Morgunblaðið - 13.06.1993, Síða 2
2 FRÉTTIR/INIMLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1993
EFNI
Yfirlýsing frá landlæknisembættinu
Dáleiðsla aðeins
á færi fagfólks
Landlæknisembættíð varar í fréttatilkynningn almenning við leik-
mönnum sem reyni að skapa sér faglega ímynd í því skyni að gefa
og jafnvel kenna dáleiðslu. Friðrik Páll Ágústsson, dáleiðslumeð-
ferðaraðili, ætlaði að hefja kennslu í dáleiðslu á mánudag. Hann
segir að landlæknir fírri sig ábyrgð með því að nefna sig ekki á nafn
í tilkynningunni. Um leið undrar hann sig á því að embættið skuli
ekki hafa snúið sér beint til sín til þess að fá upplýsingar um starf-
semina.
Fúskarar
Landlæknir segir í tilkynning-
unni að embættið vilji að gefnu til-
efni vekja athygli almennings á því
að dáleiðsla og dáleiðslumeðferð
hvers konar sé virk og vandmeðfar-
in lækningameðferð og sé aðeins á
færi fagfólks að veita hana. Þannig
er minnt á að tilhlýðilega menntun
þurfi til dáleiðslu og hún sé ekki
fag ein út af fyrir sig heldur aðferð
í meðferðartilgangi. „í allmörgum
löndum hafa leikmenn sem engrar
viðurkenndar menntunar hafa notið
reynt að skapa sér faglega ímynd
með óviðurkenndum titlum (oft í
formi skammstafana) og jafnvel
boðið upp á kennslu sem þeir hafa
engan grundvöll til að veita og því
um að ræða fúskara," segir m.a. í
tilkynningunni.
• •
Ossur náði
Rógburður verði kærður
Friðrik Páll Ágústsson, dáleiðslu-
meðferðaraðili, hefur stundað dá-
leiðslu hér á landi í þrjú ár og ætl-
aði að heija kennslu í greininni á
mánudag. Hann segist hafa boðið
landlækni að gefa honum upplýs-
ingar um starfsemina þegar hann
hafi orðið var við að leynilega væri
verið að grafast fyrir um bakgrunn
sinn. Embættið hefði hins vegar
ekki haft samband við hann sjálfan
heldur gefíð út áðumefnda fréttatil-
kynningu og reynt að fírra 'sig
ábyrgð með því að nefna hann
hvergi á nafn. Friðrik sagðist ætla
að fresta því að hefja dáleiðslu-
kennslu uns málið kæmist á hreint
og benti á að til greina kæmi að
kæra rógburð í þessu sambandi.
Aðspurður sagðist Friðrik hafa
lært dáleiðslu í virtum skólum í
Bandaríkjunum og væru þeir viður-
kenndir af alþjóðlegum fagfélögum.
Morgunblaðið/Bjami
Elliðaá brúuð
SLEGIÐ utanaf nýrri brú yfír Elliðaár fyrir neðan stífluna við Elliða-
vatn. Brúin er hluti af fyrirhugaðri stofnbraut sem tengir Suðurlands-
veg við Breiðholtsbraut.
Nýjar stofnbrautir
létta umferðarálag
ekki kosn-
ingní SÁÁ
Á AÐALFUNDI Samtaka
áhugafólks um áfengisvanda-
málið, SÁÁ, í fyrrakvöld voru
12 menn kosnir í 36 manna
stjóm samtakanna og hlutu allir
sem framkvæmdastjóm gerði
tillögu um kosningu nema Ossur
Skarphéðinsson verðandi um-
hverfísráðherra. Að sögn Þórar-
ins Tyrfingssonar, formanns
SÁÁ, munaði aðeins einu at-
kvæði að Össur næði kosningu.
Þórarinn sagði að aðalfundurinn
hefði verið fjölmennur, en aðeins
52 hefðu verið á fundinum þegar
til kosninga kom undir lok hans.
Tveir gengu úr aðalstjóminni að
eigin ósk og gerði framkvæmda-
stjómin tillögu um Össur í stað
annars þeirra. í aðalstjóm samtak-
anna em 36 menn og em 12 kosn-
ir til þriggja ára í senn. Aðalstjóm-
in kýs formann samtakanna, sem
jafnframt er formaður stjómarinn-
ár, og einnig kýs aðalstjómin fram-
kvæmdastjóm. Þórarinn Tyrfings-
son var endurkjörinn formaður
samtakanna til eins árs á aðalfund-
inum.
Þórarinn sagði að umræður um
niðurskurð fjárveitinga til SÁÁ
hefðu sett mark sitt á fundinn og
óvissan um hvort meðferðarstöð-
inni að Staðarfelli yrði lokað um
næstu áramót. Það ræðst af fjár-
lögum næsta árs.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
tvær nýjar stofnbrautir er tengja
munu saman Suðurlandsveg og
Vesturlandsveg annars vegar, og
Vesturlandsveg og Breiðholts-
braut hins vegar. Mun sú síðar-
nefnda taka við umferð milli Suð-
urlands og Breiðholts, Kópavogs,
Garðabæjar og Suðurnesja.
Tenging Suðurlandsvegar og
Vesturlandsvegar mun hins veg-
ar ætlað að létta álagi af gatna-
mótum Bæjarháls og Höfða-
bakka.
Tenging Suðurlandsvegar
við Breiðholtsbraut
Að sögn Rögnvaldar Jónssonar,
umdæmisverkfræðings hjá Vega-
gerð ríkisins, styttir nýi vegurinn
leiðina frá Suðurlandi til Hafnar-
fjarðar um þijá kílómetra. Vegurinn
verður um tveggja kílómetra langur,
með eina akrein í hvora átt.
„Við Jaðarsel koma stefnugreind
gatnamót með umferðarljósum, og
rétt þar fyrir austan koma undir-
göng, því böm nota mikið skíða-
svæðið sem þama er,“ sagði Rögn-
valdur. „Svo er þetta bara þjóðvegur
áfram að Elliðaánum, þar sem verið
er að byggja 50 metra langa brú.
Þar verður hægt að ganga og ríða
undir brúna sitt hvorum megin við
ána. Þá verður vegurinn tengdur
Rafstöðvarvegi, sem liggur að hest-
húsunum og Dýraspítalanum, og
Elliðavatnsvegi, sem liggur upp í
Vatnsendahverfið."
Tenging Suðuriandsvegar við
Vesturlandsveg
Nýr vegur verður lagður frá Rauða-
vatni og inn á Vesturlandsveg rétt
vestan við Grafarholt, og tengir þar
með Suðurlandsveg og Vesturlands-
veg án þess að aka þurfí inn í Árbæ-
inn. „Við Grafarholt fer vegurinn
aðeins inn á golfvöllinn, en við höfum
komist að samkomulagi við golf-
menn um að færa fimmtánda teig,“
sagði Rögnvaldur. „Á þessum kafla,
sem er hátt í tveir kílómetrar, verða
tvenn undirgöng. Göng fyrir gang-
andi vegfarandur verða við Rauða-
vatn og göng fyrir bíla, gangandi
og ríðandi verða nálægt golfvellin-
um. Við munum tengja Suðurlands-
veginn við Vesturlandsveginn með
bráðabirgðagatnamótum, en í fram-
tíðinni munu verða þama mislæg
gatnamót."
Vesturlands vegor tvöfaldur
á Höfðabakka
í tengslum við þetta er unnið að
framkvæmdum við Vesturlandsveg
á Höfðabakka. Þar stendur til að
leggja tvöfalda akbraut allt frá nú-
verandi gatnamótum á Höfðabakka
austur fyrir ný gatnamót. Verða þá
tvær akreinar í hvora átt á þeim
kafla.
Velta brug’giðjanna 300 millj.?
Rannsóknarlögreglan i Hafnarfírði stöðvaði í
fyrrinótt starfsemi öflugrar bruggiðju við Reykja-
vikurveg í Hafnarfirði og lagði hald á 120 lítra
af landa, 100 litra af gambra og bruggtæki. Mað-
ur var handtekinn á staðnum og annar, meintur
eigandi framleiðslunnar, var handtekinn í Reykja-
vik i gærmorgun. Þetta er niunda stóra bruggiðj-
an sem lögreglan hefur stöðvað starfsemi hjá á
árinu og sjaldan eða aldrei hefur verið lagt hald
á jafnmikið af landa í einni húsleit.
Áætlað er að allt að 10-20 þúsund lítrar af 40%
landa flæði á markað hér á landi á hveijum mánuði.
Lögreglumaður áætlar í samtali við Morgunblaðið að
landamarkaðurinn velti allt að 300 milljónum króna
á ári og heildarsalan sé þá um 200 þúsund lítrar.
í grein um hinn ört vaxandi landaiðnað í blaðinu
í dag lýsir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, efa-
semdum um opinbera verðlagningarstefnu í áfengis-
sölumálum hér á landi.
Allt árið í fyrra stöðvaði iögreglan starfsemi í 36
bruggiðjum en frá áramótum til dagsins í dag hefur
meira magni af bruggi verið hellt niður en allt árið
1992.
Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu er landi
orðinn útbreiddasti vímugjafí unglinga og sá sem
auðveldast er fyrir þá að nálgast. Einnig hefur færst
mjög í vöxt að fullorðnir sækist eftir landa enda er
hann ódýrari en löglegt áfengi og talinn kosta um
1.500 krónur lítrinn að jafnaði.
Sjá: „Brugg“ á bls. 10.
► 1-48
Brugg
►Þrengri efnahagur almennings,
hátt áfengisverð og unglinga-
drykkja hafa skapað markað fyrir
landabrugg./lO
Járnmadonnan eða
fjölskyldumaðurinn
►íhaldsflokkurinn í Kanada kýs
nýjan leiðtoga og arftaka forsætis-
ráðherra í dag./12
Ráðherrar á förum
►Rætt við Jón Sigðurðsson og
Eið Guðnason, sem senn standa
upp
úr ráðherrastólum sínum og hverfa
til annarra starfa./ 14
Hve glöð er vor elli
►Anna og Peder la Cour hafa
afsannað að elli sé hrörleg./16
Edvard Grieg
►Um þessar mundir eru liðin 150
ár frá fæðingu norska tónskáldsins
Edvards Griegs./ 18
B
► l-32
Penlngar Papanna
►Elsti manngerði hluturinn sem
fundist hefur hér á landi er róm-
verskur koparpeningur, sem
fannst á Skansinum í Vestmanna-
eyjum árið 1991. Ragnar Borg
myntfræðingur hefur ritað grein
þar sem segir meðal annars að
fundur þeirra fímm peninga, sem
hér hafa fundist, sanni að papar
hafi verið hér fyrir landnám nor-
rænnavíkinga./l
Að útbreiða fagnaðar-
erindi djassins
►Sigurður Flosason hefur blásið
djass hálfa ævina enda í fremstu
víglínu íslenskra djassleikara./lO
Úr gjörgœslu á söng-
pall
►Þorbjörg Magnúsdóttir læknir
vatt sér í söngnám eftir ævistarf
við svæfíngar og gjörgæslu og lauk
því nýverið með einsöngstónleik-
um./12
Einn á báti
►Áhugi á kajakróðri hefur vaknað
ánýhérálandi././16
Sænsk vandamál og
íslensk minnimáttar-
kennd
►Rætt við Ylvu Hellerud, sendi-
kennara í sænsku við Háskóla ís-
lands/18
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttír 1/2/4/6/bak Dægurtónlist 14b
Kvikmyndahúsin 22 Kvikmyndir 15b
Leiðari 24 Fólk í fréttum 22b
Helgispjall 24 Myndasögur 24b
Reykjavíkurbréf 24 Brids 24b
Minningar 26 Stjömuspá 24b
íþróttir 42 Skák 24b
Útvarp/sjónvarp 44 Bíó/dans 25b
Gárur 47 Bréf til blaðsins 28b
Idag 6b Vclvakandi 28b
Mannlífsstr. 8b Samsafnið 30b
INNLENDAR FE .ÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4