Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 37

Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JLINÍ 1993 37 Sj ómannadagur- inn á Tálknafirði Tálknafírði. HALDIÐ var upp á sjómannadaginn í blíðskaparveðri á Tálkna- firði. Björgunarsveitin Tálkni sá um að skipuleggja hátiðardagskrá og hefur hún gert það um árabil. Dagskráin hófst með guðsþjón- ustu undir berum himni við höfnina en sr. Karl Matthíasson, sóknar- prestur, predikaði. Að lokinni at- höfninni var boðið til skemmtisigl- ingar um fjörðinn á Tálknfirðingi BA 325 og boðið var upp á kaffi og veitingar á meðan á siglingu stóð. Eftir hádegi fjölmenntu síðan bæjarbúar til frekari skemmtunar og tóku bæði ungir og aldnir þátt í hinum ýmsu leikjum sem efnt var til. Það má nefna pokahlaup, reip- tog o.m.fl. í sundlauginni öttu sjó- menn kappi í flotgallasundi, kodda- slag og ýmsu öðru. í lokin fengu síðan bæjarbúar að njóta baksturs kvenfélagskvenna í Hörpu en þær sáu um kökuhlaðborð í tilefni dags- ins. - Helga. Umhverfiskoðun- Frá hátíðarhöldunum á Tálknafirði. Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir i arferð í Krýsuvík FARIN verður umhverfiskoðunarferð í Krýsuvík laugardaginn 12. júní nk. Þar, við bæjardyr höfuðborgarssvæðisins, er margt forvitni- legt að sjá af góðum og illum gerðum mannsins við náttúruna, áhrif- um náttúrunnar á mannanna verk og eyðingaröfl hennar sjálfrar. Sérstök áhersla verður lögð á uppblástur Krýsuvíkurheiði, undir Ieiðsögn Guðrúnar Gísladóttur, landfræðings, sem hefur rannsakað uppblásturinn þar. Auk þess verður litið á málar-, bólstraberg- og gjallnám, gömlu brennisteinsnámurnar og göngu- stíga í Seltúni, bæjartottir í Gömlu- Krýsuvík, ummerki um Fomu- Krýsuvík, þar sem hún lenti undir hrauni í Húshólmanum, afleiðingar hrossabeitar í Lambafellunum og á Austur-Engjum og sitthvað fleira. Fararstjórar verða Freysteinn Sig- urðsson og Guttormur Sigbjarnar- son. Lagt verður upp frá Umferðarm- iðstöðinni kl. 9, en stefnt er að endurkomu um kl. 18. Komið verð- ur við á ýmsum stöðum á suður- leið, en hádegishlé verður gert í Gömlu-Krýsuvík eða þar í grennd. Eftir það verður gengið niður í Húshólma, út á Krýsuvíkurberg og upp um Krýsuvíkurheiði. Á heim- leiðinni eftir kaffí verður komið við á fleiri stöðum. Gjald fýrir ferðina er 1.800 kr. Þátttaka í ferðinni er öllum opin, en skráning fer fram við brottför. Venjulegir gönguskór eiga að duga, en ekki sakar að hafa með stígvél. Minnt er á að hafa með sér nesti, því að lystar- auki verður af gönguferðunum í förinni, en það á heldur enginn að þurfa að fara sér að voða í svona ferð. Frekarj upplýsingar má fá á skrifstofu HÍN á Hlemmi 3 (í húsa- kynnum Náttúrufræðistofnunar). (Fréttatilkynning) Safnaðarferð á veg- um Grensáskirkju FARIÐ verður í safnaðarferð nk. sunnudag 13. júní um Hvalfjörð, Svínadal og verið við guðsþjónustu í Saurbæjarkirkju. Brottför verður frá Grensás- kirkju við Háaleitisbraut kl. 10. Áætlað er að koma til Ferstiklu rúmlega ellefu og stoppað þar smá- stund. Síðan verður farin hringferð um Svínadalinn og sveitin skoðuð. Hádegisverður, sem kvenfélags- konur Saurbæjarkirkju annast verður snæddur kl. 12.30 í Félags- heimiiinu Hlöðum. Þá verður haldið að Saurbæ og tekið þátt í guðsþjón- ustu sem sr. Jón Einarsson, prófast- ur og sr. Gylfí Jónsson annast, en auk þess mun sr. Jón segja frá kirkj- unni og sr. Hallgrími Péturssyni, sálmaskáldi. Lagt verður af stað heim eftir guðsþjónustuna og áætlað að koma til Reykjavíkur kl. 16. Fargjald er 1500 kr. og er allt innifalið. (Fréttatilkynning) Honda er auðveldur í endursölu og heldur sér vel í verði. Hugleiddu það, nema þú sért að kaupa þér bíl til Ufstíðar. Það er mikill munur á því hversu vel bílar halda sér í verði. Munurinn á endursöluverði ársgamallrar Honda og annarra bíla getur verið töluverður. Að ári liðnu getur 1 Honda verið allt að 25% verðmeiri « en aðrir bílar í sama verðflokki. 4 z z HONDA VATNAGÖRÐUM - SÍMl 689900 -góð fjárfesting Það sést strax að húsið er málað með Max Max utanhússmálningin er þrælsterk akrylmálning frá Jotun. — Max er með 7% gljáa sem gerir það að verkum að óhreinindin festast síður í henni. — Max er vatnsþynnanleg og því sérlega þægileg í notkun. — Max er fáanleg í hundruðum litatóna. — Max er árangur áratuga þróunarstarfs og hefur reynst einkar vel á Islandi. Max utanhússmálningin situr sem fastast og verndar verðmæti. HUSASMIÐJAN Skútuvogi 16, Reykjavík, sími 687710 Helluhrauni 16. Hafnarfinði, sími 650100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.