Morgunblaðið - 11.06.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
fclk í
fréttum
STÚDENTSPRÓF
Náðu góðum árangri
en læra ekki saman
Nýverið útskrifaði Mennta-
skólinn í Reykjavík stúd-
enta sína og hlutu fjórir nemend-
ur fyrstu ágætiseinkunn. Það
vakti athygli að tveir nemend-
anna í þessum hópi eru par.
Þetta eru þau Flóki Halldórsson
og Elísabet Þórey Þórisdóttir.
Elísabet útskrifaðist úr mála-
deild með aðaleinkunn 9.35 og
Flóki fékk 9.28 í aðaleinkunn í
náttúrufræðideild. Meðaleinkunn
þeirra er því 9.32 sem verður
að teljast mjög góður árangur.
„Nei, við lærum aldrei sam-
an,“ svarar Flóki þegar hann er
spurður um tilhögun heiman-
ámsins. „í rauninni er námið
nokkuð ólíkt hjá okkur og sam-
eiginlegar námsgreinar eru bara
þijár,“ bætir hann við. En er
einhver samkeppni þarna á milli?
„Nei, síður en svo enda væri það
fáránlegt," svara þau bæði.
í sumar starfa þau Elísabet
og Flóki hjá Skógræktarfélagi
Reykjavíkur og láta þau vel af
starfínu. En þrátt fyrir að vinna
hjá sama fyrirtækinu er vinnu-
staðurinn ansi ólíkur. Elísabet
vinnur í plöntusölunni í Fossvogi
en Flóki er flokksstjóri á Þing-
völlum. „Þetta er fimmtán
manna flokkur - við erum aðal-
KÓNGAFÓLK
Silvía miður sín
Morgunblaðið/Einar Falur
Tvö eru betri en einn. Elísabet Þórey Þórisdóttir og
Flóki Halldórsson.
lega í göngustígagerð," útskýrir
hann.
Hún í lögfræði, hann til Kína
I haust ætlar Elísabet í Há-
skólann: „Ég hef mest verið að
hugsa um lögfræðina og ætla
að prófa hana. Annars er sam-
band framhaldsskólanna við Há-
skólann allt of lítið og upplýs-
ingar um námið af skornum
skammti.“
Flóki hyggur á háskólanám í
Kína og hefur verið útnefndur
af ráðuneyti menntamála til þess
að hljóta námsstyrk. „Styrkurinn
er til eins árs en hefur ekki ver-
ið staðfestur enn af kínverskum
stjórnvöldum," segir hann.
Flóki fer utan til þess að læra
kínversku og segir að það geti
hvorki kallast létt verk né löður-
mannlegt: „Málið byggist á tóna-
kerfi þannig að sama orð hefur
mismunandi merkingu eftir
framburði.“ Hann segist gera sér
grein fyrir því að hann verði
ekki altalandi á kínversku á einu
ári og ætli því að nýta tímann
og kynna sér land og þjóð. „Ég
er í rauninni þegar byijaður. I
stúdentsveislunni fékk ég ýmsar
Kínabókmenntir, s.s. orðabækur
og leiðbeiningar fyrir ferðamenn,
og er byijaður að kíkja í þær,“
sagði Flóki að lokum.
Silvía Svía-
drottning
varð fyrir reiðar-
slagi í vor þegar
bróðursonur
hennar, Patríck
Sommerlath, var
staðinn að verki
við innbrot í ljós-
myndavöruversl-
un. Að undan-
förnu hefur hann
einnig verið tek-
inn fastur af lög-
reglu vegna
óspekta í kjölfar
mikillar drykkju á
hinum ýmsu
krám.
Silvía var köil-
uð til yfirheyrslu
vegna þess að
Patrick hefur
meira og minna
búið í konungs-
höllinni frá því
foreldrar hans
skildu árið 1987.
Þegar hann bjó í
höllinni dáðu
frændsystkinin
hann og báru mikla virðingu fyrir
„stóra frænda“. Þegar hann tók
Silvía og öll kóngafjölskyldan mætti við útskrift
Patricks árið 1990, en það var áður en fór að
halla undan fæti hjá honum.
stúdentspróf 1990 fögnuðu Silvía,
Gústav með honum við útskriftina.
í hvert skipti sem lögreglan hef-
ur handsamað hann hringir hann
til Silvíu og segist vera miður sín
og ber því við að hann hafi lent í
slæmum félagsskap. Við fjölmiðla
segist hann vonast eftir að hann
særi ekki kóngafjölskylduna um of,
en viðurkennir þó að hann verði var
við að Karl Gústav sé argur.
Amma Patricks, Alice Sommer-
lath, býr í Þýskalandi og herma
fregnir að hún sé einnig miður sín.
Ekki bætir úr skák að þýska préss-
an heldur lesendum við efnið um
smánir Sommerlath-fjölskyldunnar.
Patrick
hringir alltaf
til Silvíu þeg-
ar hann á í
vandræðum.
FYRIRSÆTUR
H&M ræður
Jasmin LeBon
Danska fyrirsætan Jasmin
LeBon, eiginkona tónlist-
armannsins þekkta Simon Le-
Bon er Búsett í Bandaríkjunum.
í sumar fá Danir þó að sjá
meira til hennar en að undan-
förnu, því verslunarkeðjan
Hennes & Mauritz hefur ráðið
hana til sín sem aðalmódel.
H&M er þekkt fyrir að nota
fremstu fyrirsætur heims til
að auglýsa verslunina. Þannig
hafa Helena Christensen,
Cindy Crawford og Naomi
Campbell allar unnið fyrir
H&M, sem er með verslanir
bæði í Bretlandi og Svíþjóð auk
Danmerkur.
Við upptökur á einni af plötum Randvers, f.v. Jón Jónasson, Guð-
mundur Sveinsson, Jónas R. Jónsson upptökumaður, Ellert Borgar
Þorvaldsson, Ragnar Gíslason og upptökustjórinn Tómas Tómasson.
Eins og myndin ber með sér er hún tekin fyrir um tuttugu árum.
SKEMMTUN
Randver saman á ný
eftir 15 ára hlé
Söng-, hljóm- og gleðisveitin
Randver, sem skipuð er hafn-
firskum kennurum, forstöðumanni
kennsludeildar og skólastjóra ætlar
the milk-car, Grímstunguheiðina,
Góðhjartaða konu (sem elskar sinn
ótrúa mann) og fleiri.
Þeir félagar hittust fyrir
Morgunblaðið/Júlíus
Og samankomnir á ný, f.v. Ellert Borgar Þorvaldson,
Ragnar Gíslason, Jón Jónasson og Guðmundur Sveinsson.
að spila saman um þessa helgi eft-
ir fimmtán ára hlé. Alloft hefur
verið reynt að fá þá Jón Jónasson,
Ellert Borgar Þorvaldsson, Guð-
mund Sveinsson og Ragnar Gísla-
son til að endurvekja gömlu
stemmninguna en ekki tekist fyrr
en nú.
Randver gaf á sínum tíma út
þijár hljómplötur sem eiga það sam-
merkt að hafa verið vinsælar partý-
plötur gegnum tíðina. Þær inni-
halda gleðipopp í þjóðlagastíl og
má þar finna lög eins og Bjössi on
skömmu, tóku nokkrar léttar æf-
ingar og að eigin sögn virðast þeir
hafa batnað með aldrinum. „Við
þroskumst vel,“ sögðu þeir kank-
vísir, enda fjörkálfar miklir, þótt
þeir gegni ábyrgðarstöðum úti í
þjóðfélaginu. Þess má líka geta, að
á sínum tíma þótti sumum ekki til-
hlýðilegt að kennarar væru að
syngja lífmiklar drykkjuvísur og
fara með tvíræð gamanmál, en þeir
létu það ekki á sig fá og héldu
ótrauðir áfram.
Morgunblaðið/Ágúst
Kristján Svavarsson
íþróttamaður UIA
KRISTJÁN Svavarsson var kjörinn íþróttamaður UÍA 1992, en
úrslitin voru kynnt á ársþingi Ungmenna- og iþróttasambands
Austurlands (UIA), sem haldið var fyrir skömmu. Kristján er
fyrirliði meistarflokks Þróttar í knattspyrnu og var honum afhent-
ur farandbikar við upphaf leiks Þróttar og Tindastóls á dögun-
um. Var myndin tekin við það tækifæri.