. Þá leiddi Bjarki Huldu, vinkonu sína, í gegnum allar þær hindranir sem geta verið á vegi níu ára barns sem byijar í erlendum skóla og kann ekki tungumálið. Minningarnar eru margar frá liðn- um árum, sem koma í hugann, en best man ég eftir brosinu hans og jákvæðu viðmóti og þessum léttleika sem einkenndi samskipti okkar. Við hugsum ekki um það dags daglega hversu mikilvægt það er að þekkja svona ljúfar manneskjur eins og Bjarki minn var. Okkur hættir til að vera að gera úlfalda úr mýflugu og ergja okkur á hlutum sem skipta engu máli. Ég get notað orðin hans Bjarka til að lýsa þessu, oft sagði hann við mig: „Eygló, þú sást mig ekki þegar ég mætti þér á bílnum, ég vinkaði og brosti og brosti.“ Ein- mitt, sjáum við alltaf brosin sem blasa við okkur? Stutta samveran með Bjarka hér á jörðu hefur kennt mér það nú þegar hversu brosin skipta miklu máli. Það er svo mikill sannleikur í máltækinu „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“. Elsku Bjarki minn, ég er sann- færð um að þú ert einhvers staðar í ljósinu með brosið þitt bjarta og við skulum reyna að brosa í gegnum lífið og vera jákvæð fyrir þig, því að þannig varst þú alltaf meðan þú varst hjá okkur. Elskulegir vinir mínir í Kambasel- inu, Þuríður mín, Friðrik minn, Arn- ar minn, Sigga mín og Viðar minn, það er ekkert hægt að segja, en ég bið Guð um að veita ykkur styrk í ykkar miklu sorg og þegar ykkur fínnst sorgin vera óbærileg munið þá eftir brosinu hans. Eygló „frænka". Mig langar í örfáum orðum að minnast Bjarka og kynna minna af honum. Við kynntumst í sveitinni hjá ömmu hans og afa á Jarðlangs- stöðum á Mýrum, þar sem ég var á sumrin með Bassa frænda hans. Við skemmtum okkur vel og var ávallt stutt í smitandi hlátur hans. Bjarki var í Fjölbrautaskóianum í Breiðholti og var hann meðlimur í hljómsveit og spilaði hann á hljóm- borð á síðustu árshátíðarskemmtun á vegum skólans. I hvert skipti sem ég hitti hann vildi hann alltaf fá að koma í skólann minn með hljóm- sveitina sína og spila á tónleikum og var það alltaf á dagskrá. Einnig vorum við staðráðnir í því að fara í helgarheimsókn í sveitina í sumar eftir langa bið. Ég þakka Bjarka fyrir góð kynni og vil um leið votta öilum aðstand- endum hans samúð mína. Felix. Elskulegur vinur okkar hann Bjarki er dáinn. Þessar hörmulegu fréttir fengum við hinn 13. maí sl. og ristu þær djúpt sár í hjörtu okk- ar. Hann var farinn þessi brosandi, jákvæði og yndislegi drengur. Við kynntumst Bjarka fimm ára gamlar og tókst með okkur mikil og sterk vinátta. Örlögin virtust gera það að verkum að sambandið á milli okkar átti ekki að slitna því að við fluttumst alltaf í nálægð hvort við annað. Það var því mikill sam- gangur milli fjölskyldna okkar. Við Bjarki gátum orðið óvinir og rekið hvort annað út af heimilum hvors annars, en það stóð aldrei lengi því þó við værum fokiil þá stundina, hittumst við eftir aðeins örskamma stund til að vera „memm“. Hann var alltaf brosandi og í góðu skapi. Einnig virtist hann eiga svo auðvelt með að meðhöndla alla hluti. Þó svo að við hittumst ekki dag- lega á seinni árum,_ slitnaði þessi sterka vinátta ekki. Uti í Danmörku brölluðum við mikið saman fórum í hjólatúra, tíndum maura í poka, leit- uðum að drasli í ruslatunnum og stálum bjórflöskum frá rónunum til þess að kaupa bland í poka. Bjarki, Sigga og við fundum einu sinni gul- an lúður í ruslinu og vildum við öll eiga hann og lentum því í rifrildi, en ákváðum svo að eiga hann öll saman og vildi Bjarki hafa hann fyrst heima hjá þeim og hefur hann verið þar síðan, því við fundum svo margt til að gera saman, að lúðurinn var ekki spennandi lengur. Bjarki var búinn að búa í Dan-. mörku í eitt ár, þegar við fluttumst þangað. Þá kunni Bjarki að sjálf- sögðu á lyftukerfi blokkarinnar og hafði mikla ánægju af því að hræða vinkonur sínar með því að stoppa lyftuna milli hæða. Þegar við vorum búnar að æpa á mömmu og Þuríði í smá tíma, setti hann lyftuna af stað og sagði „allt í plati“ og hló. Bjarki var svo mikill prakkari og honum datt svo margt í hug, en gerði aldrei neinum neitt í illgimi. Það var svo margt sem við gerðum saman alltaf með bros á vör. Stund- um gerðum við mömmur okkar svo reiðar. Jú, við skömmuðumst okkar og fórum út að gera eitthvað annað, brosandi. Bjarki var alltaf boðinn og búinn til þess að gera allt fyrir mann. Með þessum mikla missi okkar ástkæra vinar sýndi það okkur hversu mikil- vægt brosið er, því að hann var allt- af brosandi og kátur. Það er svo ósanngjarnt þegar svona gott líf er tekið svo snögg- lega, en við verðum að trúa því að hann eigi að gefa það sem hann gaf hér aftur, annars staðar. Á milli okkar Bjarka ríkti mikill bróðurkær- leikur. Elsku besta Þuríður, Friðrik, Arn- ar, Sigga og Viðar. Þetta er erfitt en við verðum að standa okkur og brosa því að það hefði Bjarki svo sannarlega viljað. Hulda og Elín. Okkur langar í örfáum orðum að minnast góðs vinar og ná- granna, Bjarka Friðrikssonar, sem lést 13. maí sl. af völdum bráðrar heilahimnubólgu. Kynni okkar af Bjarka hófust fyrir rúmum átta árum þegar fjöl- skylda hans fluttist í Kambaselið, í næsta nágrenni við okkur. Minningin um Bjarka er björt. í nálægð var glaðværð og hressilegt andrúmsloft. Alltaf sama alúðlega viðmótið, sama hver átti í hlut. Fjölskyldur okkar hafa átt nota- legar samverustundir, og þáttur Bjarka í að gera þær eftirminnileg- ar er stór, á Stakkhamri, í Galta- lækjarskógi og heima í Kgmbaseli. Sérstaklega var ánægjulegt að fylgjast með tónlistaráhuga hans. Þátttaka hans i tónlist hófst í Selja- skóla þar sem Bjarki söng með skólahljómsveit. Síðar fór hann að fást við hljómborðsleik og greinilegt var að þar fór mikið efni. Sérstak- lega var gaman að sjá hann og heyra í uppfærslu FB á Ðí Kommitt- ments nú í vor, þar sem Bjarki fór á kostum á Hammondinn. Missir fjölskyldu Bjarka og vina er mikill. Brottför hans var svo skyndileg og ótímabær. Bjarka stóðu allir vegir færir, þar sem í honum fóru saman miklir hæfíleikar og góðir mannkostir. Sérstaklega er missir systkina hans mikili, þeirra Arnars, Siggu og Viðars, en öll höfðu þau Bjarka að fyrirmynd, enda var hann ótvíræður leiðtogi systkinahópsins. Við vottum Þuríði, Friðrik og systkinunum okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Bjarka Frið- rikssonar. Ilalla, Þorgeir, Auður, Þórey, Þorsteinn, Hjördís, Valdís og Halla Karen. ... Mig setur hljóðan. Víst semja mennimir ennþá falleg lög en lagið mitt litla kemur aldrei aftur. (Vilmundur Gylfason) Hann Bjarki er dáinn. Getur það verið satt? Hann sem var svo lif- andi og yndislegur? Þó að sagt sé að allt hafí sinn tilgang finnst mér óskiljanlegt þegar ungmenni með allt lífið framundan er hrifið á brott. Elsku Bjarki minn, þú með þitt fallega bros, þakka þér fyrir vinátt- una og tryggðina — að við skyldum hafa fengið að kynnast þér. Guð gefi ástvinum þínum styrk í sorg- inni. Inga og Jóhann. Kveðja frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti Sú sorgarfrétt barst okkur föstu- dagsmorguninn 14. maí sl. að einn af nemendum skólans hefði látist kvöldið áður, eftir stutta sjúkdóms- legu. Alltaf er jafn erfitt að sætta sig við það þegar ungt fólk í blóma lífs- ins hverfur skyndilega. Eftir horfnum æskubróður angurværir störum vér, saklaus, ljúfur, lyndisgóður lífs á morgni burt hann fer. (Matthías Jochumsson) Bjarki Friðriksson hóf nám hérna við Fjölbrautaskólann í Breiðholti á haustönn 1989 og hafði stundað nám við skólann í átta annir. Bjarki var mjög vinsæll meðal nemenda skólans og mninnumst við hans sérstaklega fyrir frábæra frammistöðu á síðustu árshátíð skól- ans. Bjarki var dagfarsprúður og glaðlyndur ungur maður sem stund- aði skólann vel. Kennarar og starfsfólk Fjöl- brautaskólans í Breiðholti er harmi slegið yfír fráfalli þessa unga manns og vottum við fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Við munum minnast hans sem góðs drengs. Kristín Arnalds. Elsku Bjarki minn! Þegar Halia hringdi í mig í vinn- una og sagði mér að þú værir kom- inn á spítala vegna heilahimnubólgu, brotnaði ég algjörlega niður. Halla kom og sótti mig og keyrði mig upp á spítala. Þegar við komum þar inn ieiddi einhver kona okkur inn í að- standendaherbergið. Ég hljóp beint í faðminn á pabba. Svo kom læækn- ir og reyndi að útskýra fyrir okkur hvað væri að þér. Þegar hann sagði að ef þú næðir þér, næðirðu þér full- komlega. Þá spurði ég: „En ef hann nær sér ekki?„“ Þá átti læknirinn erf- itt með að svara mér. Samt veit ég að hann gerði sitt besta til að bjarga þér. Ég gat ekki verið lengur uppi á spítala vegna þess að andrúmsloftið var svo óþægilegt þar inni. Þegar við Halla vorum á leiðinni heim sáum við vini þína, Sjonna og Sigurgeir, sitja í strætóskýli á Bústaðaveginum. Halla stoppaði bílinn og ég fór út úr bílnum og sagði strákunum hvað gerst hafði og þeir tóku þessu frekar illa og fóru fljótlega upp á spítala. Þar hittu þeir Alla, Atla, Þorstein og Gústa sem höfðu komið eins og skot. Þetta kalla ég vini í- raun. Ég fór heim með Höllu og við yiðar vorum þar og biðum frétta. Ég var að tala við Auði, bestu vin- konu mína eins og þú veist, og við biðum milli vonar og ótta. Svo hringdi síminn og Halla sagði mér að mamma og pabbi væru komin heim af spítalanum og að ég ætti að hlaupa yfír til þeirra. Ég held að ég hafi aldrei orðið eins tóm á ævinni eins og þegar pabbi sagði mér að þú værir dáinn. Þú varst ekki bara bróðir minn, held- ur líka besti vinur. Ég held að Guð hefði ekki getað tekið neinn sem stóð mér nær. Ég man að þegar vinkonur mínar treystu mér fyrir einhverju, missti ég það ailtaf út úr mér vtð þig, því að ég vissi að ég gæti alltaf treyst þér. Ég bíð ennþá eftir að þú komir hlaupandi upp stigann og segir: „Halló, allir saman ég var bara að djóka, eigum við að koma í bíó!“ En ég gerði mér grein fyrir því þegar ég sá þig dáinn að ég væri búin að missa bestu gjöf sem Guð hefur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.