Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
19
Aðalftindur sérleyfishafa
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR Félags sérleyfishafa var haldinn í Hótel Stykkis-
hólmi dagana 14. og 15 maí sl. Var fundurinn ágætlega sóttur
og þeir sem að honum stóðu fullyrtu að síðan félagið fór að hafa
aðalfund út um landsbyggðina hafi mæting aldrei verið meiri.
Aðalumræðuefni fundarins og
hið stærsta mál, snerist um að nú
um þessar mundir fá sérleyfíshafar
sjálfír að verðleggja farþegaflutn-
inga og hópferðaakstur. Var þetta
mál gaumgæft verulega og því
fagnað að þurfa ekki að sækja um
verðlagningu til annarra. Og einn-
ig voru þessi mál rædd með tilliti
til samkeppnislaga, sem verður að
taka mið af
Skattur á ferðaþjónustu
áhyggjuefni
Annað mál sem til umræðu var,
hvernig búast skyldi við því að 1.
janúar nk. verður lagður skattur á
ferðaþjónustu og þar með
samgöngur allar. Menn hafa
áhyggjur af því hvemig þessi
skattur muni verða í framkvæmd
og hvernig hækkun komi niður á
ferðaþjónustunni þegar öll kurl eru
komin til grafar, en þetta er 14%
virðisauki, en þar frá dregst
svonefndur innskattur og með því
gæti það gerst að ekki þyrfti að
hækka farmiða, en þetta er mikið
mál sem fundurinn áleit að þyrfti
að skoða betur og kæmi síðar í ljós.
Þá var einnig rætt um að nú
er verið að skoða hjá yfírvöldum
að breyta innheimtu á
þungasakatti á þann hátt að í stað
mælaaflesturs verði skatturinn
innheimtur af olíukaupum, þannig
að diselolía gæti hækkað með
þeirri breytingu, jafnvel í það sem
bensín kostar í dag, en það gæti
haft stór áhrif á framtíðina. Um
þetta mál urðu miklar umræður
og því beint til stjómvalda að
málið yrði skoðað gaumgæfilega
áður en til samþykktar kæmi.
Stjórnarkjör
Stjóm var kjörin: Þorv. Guð-
mundsson frá Norðurleið, formað-
ur og meðstjórnandi. Steinn H.
r-,-WÁvTKfM>)Igfgtllg
Stjórn Félags sérleyfishafa.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Sigurðsson, Selfossi, Pétur Haukur
Helgason frá Sérleyfisbílum HP.
Jóhannes Ellertsson, Vestfjarðar-
leið og Sæmundur Sigmundsson,
Borgamesi. Framkvæmdastjóri
félagsins er Gunnar Sveinsson.
- Árni.
Ný stjóm
kirkjukóra-
sambandsins
Á AÐALFUNDI Kirkjukóra-
sambands Reykjavíkurpróf-
astsdæma sem haldinn var I
Safnaðarheimili Langholts-
kirkju 2. júní var kjörin ný
stjórn. Hana skipa: Sigurður
Siguijónsson, Kór Háteigs-
kirkju, formaður, Árný Alberts-
dóttir, Kór Breiðholtskirkju,
gjaldkeri, Guðmundur Sigþórs-
son, Kirkjukór Laugarnes-
kirkju, ritari, og meðstjórnandi
Sigurlaug Gröndal, tórkjukór
Seljasóknar.
í varastjórn sitja Sigrún Stef-
ánsdóttir, Kór Langholtskirkju,
Ófeigur Freysson, Kór Háteigs-
kirkju, og Fjóla Grímsdóttir, Kór
Kópavogskirkju. Endurskoðendur
eru Kristrún Hreiðarsdóttir,
Kirkjukór Grensássóknar, og Hall-
dór Torfason, Kór Langholts-
kirkju. í fráfarandi stjórn voru
Ragnheiður Björnsdóttir, sem var
formaður samfleytt í 12 ár en þar
áður var hún ritari í 4 ár, og Guð-
rún Sigurðardóttir, sem var ritari
í 12 ár.
(Fréttatilkynning)
TÆLENSKUR MATUR
TÆLENSKT UMHVERFI
ABANTHAI
r Lg/N LAUOAVEGI 130, SlMI 13622
ÖRYGGIS OG
GÆSLUKERFI
FRÁ ELBEX
SPARIÐ TÍMA FÉ
OG FYRIRHÖFN
og skapið öruggari
vinnu og rekstur með
ELBEX sjónvarpskerfi.
Svart hvítt eða í lit,
úti og inni kerfi.
Engin lausn er of
flókin fyrir ELBEX.
Kynniö ykkur möguleikana.
Einar Farestveit & co hf.
Borgartúni 28, sími 91-622900
uiar
FRJÁLSIR TÍMAR
I sumar höldum við áfmm þar semfrá var
horfið ífyrra með opnum tímum ojyfrjálsri
m&tingu alla virka dajya. Við höfum opið
b&ði í Suðurveri ojj í Hraunberjji ojj bjóðum
uppá morjfun-, dajy- ojj kvöldtíma.
4ra, 8 ojj 12 vikna kort.
Barnapössun frá kl. 9-16
Brennsla, púl, teygjur og þrek. Allt í skemmti-
legri blöndu í einum og sama tímanum.
Okkar þjálfunarkerfi er sérhannað fyrir stúlkur á
öllum aldri frá 14 ára og uppí „besta“ aldurinn.
Hringdu eöa líttu við,
sími 813730 og 79988.
LÍKAMSRÆK T
SUÐURVERI • HRAUNBERGI4
DÝRÐIN