Morgunblaðið - 31.07.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
31
Jóhann á ekkí möguleika
í fallhættu
Anand, sem stendur þeim Kasparov og Karpov næstur að stigum,
fellur út úr HM vinni hann ekki Rússann Episín í dag.
Skák_____________
Margeir Pétursson
JÓHANN Hjartarson á
ekki möguleika á að verða
í hópi tíu efstu manna á
millisvæðámótinu í Biel og
komast áfram í áskorenda-
keppnina. Jafnvel þótt Jó-
hann vinni skák sína við
Armenann Lputjan í síð-
ustu umferðinni í dag næg-
ir það ekki, því verði skák-
menn jafnir að vinningum
er gert upp á milli þeirra
með stigaútreikningi og
þar stendur hann ekki vel
að vígi.
Jóhann yrði þó á meðal fyrstu
varamanna og það gæti haft
þýðingu hlaupist fleiri skákmenn
undan merkjum FIDE og gangi
í atvinnumannasamband Kasp-
arovs og Shorts. Atta skákmönn-
um nægir jafntefli í dag til að
komast áfram og baráttan stend-
ur því fyrst og fremst um þau
tvö sæti sem þá eru eftir.
Allra augu munu væntanlega
beinast að þremur skákum, An-
and - Episín, Lautier - M.
Gurevich og síðast en ekki síst
innbyrðis viðureign ungversku
keppendanna Lajos Portisch, 58
ára, og Júditar Polgar, 16 ára.
Staða efstu manna fyrir síðustu
umferð er þessi:
1. Gelfand, Hvíta-Rússlandi
8 Vi v.
2. -8. Van der Sterren, Hol-
landi, Salov, Kramnik og Khalif-
man, Rússlandi, Júdasín, ísrael,
Kamsky, Bandaríkjunum, og
Adams, Englandi, 8 v.
9.—11. Epishin, Rússlandi,
Anand, Indlandi, og Lautier,
Frakklandi, IVi v.
12.—25. Jóhann Hjartarson,
Portisch og Júdit Polgar, Ung-
veijalandi, Shirov, Lettlandi, I.
Sokolov, Bosníu, ívantsjúk,
Úkraínu, M. Gurevich, Belgíu,
Drejev, Barejev, og Svesnjikov,
Rússlandi, Lputjan, Armeníu, Xu
Jun, Kína, Piket, Hollandi, og
Abramovic, Serbíu, 7 v.
Fáist hrein úrslit í skákum
þeirra sem hafa 7 v. eru allir
þeir sem hafa sjö vinninga úr
leik. Athyglisvert er að Anand
verður að vinna Episín, sem
gæti nægt jafntefli. Lautier verð-
ur einnig að vinna skák sína við
Mikhail Gurevich til að eiga
möguleika.
Best stig þeirra sem hafa 7
v., þ.e. samanlagður vinninga-
fjöldi andstæðinganna, hefur
gamla kempan Portisch, sem á
því mjög góða möguleika, vinni
hann Júdit Polgar.
Stórstjörnur á borð við ívantsj-
úk, Shirov og Barejev eiga harla
litla möguleika og eins og áður
segir er Anand, sem næstur kem-
ur þeim Kasparov og Karpov á
stigum í heiminum, langt frá því
að vera öruggur. Sú spurning
vaknar hvort gylliboð frá at-
vinnumannasambandinu hafi
slæm áhrif á baráttuvilja sumra
keppenda í Biel, en Anand hefur
ekki útilokað að ganga til liðs
við þá Kasparov og Short.
Síðasta umferðin hefst kl.
11.30 að íslenskum tíma í dag.
í níundu umferð mótsins tefldi
Jóhann Hjartarson æsispennandi
skák við Kínveijann Xu Jun. í
miðtaflinu lögðu báðir mikið á
stöðuna og kínverski stórmeist-
arinn setti allt í háaloft þegar
hann fórnaði heilum hrók fyrir
sókn. Fórnin reyndist Jóhanni
afar hættuleg, en honum tókst
samt að rugla Kínveijann í rím-
inu og hann lék gróflega af sér.
Þá tókst ekki betur til en svo að
Jóhann missti af glæsilegum
vinningsleik og sat uppi með tap-
að tafl. í miklu tímahraki náði
hann þó að bjarga hálfum vinn-
ingi á land.
Þrátt fyrir að illa hafi gengið
um miðbik mótsins hefur Jóhann
samt teflt nokkuð vel í Biel og
miklu betur en vænta mátti eftir
mikið mótlæti á stórmótinu í
Miinchen um helgina. Staða hans
á mótinu er betri en vænta mátti
miðað við stigaröð keppenda.
Hyítt: Xu Jun, Kína.
Svart: Jóhann Hjartarson.
Nimzoindversk vörn.
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3
- Bb4 4. Dc2 - 0-0 5. a3 -
Bxc3+ 6. Dxc3 — b6 7. Bg5 —
Bb7 8. Rh3 - h6 9. Bh4 - c5
10. dxc5 — bxc5 11. f3 — a5
12. e3 - d6 13. 0-0-0
Það var vinsælt fyrir 3-5 árum
að hróka langt í þessu afbrigði
og blása til sóknar en síðan hafa
fundist nýjar varnarleiðir á svart,
svo nú þykir stutthrókun örugg-
ari.
13. - Ha6 14. Be2 - Rbd7 15.
g4 — Da8 16. e4 — e5 17. g5
— hxg5 18. Bxg5 — Hb8 19.
Hhgl - Re8 20. Rf2 - Hb6
21. Hd2 - Bc6 22. Bdl - Rf8?!
Riddarinn tekur stefnuna á d4
reitinn, en nú nær Kínveijinn
stórhættulegum og nokkuð
óvæntum sóknarfærum. Betra
virðist 22. — f6.
23. Rg4 - Re6 24. Rf6+! -
Rxf6
24. - gxf6 25. Bh6+ - Kh7
26. f4! — Bxe4 27. Dh3 var allt-
of hættulegt.
25. Bxf6 - Kf8
26. Hxg7!! - Rxg7 27. De3-
Da6
Hróksfóm Kínveijans stenst!
27. - Re6 28. Dh6+ - Ke8 29.
Hxd6 - Hxb2 30. Dh8+ - Rf8
31. Bg7 - Hbl+ 32. Kd2 dugir
ekki til að skapa fullnægjandi
mótfæri.
28. b3?
Xu Jun átti að halda sínu striki
og leika 28. Dh6! — Ke8 29.
Hxd6 — Dxc4+ 30. Bc2 — Re6
31. Dh8n----Rf8 32. Bg7 með
óstöðvandi sókn. Nú gat Jóhann
hins vegar unnið með því að leika
28. - Ba4!! því 29. Dh6 - Ke8
30. Dxg7 má svara með drottn-
ingarfórninni 30. — Dxc4+! sem
hvítur má ekki taka.
28. - Re6? 29. Dh6+ - Ke8
30. Hxd6 - Ba4 31. Dh8+ -
Rf8 32. Bg7 - Hxd6 33. Dxf8+
- Kd7 34. Dxb8 - Hg6 35.
Dxe5 - Hgl 36. Dd5+?
Bæði hér og í 38. leik gat
Kínveijinn leikið Dxc5 með vinn-
ingsstöðu.
36. - Ke8 37. De5+ - Kd7 38.
Dd5+? — Ke8 39. bxa4 — Hxg7
40. De5+ - Kf8 41. Db8+ -
Ke7 42. De5+ - Kf8 43. Db8+
og jafntefli með þráskák, þótt
hvítur hefði enn getað reynt að
þæfa taflið til vinnings.
NOKKRIR þeirra, sem stóðu að gerð landkynningarbókarinnar Atl-
antic destiny. Frá vinstri eru Halldór Pálsson, Sigurður Sveinn Jóns-
son, og Björn Hróarsson frá Góðu máli og Knútur Signarsson frá
Prentsmiðjunni Odda.
>
Ný bók um Island
NÝÚTKOMIN er landkynningarbókin Atlantic Destiny og er hún
gefin út af útgáfufyrirtækinu ísland og umheimurinn. Útgáfuþjón-
ustan Gott mál hf. ritstýrði bókinni og Prentsmiðjan Oddi prent-
aði bókina, sem 368 blaðsíður og í veglegu broti.
Yiðey um verslunarmannahelgina
Messa, staðarskoð-
un o g gönguferð
MARGT verður um að vera í Viðey um verslunarmannahelgina og
í dag, laugardag, verður bryddað upp á nýjung sem er skoðunar-
ferð um eyna á hestbaki. Á morgun, sunnudag, verður messa og
staðarskoðun og á mánudag gönguferðir um eyna.
Að sögn Halldórs Pálssonar,
eiganda útgáfunnar ísland og
umheimurinn, kemur bókin fýrst
í stað aðeins út á ensku en stefnt
er að því að gefa bókina einnig
út þýsku.
Hann segir að rúmlega 200 ís-
lenskir aðilar hafí styrkt útgáfu
bókarinnar. „Þessi bók er ekki ein-
skorðuð við eitt ákveðið atriði, svo
sem náttúru eða atvinnulíf, heldur
er þetta alger þverskurður af ís-
landi í heild. í bókinni er t.d. talað
um hin fjölmörgu fyrirtæki hér á
landi, stjórnmál, menningu og
ferðamál svo eitthvað sé nefnt,“
segir Halldór.
Halldór gaf áður út landkynn-
ingarbók um Suður-Afríku, en þar
bjó- hann um nokkurra árabil.
Laugardaginn 31. júlí verður boð-
ið upp á tvær ferðir um eyna á hest-
baki með leiðsögn staðarhaldara, kl.
13.15 og kl. 15.15.
Sunnudaginn 1. ágúst verður
messa kl. 14. Séra Jakob Á. Hjálm-
arsson þjónar fyrir altari.
Að lokinni messu kl. 15.15 verður
staðarskoðun. Hún hefst með því að
kirkjan verður skoðuð og rakin saga
hennar og Stofunnar. Þetta er næ-
stelsta guðshús landsins og elsta
steinbyggða íbúðarhúsið á Islandi.
Að því búnu verður gengið um Við-
eyjarhlöð, fornleifagröfturinn skoð-
aður, sagan rifjuð upp og sagt verð-
ur frá því helsta, sem fyrir augu ber
i eynni og nágrenni hennar. Gengið
verður upp Heljarkinn og litið yfír
eyna frá nýlegri úsýnisskífu og síðan
til kjallara Viðeyjarstofu og litið á
myndir frá viðgerðum á húsinu og
fomleifasýningu sem þar er.
Hestaleiga, kaffisala og bátsferðir
verða með sama hætti og á laug-
ardag.
Mánudaginn 2. ágúst verður
gönguferð á Vestureyna kl. 14.15.
Gönguferðir á frídegi verslunar-
manna hafa notið vinsælda og von-
andi leyfir veður að njóta kyrrðar
og fegurðar Vestureyjarinnar. Farið
verður frá Viðeyjarhlöðum og geng-
inn vegurinn niður að Eiði. A Eiðinu
er að mörgu að hyggja, m.a. gam-
alli lendingu við Kattarnef. Genginn
er nýlegur göngustígur upp á
Vesturey, hugað að listaverki Ric-
hard Serra, Aföngum, farið til vest-
urs og litið á veggjakort sem er yfir
100 ára gamalt, gengið að Lunda-
bökkum og leitað að fljúgandi kanín-
um og þaðan til austurs með Norður-
bökkum. Þegar kemur að fjárhúsr-
ústum sem þar eru verður rifjuð upp
saga af ást í meinum og gengið síð-
an niður á Eiðið á ný. Gangan, sem
tekur tæpar tvær klukkustundir,
endar við Viðeyjarnaust, en þar er
kaffisala.
Hestaleiga og bátsferðir verða
með sama hætti og á laugardag.
Domíiio Do Sol í Portúgal
Dreymir sf.
fær umboð
Fyrirtækið Dreymir sf. hefur
tekið við umboði Hótels Domino
Do Sol í Portúgal. í fréttatilkynn-
ingu frá Dreymi segir, að þeir
sem hafi keypt sér íbúðarrétt í
hótelinu hjá Framtíðarferðum
hafi engu tapað.
í fréttatilkynningunni segir, að
þeir sem hafi keypt íbúðarrétt hjá
Framtíðarferðum og greitt upp í
samning haldi öllum þeim rétti sem
greiðslan hafi gefið þeim. Þeir verði
meðlimir í ferðaklúbbnum RCI, fái
sent meðlimakort sem þeir geti not-
að þegar þeir þurfi á þjónustu
klúbbsins að halda og ferðast á veg-
um klúbbsins til 70 landa..
Tekið er fram í fréttatilkynning-
unni að Dreymir sf. sé algerlega
óviðkomandi Framtíðarferðum.
Það kostar minna \
en þig grunar að '
hringja til útlanda
PÓSTUR OG SÍMI
*150.50 kr.: Verð á 1 mínútu
símtali (sjálfvirkt val) til Japan
á næturtaxta m.vsk.