Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993 13 LIST AHÁTÍÐ ARBLÚ S BLÚSÁHUGI hefur aukist til muna hér á landi síðustu ár, ekki síð- ur en ytra. Þar ræður miklu frumkvæði ýmissa blúsáhugamanna, í hljómsveitum og utan þeirra, en einna mest hefur mætt á Halldóri Bragasyni og vinum hans í blússveitinni Vinum Dóra. Þeir hafa komið á sambandi á milli islenskra blúsmanna og blúsmanna í Chicago og fengið hingað til lands fjölmarga listamenn, suma allt að því goðsagnakennda, til að leika með Vinum Dóra og taka upp plötur. Atriði í Listahátíð Hafnarfjarðar er að í kvöld leika Vinir Dóra í Bæjarbíói með blússöngkonunni blökku Deitru Farr og skáldinu, munnhörpuleikaranum og útgefandanum Chicago Beau McGraw. Vinir Dóra eru nýkomnir frá blúshátíðinni í Chicago, þeirri helstu í heimi, þar sem þeim var boðið að spila, meðal annars fyrir tilstyrk Chicagos Beaus og Pinetops Perk- ins, en Halldór Bragason segir að slíkt sé heiður sem fáum erlendum hljómsveitum hafi hlotist í gegnum árin. Hann segir að þetta boð sé að hans mati hápunkturinn hingað til í einstæðu samstarfi íslenskra og bandarískra blústónlistarmanna, sem hófst á ævintýralegan hátt. Rekja má samstarfið milli Vina Dóra, og þá sérstaklega Halldórs Bragasonar, við Chicagomenn til þess að hingað kom bandaríska skáldið, útgefandinn og tónlistar- maðurinn Chicago Beau McGraw til að leita samninga við prentsmiðj- una Odda um prentun á tímariti hans, Literati Internazional, sem birtir helst sögur, ljóð og greinar skálda ogrithöfunda úr minnihluta- hópum. Ákveðið var að Chicago Beau myndi troða upp með ís- lenskri blúshljómsveit þegar hingað væri komið, enda hann mjög áhuga- samur um veg blúsins hvarvetna í heiminum. Til að leika undir voru Vinir Dóra fengnir og svo vel fór á með Halldóri og Chicago Beau að fast samband komst á milli Reykjavíkur og Chicago. Það sam- starf hefur skilað heimsóknum blakkra blústónlistarmanna hingað; Beau hefur komið nokkrum sinnum, en einnig hafa komið Jimmy Dawk- ins, Pinetop Perkins, Billy Boy Arn- old, Deitra Farr, Shirley King og Tommy McCrackin. Vert er og að geta þess að þeir Halldór og Chicago Beau hafa stofnað útgáfu- fyrirtæki í Chicago, Straight Ahead Records, og verður fyrsta útgáfan væntanlega áðurnefnd safnplata. Fyrirhugaðar eru ýmsar uppákom- ur til viðbótar, en Vinum Dóra, sem hafa víða leikið ytra með Beau og fleiri listamönnum, þar á meðal á Sardiníu og víða í Bandaríkjunum, hefur verið boðið að leika á skemmtiferðaskipi í Karíbahafi næsta sumar, þá meðal annars með Ettu James, sem kölluð hefur verið drottning blúsins. Halldór Bragason segir samskiptin um Reykjavíkur-Chicago öxulinn hafa skilað geysimiklu fyrir íslenskt blúslíf, eins og sjá megi af mjög auknum áhuga á lifandi blús, ekki síður en áhuga á blús á plötum. Hann segist hvarvetna sjá áhugann birtast og þá kannski einna helst sem óbeinan, því í íjölmörgum hljómsveit- um, sem þó segjast ekki leika blús, megi heyra ómengaða blússpretti, oft örugglega ómeðvitaða. Með Vinum Dóra í Bæjarbíói leika eins og áður er getið Chicago Beau og Deitra Farr. Chicago Beau er lítil þörf á að kynna fyrir blús- fróðum, en öðrum má segja að hann er leikinn munnhörpuleikari og áhrifamikill söngvari, enda kann hann lag á áheyrendum og tekst ætíð að hrífa þá með í bláleitt al- gleymi. Deitra Farr er ung af blús- söngkonu að vera, en hefur reynslu og rödd þá sem þarf til að vera álitin ein efnilegasta blússöngkona seinni ára. Þeir sem heyrt hafa í Deitru á tónleikum velkjast ekki í vafa um að hún hefur til þess alla burði að leysa, af hólmi „þær gömlu“, Koko Taylor og Ettu Ja- mes sem drottning blúsins. Tónleikamir í Bæjarbíói í Hafn- arfírði heíjast kl. 21. Árni Matthíasson MENNING /LISTIR Myndlist Ljóðasýning Sindra Freyssonar Ljóðasýningu Sindra Freyssonar, lýkur sunnudaginn 13. júní, en hún hefur yfir að Kjarvalsstöðum síðan 22. maí sl. Sýningin hefur verið vel sótt og hefur framsetning ljóðanna vakið at- hygli. Sindri lætur sér heldur ekki nægja að birta textann á hefðbundinn hátt, heldur nýtir sér margvíslega þrívíða hluti, video, sandblásið gler og fatnað til að koma honum til skila og undirstrikar þannig inntak ljóð- anna 'eða gefur þeim nýja merkingu. Ljóðasýningar Kjarvalsstaða hafa nú hlotið fastan sess í sýningardag- skrá Kjarvalsstaða og eru unnar í samvinnu við Ríkisútvarpið - Rás 1. Guðný Magnúsdóttir. Guðný í Slunkaríki Sýningu Guðnýjar Magnúsdóttur f Slunkaríki á ísafirði lýkur nú um helg- ina, en hún var opnuð 22. maf. Á sýningunni eru myndverk og innsetn- ing „Skáldskapur Óðins“, verkin eru unnin úr jarðleir ásamt vikri og járni. Þetta er sjötta einkasýning Guðnýjar, en einnig hefur hún tekð þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Sýningin er tileinkuð minningu for- eldra hennar. Sýning Hjördísar framlengd Sýning Hjördísar Frfmann í Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, er framlengd til 16. júní. Hjördís er fædd 1954 og stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur 1978-1981 en fór síðan til náms við School of the Museum of Fine Arts í Boston. Þaðan útskrifaðist hún vorið 1986. Hjördfs hefur haldið einkasýriingar í Nýlistasafninu 1987, Gallerí List 1988 og í Ásmundarsal 1990. Sam- sýning IBM 1987. Sýningin er opin á verslunartfma, á virkum dögum frá klukkan 10-18. Samsýning í List- munahúsinu Samsýning á vegum Óháðrar lista- hátíðar, Ólétt 93 hófst miðvikudaginn 9. júní í Listmunahúsinu, Tryggva- götu. Á sýningunni eru myndverk og skúlptúrar eftir 20 listamenn. Sýning- in stendur til laugardagsins 26. júní og er opin daglega frá kl. 10-18 nema sunnudaga þá kl. 14-18. SPILLTI LÖGREGLUFORINGINN Eriendar umsagnir: „Besla IfiDrcglumynd síöan „Fiencli Connectíon" - Lelkstióiinn oiiver stone ____________________________ kéi magnaðasta og hugrakkasla leik á síaum vllfta starfslerli ,HIIGT HGIIKI... DCall IGIUflDI ðUB IHZ II. BS nuwiic. Hinq ðiouc. Sýnd í Bíóborginn kl. 5, 7, 9 og 11,05 í THX.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.