Morgunblaðið - 13.06.1993, Page 40

Morgunblaðið - 13.06.1993, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1993 Lionsklúbburinn styrkir Björgunarsveitina Sæbjörgu Ólafsvík. LIONSKLÚBBUR Ólafsvíkur á 20 ára afmæli á þessu ári. í tilefni af því styrkti klúbbur- inn Björgfunarsveitina Sæ- björgu með 150 þúsund kr. framlagi. Ennfremur gaf Lionskúbburinn Slökkviliði Ólafsvíkur andvirði þriggja handtalstöðva og bílasíma allt að 200 þús. kr. til minningar 'infi Hjálmtý Ágústsson, fyrrum slökkviliðsstjóra sem dó af slysför- um fyrir fáeinum árum. Afhending gjafanna fór fram 11. maí sl. en þann dag hefði Hjálmtýr heitinn orðið fimmtugur. Núverandi formaður Lions- klúbbs Ólafsvíkur er sr. Friðrik J. Hjartar. - Helgi. Morgunblaðið/Alfons Minningargjöf afhent Fulltrúar Slökkviliðs Ólafsvíkur eru til vinstri, tveir stjórnarmenn Lionsklúbbs Ólafsvíkur fyrir miðju en til hægri fulltrúar Björgunar- sveitarinnar Sæbjargar. BARRUECO Tónlist Jón Ásgeifsson Listahátíðin í Hafnarfirði held- ur áfram með miklum glæsibrag og líklega verða tónleikar Barru- ecos meðal hápunkta hátíðarinn- ar. Hann er mikill tekniker, bæði í leik og túlkun. Túlkun og tilfínn- ing fyrir því dulda, er grunduð á tækni, sem ekki verður lærð og þar á Barrueco gildan sjóðinn. Fyrsta verkið á efnisskránni var svíta nr. 7 í d-moll, eftir Silv- ius Leopold Weiss (1686-1750) en hann var þýskur lútu- og þeor- boleikari er starfaði með Scarl- atti, Lotti, Hasse, Opoora, Quants og Fux og samdi nokkur verk fyrir lútu. Svítan er fallegt verk og var ágætlega leikin, þó gleymska kæmi fyrir í fyrsta þættinum. Inngangur og tilbrigði yfir stef eftir Mozart, er eitt af frægari gítarverkunum eftir snill- inginn Fernando Sor og var þetta skemmtilega verk frábærlega vel leikið. Fjögur smáverk eftir Lou Harrison (1917) eru skemmtilega samin fýrir gítar og eitt af því sem einkennir þau er eins konar píanóstíll, þar sem undir stefinu er sérstakur undirleikur, oft þrá- stefjaður en ávallt skemmtilega unninn og var leikur Barrueco afburða blæbrigðaríkur og fallega úrfærður. Harrison er Bandarísk- ur og lærði bæði hjá Henry Cow- ell og Arnold Schönberg. Sjö barnalög, eftir Chich Corea (1941) eru áferðafalleg og voru glæsilega leikin og sama má segja um lögin eftir Rodrigo og Al- beniz, sem eru meðal frægustu gítarverka samtíðarinnar. Barrueco er óumdeilanlegur snillingur, því tæknileikur hans verður að fallegri og litbrigðaríkri tónlist og þá hættir tæknin að skipta meginmáli, vegna þess að það mikilvæga er fegurðin sjálf. RAÐA UGL YSINGAR Höfðabakki 9 Á næstu mánuðum verður laust til leigu húsnæði í sambyggingunum á Höfðabakka. Hér er um að ræða húsnæði af ýmsum stærðum, bæði í hábyggingu og lágbygging- um, sem hentar ýmiss konar atvinnurekstri og skrifstofum. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu okkar. íslenskir aðalverktakar sf., Höfðabakka 9, sími 676166. Til leigu Höfum til leigu nokkur skrifstofuherbergi á mjög góðum stað við Skeifuna. Leigjast öll saman eða hvert fyrir sig. Upplýsingar í síma 679999 á skrifstofutíma. Leigulistinn leitar að 250-300 fm atvinnuhúsnæði fyrir opinbera stofnun. Húsnæðið þarf að skiptast til helminga í skrifstofur, lager, pökkun o.fl. Langtímaleigusamningur í boði. Leigulistinn - leigumiðlun, Borgartúni 18, sími 622344. Skrifstofuhúsnæði Suðurlandsbraut Við Suðurlandsbraut í Reykjavík er til leigu 164,5 fm bjart og vistlegt skrifstofuhúsnæði á 6. hæð í einu glæsilegasta skrifstofuhúsi borgarinnar. Svalir á þrjá vegu. Fallegt út- sýni til norðurs og austurs. Lyfta er í húsinu. Bifreiðastæði fyrir starfsmenn á lokuðu bif- reiðastæði. Upplýsingar veita Einar eða Sigurður í síma 689560. Fjárheimtan hf., Suðurlandsbraut 4A, Reykjavík. Garðsláttur Ertu í vandræðum með garðinn? Við leysum úr vandanum. Geri föst verðtilboð. Uppl. í síma 73555. Læknamiðill er starfandi Upplýsingar í síma 675344. Menningarmiðstöðin Laugarland, Holtum Tjaldstæði, svefnpokapláss, sundlaug, heitur pottur, gufu- bað, íþróttahús, veitingar. Góð aðstaða fyrir ættarmót og stóra hópa. Simi 98-76533. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Auðbrekka 2 . Kópavogur Sunnudagur: Almenn samkoma kl. 16.30. Þriðjudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Laugardagur: Unglingasamkoma kl. 20.30. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Ræðumaður Sheila Fitz- gerald. Barnagæsla. Allir hjart- anlega velkomnir. fíunhjálp Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00. Mikill söngur. Vitnisburðir Sam- hjálparvina. Kórinn tekur lagið. Barnagæsla. Ræðumaður Þórir Haraldsson. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Ungt fólk 05^-2] með hlutverk YWAM - Ísland Samkoma í Breiðholtskirkju í kvöld kl. 20.30. Vitnisburðir og mikil lofgjörð. Lofaður sé Drottinn sem einn gerir furðuverk! Allir velkomnir. UTIVIST Hjálpræðis- herinn Kirkjuttræti 2 Hjálpræðisherinn [ kvöld kl. 19.30: Bæn. Kl. 20.00: Hjálpræðissamkoma. Kapteinarnir Elbjörg og Thor Narve Kvist stjórna og tala. Allir velkomnir. KFUM/KFUK, SÍK Háaleitisbraut 58-60 Almenn samkoma á Háaleitis- braut kl. 20.30 í kvöld. „Þér munuð öðlast kraft - ( SAMFÉLAGINU." Guðrún Gísla- dóttir og Gísli Friðgeirsson. Lofgjörðarstund. Fyrirbæna- stund eftir samkomuna. Allir hjartanlega velkomnir. Hallveigarstig 1 • sími 614330 Dagsferð sunnud. 13.júní Kl. 10.30 Móskarðshnúkar. Dagsferðir fimmtud. 17.júní Gengið verður úr Bláfjöllum í Hljómskálagarð. Þátttakendur geta valið sér lengd ferðar. Kl. 8.00 Bláfjallaskáli. Kl. 11.00 Heiðmörk. Kl. 13.00 Árbæjarsafn. Dagsferð sunnud. 20. júní Kl. 10.30 Hestfjall í Grímsnesi. Brottför í ferðirnar frá BSl bensínsölu, miðar við rútu. Helgarferðir 18.-20. júni Snæfellsjökuli - sóistöðuferð Gengið á Snæfellsjökul og einnig farið í styttri gönguferðir. Gist í tjaldi/húsi á Arnarstapa. Farar- 9tjórar: Þráinn Þórisson og Anna Soffía Óskarsdóttir. Básar við Þórsmörk Fjölbreyttar gönguferðir um Goðalandið og Þórsmörkina með fararstjóra. Gist í skála eða tjöldum. Nánari uppl. og miða- sala á skrifstofu Útivistar. Útivist. Miðlarnir af Bylgjunni Julia Griffiths og Iris Hall eru komnar til landsins. Tímapant- anir í síma 688704. Silfurkrossinn. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI Ó82533 Sunnudagur13. júní- dagsferðir: Kl. 10.30 Kaldársel - Bollar - Þríhnúkar (B-6a). Ekið eftir Blá- fjallavegi vestari, gengið um Selvogsgötu í Grindarskörð og síðan tekin stefna til norðurs á Þríhnúka. Verð kr. 1.100. Ath. Breyting á röð áfanga í Borgar- göngu (þessi ferð féll niður 16. maO. Kl. 13.00 Kristjánsdalir - Þrí- hnúkar (B-6b). Gengið af Blá- fjallavegi í Kristjánsdali og síðan á Kristjánsdalahorn og áfram að Þríhnúkum. Verð kr. 1.100. Brottför frá Umferðarmiðstööinni, austanmegi, og Mörkinni 6. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Miðvikudagur 16. júní kl. 20. Heiðmörk, skógræktarferð (frítt).Brottför frá Umferðarmið- stöðinni og Mörkinni 6. Fimmtudag 17. júní kl. 8.00. Dagsferð til Þórsmerkur. Til Þórsmerkur verða ferðir hvern miövikudag frá og með 23. júní og út ágúst. Helgarferðir FÍ í júní: 17. -20. júní - Þórsmörk (4 dagar) 17. -18. júní - Þórsmörk (2 dagar) 18. -20. júni - Þórsmörk (3 dagar) Lægra verð í júní. Gist í Skag- fjörðsskála/Langadal, þar er allt sem þarf fyrir gesti meðan á dvöl stendur - gönguferðir - frá- bær náttúrufegurð. 18.-20. júní- Eiríksjökull (aðeins þessi ferði sumar). 25.-27. júní - Þórsmörk. Allar upplýsingar á skrifstofu Fl' Mörkinni 6. Sumarleyfisferðir FÍ íjúní: 1) 17.-20. júní (4 dagar): A. Skaftafell - Öræfasveit. Gist í tjöldum og húsi. Gönguferðir um Þjóðgarðinn. Gróður og fuglalíf í blóma. B. Skaftafell - Öræfajökull. Gist í tjöldum og húsi. C. Skaftafellsfjöll. Göngutjöld. Gengið inn Morsárdal í Kjós. D. Núpsstaðarskógar. Gist ( tjöldum. Frábært gönguland. Brottför kl. 9.00 fimmtudag. All- ar þessar ferðir tengjast efni Árbókar FÍ 1993. 2) 17.-20. júni (4 dagar) Breiðafjarðareyjar - Látrabjarg um sumarsólstöður. Siglt meö Eyjaferðum um' Breiðafjörð - skelfiskveisla. Komið við í Flatey, siglt þaðan að Brjánslæk. Gist i svefnpokaplássi á Birkimel og Örlygshöfn. Fararstjóri: Sigurður Kristinsson. 3) 23.-27. júní (5 dagar Esju- fjöll). Gengið upp Breiðamerkur- jökul og gist í skála Jöklarann- sóknafélagsins í Esjufjöllum. Fá sæti laus. Fararstjóri: Benedikt Hálfdanarson. 4) 27.-29. júní (3 dagar) Grims- ey - Hrísey. Flogið til Grímseyj- ar á sunnudag. Góður tími til gönguferða um eyjuna. Siglt til baka með ferju til Hríseyjar og þaðan uppá Ársskógsströnd með ferju og síðan rútu til Akur- eyrar. Ath. breytta dagsetningu! Farar- stjóri: Þórunn Þórðardóttir. 5) 30. júní - 4. júli (5 dagar). Skemmtiferð um Skagafjörð og Kjöl. Gist f sveitagistingu að bænum Lónkoti í Sléttuhlíð. Siglt til Málmeyjar, ekið fyrir Skaga, til baka um Kjöl. Fararstjóri: Ólafur Sigurgeirsson. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu FÍ. Ferðafélag (slands. Ferð í ævintýradal á Vestfjörðum 18.-25. júlí Gengið um fjöll og dali. Svefnpokagisting. Ótrúlega hagstætt verð. Upplýsingar í síma 91-17982. Orð lífsins, Grensásvegi 8 Almenn samkoma í dag kl. 11. Allir hjartanlega velkomnirl Sjónvarpsútsending á OMEGA kl. 14.30. J Nýja I , postulakirkjan, \h íslandi, _ Ármúla 23, 108 Reykjavík Guðsþjónusta sunnudag kl. 11.00. Axel Kollmann prestur messar. Ritningarorð: „Sá, sem þetta vottar, segir: Já, ég kem skjótt. Amen. Kom þú Drottinn Jesú" (Opb.22.20). Verið velkomin í hús Drottinsl Safnaðarprestur. Kaupmannahöfn - heimilishjálp Læknafjölskylda leitar að þrosk- aðri og sjálfstæðri ungri stúlku til að passa 2 skóladrengi (9 og 12 ára) og til að sinna léttum hússtörfum. Gjarna m. ökuskír- teini. Möguleiki að stunda nám- skeið 1-2 morgna á viku, meðan drengirnir eru í skóla. Góð laun, stórt herbergi með baði, Skrifið eða hringiö til: Charlotte Lund-Andersen, Dyrehavevej 45, 2930 Klampenborg, Danmörk. S. 9045 31640257 e. kl. 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.