Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 17
: 'lbMtikBLAfiÍÐ'¥6sTÖí)A(?M'i!f:: jdM ' \%n
ALBANÍA
eftir Þorvald
Gylfason
l.Tveirostar
Ég stend við búðarborðið með
innfluttan ost í annarri hendi og
innlendan ost í hinni. Kaupmaðurinn
er vinsemdin sjálf og segir mér kost
og löst á stykkjunum tveim. Annar
osturinn er ítalskur. Hinn er al-
banskur. Ég er staddur í Tírönu,
höfuðborg Albaníu. Þar ríkir inn-
flutningsfrelsi. Landbúnaður er engu
að síður höfuðatvinnuvegur Albana:
helmingur fólksins fleytir sér fram
á jarðyrkju. Innflutningsfrelsið er
að vísu nýfengið. Það fékkst með
því að steypa ríkisstjóm Envers
Hoxha, eins illræmdasta glæpa-
manns aldarinnar, af stóli í blóð-
lausri byltingu í hitteðfyrra. Hoxha
dó þvi miður 1985, nokkrum árum
áður en stjóm hans féll. (Ég segi
því miður, því að stjórnmálamönnum
fínnst mér rétt að óska langlífís jafn-
vel enn fremur en öðru fólki, svo
að þeir megi heyra dóm sögunnar.)
Ekkja einræðisherrans lifir mann
sinn og situr nú í fangelsi í Tírönu,
dæmd að lögum fyrir alvarlega glæpi
ásamt nokkrum öðmm oddvitum
ógnarstjórnarinnar. Hún er á átt-
ræðisaldri og á varla afturkvæmt
úr prísundinni. Hafandi séð venju-
legt húsnæði í Albaníu þykist ég
geta ímyndað mér aðbúnað forset-
afrúarinnar fyrrverandi í fangelsinu.
Það fór alltént ekki fyrir mér eins
og fyrir manninum, sem stóð í bið-
röð á björtum sumardegi fyrir nokkr-
um ámm og beið þess að kaupa
gúrkur til kvöldverðar að heimili sínu
í höfuðborginni. Og sem hann bíður
og bíður, segir hann í hugsunarleysi
við næsta mann í röðinni, að kín-
verskar gúrkur séu nú varla jafngóð-
ar og albanskar. Þessi athugasemd
kostaði sjö ára fangelsi. Albanskur
nemandi minn sagði mér þessa sögu
af örlögum kunningja síns. Þannig
var Albanía. En ekki lengur. Astand-
ið í landinu er að vísu mjög alvar-
legt, því að stjórn kommúnista lagði
efnahagslíf landsins í rúst. Algeng
laun í landinu eru 20 til 50 dollarar
á mánuði. Það jafngildir sex til
fimmtán íslenzkum krónum á tím-
ann. Forseti landsins, læknir að
mennt og fyrra starfi, hefur 100
dollara á mánuði, það er að segja
30 krónur á tímann. Þjóðartekjur
vom taldar nema um 600 dollurum
á mann fyrir þrem árum. Þær hafa
skroppið saman síðan þá, því að rík-
isfyrirtækin — öll fyrirtæki voru í
eigu ríkisins! — hafa stöðvazt hvert
á eftir öðru, hætt að framleiða og
sagt fólkinu upp. Þriðji hver maður
er atvinnulaus. Tóifti hver maður
er flúinn til útlanda í atvinnuleit.
Mörg Afríkuríki eru miklu betur
sett í efnahagslegu tilliti. Fyrir
heimsstyijöldina síðari var Albanía
að vísu frumstætt landbúnaðarland
á evrópska vísu, en lífskjör í suður-
hluta landsins, sem liggur að Grikk-
landi, voru þó svipuð og í norður-
hluta Grikklands. Nú er ólíku saman
að jafna. Hálfrar aldar eyðilegging
hefur markað djúp spor í efnahags-
líf landsins og í sálarlíf fólksins.
2. Tekjur og fjármagn
Samanburðartölur um tekjur á
mann geta samt verið villandi, sé
ekki tekið tillit til undirstöðu efna-
hagslífsins, hver sem hún kann að
vera. Vandi Albana nú er ekki að-
eins bundinn við lágar tekjur á líð-
andi stund, heldur er hann ekki sið-
ur fólginn í langvinnum afleiðingum
ofboðslegrar sóunar, sem einræðis-
herrann fyrrverandi og gersamlega
fáfróðir félagar hans fyrirskipuðu
og skipulögðu reyndar sjálfir í smá-
atriðum. Eitt dæmi ætti að duga:
þeir byggðu sjö hundruð þúsund (!)
loftvarnarbyrgi úr hnausþykkri
Demi Morre og Woody Harrelson í hlutverkum sínum.
Háskólabíó og Bíó-
höllin frumsýna mynd-
ina Ósiðlegt tilboð
Háskólabíó og Bíóhöllin frumsýna í dag myndina Ósiðlegt tilboð
eða „Indecent Proposal". Myndin sló aðsóknarmet þegar hún var
sýnd í Bandaríkjunum fyrir nokkrum vikum og er þegar orðin ein
af mest sóttu myndum ársins. Sömu sögu eru að segja hvarvetna
sem hún hefur verið sýnd í Evrópu, nú síðast í Bretlandi, segir í
frétt frá bíóunum.
I myndinni segir frá því þegar
undirstöðum hamingjuríks uppa-
hjónabands þeirra Davids (Woddy
Harrelson) og Diönu (Demi Moore)
er stefnt í voða þegar vellauðugur
fjármálamaður, John Gage (Robert
Redford), býður þeim David og Dí-
önu milljón dollara ef Diana sam-
þykkir að sofa eina nótt hjá honum.
Myndin fjallar um nútímasam-
band ungs fólks og afleiðingar þess
þegar teknar eru siðferðilegar
ákvarðanir. I kjölfár myndarinnar
hafa víða spunnist umræður og
blaðaskrif um það hvað fólk er til-
búið að ganga langt fyrir peninga.
Aðalhlutverk eru í höndum Ro-
berts Redford, Demi Moore og
Woody Harrelsson. Leikstjóri
myndarinnar er Adrian Lynn og
framleiðandi er Sherry Lansing, en
þetta er fyrta sameiginlega mynd
þeirra síðan þeir gerðu „Fatal
Attraction". Adrian Lynn er þekkt-
ur fyrir allt annað er lognmollu-
myndir en hann leikstýrði m.a.
myndunum „Fatal Attraction“ og
„9’A Weeks“ sem báðar nutu fá-
dæma vinsælda og vöktu mikið
umtal.
Þorvaldur Gylfason
steinsteypu og dreifðu þeim út um
allt land. Þessi byrgi yfirskyggja
landslagið, en hafa þó blessunarlega
fengið að standa tóm alla tíð. Aðrar
fjárfestingarákvarðanir einræðis-
stjórnarinnar voru álíka viturlegar.
Með allri þessari steinsteypu hefði
verið hægt að byggja dágóða íbúð
handa hverri einustu fjölskyldu í
landinu. Þess í stað búa Albanar nú
við versta húsakost í allri Evrópu.
Rennandi vatn er sjaldséð. Rafmagn
er stopult. Loftkæling er óþekkt,
þótt sumarhitinn sé 35°-40°. Sex
fjölskyldur af hverjum sjö eiga
hvorki ísskáp né þvottavél og þannig
mætti lengi telja. Húsakosturinn er
í raun og veru ónýtur eins og hann
leggur sig í þeim skilningi, að það
væri trúlega ódýrara að rífa húsin
og byggja ný en að reyna að gera
þau upp sómasamlega. Sama máli
gegnir um framleiðslutækin: þau eru
líka ónýt að langmestu leyti. Bænd-
ur notast við dráttardýr í stað vinnu-
véla. Bankastarfsmenn leggja sam-
an og draga frá með handafli, því
að reiknivélar eru sjaldgæfar, að
ekki sé talað um tölvur. Fjórðungi
þjóðarframleiðslunnar hefur verið
varið til fjárfestingar undangengna
áratugi, en fjármagnsstofninn er
eftir sem áður einskis virði eða því
sem næst. Fjárfestingin. hefur eng-
um arði skilað með öðrum orðum.
Eftir stendur sú staðreynd, að fólkið
í landinu hefur varla neitt til neins.
En það er engu að síður ákafiega
vingjarnlegt. Það er staðráðið í að
reisa landið úr rústum.
3. Umskipti með hraði
Ríkisstjórn landsins er á réttri
braut. Hún er nú skipuð frjálslyndum
lýðræðissinnum, sem unnu frækileg-
an sigur í fijálsum kosningum í
fyrra. Þeir settu gömlu forréttinda-
stéttina til hliðar undir eins. Þeir
flytja mál sitt hófsamlega og skyn-
samlega yfirleitt. Þeim er ekki mest
í mun að gera upp gamiar sakir,
þótt margir Albanar eigi sannarlega
um sárt að binda, heldur leggja þeir
höfuðkapp á að byggja landið á nýj-
an leik með markaðsbúskap að leið-
arljósi. Til að skilja efnahagsstefnu
stjórnarinnar er nauðsynlegt að átta
sig á höfuðeinkennum albansks
efnahagslífs undir stjórn Hoxhas.
Þau voru þijú: undantekningarlaust
eignarhald ríkisins á öllum atvinnu-
tækjum. Eindregin miðstýring efna-
hagsmála í smáatriðum, og algert
bann gegn erlendri fjárfestingu eftir
1978.
317
Fyrstu einkennin tvö, ríkiseign-
arhald og miðstýring, átti Albanía
sameiginleg með öðrum kommún-
istaríkjum. Þriðja einkennið, sjálfs-
þurftabúskapurinn og meðfylgjandi
einangrun, var á hinn bóginn séralb-
anskt og bætti gráu ofan á svart.
Þessari vitfirringslegu efnahags-
stefnu var fylgt út í yztu æsar.
Engin einræðisgtjórn á öldinni hefur
farið jafnilla að ráði sínu og er þá
mikið sagt. Nýir stjórnendur hafa
nú snúið stefnunni við. Þeir hafa
þegar fært allt ræktarland í einka-
eign og vinna ótrauðir að frekari
einkavæðingu atvinnulífsins. Þeim
er líka mikið í mun að gefa markaðs-
öflum sem lausastan taum í efna-
hagslífinu til hagsbóta handa fólkinu
í landinu. Og síðast en ekki sízt
reyna þeir eftir megni að opna hag-
kerfið sem mest út á við með því
að efla útflutning og innflutning og
laða erlenda fjárfestingu að landinu.
Innflutningur hefur til að mynda
verið gefinn frjáls, þar á meðal inn-
flutningur landbúnaðarafurða, sam-
anber dæmið af ostunum tveim í
upphafi. Takið eftir því.
Höfundur er prófessor í
Viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla íslands.
TILBOÐSDAGARI
FJARÐARKAUP
Dagana 3.-11. júní
TILBOÐ
KYNNINGAR
HAPPDRÆTTI
fHeinb
Með hverjum nýjum Subaru
fylgir 10 daga
spennandi sumarfrí
fyrir tvo á Islandi
SUBARU LEGACY 4WD er ódýrari en aðrir
bílar í sama stærðarflokki-þó svo að þeir séu ekki fáanlegir
með háu og lágu drifi og sjálfskiptingu-sem Subaru státar af.
TEGUND:
CM3
VERÐ AGOTUNA
SUBARU LEGACY 2000 4X4 1.997.000
MAZDA 626 2000 4X4 2.140.000
MMC GALANT 2000 4X4 2.106.000
RENUALT NEVADA 2200 4X4 2.089.000
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöföi 2,112 Reykjavík
Stmi 674000