Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
23
Siðanefnd Læknafélags Islands
Læknir fær áminn-
ingn fyrir um-
mæli í blaðagrein
SIÐANEFND Læknafélags íslands hefur veitt Gunnari Inga
Gunnarssyni lækni áminningu fyrir að brjóta gegn 1. máls-
grein. 29. greinar siðareglna lækna í blaðagrein í Morgunblað-
inu 6. febrúar 1993.
Yfírskrift blaðagreinarinnar er
„Um tilvísanir lækna að gefnu til-
efni“ og koma fram í henni við-
brögð höfundar við þeirri ákvörðun
Félags sjálfstætt starfandi heimil-
islækna að lýsa yfír einróma and-
stöðu við þá ætlun ráðherra heil-
brigðismála að setja á svokallaða
tilvísunarskyldu á sérfræðiþjón-
ustu lækna starfandi utan sjúkra-
húsa.
Tilefni
Eftirfarandi ummæli eru m.a. í
greininni: „Áðurnefndar yfírlýs-
ingar ÓFM, varðandi rökstuðning
mótmælandanna eru sennilega
einhver mesta vitleysa, sem ég hef
heyrt og séð í tengslum við málefn-
ið. Þess vegna neyðist ég nú til
að ögra gildandi siðareglum lækna
og skamma kollegann opinberlega
um leið og reynt verður að leið-
rétta helztu vitleysurnar."
Þar segir ennfremur: „Allar yf-
irlýsingar lækna um þvinganir,
óhagræði og aukaferðir á stofu
eru fyrst og fremst alvarlegar vís-
bendingar um, að ekki sé allt með
felldu í þeirra praxís.“
Áminning
Siðanefndin telur að í hinum
tilvitnuðu ummælum felist lítils-
virðing í garð Ólafs F. Magnússon-
ar, læknis og aðdróttun í garð
ótiltekinna starfsfélaga greinar-
höfundar. Þannig brjóti greinar-
höfundur reglu 1. mgr. 29. gr.
siðareglna lækna og hljóðar hún
svo. „Lækni er skylt að auðsýna
öðrum læknum drengskap og hátt-
vísi jafnt í viðtali sem umtali, ráð-
um sem gerðum og hann skal forð-
ast að kasta rýrð á þekkingu eða
störf annarra lækna.“
Fulltrúar í siðanefnd, Allan
Vagn Magnússon, Ásgeir B. Ell-
ertssson og Tómas Zoega áminna
Gunnar Inga um að halda ákvæði
þetta í heiðri.
Nú ber vel
í veiði! sícS
Tilboð! Þegar þú kaupir nýja Cardinal Maxxar
hjólið færð þú Abu Garcia veiðivörur að eigin
vali fyrir 1.000 kr. í kaupbæti.
Maxxar hjólin eru hönnuð afAchin Storz, þau
eru með tveim kúlulegum og teflonhúðuðum
diskabremsum. Nú er tækifærið að eignast
þetta frábæra hjól á góðu verði.
Söluaöilar: Sportval-Kringlan Kringlunni 8-12 ■ Útilíf Glæsibæ
Versturröst Laugavegi 178 ■ Musik & sport Hafnarfirði ■ Veiðibúð
Lalla Hafnarfriði ■ Akrasport Akranesi ■ Axel Sveinbjörnsson
Akranesi ■ Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi ■ Verslunin Kassinn
Ólafsvík ■ Verslunin Vísir Blönduósi ■ Kaupfélag Skagfiröinga
Sauðárkróki ■ Siglósport Siglufirði ■ Verslunin Valberg Ólafsfirði
Sportvík Dalvík ■ KEA Akureyri ■ Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kaupfélag Héraösbúa Egilsstööum ■ Verslunin Skógar Egilsstöðum
Tröllanaust Neskaupstað ■ Verslun Elísar Guðnasonar Eskifirði
Viöarsbúö Fáskrúösfirði ■ Kaupfélagið Djúpavogi ■ Kaupfélag
Árnesinga Kirkjubæjarklaustri ■ Sportbær Selfossi
Rás Þorlákshöfn ■ Stapafell Keflavík
HAFNARSTRÆTI 5 REYKJAVÍK ■ SÍMAR 91-16760 & 91-14800
Morgunblaðið/ÓI.K.M.
900 tonnum dreift
LANDGRÆÐSLUFLUGVÉLIN Páll
Sveinsson hefur undanfarna daga dreift
á þriðja hundrað tonnum af áburði á
Haukadalsheiði og í fleiri landgræðslu-
girðingum þar um slóðir. Næstkomandi
mánudag fer vélin til Sauðárkróks, en að
sögn Stefáns H. Sigfússonar fulltrúa land-
græðslustjóra, verður hún þar til næstu
mánaðamóta og verður dreift 500 tonnum
af áburði á uppgræðslusvæðum við
Blöndu. Að því loknu fer vélin aftur í
Gunnarsholt þar sem áburðardreifíngu
verður haldið áfram, en alls verður dreift
900 tonnum úr vélinni í sumar. Það er
200 tonnum minna magn en dreift var í
fyrra, en mest hefur verið dreift um 2.000
tonnum úr vélinni á ári. Á myndinni sést
Páll Sveinsson á flugi yfir flugturninum
í Reykjavík þegar 50 ára afmælis vélarinn-
ar var minnst fyrir skömmu.
tneð Flugleiðutn og Eitnship
til Hatnhorgar eða Atnsterdatn
Bíllinn þinn fer með Laxfossi eða Brúarfossi til Hamborgar eða Rotterdam.
Þú flýgur með Flugleiðum til Hamborgar eða Amsterdam.
Síðan geturðu ekið hvert sem þig lystir í Evrópu og verið allt að heilan mánuð
í ógleymanlegu ferðalagi fyrir eitt og sama verðið allan tfmann.
Verð (flttg og flutnitigsgjöld):
•46.100 kr. á manninn m.v. 2 fullorðna.*
• 30.980 kr. á manninn m.v. 2 fullorðna og 2 börn.*
Leitaðu nánari upplýsinga og hafðu samband við söluskrifstofur okkar,
umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8 -18.)
EIMSKIP flugleiðirJS
»11 Traustur íslenskurferöafélagi Jm
* Skattar eru innifaldir í verði. Bókunarfyrirvari er 7 dagar, lógmarksdvöl 6 dagar og hámarksdvöl 1 máuuður.