Morgunblaðið - 29.05.1993, Page 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
119. tbl. 81. árg.
LAUGARDAGUR 29. MAI 1993
Prentsraiðja Morgunblaðsins
Vantraust á pólsku ríkisstjórnina
Walesa forseti
íhugar þingrof
Naumur munur
Vantraustið náði naumlega fram
að ganga því 223 þingmenn greiddu
tillögunni atkvæði en 198 þingmenn
greiddu mótatkvæði og 24 sátu hjá.
Hjáseta telst mótatkvæði sam-
kvæmt pólskum þingsköpum og því
fór atkvæðagreiðslan 223-222. Má
því segja að pípureykingamaðurinn
og fyrrum dómsmálaráðherra,
Zbigniew Dyka, hafí haft líf stjórn-
arinnar, sem hann sagði nýlega skil-
ið við, í hendi sér.
Ekki vildi Dyka bjarga ríkis-
stjórninni, tók ekki þátt í atkvæða-
greiðslunni og fylgdist með henni
úr hliðarsal, ákaft tottandi pípu sína.
Að honum undanskildum studdu
flokksmenn hans allir stjórn Suc-
hocku.
muni tapa nær tveim milljörðum í
Þýskalandi á árinu. Hvalveiðistefn-
an getur ennfremur valdið miklum
vanda í tengsium við umsókn Nor-
egs um aðild að Evrópubandalaginu.
Bann við öllum hvalveiðum tekur
gildi í bandalaginu á næsta ári. Þing
bandalagsins jók þrýstinginn í vik-
unni með því að samþykkja áskorun
um að norskum stjórnvöldum yrði
skipað að stöðva veiðarnar fengi
Noregur aðild.
Á næsta ári verða vetrarólympíu-
leikar haldnir í Lillehammer og segj-
ast norskir forráðamenn leikanna
hafa áhyggjur af straumi harðorðra
mótmæíabréfa og áróðri þeirra
hvalavina sem vilja að leikamir verði
hundsaðir.
Enn sem komið er bendir ekkert
til þess að ríkisstjórn Gro Harlem
Brundtland muni skipta um skoðun
í málinu.
Varsjá. Reuter, The Daily Telegraph.
HANNA Suchocka, forsætisráðherra Póllands, baðst lausnar í gær
eftir að neðri deild þingsins hafði samþykkt vantraust á stjórn
hennar með eins atkvæðis meirihluta. Embættismenn sögðu að
líklegast væri að Lech Walesa forseti myndi annaðhyort leysa
þingið upp og boða til nýrra kosninga eða útnefna sjálfur nýjan
forsætisráðherra kæmu þingflokkarnir sér ekki fljótt saman um
eftirmann Suchocku.
Sjálfur gaf
forsetinn sterk-
lega í skyn að
þingrof yrði
lausnin. Pólska
þingið sam-
þykkti í gær ný
kosningalög sem
ætlast er til að
takmarki fjölda Hanna Suchocka
flokka á þingi en þeir eru nú 29.
Framvegis verður flokkur að fá
a.mk. 5% atkvæða til að hljóta þing-
sæti.
Stjómmálaskýrendur sögðu að
eftirmann Suchocku væri tæpast að
finna á þingi. Einn besti kosturinn
sem þingið ætti væri að útnefna
Suchocku aftur. Hagfræðingar telja
að líklega færi stjómleysi í hönd og
vænta mætti tafa á efnahagslegum
umbótum í Póllandi.
Sundurlyndi á þingi
Samstaða, samtök óháðu verka-
lýðsfélaganna, bar vantrauststillög-
una upp til að mótmæla fjárlaga-
og kjaramálastefnu stjómar Such-
ocku. Hún er fímmti forsætisráð-
herra Póllands sem verður fórnar-
lamb pólitískrar upplausnar í land-
inu á fjórum ámm eða frá því
kommúnistar misstu alræðisvöld
1989. Hún naut almennrar virðingar
sem stjómandi en sundurlyndi
þingsins var henni fjötur um fót og
hún gat ekki kveðið niður togstreitu
innan stjórnarinnar.
Fóstureyðingalögum hnekkt
FORSETI þýska stjórnarskrárdómstólsins, Gottfried
Marenholz, les upp úrskurð dómstólsins sem hnekkti í
gær nýjum lögum þar sem réttur til fóstureyðinga var
rýmkaður. Lögin í Vestur-Þýskalandi settu mun meiri
skorður við fóstureyðingum en samsvarandi lög í Aust-
ur-Þýskalandi en þar var úrskurðinum í gær harðlega
Reuter
mótmælt. Stjórnmálaleiðtogar í austurhéruðunum segja
að úrskurðurinn sé enn eitt dæmið um að vestanmenn
hundsi vilja íbúanna í austri. Kannanir sýna að þorri
íbúa þar vill halda í gömlu löggjöfina en samkvæmt
henni greiðir ríkisvaldið allan kostnað af aðgerðinni.
Sjá frétt á bls. 21.
*
Akvörðun Norðmanna um að leyfa hrefnuveiðar
Gunnar Fatland, þingmaður fyrir
íhaldsmenn, er ómyrkur í máli: „Sé
litið á málið eingöngu með hags-
muni framleiðslufyrirtækja í huga
er augljóst að ákvörðunina um hval-
veiðar ber að taka aftur,“ sagði
hann. í forystugrein Dagbladet á
fímmtudag sagði að væri stjóminni
alvara þegar hún segði að mikilvæg-
asta verkefni hennar væri að berj-
ast gegn atvinnuleysi væri tími kom-
inn til að snúa við blaðinu í hval-
veiðimálinu. Kannanir sýna að að-
eins 400-500 full störf myndu verða
sköpuð með því að hefja veiðar af
sama umfangi og var á áttunda
áratugnum, þ.e. 2.000 dýr á ári.
Milljarðatap
Greenpeace-samtökin fullyrða að
Norðmenn hafí þegar tapað við-
skiptum í Bandaríkjunum að and-
virði nær 750 milljóna ísl. kr. og
Auknar efasemd-
ir vinnuveitenda
Bent á að veiðamar skapi fá störf og
refsiaðgerðir valdi þegar stórtjóni
Ósló. Reuter.
HÁVÆR gagnrýni margra þjóða og fjárhagstap vegna tap-
aðra viðskiptasamninga valda því að stuðningur í röðum nor-
skra atvinnurekenda við hvalveiðar fer nú minnkandi. „Það
er þ'óst að takmörk eru fyrir því hve mikinn skaða fyrirtæk-
in þola,“ sagði Kjell Martin Fredriksen, formaður verslunar-
ráðs Noregs, í samtali við fréttamann Reuters-fréttastofunnar
í gær.
Reuter
Flórensbúar mótmæla tilræði
TUGÞÚSUNDIR manna söfnuðust saman á Santa Croce-torgi í Flórens
í gær til að mótmæla framferði tilræðismanna er komu sprengju fyrir í
bíl rétt hjá Uffizi-listasafninu á fimmtudag. Margir notuðu tækifærið og
úthúðuðu stjómmálaflokkunum og leiðtogum þeirra sem sumir eru grunað-
ir um mafíutengsl. Talið er nær víst að mafían hafí staðið að baki tilræð-
inu. Fimm manns létu lífíð, í fyrstu var talið að fómarlömbin væru sex.
Geysilegt tjón varð á safnhúsinu og allmörgum verkum þess.
Leikja-
tölvur
hættu-
legar?
Bonn. Reuter.
FJOLDI þýskra þingmanna
telur að leikjatölvur, sem
hægt er að hafa milli hand-
anna hvar sem er, séu hættu-
legar heilsu barna. Þeir vilja
að bannað verði að selja leiki
af þessu tagi börnum undir
16 ára aldri.
Að sögn Bild telja þingmenn
úr röðum Kristilegra demókrata
að vernda eigi börn fyrir tölvu-
leikjum með lagasetningu.
„Leikirnir geta orðið álíka
vanabindandi og áfengi og því
verið hættulegir heilsunni,"
sagði Michel Luther þingmaður
í viðtali við blaðið. Annar sagði
óhjákvæmilegt að vemda börn
og unglinga fyrir tilfínningalegu
og andlegu tjóni sem tölvumar
gætu valdið.
Baimað börnum
Bandaríska blaðið Washing-
ton Post segir að útbú japanska
tölvuleikjaframleiðandans Sega
þar í landi ætli framvegis að
skýra notendum frá því hvaða
leikir séu of grimmdarlegir til
að það sé við hæfí að börn
skemmti sér við þá. Gagnrýni á
ofbeldisdýrkun í kvikmyndum
fer vaxandi vestra og segja
heimildarmenn að Sega ætli með
þessu að bregðast við samsvar-
andi gagnrýni á tölvuleikina.