Morgunblaðið - 11.06.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
WtAMÞAUGL YSINGAR
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkra- og dvalarheimilið Hornbrekka, Ólafs-
firði, óskar eftir hjúkrunarforstjóra til starfa
frá og með 1. ágúst 1993.
Upplýsingar um starfið og starfskjör veita
forstöðumaður og hjúkrunarforstjóri í síma
96-62480.
Skriflegar umsóknir berist fyrir 30. júní 1993.
Gróðursetning sjálfstæðis-
félaganna íKópavogi
Hin árlega gróðursetning sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi fer fram
í dag, föstudag, kl. 19.00-21.00 milli Hvannhólma og Kiwanishúss-
ins. Eftir gróðursetninguna verður grillað að hætti sjálfstæðismanna
í Kópavogi. „Trjáræktarráðunautarnir" Gunnar Birgisson og Halldór
Jónsson stjórna gróðursetningu en Jón Kristinn Snæhólm verður
grillmeistari. Sjálfstæðisfólk í Kópavogi: Tökum þátt í Grænu dögun-
um og gerum góðan bæ betri.
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi.
hafnamAlastofnun
RlKISINS
Útboð
Stálþilsrekstur
á Ólafsfirði og Árskógssandi
Hafnasamlag Eyjafjarðar óskar eftir tilboðum
í rekstur stálþils á Ólafsfirði og Árskógssandi.
Helstu verkþættir eru:
Ólafsfjörður: Rífa trébryggju, reka um 202 m
stálþil, fylla að um 15.000 m3, steypa kant-
bita og smíða Ijósamasturshús.
Árskógssandur: Reka um 100 m stálþil, fylla
að um 5.000 m3, steypa um 80 m langan
kantbita og smíða Ijósamasturshús.
Bjóðendum er heimilt að bjóða í annað hvort
eða bæði verkin.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. nóvem-
ber 1993.
Útboðsgögn verða afhent á Vita- og hafna-
málaskrifstofunni, Vesturvör 2, Kópavogi, og
á skrifstofu Ólafsfjarðarbæjar frá og með
fimmtudeginum 10. júní 1993 gegn 5.000 kr.
greiðslu fyrir hvort verk.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtu-
daginn 24. júní 1993 kl. 14.00.
Hafnasamlag Eyjafjarðar.
TRYGGINGASTOFNUN
^7 RÍKISINS
Sjúklingar
sem orðið hafa fyrir umtalsverðum
útgjöldum vegna læknishjálpar
og lyfja
Samkvæmt nýsettum lögum (nr. 74/1993)
geta sjúkratryggðir, með umtalsverð útgjöld
vegna læknishjálpar og lyfja, átt rétt á endur-
greiðslu kostnaðar að hluta eða að fullu.
Mikilvægt er því að sjúklingar geymi allar
kvittanir fyrir kostnaði við læknishjálp og lyf.
í samræmi við reglur, sem settar hafa verið
um þessar endurgreiðslur, kemur eingöngu
til skoðunar kostnaður sjúklings hér á landi
vegna læknishjálpar og lyfja, sem Trygginga-
stofnun ríkisins tekur almennt þátt í að
greiða.
Sjúklingar, sem orðið hafa fyrir umtalsverð-
um útgjöldum fyrstu sex mánuði ársins 1993,
er bent á að snúa sér til Tryggingastofnunar
ríkisins eða umboða hennar eftir 1. júlí nk.
og sækja um endurgreiðslu á þar til gerðum
eyðublöðum. Umsókn þurfa að fylgja kvittan-
ir vegna útgjalda fyrir læknishjálp og lyf.
Kvittanir þurfa að bera með sér nafn útgef-
anda, tegund þjónustu, fjárhæð greiðslu
sjúklings, greiðsludag, nafn og kennitölu
sjúklings. Ef til endurgreiðslu kemur verður
endurgreitt fyrir hálft ár í hvert sinn. Öllum
umsóknum verður svarað.
Við mat á því, hvort umsækjandi eigi rétt á
endurgreiðslu, ertekið tillit til heildarútgjalda
vegna læknishjálpar og lyfja auk tekna hlut-
aðeigandi.
Nánari upplýsingar hjá Tryggingastofnun
ríkisins, sími 91-60 44 00.
Tryggingastofnun ríkisins.
11»
Meim en þú geturímyndoð þér!
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Heiðmörk 57, Hveragerði, þingl. eig. Pálína Snorradóttir, gerðarbeið-
endur eru Lífeyrissjóður starfsm. ríkisins, (slandsbanki hf. 544, ís-
landsbanki hf. 546 og Búnaðarbanki (slands, föstudaginn 18. júní
1993, kl. 10.00.
Spóarimi 13, Selfossi, þingl. eig. Inga Hrönn Sigurðardóttir, gerðar-
beiðendur eru Selfosskaupstaður, Vátryggingafélag Islands hf., Líf-
eyrissjóðurverslunarmanna, Byggingasjóður ríkisins og (slandsbanki
hf. 586, föstudaginn 18. júní 1993, kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
10. júni 1993.
Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
Keppni norrænna
hljómsveitarstjóra
Keppni norrænna hljómsveitarstjóra verður
haldin dagana 21. - 25. mars 1994 í Bergen.
Keppnin er opin hljómsveitarstjórum frá
Norðurlöndum, sem fæddir eru 1960 eða
síðar.
Forkeppni hérlendis verður haldin 19. nóvem-
ber 1993 í Háskólabíói.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Tónlistar-
skólans í Reykjavík eða hjá skólastjóra.
Umsækjendur sendi umsókn ásamt upplýs-
ingum um feril og tvær Ijósmyndir (svart/hvít-
ar) fyrir 1. september 1993 til skrifstofu skól-
ans.
Tónlistarskólinn í Reykjavík,
Skipholti 33, 105 Reykjavík,
sími 30625, fax 39240.
ysingar
Miðlarnir af Bylgjunni
Julia Griffiths og Iris Hall eru
komnar til landsins. Tímapant-
anir í síma 688704.
Silfurkrossinn.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Laugardag kl. 9.00: Njáluslóðir.
Verð kr. 2.100.
Ekið sem leið liggur austur í
Rangárvallasýslu og sögustöð-
um Njálu fylgt um leið og sagan
er rifjuö upp. Ógleymanleg ferð
fyrir fróðleiksfúsa fslendinga.
Fararstjóri: Jón Böðvarsson.
Sunnudagur 13. júnf:
Kl. 10.30: Kaldársel - Bollar -
Þríhnúkar (B-6a).
Kl. 13.00: Kristjánsdalir -
Þríhnúkar (B-6b).
Fimmtudag 17. júní kl. 8.00:
Dagsferð til Þórsmerkur.
Til Þórsmerkur verða ferðir
hvern miðvikudag frá og með
23. júní og út ágúst.
Ferðafélag islands.
Barnaheimilið Ós 20 ára
ÍÞRÓTTASAMBAND íslands hefur falið landssamtökunum íþróttir
fyrir alla (ÍFA) skipulagningu og yfirumsjón Kvennahlaups 1993 og
er það stefna samtakanna að gera Kvennahlaupið að stærsta hlaupa-
viðburði ársins.
Markmið með kvennahlaupinu er
sem fyrr að leggja áherslu á íþrótta-.
iðkun kvenna og holla lífshætti sem
konur öðlast með aukinni þátttöku
í íþróttum ásamt skemmtilegum fé-
lagsskap og samveru.
Árið 1992 fór hlaupið fram á 17
stöðum á landinu og tóku um 7.000
konur þátt í því en í ár mun hlaupið
fara fram á 53 stöðum um land allt.
Þetta er nú framkvæmanlegt vegna
stórkostlegs framlags Sjóvá-
Almennra sem eru aðalstyrktaraðili
Kvennahlaupsins í ár. Fram-
kvæmdaaðilar vænta þess að konur
láti ekki sitt eftir liggja, sýni sam-
stöðu og taki þátt í Kvennahlaupinu
19. júní 1993 um land allt.
(Fréttatilkynning)
BARNAHEIMILIÐ Ós við Bergþóruffötu í Reykjavík er á þessu ári 20
ára gamalt. í tilefni af því ætla allir Osarar fyrr og nú að halda afmæl-
ishátíð í Þrastaskógi sem hefst 18.
Það var árið 1973 að hópur for-
eldra í Reykjavík stofnaði barna-
heimili sem þeir nefndu Tilrauna-
bamaheimilið Ós. Annars vegar var
ástæðan sú að mikill skortur var á
'dagvistun fyrir böm og einnig var
þetta markviss tilraun til að reka
barnaheimili með öðrum hætti en
júní og lýkur 20. júní.
tíðkast hafði, segir í frétt frá heimil-
inu.
Heimilið var til ársins 1977 að
Ósi við Dugguvog en flutti þá að
Bergstaðastræti 26 B. Árið 1986 var
flutt í núverandi húsnæði, sem er í
eigu Reykjavíkurborgar, að Berg-
þórugötu 20. Frumkvöðlar að stofn-
Sjóvá-Almennar tryggingar
hf. styrkja Kvennahlaup ISI
0
Hressir Osarar
HRESSIR og kátir Ósarar í morgunmund á loftinu í bárujárnshúsinu.
un barnaheimilisins voru Þórunn Sig-
urðardóttir, Stefán Baldursson, Sig-
rún Júlíusdóttir, Vésteinn Lúðvíks-
son, Jóhanna Þórðardóttir, Jón
Reykdal, Stefanía Traustadóttir og
Sigmundur Öm Arngrímsson.
Rekið af foreldrum
Barnaheimilið Ós er lítið bama-
heimili sem er rekið af foreldrum
þeirra bama sem dvelja þar hveiju
sinni.
Allar nánari upplýsingar um af-
mælishátíð Óss-fjölskyldunnar fást á
Barnaheimilinu Osi.
Dr. Sigrún Stefánsdóttir formaður samtakanna Iþróttir fyrir alla
og Ólafur B. Thors framkvæmdasljóri Sjóvá-Almennra trygginga
hf. skrifa undir samstarfssamning vegna Kvennahlaupsins.