Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FOSTUDAGUR 11. JUNI 1993 55 KNATTSPYRNA / 1. DEILD Framarar yfirspiludu íslandsmeistarana „ÉG er mjög ánægður með leik strákanna, sem veittu áhorfend- um góða skemmtun og úrslitin voru mjög áhugaverð fyrir alla. Við náðum því sem við ætluðum okkur og sjálfstraust strákanna óx þegar á leikinn leið,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, þjálfari Framl- iðsins, sem hreinlega tætti meistara Skagamanna í sig á Laugar- dalsvelli í gær fyrir framan 1.914 áhorfendur, sem skemmtu sér konunglega - margir sáu gamla Ásgeirstakta ■ leik Framliðsins. uað var strax ljóst að mikil átök áttu eftir að vera á Laugar- dalsvellinum og leikmenn liðanna ætluðu að gefa allt SigrmndurÓ. sem Þeir áttu ' leik' Steinarsson inn. Hraðinn var skrífar mikill, knötturinn gekk kantanna á milli og liðsmenn voru óhræddir að brjótast snöggt að marki. Fyrri hálfleikurinn var mjög fjörugur og reyndu Skagamenn að rétta sinn hlut eftir að Valdimar Kristófers- son skoraði fyrir Fram, 1:0. Serb- inn Bibercic komst næst því þegar hann stóð fyrir opnu marki, en skallaði knöttinn í þverslánna á marki Fram. Framarar fengu einnig mörg tækifæri til að bæta við mörkum, en nýttu þau ekki. Framarar náðu öllum tökum á leiknum í seinni hálfleik og léku þá stórgóða knattspymu - létu knöttinn ganga manna á milli; stutt spil, langar nákvæmar send- ingar og þversendingar. Leikmenn Fram náðu tökum á miðjunni og léku við hvern sinn fingur. Ingólf- ur Ingólfsson, Ágúst Ólafsson, Guðmundur G. Gíslason, Kristinn R. Jónsson og Steinar Guðgeirsson byggðu upp margar fallegar sókn- arlotur. Þeir tvíefldust þegar á leikinn leið - voru yfirvegaðir og fundu út ýmsar leiðir til að bijóta Skagamenn á bak aft- ur. Helgi Sigurðsson var mjög hreyfanlegur í fremstu víglínu og einnig Valdimar Kristófers- son, sem hrelldi varnarmenn Skagamanna hvað eftir annað. Það var svo undir lok leiksins að Framarar fóm að gefa eft- ir og náðu Skagamenn, sem höfðu ekki átt neitt svar við stórleik Fram, að klóra í bakk- ann og skora tvö mörk. í kvöld Knattspyrna kl. 20. 1. deild karla: Fylkisvöllur: Fylkir - KR 2. deild karia: Kópavogsvöllur: UBK - Stjaman 3. deild: Selfossvöllur: Selfoss - Magni Ásvellir: Haukar - HK Húsavíkurvöllur: Völsungur - Grótta Skallagrímsv.: Skallagr. - Reynir S. 4. deild: Yarmárvöllur: Afturelding - Léttir Ármannsvöliur: Ármann - Njarðvík Siglufjörður: KS - Neisti Neskaupstaður: Austri E. - Höttur Fáskrúðsfjörður: KBS - Huginn URSLIT Bandaríkjamótið Fjögurra liða æfingamót [US Cup 93]. Washington ( gær: Brasilía - Þýskaland.............3:3 Thomas Helmer (13. - sjálfsm.), Careca (32., vsp.), Luisinho (39.) - Jurgen Klins- mann 2 (66., 90.), Andreas Möller (80.) Staðan: Brasilía..............2 1 1 0 5:3 3 Bandaríkin............2 1 0 1 2:2 2 Þýskaland............„1 0 1 0 3:3 1 England...............1 0 0 1 0:2 0 ■Brasilía vann Bandaríkin í fyrsta leiknum um sl. helgi og Bandarfkjamenn unnu síðan Englendinga, 2:0, í fyrrakvöld. 1 a^)fékk sendingu á 10. mín. frá Ágústi Olafssyni inn í vítateig, þar sein hann skallaði knöttinn að marki og yfír Kristján Finnbogason, sem náði að slá í knöttinn, en ekki nóg til að koma í veg fyrir mark. 2b^\ Helgi Sigurðsson sýndi frá- ■ ^#bæra takta á 52. mín., er hann tók knöttinn af Alexander Högna- syni, bmnaði að marki Skagamanna og renndi knettinum til Valdimars Kristó- ferssonar, sem skoraði örugglega. 3b fl% Ingólfur Ingólfsson skaut að ■ ^Jmarki Skagamanna (62. mín.), Kristján Finnbogason varði, en knötturinn hrökk í Olaf Adolfsson, vamarmann ÍA og af honum í markið. 4b Steinar Guðgeirsson brunaði ■ ^Jupp hægri kantinn á 74. mín. og sendi knöttinn fyrir mark Skaga- manna, þar sem Ingólfur Ingólfsson var á réttum stað og renndi knettinum í netið. Serbinn Mihajlo Bibercic var á auðum sjó fyrir framan mark Fram á 84 mín. og átti ekki í erfíð- leikum með að að skora af tíu metra færi. 4b Eftir þóf inn í vítateig Fram mámé. 90, mín. -lék Alexander Hðgnason með knöttinn inn í vítateig og sendir knöttinn í netið. Morgunblaðið/Bjarni FögnuAur! Glæsilega gert nafni, getur Helgi Björgvinsson (t.h) verið að segja við Helga Sigurðsson, eftir að hann lagði glæsiiega upp annað mark Framara. Keflvíkingar komnir niður á jörðina „ÞAÐ má segja að það hafi verið h'fsspursmál fyrir okkur að sigra í þessum leik eftirtvö slæm töp og ég vona að þessi sigur verði til þess að við vökn- um til lífsins aftur," sagði Krist- inn Björnsson þjálfari Vals- manna eftir að lið hans hafði sigrað ÍBK 3:1 í Keflavík í gær- kvöldi. Þar með komu Keflvík- ingar niður á jörðina eftir sigur í þrem fyrstu leikum sínum. 0B *fl| Sævar Jónsson tók aukaspymu frá vinstri á 25. mín., sendi ■ | boltann að stönginni nær þar sem Kristinn Lárusson sigr- aði í einvígi við Ólaf Pétursson markvörð ÍBK og náði að skalla í markið. 0Bd%Bjarai Sigurðsson markvöður Valsmanna spyrnti frá marki B mSmá. 49. mín., vel framfyrir miðju og á meðan vamarmenn IBK hikuðu skaust Gunnar Gunnarssou fram eins og elding, komst einn innfyrir og sendi boltann af öryggi í markið. 0B 4^fcEnn var Gunnar Gunnarsson á ferðinni, en á 57. mín. ■ 'Oeinlék hann frá núðju inn í vítateig þar sem hann sendi boltann af öryggi í mark ÍBK. 1a 4% Kjartan Einarsson náði að skalla í mark Vals eftir þunga ■O mín. y I vj Ci I uuvu iiuvi wfw » - - -—- - - - ■ — —, —- - - - v* Isókn sem ðli Þór Magnússon var upphafsmaður að, á 64. Qreinilegt var að Valsmenn voru komnir til Keflavíkur til að sigra því þeir vom lengstum mun ákveðnari og vom Björn með sóknarparið Blöndal hættulega, þá Óla skrífarfrá Þór Magnússon og Keflavik Kjartan Einarsson í strangri gæslu. Vöm Keflvíkinga var ákaflega óörugg að þessu sinni og ekki stóð á refsingunni. Eftir að Kristinn Lárusson hafði náð for- ystunni fyrir Hlíðarendaliðið um miðjan fyrir hálfleik munaði litlu að Keflvíkingum tækist að jafna metin að bragði, þegar Gunnar Oddsson komst einn inn fyrir vörn Valsmanna og fékk um leið besta tækifæri heimamanna. Gunnar lék á Bjarna markvörð en skot hans hafnaði í stönginni. í siðari hálfleik gerðu svo Vals- menn út um leikinn með tveim mörkum með stuttu millibili og var þar að verki ungur og efnilegur leikmaður, Gunnar Gunnarsson sem í tvígang renndi sér í gegnum ráð- villta vörn heimamanna. Keflvík- jngar áttu líka sín færi en heilladís- imar voru þeim ekki hliðhollar að þessu sinni. „Við gerðum nokkur örlagarík mistök í vamarleiknum sem kost- uðu mörk og við getum engum um kennt nema sjálfum okkur hvemig fór,“ sagði Kjartan Másson þjálfari ÍBK. Jaf nt í Eyjum EYJAMENN og FH-ingar skildu jafnir, 2:2, i gærkvöldi. Heima'- menn voru frískari framan af báðum hálfleikjum, en gestirnir þegar á þá leið. Eyjamenn byrjuðu af krafti og uppskáru fljótt mark eftir herfileg mistök hjá FH. Eftir það komust gestirnir vel prg inn í leikinn, og jöfn- Sigfúsi Gunnari uðu eftir hálftíma Guðmundssyni leik, þegar Jón Erl- i Eyjum ing skoraði með marki sem lyktaði af rangstöðu en línuvörðurinn var ekki í vafa og því var markið dæmt gilt. FH sótti síðan mun meira það sem eftir lifði hálf- leiksins, með Hörð Magnússon at- kvæðamestan, án þess þó að skapa sér verulega hættuleg færi. Flestar sóknir brotnuðu á varnarvegg ÍBV. Rétt eins og í fyrri hálfleik byij- uðu Eyjamenn af krafti í þeim seinni og Tryggvi Guðmundsson hafði fljót- lega skorað eitt glæsilegasta mark sem sést hefur í Eyjum. En auk þess fékk Steingrímur Jóhannesson ein fjögur góð færi sem honum tókst ekki að nýta. Síðustu 25 mín. þyngdu FH-ingar sóknina jafnt og þétt; til að mynda björguðu Eyjamenn skalla frá Þorsteini Jónssyni rétt utan marklínu og Friðrik Friðriksson varði stórvel skalla frá Herði Magn- ússyni. En tveimur mín. fyrir leiks- lok var vamarmúrinn brotinn þegar Andri Marteinsson, sem hafði tekið' flestar aukaspymur FH, sleppti því og beið þess 5 stað utan teigs — og skoraði eftir aukaspymu Olafs H. Kristjánssonar. 1.0Petr Mrazek tók rnarkspymu á 16. mín., en mistókst herfí- ■ %rlega. Boitinn fór til Antons Bjöms sem var rétt utan vlta- teigs, hann renndi til vinstri á Bjarna Sveinböjrnsson sem lék á eina varnarmann FH og renndi framhjá Stefáni markverði og í netið. 1m 4 Andri Marteinsson tók aukaspymu vinstra megin við vfta- ■ I teig, spymti hátt fyrir markið þar sem Hörður Magnússon stökk hæst og skallaði í átt að marki, þar sem Jón Erling Ragnars- son var mættur og skaut knettinum síðasta metrann innfyrir markiín* una. 2m m hjá vamarmanni FH, og þrumaði upp í bláhomið, ( slána og af henni þeyttist knötturinn í netið. Stórglæsilegt mark. Þetta var á 54. mín. 2.^%Ólafur H. Kristjánsson tók aukaspymu vinstra megin utan ■ áfaiteigs, Eyjamenn náðu að spyma út úr teignum en þar var. Andri Marteinsson og þrumaði boltanum af 25 m færi — með jörð- inni og í hornið fjær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.