Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 20.05.1993, Qupperneq 60
TVÖF^LDUR 1. vinningur m HEWLETT PACKARD -----------umoviB HP Á fSLANOI HF MORGUNBLADJD, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Þrotabú KRON stefnir Sambandinu ÞROTABÚ KRON hefur höfðað mál, sem flutt verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í næsta mánuði, gegn Sigurði Markússyni, fyrir hönd SÍS, og Guðjóni B. Ólafssyni, fyrir hönd Samvinnulífeyrissjóðsins, til að krefjast riftunar á samtals 24 milljóna króna ráðstöfunum frá KRON til SÍS og lífeyrissjóðsins í maí og júní 1990. Hlöðver Kjartans- son, skiptastjóri þrotabúsins, telur að á þeim tíma hafi bæði stjórnend- um KRON, SÍS og Samvinnulífeyrissjóðsins mátt vera ljóst að KRON væri í raun ógjaldfært og að verið væri að mismuna lánardrottnum KRON, sem varð gjaldþrota í apríl 1991. _ Kröfur skiptastjórans beinast að SÍS vegna viðskipta við KRON með hús fyrirtækins, Furugrund 3 í Kópavogi, sem búvörudeild SÍS keypti 22. maí 1990 og var skráð kaupverð 34,5 milljónir króna. 18.762.499 krónur voru greiddar með peningum inn á tékkareikning KRON en að öðru leyti voru skuld- ir yfirteknar. Sama dag og kaupin voru gerð greiddi KRON 18.762.499 krónur — sömu fjár- hæð og búvörudeild SÍS hafði greitt fyrir húseignina — til bú- vörudeildar SÍS til uppgjörs á hluta skulda KRON við deildina. Skuldir greiddar með óvenju- legum greiðslueyri Krafa skiptastjórans gagnvart Samvinnulífeyrissjóðnum er sú að rift verði viðskiptum aðilanna þann 30. júní 1990 sem fóru þannig fram að Samvinnulífeyrissjóðurinn keypti og fékk afhent hlutabréf í Olíufélaginu hf. að nafnverði um 1,2 milljónir á genginu 5,56 eða fyrir rúmar 6,7 milljónir króna og var andvirðið fært sem greiðsla inn á ógreidd lífeyrissjóðsiðgjöld KRON. Bústjórinn telur að þarna hafí KRON verið að greiða skuldir með óvenjulegum greiðslueyri en að- ferðin sem notuð var hafi aðeins verið umbúðir utan um þann gjörn- ing. Aðilarnir séu nákomnir í skiln- ingi gjaldþrotalaga og því eigi al- mennur 6 mánaða riftunarfrestur ekki við. Þar sem 3 vikur liðu frá því KRON hætti nauðungarsamn- ingatilraunum uns fyrirtækið varð gjaldþrota falla viðskiptin utan þess frests. Morgunblaðið/Sverrir í nepjurmi á Þingvöllum NORÐAUSTANNÆÐINGUR setti svip sinn á fyrsta dag opinberrar heimsóknar Gro Harlem Brundt- lands, forsætisráðherra Noregs, og Ame Olavs Brundtlands, eiginmanns hennar, hér á landi í gær. Hér hlýða þau á mál séra Hönnu Maríu Pétursdóttur, þjóðgarðsvarðar, við útsýnisskífuna á Þingvöllum. Ætlun- in hafði verið að koma að Lögbergi en vegna veðurs var ákveðið að aka um Almannagjá að Þingvallabæn- um. Þar buðu íslensku forsætisráðherrahjónin þeim norsku til kvöldverðar. í dag verður m.a. farið í Reykholt. Sjá viðtal við Gro Harlem Brundtland og fréttir á miðopnu Kjaraviðræðum frestað vegna verkfallsboðunar flugvirkja 27.-29. maí Krefjast 6,5% hækkunar frá janúar til september FLUGVIRKJAFÉLAG íslands boðaði í gær til verkfalls dagana 27.-29. maí. Tilkynning um verkfallsboðunina barst til ríkissátta- semjara eftir hádegi en þá var að hefjast fundur stóru samninga- nefnda ASÍ, VSÍ og VMSS, þar sem gera átti tilraun til að ná samkomulagi um heildarsamninga. VSI lýsti yfir að ekki kæmi til greina að ljúka gerð heildarkjarasamninga fyrr en lausn fengist í deilunni við flugvirkja og gerði þá kröfu að flugvirkjar drægju verkfallsboðunina til baka. Var fundum stóru samninganefndanna þá frestað til kl. 14 í dag. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins eru kröfur flugvirkja í nokkrum liðum, en í launalið er farið fram á 6,5% launahækkun fyrir tímabilið frá 1. janúar til 1. septem- ber í ár. Vinnuveitendur meta kröfurnar í heild til nokkurra tuga prósenta launahækkana. Verkalýðsfélagið Þór á Selfossi hefur boðað dagbundin verkföll starfsmanna á vistheimilinu Sól- heimum í Grímsnesi og hefst hið fyrsta næstkomandi laugardag. Ríkissáttasemjari hefur boðað flugvirkja og viðsemjendur þeirra til sáttafundar kl. 13 í dag. Hálfdán Hermannsson, formaður Flug- virkjafélagsins, vildi ekki ræða kjar- akröfur félagsins en sagði aðspurð- ur að flugvirkjar gætu ekki fallist á að taka þátt í þeim samningum sem aðilar vinnumarkaðarins hafa verið að ræða. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði að verkfallsboðunin ein og sér ylli félaginu umtalsverðu tjóni. Bókanir fyrir sumarið hefðu komið mjög seint inn og í ferða- heiminum væru svona fréttir mjög fljótar að berast. Verkfallsboðunin myndi líka valda tjóni vegna öflun- ar nýrra viðhaldsverkefna fyrir nýju viðhaldsstöðina á Keflavíkurflug- velli. Enn væri óvíst hversu mikilli starfsemi yrði hægt að halda gang- andi ef til verkfalls kæmi en búast mætti við að það kæmi fyrst niður á Norður-Atlantshafsfluginu. Sjómannasambandið hafnar öllu samfloti með A_SÍ-félögunum og síðdegis féllst VSÍ á að hefja sérvið- ræður við Sjómannasambandið, sem fara í gang upp úr helginni. Hólmgeir Jónsson, framkvæmda- stjóri Sjómannasambandsins, sagði að ástæða þess að þeir höfnuðu samfloti væri sú að þeir vildu fá niðurstöðu í ýmsum sérmálum sem þeir legðu áherslu á. Engir fundir með BSRB Engir fundir hafa verið haldnir á milli BSRB og ríkisins um skeið en Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að samtökin vilji gera samning til skamms tíma, sem fæli í sér að lágmarki að festar yrðu inn eingreiðslur og orlofsuppbót en tíminn yrði svo notaður til að reyna að fínna niðurstöðu sem víðtæk sátt gæti orðið um. Ögmundur seg- ir að BSRB sætti sig ekki aðeins við fyrirheit um að ekki verði um nýjar skattaálögur að ræða heldur verði einnig að liggja fyrir að kostn- aði af aðgerðum ríkisstjórnar verði ekki mætt með auknum niðurskurði á samneyslunni. Reuter Ellert Schram af- henti sigurlaun UEFA-keppninnar ELLERT B. Schram, stjómarmaður í Knatt- spyrnusambandi Evrópu (UEFA) og forseti þess, Svíinn Lennart Johansson, sáu um að afhenda leikmönnum ítalska liðsins Juventus sigurlaunin í Evrópukeppni félagsliða, UEFA- keppninni svokölluðu, eftir síðari úrslitaleik þess og þýska félagsins Borussia Dortmund á Italíu í gærkvöldi. Juventus sigraði 3:0 á heima- velli sínum í Tórínó í gær, og samanlagt 6:1. Ellert, sem er til hægri á myndinni að baki hins heimsfræga fyrirliða ítalska liðsins, Ro- bertos Baggios, sem hampar bikarnum, er fyrsti íslendingurinn sem afhendir sigurlaun í Evrópu- keppni í knattspyrnu. Lennart Johansson er til vinstri. Sjá bls. 58: „Auðvelt hjá Juventus." Riftunar krafist á sölu húseignar Morgunblaðið/Sigurður Mar Skógarhögg GUTTORMSLUNDUR í Hallorms- staðarskógi var grisjaður í vikunni í fyrsta sinn í yfír tvo áratugi. Lundurinn er kenndur við Guttorm Pálsson sem var skógarvörður í Hallormsstaðarskógi um langt ára- bil og gróðursetti í reitinn 1938. Þór Þorfinnsson skógarvörður í Hallormsstaðarskógi vinnur þau tré sem felld eru í borð og planka og selur þau á innanlandsmarkaði. „Það er ekki mikið sem fellur til af þessu ennþá, en það fæst ágætt verð fyrir þetta. Skógarhögg á Austurlandi er framtíðin og síðustu tvö árin hefur verið plantað næst- um 500 hekturum," sagði Þór. fMúrjgntnM&foifo Morgunblaðið kemur næst út laugardaginn 22. maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.