Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993 Félagslega húsnæðislánakerfið Lán veitt til 300 íbúða af 500 Sveitarfélög norðanlands sit^’a fyrir HÚSNÆÐISMÁLASTJÓRN hefur ákveðið að veita fram- kvæmdalán úr Byggingasjóði verkamanna til byggingar eða Refur skot- inn við bæjardyr Borg í Miklaholtshreppi ÞAÐ ER ekki algengt að refir gangi svo nálægt mannabústöðum að hægt sé að skjóta þá úr bæjardyrun- um. Það gerðist þó hér í grenndinni í gærmorgun. Atvik voru þau að Magnús Kristjánsson, bóndi á Hraunsmúla í Kolbeinsstaða- hreppi, var að fara út úr húsi sínu í gærmorgun frá því að drekka tíukaffi. Þegar hann opnar hurðina er tófa að þefa úr bóli kindar sem nýlega hafði borið skammt frá íbúðarhús- inu. Að sjálfsögðu hlóð Magn- ús haglabyssu og sendi rebba kveðju sem leiddi hann um- svifalaust til bana. Þar lá stór steggur sem var búinn að snuðra innan um lambær Magnúsar í nokkum tíma. Hér er sífelldur norðaustan blástur, gróðri miðar hægt og nokkur kali er í sumum túnum og grasspretta er jafnframt stutt á veg komin. Páll kaupa á 300 félagslegum íbúð- um. Áætlað er að hefja bygg- ingar á 500 félagslegum íbúð- um í ár og sagði Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Húsnæðisstofnunar ríkis- ins, að ákveðið hefði verið að skipta úthlutuninni niður í áfanga miðað við fjárhag sjóðs- ins. íbúðimar 300 em um allt land. Þó var höfð hliðsjón af veðurfars- skilyrðum og því em hlutfallslega flestar íbúðirnar á norðurhluta landsins, Vestíjörðum, Norður- landi og Austurlandi. Þá hefði áformum sveitarstjómanna sjálfra verið veittur viss forgangur fram yfír félagasamtök vegna þess að þær bæm mestar skyldur gagn- vart íbúum sveitarfélaganna. 1.800 milljónir kr. Áætlað meðallán á íbúð er 6 milljónir króna þannig að til íbúð- anna 300 fara um 1.800 milljónir kr. Lánin em síðan greidd út á framkvæmdatímanum sem gjam- an er um 15 mánuðir. Sigurður sagði að vonast væri til að staða stofnunarinnar styrkt- ist enn frekar á næstu mánuðum þannig að síðar í sumar yrði hægt að lána til 200 íbúða til viðbótar og ná þannig 500 íbúða markinu sem stefnt væri að nú eins og undanfarin ár. Ungarnir horfnir Ásthildur Sigurðardóttir með hreiður sem hefur verið rænt. Strákar ræna hreið- ur og safna ungum SÉST hefur til nokkurra 8-10 ára stráka í Kópavogi vera að ræna þrastarhreiður og hlaupa á brott með ófleyga unga. í fyrrakvöld varð Ásthildur Sigurðardóttir, sem býr við Þinghólsbraut, vitni að því þegar hreiður var rænt. Hún telur að nokkrir drengir safni ungum og geymi þá heima hjá sér. „Ég fór út á tröppur að hrista sagt að þeir hefðu oft gert þetta mottu og sá þá nokkra krakka í garðinum, þar af einn uppi í tré með sérútbúið prik sem hann not- aði til að krækja í hreiðrið,“ sagði Ásthildur. „Ég vissi um hreiðrið og skipaði þeim á brott. Þá hafði sá sem var með prikið náð í körf- una og hann henti henni frá sér og hljóp í burtu.“ Ásthildur sagði að eiginmaður sinn hefði hlaupið strákana uppi en sá sem rænt hefði hreiðrið hefði hins vegar sloppið. Þeir sem til náðist hefðu ekki sagt til hans en og raddir hefðu heyrst um að ung- unum væri safnað í kofa í garði heima hjá einhveijum þeirra. Ein- hveijir höfðu haldið unga heima hjá sér um tíma eða þangað til þeir drápust. „Ég skil ekki hvemig samband foreldra og barna er að verða ef böm geta staðið í svona hlutum án þess að foreldrar viti,“ sagði Ásthildur. Hún sagði hart að þegar ekki þyrfti að hafa áhyggjur af að kettir spilltu varpi fengi það ekki að vera í friði fyrir eftirlitslausum börnum. Bifreiða- skattar 17% tekna BIFREIÐASKATTAR sem hlutfall af heildartekjum ríkissjóðs eru áætlaðir um tæp 17% á þessu ári, sem 2,5% aukning frá síðasta ári, að því er fram kemur í útreikning- um Félags ísienskra bifreiðaeig- enda á tölum frá fjármálaráðu- neytinu og úr fjárlögum þessa árs. Tekjur ríkissjóðs af bifreiðum og umferð eru áætlaðar hátt í 18 milljarðar kr. á árinu. Landsþing FÍB hefur fjallað um málið og varað við hugmyndum stjórnvalda um enn frekari tekjuöfl- un, t.a.m. skilagjald, förgunargjald á allar bifreiðar og staðbundna vega- tolla. Af þeim tæpu 18 milljörðum sem áætlaðar telq'ur ríkissjóðs af bifreið- um og umferð hljóða upp á er gert ráð fyrir að tæpar 5,5 milljarðar renni til vegamála, eða um 30,6%. Samkvæmt útreikningum danska bílablaðsins Bilert er þetta hlutfall 40% í Danmörku, 60% í Svíþjóð, 72% í Finnlandi og í Noregi rennur skattfé af bifreiðum alfarið til vegamála. Sjá: „Mest innheimt en minnst...“ bls. C10. Tölvuleikur um Búkollu HAFIN er undirbúningur að því að búa til íslenskan tölvuleik byggðan á ævintýrinu um Búkollu og er vonast til að leikurinn verði notaður til kennslu í barnaskólum í Englandi, Ástraliu, Nýja Sjálandi og Kanada. Það eru fimm íslendingar sem vinna undirbúningsvinnuna en forrit- ið verður skrifað og markaðssett af Englendingi. Sjá einnig bls. 24. Harður árekst- ur í Hvalfírði ÞRENNT slasaðist í hörðum árekstri sem varð milli tveggja fólksbíla í Þyrilshlíð í Hvalfirði um kl. 16 í gær, og var ökumað- ur annars bílsins fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Borgarspítalans. Samkvæmt upplýsingum yfír- læknis á slysadeild reyndist maður- inn vera alvarlega slasaður og gekkst hann undir skurðaðgerð í gærkvöldi. Hann var einn í bflnum. Hjón sem voru í hinum bílnum voru flutt á sjúkrahúsið á Akra- nesi, en að sögn læknis hlutu þau enga stóralvarlega áverka. Að sögn Iögreglunnar í Borgar- nesi er ekki vitað um tildrög árekstrarins. * Kaup Osvarar hf. á togurum þrotabús Einars Guðfinnssonar hf. Ekkí undimtun vegna misræm- is í tölum skiptaráðanda og LÍ Gert ráð fyrir að skrifað verði undir kaupsamningana hjá skiptastjóra í dag Bolungarvík. GERT er ráð fyrir að skrifað verði undir samninga vegna kaupa Ósvarar hf. á togurunum Dagrúnu og Heiðrúnu í dag, en vegna misræmis í tölum hjá skiptastjóra annars vegar og Landsbanka ís- lands hins vegar varð ekki af undirritun kaupsamninganna eins og til stóð á borgarafundi á Bolungarvík í gærkvöldi. Á fundinum var fjármögnun kaupanna kynnt bæjarbúum og kom þar fram að Ósvör hf. greiðir 100 milljónir króna á þessu ári, en afgangur kaupverðs togaranna, sem samtals er 721 milljón, verður í formi skuldbreyt- inga og lána til 8-10 ára. Kaupverð Dagrúnar er 430 millj- ónir króna og Heiðrúnar 291 millj- ón. Af þeim 100 milljónum sem greiddar verða á þessu ári renna 65-70 milljónir til Landsbankans, en afgangurinn til annarra veð- kröfuhafa. Afgangurinn af kaup- verðinu verður í formi skuldbreyt- í dag Viröing Hugtakið virðing er tekið fyrir í danskri doktorsritgerð um Islend- ingasögumar 12 Mótframboð Dagblöð spá framboði gegn Major á flokksþingi í haust 26 Númsámngur Par var meðal fjögurra með fyrstu Fasteignir ágætiseinkunn á stúdentsprófi úr MR 46 V Vlinrtimi iSUMClMCtHM I Hl 2S Daglegt líf Leiðari SVR hf. - Erfíðleikar Majors 28 ► Breytt nýting Hafnarhússins í Reykjavík - Leigumarkaðurinn - Rafsegulsvið í húsum - íbúða- verð á Akureyri - Spákaupmenn fjárfesta í fasteignum - ► Peugeout 305 kynntur - Gagn- semi E-vítamíns - Niður Hvítá - Sykurát barna - Hamborg - Bláa lónið - Fleiri ótryggðir bflar á götunum - Escort sendibíll - inga og lána við helstu kröfuhafa sem eru Landsbankinn, Atvinnu- leysistryggingasjóður, Byggðasjóð- ur, Skeljungur hf., Tryggingamið- stöðin hf., Hampiðjan hf. og ríkis- sjóður. Við þessa aðila hefur verið samið um skuldbreytingar og lán á bilinu 8 til 10 ár. A fundinum lýsti bæjarstjóri Bolungarvíkur því að bæjarsjóður hefði ákveðið að greiða 30 milljóna króna hlutafé til Osvar- ar hf., og ganga þær til Landsbank- ans sem fyrsta greiðsla, og auka síðan hlutafé um 20 milljónir í haust i þeirri von að hlutaféð verði þá komið í 120 milljónir. Jafnframt hefur bæjarsjóður ákveðið að gang- ast í ábyrgð fýrir 35 milljóna króna greiðslu frá Ósvör til Landsbankans í haust. Almenningshlutafélagið Ósvör hf. var stofnað 10. mars síðastliðinn og eru hluthafar nú 200 talsins. Upphaflega söfnuðust 4.450 þús- und krónur, en 24 hlutafjárloforð upp á samtals um sjö milljónir hafa borist til viðbótar. í máli þeirra sem helst tóku til máls á fundinum í gærkvöldi kom fram að framhald málsins réðist af því hversu vel tækist til um frekari hlutafjársöfn- un, en sem dæmi var nefnt að það sem á vantaði að frádregnum hlut bæjarins næmi sem svaraði hálfum sígarettupakka á dag á hveija fjöl- skyldu í bænum. Breyting á stjórn Á fundinum í gærkvöldi var gerð grein fyrir breytingu sem gerð hef- ur verið á stjóm Ósvarar hf., en Björgvin Bjarnason hefur látið af formennsku í félaginu og tekið við starfí framkvæmdastjóra þess og er Markús Guðmundsson nú stjórn- arformaður. - Gunnar 12 laxarúr Laxánum LAXVEIÐI hófst í tveimur þekktum laxveiðiám i gær- morgun, Laxá í Kjós og Laxá í Aðaldal. Sjö laxar veiddust í Aðaldal á morg- unvaktinni og fimm laxar í Kjósinni. Voru þetta upp til hópa vænir laxar, 8 til 13 punda, utan einn 5 punda. Árni Baldursson, leigutaki Laxár í Kjós, sagði að byrjun- in væri í samræmi við það sem hann hefði reiknað með, nátt- úran væri á eftir áætlun og því færi veiðin rólega af stað. Jón Vigfússon á Laxamýri tók í sama streng, menn hefðu séð lítið af físki síðustu daga og því hefði veiði morgunsins komið mönnum skemmtilega á óvart. Sjá nánar „Eru þeir að fá ’ann?“ bls. 7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.