Morgunblaðið - 11.06.1993, Side 53

Morgunblaðið - 11.06.1993, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993 53 ( ( ( ( ( < i ( < ( ( ( ( ( f Lýðréttíndi fótum troðin Frá Aðalheiði Jónsdóttur: Hefir virðingu Alþingis nokkum tíma verið misboðið jafn. átakanlega og á síðasta þingi, þegar gengið var til atkvæða um EES-samning- inn, sem þingmenn hljóta að hafa vitað að ekki var hægt að sam- þykkja nema svíkja gefin dreng- skaparheit? - Þeir hafa að sjálf- sögðu vitað að óhætt var að trúa orðum þeirra virtu prófessora í stjórnarfarsrétti og þjóðarrétti sem sögðu að samningurinn stæðist ekki íslensku stjómarskrána... Er ekki fullveldi þjóðarinnar verðmætara en svo að hægt sé að gera það að markaðsvöru? Margir hygg ég að óttist að þetta geti haft hörmulegar afleiðingar fyrir land og þjóð... Og er nokkur afsökun til fyrir því að leyfa ekki þjóðaratkvæðagreiðslu, sem marg- sinnis var farið fram á? Ég hygg að fyrir því sé enga afsökun hægt að finna. Og er þetta ekki vítavert gagnvart komandi kynslóðum? Hafa núverandi valdhafar leyfi til að versla með þessa arfleifð þeirra sem koma til með að byggja þetta land? - Þeir tóku við fijálsu full- valda ríki og það er óafsakanlegt ef þeir gera eitthvað sem skerðir fullveldi komandi kynslóða. Þetta vesalings fólk þarf að reyna að skilja að það hefur ekkert leyfi til slíks. Fullveldi þjóðarinnar er ekki þeirra eign, sem það getur ráðskast með og lagt undir í áhættusömum skollaleik. Og naumast er hægt að trúa því að nokkur geri slíkt alls- gáður og ef menn haga sér eins og þeir séu alls ekki gáðir sýnist varla önnur leið fær en að láta þá segja af sér, ef þeir gera það ekki sjálfviljugir. Valdhafar á villigötum Þó að þetta hefði verið góður samningur, þá er ljóst að lýðrétt- indi vom fótumtroðin og það er alvarlegt mál. Þetta fólk heldur kannski að það sé hafíð yfír alla gagnrýni en það er mikill misskiln- ingur... Á íslandi eru engar heilag- ar kýr, sem betur fer og ekki hefur heyrst að málfrelsi hafí ennþá verið afnumið. Alþingi fékk ekki umboð frá þjóð- inni til að versla með fullveldið og ýmsir þingmenn, sem samþykktu lögin um EES-samninginn lofuðu þjóðinni því tveimur dögum fyrir kosningar, að ef þeir næðu kjöri skyldu þeir ekki gera slíkt. - Og þar sem nær helmingur þingsins var andvígur samningnum og.lagði fram tillögu um þjóðaratkvæða- greiðslUj sýnist mér fátt afsaka, að forseti Islands skyldi hundsa vilja þjóðarinnar í þessu örlagaríka máli... .Það er dapurlegt ef fólk í ábyrgðarmestu embættum þjóðar- innar skilur ekki hlutverk sitt. Drengskaparheit aðeins í orði En ég trúi því að enn sé hægt að hnekkja þessum samningi. Eg trúi orðum þeirra manna sem sagt hafa að samningurinn bijóti gegn stjórnarskránni. Þó að þetta fólk taki ekki drengskaparheit hátíð- lega, trúi ég því að lög sem bijóta gegn stjórnarskránni í slíku stór- máli, séu ómerk og að engu haf- andi... Að samþykkja slík lög og þykjast um leið vera að efna dreng- skaparheit við þjóðina og gæta sam- einingarhlutverksins sýnist mér ótrúlegur skortur á réttlætiskennd svo ekki sé meira sagt... En hvað varðar sameiningarhlutverkið, vil ég þá vona, að það sameini þjóðina í að fordæma öll þessi yinnubrögð. Hvort hefír forseti íslands vald sitt frá þjóðinni eða sitjandi ríkis- stjórn?... Hvort ber honum að hlusta á raddir umbjóðenda sinna og hafa í heiðri lýðræðisleg vinnubrögð eða lúta vilja ríkisstjórnar, sem knýr fram slíkan samning með vald- níðslu? Þessi gjörningur gleymist ekki Til eru lög og réttarreglur, sem gilda milli menningarþjóða og til er alþjóðamannréttindadómstóll, sem margir einstaklingar hafa skot- ið máli sínu til, ef þeir hafa fengið rangláta dóma og fengið leiðrétting sinna mála. - En stendur þjóð sem stjómvöld hafa framið á mannrétt- indabrot uppi varnarlaus? Ekki mundi þýða að vísa þessu máli til Hæstaréttar íslands, það eitt er víst. - En samt verður þjóðin að beijast fyrir rétti sínum og kom- andi kynslóða. íslendingar þurftu að líða margra alda kúgun og ánauð áður en full- veldi var náð. Og þegar Alþingi ákvað sambandsslitin við Dani, ákvað það einnig að þjóðaratkvæða- greiðsla skyldi fara fram um málið. Og það var einróma ósk þjóðarinnar að vera fijáls og fullvalda. En nú ákveður ríkisstjórnin og forseti lýðveldisins að taka ekkert tillit til þjóðarvilja... Það verður ógleymanlegt í Islandssögunni. - Aldrei hefír heyrst að sagan minn- ist með virðingu þeirra manna, sem brugðist hafa þjóð sinni. Það mega þeir hugleiða, sem slíkt hafa gert. Aðalheiður Jónsdóttir Kaplaslgólsvegi 55, Reykjavík VELVAKANDI RUSLAHAUGUR A FRÍKIRKJUVEGI Auður Guðmundsdóttir hringdi og sagðist búa í næsta nágrenni Fríkirkjuvegar 11 og Hallar- garðsins. „Ég hefði gaman af að vita hvað ég þarf að horfa lengi upp á svartan ruslahaug- inn á túninu þama, á sama tíma og almenningur má búast við sektum ef hann stendur sjálfur fyrir ruslasöfnun á eigin lóðum. Þetta er víst „listaverk" eftir erlendan Iistamann, en í mínum augum er þetta ekki annað en mengun. Það leggur af þessu reyk í tíma og ótíma og barna- börnin mín hafa verið að eyði- leggja fötin sín á því að snerta þennan ófögnuð. Vonandi er stutt í að þetta verði fjarlægt," sagði Auður. TAPAÐ/FUNDIÐ Gullarmband glataðist GULLARMBAND af Bismark gerð, sem eiganda var afar kært, tapaðist á þriðjudaginn var. Það gæti hafa týnst í Kringlunni, á Geirsnefi eða við verslunarmið- stöðina Glæsibæ. Finnandi er góðfúslega beðinn um að setja sig í samband við Arnbjörgu í síma 814200 eða 650864 eftir klukkan 21. Góðum fundarlaun- um er heitið. Levis gallajakki tapaðist BLÁR merktur Leviá gallajakki tapaðist á lúðrasveitamóti í Hafnarfírði helgina 5.- 6. júní sl. Einnig er lýst eftir hjólkopp- um sem stolið af Saab bifreið um miðjan maí í Breiðholti. Finnandi hvors um sig er beðinn að hringja í síma 76026 um daginn en 74492 á kvöldin. Húslyklar töpuðust HÚSLYKLAR töpuðustu í síð- ustu viku, þeir hanga saman fímm á leðurkippu með bók- stafnum S. Ef einhver hefur fundið þá, þá vinsamlega hring- ið í síma 39901. Hjól tapaðist BLÁTT Muddy Fox fjallahjól með svörtum doppum hvarf frá Víðimel aðfaranótt sunnudagins 29. maí s.l. Hafí einhver orðið hjólsins var er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 16757. GÆLUDÝR Mallý týndist MALLÝ sem er ung læða hvarf að kvöldi 31. maí frá Hjalta- bakka. Hún er svört en háls og loppur eru hvítar. Hún er jafn- framt eyrnamerkt: R 2126. Þeir sem kynnu að hafa séð hana til að mynda í efra eða neðra Breið- holti eru beðnir að hafa samband við Björku á kvöldin í síma 677058. Högni leitar að “fósturforeldrum“ ÞESSI ungi, greindi og góðlyndi högni leitar að góðum “fóstur- foreldrum". Hafíð samband við Önnu í síma 22906. LEIÐRÉTTING Heimilisfang vantaði að hluta í pennavinatilkynningu í blaðinu í gær. Bandarískur læknir, sem gat ekki um aldur en á móður sem er af íslensku bergi brotin og vill skrif- ast á við ungar konur: Robert G. Manolakas, 3715 Dauphin Street, Building 2, 7th floor, Mobile, Alabama 36608, U.S.A. LTW Vinningstölur miðvikudaginn:[ VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING n63,6 1 (á ísl. 0) 87.440.000,- 2 .HfH 0 1.991.684,- 11 84.225,- EJ 4af6 699 2.108,- 3 af 6 Cí+bónus 2.677 236,- BÓNUSTÖLUR Heildarupphæó þessa viku 92.463.423,- á ísi.: 5.023.423,- UPPLVSINGAR. SlMSVARI 91 - 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 ■ TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FYRIBVARA UM PRENTVILLUR Núer Vertu með - draumurinn gæti orðið að veruleika ! GRAFÍSK HÖNNUN: MERKISMENN HF

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.