Morgunblaðið - 11.06.1993, Síða 54
AUK/SÍAk10d11-338
o4
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1993
Opna Sandgerðismótið
í golfi
verður haldið á Vallarhúsavelli, Sandgerði, sunnudag
13. júní. Ræst verður út frá kl. 08.00. Skráning verð-
ur föstudag 11. júní frá kl. 16.00 til 20.00 og laugar-
dag 12. júní frá kl. 16.00 til 18.00 í síma 37802.
Golfklúbbur Sandgerðis.
Sparisjóður Hafnarfjarðar, Garðabæ
Opiú gollmól íSarðáæ
Opna sparisjóðsmótið verður haldið
laugardaginn 12. júní nk.
~ á Vífilsstaðavelli, Garðabæ.
Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar.
Mótið hefst kl. 9.00.
Skráning er í golfskála frá kl. 16.00 í dag.
Glæsileg verðlaun.
Þátttökugjald 1.500 kr.
Sparisjóðurinn sér um sína
Sparisjóður
Hafnarfjarðar GKG
UIUCVERJALAIUD
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort fá afhenta
aðgöngumiða á leikinn á Laugardalsvelli, þriðjudaginn
15. júní kl. 11:00- 18:00.
ATH! MIÐAR VERÐA EKKIAFHENTIR FYRIR
_____________UTAN ÞENNAN TÍMA,_______________
Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort, geta hringt
á skrifstofu KSÍ þriðjudaginn 15. júní kl. 08:00 - 12:00 og
látið taka frá fyrir sig miða sem síðan verða afhentir
samkvæmt nánara samkomulagi.
ISHOKKI
Roy bestur
Patrick Roy, markvörður Montreal, lyftir hér Stanley-bikamum eftirsótta eftir
sigurinn á Los Angeles Kings í úrslitum. Roy var útnefndur besti leikmaður
úrslitakeppninnar í annað sinn.
Stanley-bikarinn til
Montreal í 24. sinn
Montreal sigraði í NHL-deild-
inni og vann þar með Stan-
ley-bikarinn í 24. sinn í fyrrinótt
eftir að hafa unnið Los Angeles
Kings 4:1 í fimmta úrslitaleik lið-
anna sem fram fór í Montreal.
Kings vann fyrsta leikinn en kanad-
íska liðið hina fjóra. Íshokkílið Mon-
treal er án efa sigursælasta lið
Norður-Ameríku og lék nú í 35.
skipti til úrslita um NHL-titilinn.
Þetta var í fyrsta sinn sem Kings
nær að komast í úrslit. Liðið náði
að velgja Montreal verulega undir
uggum og þurfti að framlengja þijá
leiki, en það var markvörðinn
Patrick Roy, sem réð úrslitum.
Hann var útnefndur besti leikmaður
úrslitakeppninnar eins og árið 1986
og er fimmti leikmaðurinn í sögu
deildarinnar sem hefur tvívegis
hlotnast þessi heiður.
Los Angeles Kings átti 19 skot
að marki Montreal í leiknum í fyrri-
nótt en Roy varði 18 þeirra. Hann
fékk aðeins átta mörk á sig í úrslita-
leikjunum öllum. „Þetta var frábært
og það má þakka þennan góða
árangur fyrst og fremst góðri liðs-
heild. Allir unnu vel fyrir liðið og
það er þess vegna sem Montreal
vann Stanley-bikarinn,“ sagði Roy.
Tap Kings gæti þýtt að mögu-
leikar Wayne Gretzky á að vinna
Stanley-bikarinn aftur væru úr sög-
unni, en hann vann bikarinn fjórum
sinnum með Edmonton Oilers. „Við
höfðum mikið fyrir þessu. Það er
erfiðara að tapa í úrslitum en í
fyrstu umferð. Það var sárt að tapa
þremur leikjum í framlengingu,"
sagði Gretzky, sem ihugar að leggja
keppnisskautana á hilluna.
ISLANDSMOTIÐ
2. D E I L D
KOPAVOGSVOLLUR
- AÐALLEIKVANGUR
Breiðablik - Stjarnan
í kvöld kl. 20.00
Sjóið toppslaginn
RYK2 í deildinni!
NBA
Öruggt hjá
Chicago
Chicago Bulls sýndi meistara-
takta í fyrsta úrslitaleik NBA-
deildarinnar í körfuknattleik gegn
Phoenix í fyrrinótt. Michael Jordan
gerði 31 stig og Scottie Pippen 27 í
100:92 sigri Bulls. Leikurinn fór
fram á heimavelli Phoenix.
Chicago náði yfirhöndinni í byijun,
hafði 20 stiga forskot eftir annan
leikhluta og hélt forystunni út leik-
inn. Phoenix náði reyndar að minnka
muninn í tvö stig í fjórða ieikhluta
en lengra komust heimamenn ekki.
Jordan, stigahæsti leikmaður
NBA-deildarinnar síðustu sjö árin,
fór rólega af stað en gerði 14 stig í
síðasta leikhluta þegar á þurfti að
halda og var stighæstur. Chicago tók
þar með fyrsta skrefið í áttina að
þriðja meistaratitlinum í röð.
„Við erum með reynslumikið lið.
Við höfum verið hér áður og þekkjum
vel hvað þarf til að sigra,“ sagði
Jordan. „Við ætlum að bijóta blað í
sögu NBA. Ég held að ég tali fyrir
alla leikmenn Chicago og vonandi
alla stuðningsmenn er ég segi að við
trúum því að Chicago verði meist-
ari,“ sagði Jordan sem talaði við
fréttamenn eftir tveggja vikna bögn.
Charles Barkley (21 stig) og Rich-
ard Dumars (20 stig) fóru fyrir Pho-
enix, sem var lengi í gang. Barkley,
sem viðurkenndi að lið sitt hefði leik-
ið illa, gerði níu af 21 stigi sínu í
fjórða leikhluta. Hann tók einnig 11
fráköst. Liðin mætast aftur í nótt.
ÚRSLIT
Fram - ÍA 4:2
Laugardalsvöllur, fslandsmótið 1. deild, 4.
umferð, fimmtudagur 10. júní 1993.
Aðstæður: Eins og best verður á kosið.
Mörk Fram: Valdimar Kristófersson 2 (10.,
52.), Ólafur Adolfsson (62. - sjálfsmark),
Ingólfur Ingólfsson (74.).
Mörk ÍA: Mihajlo Bibercic (84.), Alexander
Högnason (90.).
Gul spjöld: Jón Sveinsson, Fram, brot (53.),
Valdimar Kristófersson, Fram, brot (57.)
og Ólafur Adolfsson, ÍA, brot (78.).
Dómari: Eyjólfur Ólafsson.
Línuverðir: Gísli Jóhannsson og Kári
Gunnlaugsson.
Áhorfendur: 1.914 greiddu aðgangseyri.
Fram: Birkir Kristinsson - Helgi Björgvins-
son, Jón Sveinsson, Kristján Jónsson -
Steinar Guðgeirsson, Ágúst Ólafsson, Krist-
inn R. Jónsson, Ingólfur Ingóifsson, Guð-
mundur P. Gíslason (Rúnar Sigmundsson
81.) - Valdimar Kristófersson, Helgi Sig-
urðsson.
ÍA: Kristján Finnbogason - Ólafur Adolfs-
son, Luca Kostic, Theódór Hervarsson -
Haraldur Hinriksson (Pálmi Haraldsson
77.), Alexander Högnason, Ólafur Þórðar-
son, Sigurður Jónsson, Haraldur Ingólfsson
- Mihajlo Bibercic, Þórður Guðjónsson.
ÍBV-FH 2:2
Helgafellsvöllur, 4. umferð, 10. júní 1993.
Aðstæður: Völlurinn dálítið háll enda rign-
ingarúði. Örlítil gola en annars góðar að-
stæður. Þó vel blautt þegar á leið.
Mörk ÍBV: Bjami Sveinbjömsson (16.),
Tryggvi Guðmundsson (54.)
Mörk FH: Jón Erling Ragnarsson (24.),
Andri Marteinsson (88.)
Gult spjald: Þorsteinn Halldórsson (5.) fyr-
ir brot, Hallsteinn Arnarson fyrir mótmæli
(9.), Tryggvi Guðmundsson fyrir brot (24.),
Jón Erling Ragnarsson fyrir mótmæli (25.),
Davíð Garðarsson fyrir mótmæli (77.), Petr
Mrazek fyrir brot (90.)
Áhorfendur: Um 800.
Dómari: Guðmundur Stefán Maríasson.
Línuverðir: Gísli Guðmundsson, Gísli
Björgvinsson.
ÍBV: Friðrik Friðriksson - Yngvi Borgþórs-
son, Jón Bragi Amarsson, Magnús Sigurðs-
son - Martin Eyjólfsson, Anton Bjöm Mar-
kússon, Nökkvi Sveinsson, Tryggvi Guð-
mundsson, Rútur Snorrason - Steingrímur
Jóhannesson, Bjarni Sveinbjörnsson.
FH: Stefán Árnarson - Þorsteinn Halldórs-
son, Petr Mrazek, Ólafur H. Kristjánsson -
Jón Erling Ragnarsson, Davíð Garðarsson,
Þórhallur Víkingsson, Hallsteinn Arnarson,
Þorsteinn Jónsson - Hörður Magnússon,
Andri Marteinsson.
ÍBK-Valur 1:3
Keflavíkurvöllur, 4. umferð, 10. júni 1993.
Aðstæður: Norðvestan gola og þurrt.
Mark ÍBK: Kjartan Einarsson (64.).
Mörk Vals: Kristinn Lárusson (25.), Gunn-
ar Gunnarsson (49.), (57.).
Gult spjald: Steinar Ádolfsson (40.), fyrir
brot, Gunnar Oddsson (58.) fyrir brot, Sæv-
ar Jónsson (58.), fyrir brot.
Áhorfendur: Um 1000.
Dómari: Gunnar R. Ingvarsson.
Línuverðir: Einar Sigurðsson og Egill Már
Markússon.
ÍBK: Ólafur Pétursson - Jakob Jónharðs-
son, Jóhann B. Magnússon, Steinbjöm
Logason - Gestur Gylfason, Sigurður Björg-
vinsson, Gunnar Oddsson, Marko Tanasic,
Róbert Sigurðsson (Karl Finnbogason 59.)
- Kjartan Einarsson (Georg Birgisson 78.),
Óli Þór Magnússon.
Vals: Bjami Sigurðsson - Jón G. Jónsson,
Steinar Adolfsson, Sævar Jónsson, Hörður
M. Magnússon (Jón S. Helgason 88.) -
Bjarki Stefánsson, Ágúst Gylfason, Sigur-
bjöm Hreiðarsson, Kristinn Lárusson -
Gunnar Gunnarsson (Antony Karl Gregory
77.), Þórður Birgir Bogason.
Valdimar Kristóferssyn, Helgi Sigurðsson,
Ingólfur Ingólfsson, Ágúst Ólafsson, Fram.
Gunnar Gunnarsson, Val.
Birkir Kristinsson, Helgi Björgvinsson,
Kristján Jónsson, Jón Sveinsson, Kristinn
R. Jónsson, Guðmundur P. Gíslason, Stein-
ar Guðgeirsson, Fram. Luca Kostic, Sigurð-
ur Jónsson, Haraldur Ingólfsson, IA. Frið-
rik Friðriksson, Magnús Sigurðsson, Jón
Bragi Amarsson,_ Tryggvi Guðmundsson,
Rútur Snorrason, ÍBV. Ölafur H. Kristjáns-
son, Jón Erling Ragnarsson, Þorsteinn Jóns-
son, Hörður Magnússon, Andri Marteins-
son, FH. Gestur Gylfason, Sigurður Björg-
vinsson, Gunnar Óddsson, Marko Tanasic
og Steinbjörn Logason, ÍBK. Bjami Sig-
urðsson, Kristinn Lárusson, Jón Grétar
Jónsson, Sævar Jónsson, Ágúst Gylfason
og Steinar Adolfsson, Val.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍA 4 3 0 1 9: 4 9
ÍBK 4 3 0 1 7: 6 9
KR 3 2 0 1 9: 3 6
VALUR 4 2 0 2 7: 5 6
FRAM 4 2 0 2 8: 7 6
ÞÓR 4 2 0 2 4: 5 6
FH 4 1 2 1 6: 7 5
ÍBV 4 1 1 2 5: 6 4
FYLKIR 3 1 0 2 3: 7 3
VÍKINGUR 4 0 1 3 4: 12 1