Morgunblaðið - 24.08.1993, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Fréttamannafundur Shimons Peres á Þingvöllum
Bjartsýnn á árang-
ur í friðarviðræðum
Á Þingvöllum
SHIMON Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, og Davíð Oddsson
forsætisráðherra með fylgdar-
mönnum á leið frá sumarbústað
forsætisráðherra til Valhallar.
'
SHIMON Peres, utanríkisráð-
herra Israels, og Davíð Oddsson
forsætisráðherra áttu fund með
fréttamönnum í Valhöll á Þing-
völlum á laugardag. I máli Peres
kom fram að hann væri mjög
bjartsýnn á að árangur næðist
senn í friðarviðræðum í Mið-
Austurlöndum, hann sagðist búa
yfir ýmiss konar vitneskju sem
styddi þá bjartsýni en fór ekki
nánar út í þá sálma.
Peres sagði að hann væn mjög
ánægður með að koma til íslands
þar sem segja mætti að lýðræðið
hefði að mörgu leyti slitið bams-
skónum. Hann minnti á heimsókn
Davíðs Ben Gurions, þáverandi for-
sætisráðherra ísraels, til íslands
fyrir 32 árum, sagði Ben Gurion
hafa hrifíst mjög af því sem hann
sá og kynntist hér, hann hefði upp
frá því dáð mjög Islendinga.
Peres var spurður um mál Eð-
valds Hinrikssonar. Hann sagðist
hafa rætt það óformlega við Davíð
Oddsson forsætisráðherra en þetta
væri mál dómstólanna, ekki stjóm-
málamanna. „Vandinn er sá að
sönnunargögn em ekki nógu full-
komin en forsætisráðherra Eist-
lands hefur heitið því að láta opna
skjalasöfnin þar og þá gæti eitthvað
komið í ljós. Við krefjumst ekki að
mál verði höfðað nema ný sönnun-
argögn geri það nauðsynlegt“. Ráð-
herrann tók skýrt fram að ísraelar
bæru fullt traust til réttarkerfisins
á íslandi og íslensks lýðræðis og
sagði aðspurður að ísraelar myndu
hlíta úrskurðinum í máli Eðvalds,
hver sem hann yrði.
Peres var einnig spurður álits á
máli Johns Demjanjuks, sem sýkn-
aður var af stríðsglæpaákæru í
ísrael fyrir skömmu, spurður hvort
almenningsálitið væri sterkara en
lögin í Israel. Hæstiréttur landsins
hefur ákveðið að Demjanjuk fái
ekki að fara heim til Bandaríkjanna
fyrr en 2. september meðan kannað
I
I
I
Morgunblaðið/RAX
verði hvort hægt verði að ákæra
hann fyrir aðra stríðsglæpi. Peres
sagði að mál Demjanjuks væri við-
fangsefni hæstaréttar ísraels og
hvorki almenningsálit né afskipti
stjómmálamanna ættu að hafa nein
áhrif á niðurstöður hans.
Afstaða stjórnarandstöðunnar
Minnt var á að nokkrir leiðtogar
stjómarandstöðunnar hér hefðu
hundsað miðdegisverðarboð með
Peres og Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra hefði farið til
Grænlands og myndi því ekki hitta
ísraelskan starfsbróður sinn. Davíð
Oddsson forsætisráðherra vildi taka
fram að Peres væri afar velkominn
gestur og minnti Davíð á góð sam-
skipti ríkjanna allt frá stofnun ísra-
els 1947. Hann sagði Jón Baldvin
hafa látið svo um mælt að sér hefði
þótt mikill heiður að hitta Peres
hefði hann komið því við.
Er minnt var á blaðafregnir þar
sem sagt var að heimsókn Peres
væri orðin „klúður“ sagði Davíð að
allt klúðrið fælist í því að umrædd-
ir leiðtogar hefðu ekki þegið mið-
degisverðarboð. Reyndar hefði
Steingrímur Hermannsson, fyrrver-
andi forsætisráðherra, ekki séð
ástæðu til að tjá stjórnvöldum
ástæðuna fyrir fjarveru sinni. Davíð
sagðist auk þess hafa snætt mið-
degisverð með eiginkonu sinni í
fjöldamörg ár án þess að Ólafur
Ragnar Grímsson hefði tekið þátt
í borðhaldinu og samt hefði ekki
verið um neitt klúður að ræða.
Peres sagðist hvorki vera særður
né undrandi yfir framkomu stjórn-
arandstöðuleiðtoganna en hann
teldi afstöðu þeirra ekki reista á
rökum. „En í lýðræðisríki hafa
menn rétt til að hafa rangt fyrir
sér og sumir nota þann rétt“.
Er Peres var spurður hvort ísra-
elar væru ekki farnir að einangrast
á alþjóðavettvangi sagði hann að
því færi Ijarri. Þvert á móti hefðu
þeir undanfarin ár tekið upp stjórn-
málasamband við ríki sem áður
hefðu hundsað þá, m.a. við „Kína
og Indland sem eru nú engin smá-
ríki“ eins og ráðherrann komst að
orði.
i
I
Rússland í heljargreip-
um spillingarmálanna
Útflutningur á málmum og olíu sagður í höndum „mafíuhópa“
sem selji á niðursettu verði og stingi gróðanum í eigin vasa
Moskvu. Reuter.
BYSSUKÚLUR splundra rúðum á skrifstofu eins ráðherr-
anna í Rússlandsstjórn; háttsettur embættismaður, sem
vinnur að rannsókn á spillingarmálum, heldur því fram,
að sjálfur ríkissaksóknarinn sitji um lif sitt og annar ráð-
herra segir af sér með þeim orðum, að „mafíuhóparnir"
séu að reyna að ná völdunum í Kreml. Það er í skugga
atburða af þessu tagi, sem átökin milli Borísar Jeltsíns
forseta og þingsins standa, og klögumálin ganga á víxl.
Hvorir kenna öðrum um spillingu og glæpsamlega iðju og
það virðist vera af nógu að taka.
Var 2.000
milljörð-
um stolið?
KÍNVERSKIR bankamenn neit-
uðu í gær allri vitneskju um
gífurlegt íjármálahneyksli, sem
sagt var frá í Morgunpóstinum,
dagblaði í Hong Kong. Þar var
fullyrt, að í efnahagsþenslunni
að undanförnu hefðu háttsettir
bankamenn stolið 2.000 millj-
örðum ísl. kr. og flutt að nokkru
úr landi. Kvaðst blaðið hafa í
fórum sínum leynilega skýrslu
frá kínverska seðlabankanum
um þjófnaðinn og kæmi þar
meðal annars fram, að 80
bankamenn, tengdir hneykslinu,
hefðu farið úr landi í júlílok og
aðrir 10 síðan. Erlendir stjórn-
arerindrekar og bankamenn í
Kína eru vantrúaðir á þessa
frétt en vilja þó ekki vísa henni
aiveg á bug.
Yilja einokun í
flughöfnum
burt
SJÖ evrópsk flugfélög hafa
bundist samtökum um að bijóta
á bak aftur einokunarfyrirtæki,
sem hafa á sinni hendi alla þjón-
ustu á jörðu niðri á flugvöllum
í Mílanó og Frankfurt, og sams
konar einokun spánska flugfé-
lagsins Iberia. Flugfélögin sjö,
KLM, Air France, Alitalia, Brit-
ish Airways, Lufthansa, SAS
og Sabena, hafa borið fram
kvörtun við framkvæmdastjórn
Evrópubandalagsins og segja,
að auknu frelsi í loftinu ætti að
fylgja meira frelsi á jörðu niðri.
Þar sem einokunin ríkti sæju
hins vegar sömu fyrirtækin um
allt, innritun farþegar, áfyllingu
eldsneytis og allt þar á milli.
Japanir biðjast
afsökunar
MORIHIRO Hosokawa, forsæt-
isráðherra Japans, flutti stefnu-
ræðu stjómar sinnar í gær á
þingi og baðst þá afsökunar á
grimmdarverkum japanskra
hermanna í stríðinu. Hann
bauðst þó ekki til að inna af
hendi skaðabætur. Að öðm leyti
sagði Hosokawa, að mikilvæg-
asta verkefnið væri að uppræta
pólitíska spillingu í landinu.
Heimsókn
Konstantíns
skrípaleikur
KONSTANTÍN Karamanlis,
forseti Grikklands, sagði í gær,
að heimsókn Konstantíns, fyrr-
verandi Grikkjakongungs, væri
skrípaleikur, sem gert hefði
Grikkja að athlægi og yrði ekki
endurtekin. Hefur heimsóknin
valdið töluverðri spennu í land-
inu milli konungssinna, sem eru
sagðir fáir en háværir, og þeirra,
sem óttast, að Konstantín sé
kominn til að krefjast krúnunn-
ar.
Yaxtalækkun í
Danmörku
DANSKI seðlabankinn lækkaði
í gær vexti á útlánum til banka
úr 11% í 10,5%. Þar með verður
hagstæðara fyrir banka að taka
lán í seðlabankanum. Búist
hafði verið við þessu og talið,
að lækkunin styrkti gengi
dönsku krónunnar en fyrstu við-
brögð bentu þó ekki til að svo
yrði. Yextir eru háir í Danmörku
miðað við önnur Evrópulönd og
lækkunin breytti litlu um það.
Sergei Glazyev utanríkisvið-
skiptaráðherra sagði af sér emb-
ætti um síðustu helgi og gladdi
um leið hjörtu harðlínumannanna
með því að lýsa yfír, að „mafían"
væri að hreiðra um sig í valdakerf-
inu. Sakaði hann jafnframt tvo
nána bandamenn Jeltsíns um að
hafa hrakið sig úr embætti. Harð-
línumenn, kommúnistar og þjóð-
emissinnar, hafa verið með svipað-
ar mafíuásakanir en Glazyev til-
heyrði hvorugum hópnum. Því
þykir líklegt, að meira mark verði
tekið á yfirlýsingum hans en ella.
Ógnun víð hagsmuni
braskaranna?
Glazyev var á leið til Afríku sl.
föstudag þegar skipun kom um,
að hann skyldi snúa við, aðeins
skömmu eftir að hann fór í loftið
frá Moskvu. Daginn eftir sagði
hann af sér. Segir hann engan
vafa leika á, að afsögnin sé til
komin vegna nýrra reglna, sem
hann setti, og takmörkuðu fjölda
þeirra fyrirtækja, sem leyfi hafa
til að flytja út málma og olíu. Ef
þessum reglum yrði framfylgt,
gætu þær komið í veg fyrir eða
dregið verulega úr braski með
þessar afurðir en þær hafa verið
seldar á Vesturlöndum og víðar
fyrir lágt verð, oft langt undir
markaðsverði, og söluverðið hefur
að stómm hluta farið í vasa brask-
aranna sjálfra.
Spillingarpíramítinn
Nefnd, sem Jeltsín skipaði, dró
í síðustu viku upp mynd af spilling-
arpíramítanum en hann hvflir að
mestu leyti á einkafyrirtækjum,
sem stunda ólöglegan útflutning á
olíu og málmum. Á málum hjá
þessum fyrirtækjum er fjöldinn
allur af óbreyttum embættismönn-
um, sem aftur eiga hauka í horni
í lögreglunni og dómskerfinu og §
meðal stjómmálamanna. Júrí Kal-
mykov dómsmálaráðherra nefndi
sérstaklega eitt fyrirtæki, sem
hefur aðsetur erlendis, en var að
hans sögn stofnað fyrir fé, sem
kommúnistaflokkurinn smyglaði
úr landi. „Þetta fyrirtæki hvílir
eins og skuggi yfír landinu enda
er tilgangurinn með því að eyði-
Ieggja efnahagslífíð," sagði Kal-
mykov.
Jeltsín og andstæðingar hans
rífast um það hveijir séu efstir í
píramítanum, stjómi embættis-
mönnunum og taki við mútunum.
Nefndin fyrrnefnda bendir á and-
stæðinga forsetans, þar á meðal á
Alexander Rútskoj varaforseta.
Andrei Makarov, formaður nefnd-
arinnar, sakar hann um að eiga '■
leynilegan bankareikning í Sviss
en Rútskoj neitar því. Þvert á
móti segist hann hafa „töskufylli" ■
af sönnunum gegn Jeltsín-stjórn-
inni.
Morðsamsæri?
Það hitnaði heldur betur í kolun-
um í þessari deilu þegar Makarov