Morgunblaðið - 24.08.1993, Síða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1993
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Grillað á skógardegi
SLEGIÐ var upp grillveislu af tilefni dagsins og sáu bæjarstjórn
Borgarness og fleiri um veisluhöldin.
Borgnesingar opna úti-
vistarsvæði í Einkunnum
^ Iivannatúni í Andakíl.
Á SKÓGARDEGI Skógræktarfélags Borgarfjarðar, 14. ágúst sl.,
opnuðu Borgnesingar útivistarsvæði í Einkunnum. Þar var hafist
handa fyrir um 40 árum að gróðursetja með aðstoð Skógræktarf élags-
ins og fengu nú Borgnesingar og aðrir gestir að sjá glæsilegan árang-
ur. Margir þeirra höfðu gróðursett þar sem unglingar en ekki fylgst
með vexti plantnanna síðan.
í sumar hefur verið unnið að því
að grisja þennan skóg, gera stíga
og merkja gönguslóðir um svæðið
og hefur hópur fólks unnið að þessu
í sérstöku atvinnuátaksverkefni
Borgarnesbæjar og má segja með
sanni að vel hafi til tekist. Gefst
nú Borgnesingum og öðrum að
ganga um þetta svæði, sem er að-
eins í um 6 km fjarlægð frá Borgar-
nesi. Vegurinn þangað hefur verið
lagaður og er nú vell fær öllum
bílum.
Forseti bæjarstjórnar Borgar-
ness, Sigrúnar Símonardóttur opn-
aði þetta svæði í ávarpi formlega
til afnota.
Þijú fyrirtæki, Kaupfélag Borg-
firðinga, Mjólkursamlag Borgfirð-
inga og Vírnet hf. buðu upp á vel
útilátnar veitingar, grillmat með
drykk. Nærri 500 manns voru sam-
ankomnir þennan dag, margir
gengu um sóginn og allir voru sam-
mála um að þarna ættu þeir nú
náttúruperlu í nágrenni bæjarins.
Einkunna og Háfslækjar, sem
rennur um svæðið er getið í Egils
sögu Skallagrímssonar, en sú saga
verður ekki rakin hér.
Stjóm Skógræktarfélags Borg-
arfjarðar hefur unnið að því undan-
farin ár að gera skógarreiti að-
gengilega fyrir almenning. Daníels-
lundur fyrir neðan Svignaskarð viðs
Norðurlandsveg var opnaður fyrir
þremur árum og er hann nú vin-
sæll áningastaður. . d.J.
Orð skulu standa
Enn um starfsþjálfun sjúkraliða
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Hafsteini Þ. Stef-
ánssyni, skólameistara Fjöl-
brautaskólans við Ármúla:
„í Morgunblaðinu laugardaginn
21. ágúst sl. er viðtal við Jóhannes
Pálmason framkvæmdastjóra Borg-
arspítalans og Árna Sigfússon for-
mann spítalastjórnar vegna starfs-
þjálfunar sjúkraliða. Þar er á stund-
um farið all fijálslega með stað-
reyndir og sumt orkar beinlínis tví-
mælis. Vissulega er mér ljóst að
þeir eru að reyna að spara eins og
gert er í flestum opinberum stofn-
unum, en í spamaði verður að gæta
hófs eins og í öðru. Ég tel fulla þörf
á að gera nokkrar athugasemdir við
þetta viðtal.
1. Jóhannes telur spítalann spara
6 milljónir króna með því að hætta
að taka sjúkraliða í starfsnám. Þama
tel ég töluvert of í lagt. Nemar fá
90% af launum í flokki 111,2. þrepi,
þ.e. 49.007 á mánuði. Nemendafjöld-
inn frá FB og FÁ er 20 og starfsvik-
urnar 16. Dagvinnulaunin eru því
fyrir hópinn kr. 3.603.456. Við þetta
bætist eitthvert vaktaálag sem spít-
alinn getur að mestu ráðið með
skipulagi. En vinna nemanna er að
mestu dagvinna því að á þeim tíma
er mesta vinnuálagið og nemarnir
góður vinnukraftur og hljóta að
spara spítalanum einhver önnur
vinnulaun og koma honum þannig
til góða.
2. Jóhannes telur spítalann ekki
skuldbundinn til að veita þessum
sjúkraliðanemum starfsþjálfun, um
það sé enginn samningur. En í bréfi
frá Borgarspítalanum, dagsett 4.
maí og undirritað af hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra, er það staðfest að
spítalinn ætli að taka umrædda
nema í starfsþjálfun og eigi hún að
hefjast 15. ágúst. Við þetta voru
allar áætlanir miðaðar, bæði skólans
og nemanna. Margir þeirra sögðu
t.d. upp annarri vinnu frá þeim tíma.
3. Árni er sammála því að stöðu
starfstengds framhaldsskólanáms
eins og sjúkraliðanáms beri að efla,
en það væri ekki á verksviði stjórnar
Borgarspítalans. Vissulega er það
rétt. Forystan og framkvæmdin hlýt-
ur að vera skólánna en nemunum
verður að koma í starfsþjálfun og
það út á sjúkrastofnanir. Þegar spít-
ali hefur skuldbundið sig bréflega
til að taka nema á ákveðnum tíma
í starfsþjálfun, verður hann að
standa við það, annað gengur ekki;
það er í raun samningsbrot.
En ég held að það sé ekki rétt
að eyða tíma og orku í að deila um
þessi mál í blöðum heldur að drífa
í að endurskoða og endurskipuleggja
þessi nemamál. Jóhannes nefnir að
sjúkraliðanemar væru einu nemamir
á launum en ekki lánum. Athugandi
væri að fella niður launin, taka upp
námslán, gera starfsnámið þá mark-
vissara og þá mætti e.t.v. stytta
það. En það þarf að leysa mál þeirra
nema er nú eru í vanda og nota síð-
an tímann til áramóta til að ræða
saman og endurskipuleggja.
Hafsteinn Þ. Stefánsson
skólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Sölumet á afmælisdögum Jóns Bakan
1500 pizzur á einum degi
MIKIL viðbrögð voru við afmælistilboði flatbökugerðarinnar Jóns
Bakan en tilboðið gilti frá sl. miðvikudegi fram á sl. sunnudags-
kvöld. Á fimm dögum seidust yfir 6000 bökur, að sögn Jóns Hannes-
ar Stefánssonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Þar af seldust
yfir 1500 bökur bæði á miðvikudeginum og á föstudeginum, sem
gerir um hálfrar annarrar milljónar króna sölu hvorn daginn. Að
sögn Jóns H. Stefánssonar er þetta sölumet hjá fyrirtækinu.
„Ætli þetta hafi ekki verið svona
fímmtíu eða sextíu prósent aukning
miðað við venjulegan dag,“ segir
-íón um söluna á föstudeginum.
Hann segist enn ekki hafa orðrð var
við neinn samdrátt vegna ijölgunar
pizzustaða og segir markaðinn sí-
fellt vera að stækka. Hann segir
að þeir hjá Jóni Bakan finni fyrii*-
því fyrstu tvo þijá dagana þegar
nýr staður opnar en svo jafni salan
sig aftur.
Jón Hannes segir það ekki vera
á döfinni hjá þeim að afhenda flat-
bökuna innan 30 mínútna ellegar
gefa hana eins og a.m.k. tveir böku-
staðir hafa byijað á, þar sem hann
telur það vera of áhættusamt.
HÁSKÓLI ÍSLANDS - ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Alþjóðleg ráðstefna um gæðastjórnun
í hugbúnaðargerð
(Quality and Productivity in Software Development)
1.-3. september 1993
Dagana 1 .-3. september verður haldin alþjóðleg ráðstefna um gæðastjórnun í hugbún-
aðargerð. Alls munu 11 erlendir og 3 íslenskir fyrirlesarar halda erindi. Ráðstefnan
verður í Háskóla íslands. Að henni standa Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands,
Raunvísindastofnun Háskólans og Gæðastjórnunarfélag íslands.
Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um ISO 9000 gæðastjórnun í hugbúnaðar-
gerð og um gæðavottun. Einnig verður fjallað um mat („process assessment") á
gæðakerfum samkvæmt aðferðum, sem nú eru notaðar í Bandaríkjunum og Kanada.
Tom Gilb mun fjalla um gæðastjórnun í viðhaldi hugbúnaðar. Loks má geta þess,
að japanskur fyrirlesari mun fjaila um gæðastjórnun í japanskri hugbúnaðargerð.
Frekari upplýsingar fást hjá Endurmenntunarstofnun HÍ, símar 694924 eða -25.
NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI
gefur norrænum vísindamönnum
kost á að sækja um styrki
til vísindamenntunar á
N orðurlöndunum:
• Ráðstefnur og vinnufundir • Ferðastyrkir • Styrkir til
styttri dvalar erlendis • Samstarf • Þátttaka norrænna
vísindamanna í námskeiðum
• Norrænir eða alþjóðlegir r TiTbqÓKNJVRFRESTUn
gestakennarar/ leiðbeinendur t uWloUIV ,
• Skipulagningarfundir i RENNd*' U *
• Annað starf
J5.WJÓBER1992-Í
Umsóknarfresturinn nær einnig til starfsemi sem heyrir undir
norrænu umhverfisrannsóknaáætlunina.
Nánari skilyrði er að finna í upplýsingabæklingi NorFA „Grenselös forskerutdanning
Bæklinginn, sem inniheldur umsóknareyðublöö, er hægt að fá i háskólum,
rannsóknastofnunum, rannsóknaráðum og á skrifstofu NorFA:
NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI
Postboks 2714 St. Hanshaugen, N-0131 Oslo, Noregi.
Heimsóknarheimilisfang: Stensberggatan 26
Sími 90 47 22 03 75 20, Fax 90 47 22 03 75 31
,*4
eéð'
INOVELL
Tæknival
Skeifan 17, sími 681665
NOVELL umbo&lð á íslandi