Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
5
Menskar vörur lækka
en innfluttar hækka
Yerðbólga 3,2% síðustu 12 mánuði
Framfærsluvísitalan hefur
lækkað um 0,1% frá síðasta mán-
uði, og verðbólguhraði mælist
þar með 3,2% síðastliðna 12 mán-
uði. Ef breytingar vísitölunnar
síðustu þijá mánuði eru skoðaðar
jafngilda þær 1,9% verðbólgu á
ári. Milli maí og júní hefur mest
lækkun orðið á matar- og drykkj-
arvöru, eða 1,1%, en á móti kem-
ur meðal annars 2,2% hækkun á
bensíni.
Mest hefur verðlækkunin orðið á
kartöflum og vörum unnum úr
þeim, eða 27,4%, sem hefur 0,14%
áhrif til lækkunar á vísitöluna.
Kostnaðarliður eigin flutninga-
tækja, þar á meðal bensíns, hefur
í heild hækkað um 0,6% en það
hefur 0,1% hækkunaráhrif á vísi-
töluna.
Að sögn Rósmundar Guðnason-
ar, hagfræðings hjá Hagstofu ís-
lands, var vöruverð til grundvallar
júnívísitölunni mælt fyrstu tvo daga
júnímánuðar. Því hafi borið nokkuð
á því, sérstaklega fyrri dag mæling-
anna, að verðlækkanir á búvöru
samkvæmt nýgerðum kjarasamn-
ingum hafi ekki verið komnar fram.
Rósmundur kvaðst búast við frek-
ari lækkunum á þessum þáttum í
næsta mánuði.
Fokker 50
Flugleiða
leigð til
Austurríkis
FLUGLEIÐIR hafa leigt eina af
Fokker 50 flugvélum sínum til
Austrian Airlines í Austurríki.
Samningurinn er fyrst um sinn
til fjögurra mánaða og ætlunin
er að vélin verði leigð áfram í
lok þess tímabils. Flugvélinni
var flogið utan í gær. Innan-
landsflug Flugleiða verður
óbreytt þrátt fyrir Ieiguna, að
því undanskildu að vikulegum
ferðum til Vestmannaeyja og
Sauðárkróks fækkar um eina
og um tvær til Húsavíkur, en
vikulegum ferðum til Egilsstaða
fjölgar um eina vegna tengi-
flugs við Höfn.
Á stjórnarfundi Flugleiða í maí
var samþykkt að hafa þijár Fokker
50 vélar í rekstri frá og með næsta
hausti. í fréttatilkynningu frá Flug-
leiðum segir að leigumarkaður fyrir
flugvélar sé afar erfiður um þessar
mundir og þegar tilboð í leigu á
Fokker 50 til Austurríkis barst hafi
þótt rétt að taka því og hefja þriggja
véla reksturinn fyrr en ella vegna
möguleika á framlengingu leigunn-
ar.
V iðbótar skattur
Innanlandsflug Flugleiða hefur
verið rekið með rúmlega 200 millj-
óna kr. tapi á ári undanfarið. Ekki
er þó gert ráð fyrir að leiga Fokker
vélarinnar til Austurríkis skili nema
hluta þess sem þarf til að rétta af
rekstur innanlandsflugsins. For-
svarsmenn innanlandsflugsins ótt-
ast fyrirætlanir stjórnvalda um að
leggja virðisaukaskatt á rekstur
innanlandsflugs og telja þeir mark-
aðaðstæður koma í veg fyrir að
hægt sé að öllu leyti að velta skatt-
inum út í verðlagið. Það stefni því
í rúmlega 100 milljón kr. viðbótar-
skattlagningu innanlandsflugs á ári
frá og með næstu áramótum.
Vísitalan gæti lækkað aftur
næsta mánuð
Gylfi Arnbjömssonj hagfræðing-
ur Alþýðusambands Islands, sagði
ljóst vera að verðbólgan virtist kom-
in í skikkanlegt horf. „Það er bein-
línis verðhjöðnun núna, en í þessari
nýjustu vísitölu gætir að mjög litlu
leyti áhrifanna af niðurgreiðslun-
um,“ sagði hann. „Næsta mánuð
ætti því verðið að lækka svipað og
núna, eða í það minnsta haldast
stöðugt."
Aðspurður sagði Gylfi verðlækk-
unaráhrifin virðast skila sér nokkuð
vel í mjólkurvöru. „Það er hins veg-
ar meiri hætta með kjötvörurnar,
því þær fara í gegnum fleiri aðila.“
Framfærsluvísitalan í júní 1993 (166,2) Breyting
Ferðir og flutningar (19,6) HBo,5%fráfy|Ti m mánuði -0,1% 1
Húsnæði, rafmagn og hiti (18,2)
Matvörur(16,7) -1,1% ■■■■
Tómstundaiðkun og menntun (11,3) ■ 0,2%
Húsgögn og heimilisbún. (6,7) | 0,2%
Föt og skófatnaður (6,1) -0,5% ■■
Drykkjarvörur og tóbak (4,3) -0,1% |
Heilsuvemd (2,9) ■■■ 0,7%
Aðrar vömr og þjónusta (14,2) | 0,1%
Vísitala vöm og þjónustu -0,1 % |
FFtAMFÆRSLUVÍSITALAN Tölur I svigum vísa til vægis einstakra liða af 100. -0,1% I
Góð ar fr éttir fr á Goð a:
afs láttur af litlum p ökkum.
afsláttur af stórum p ökkum,
Godavínarpylsur —fyrir þá sem vita hvaö þeir vilja.
GHÐI
-gæðanna vegna!