Morgunblaðið - 24.08.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
fólk í
fréttum
FRÆGÐ
Batnandi mönnum er best að lifa
Charlie Sheen, hinn svarti sauður
Sheen-fjölskyldunnar hefur nú
tekið sig á eftir margra ára drykkju
og eiturlyfjaneyslu. Charlie er sonur
leikarans Martins Sheen og bróðir
Emilios Esteves. Nýjasta mynd
Charlies er gamanmyndin Flugásar
2 en hlutverk hans í myndinni
krafðist þess að hann væri í topp-
formi.
Charlie hélt ásamtþjálfarasínum
til Kyrrahafseyjarinnar Maui, þar
serrr við tóku æfingar frá morgni
til kvölds í ú'óra mánuði. Sheen
æfði, synti og stundaði jóga og
Charlie Sheen mætti með heldur
óklæðilegt skegg á frumsýningu
Flugása 2.
gekk svo hart fram í líkamsrækt-
inni að hann kallaði aðsetur sitt
Dauðabúðimar. Og árangurinn lét
ekki á sér standa, því Sheen minnir
nú helst á Sylvester Stallone, sem
er raunar ein af fyrirmyndunum í
Flugásum. Sheen segist hins vegar
ekki viss um að hann treysti sér í
aðra eins törn, verði Flugásar 3
gerð.
Charlie Sheen lifir nú heilbrigðu
lífi en svo hefur ekki alltaf verið.
Þegar hann var 16 ára var hann
handtekinn fyrir að vera með hass
í fórum sínum og síðar handtekinn
fyrir greiðslukortamisferli. Sheen
var seinna rekinn úr skóla fyrir að
ráðast á líffræðikennarann sinn,
skrópa og að barna skólasystur
sína. Og áfram hélt ljúfa lífið.
Charlie hafði fengist lítillega við
leiklist þegar Oliver Stone bauð
honum hlutverk í mynd sinni Wall
Street, en hún gerði Charlie frægan
á svipstundu. „Ég var dauðadrukk-
inn við upptökurnar á Wall Street
og það eina sem skipti máli var
áfengi, kókaín og klíkan sem ég
var öllum stundum með,“ segir
Charlie. Hann giftist leikkonunni
Kelly Preston, en þau skildu og hún
ér nú gift John Travolta.
Það var fjölskylda Charlie sem
bjargaði honum úr þeirri stöðu sem
hann var kominn í. Emilio bróðir
Charlie sagði hann vera að drepa
Fullur og vitlaus á árum áður.
sig hægt og bítandi með drykkju
og það varð til þess að Charlie fór
í meðferð. Nú er er hann hættur
að drekka og neyta eiturlyfja, hann
hittir dóttur sína reglulega og ein-
beitir sér að leikferlinum. Segist
engan áhuga hafa á því að verða
kvikmyndastjama heldur sé sinn
æðsti draumur að verða betri leik-
ari og að halda sér edrú.
LEYFI
Forsetadóttir
í geimbúðum
Chelsea Clinton, dóttir Bandaríkjaforseta, er mik-
il áhugakona um nýjustu tækni og vísindi. Hún
hefur fyrir löngu lýst því yfir að hún ætli sér að
verða vísindamaður og fyrir skömmu sýndi hún
áhuga sinn í verki er hún sótti geim-sumarbúðir í
Alabama í vikutíma. Unglingarnir sem sækja sumar-
búðirnar fræðast um allt sem viðkemur geimferðum,
auk þess sem þeir stíga upp í eftirlíkingar geimf-
ara. Merkast af öllu þótti Chelsea þó að hitta Sally
Ride, fyrst»,:ven-geimfarann.
Chelsea er enn að venjast nýjum lífstíl foreldra
sinna en hún fer nú hvergi án þess að henni fylgi
lífverðir. Svo var einnig um dvöl hennar í geimbúðun-
um en forsetadótturinni lukkaðist engu að síður að
kynnast nokkrum jafnöldrum sínum, sem sögðu
hana vera ágætisstelpu.
Chelsea undi sér vel í geimbúðunum í Alabama.
SKYLDUR
Rainier undirbýr
Albert prins
Rainier Mónakófursti veit sem
er, að það styttist í að hann
gefi eftir stjórnvölinn í dvergríkinu
Mónakó. Þó að löngum hafi verið
vangaveltur um það hvert bama
hans taki við af honum, segir hann
að það hafi aldrei farið á milli mála.
Auðvitað sé það elsta barn hans,
Albert prins. Hann segir að meint
glaumgosalífemi hans hafi verið
stórlega orðum aukið í gegnum tíð-
ina. Það hafi farið fyrir bijóstið á
mörgum, en hann hafí verið hafður
fyrir rangri sök.
„Albert er myndarlegur ungur
maður og eðlilegt að hann flani
ekki að neinu þegar að því kemur
að festa ráð sitt. Eg ráðlagði honum
snemma að vera fullkomlega viss í
sinni sök áður en hann festi ráð
sitt og því hafa sambönd hans ekki
gengið upp til þessa. Einfaldlega
vegna þess að hann er varkár og
hann hefur ekki enn fundið hina
einu réttu. Þá er með ólíkindum
hvemig farið er með hann í fjölmiðl-
um. Hann má ekki sjást á taii við
sæmilega huggulega stúlku án þess
að því sé slegið upp með stórum
myndum og stríðsletri um nýjustu
„unnustuna". Helsta ráð mitt við
Albert í dag, er að líta ekki um öxl
og velta fyrir sér hvort þetta eða
hitt hafi verið rétt. Hann á einung-
is að horfa fram á veginn og gæta
þess að breyta rétt. Það er það sem
skiptir máli.
-Albert er í erfiðri stöðu og ég
hef því reynt að brýna fyrir honum
að aðskilja sem best hann getur
starf sitt sem tilvonandi valdhafi
og vináttu. Vinir manns em þeir
sem aldrei óska neins af þér. Al-
bert verður að læra að skilja á milli
og ég veit að hann er vakandi fyrir
þessu og hann mun spjara sig.
Hann þarf einnig að átta sig á því
. FYRIRSÆTUR
Hver er
faðirinn?
Dæmdur nauðgari hefur lýst því
yfir að hann sé faðir fyrirsæt-
unnar Naomi Campbell. Móðir
hennar, Valerie, hefur aldrei gefið
upp hver faðir Naomi er, segir hann
hafa yfirgefið sig þegar hún varð
bamshafandi. Að hennar sögn hafa
fjölmargir karlmenn talið sig vera
föður Naomi. Þvertekur hún fyrir
að hinn 42 ára Errol Campbell sé
faðirinn en hann situr nú af sér
átta ára dóm fyrir að nauðga sext-
án ára gamalli stúlku.
Rainier Mónakófursti.
og læra, að staða valdhafa er oft
einmannaleg. Hann getur þurft að
taka erfiðar og sárar ákvarðanir
og þær erfiðustu þarf hann sjálfur
að ákvarða. Síðan þarf hann að
standa og falla einn með ákvörðun-
um sínum og samvisku.“
Rainier undirstrikar að enginn
annar en Albert muni setjast í stól
sinn. „Það hvíla margs konar skyld-
ur á herðum stúlknanna og báðar
hafa átt sínar erfiðu stundir. En
þær hafa spjarað sig og sýnt að
þær eru alls trausts verðar. Þær
munu halda áfram að taka þátt í
verkum og skyldum fjölskyldunnar,
en næsti valdhafi í Mónakó verður
Albert. Það er ekki á mínu valdi
að breyta hefðunum. Ég hef smám
saman verið að bæta á hann í seinni
tíð og held því áfram...“, segir Rain-
er.
Valerie þvertekur fyrir það að
dæmdur nauðgari sé faðir Naomi
Campbell. *
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4100 0004 0072
4543 3718 0006 3233
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4506 43** 4507 46**
4543 17** 4560 08**
4560 09** 4920 07**
4938 06** 4988 31**
4506 21**
kort úr umfefð og sendii VISA íslandi
sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
tyrir aö klótesta koft og visa á vágest.
k^mVISA ISLAND
Hðfðabakka 9 • 112 Reykjavfk
Sfmi 91-671700
AFMÆLI
Fjölmargir heiðruðu Kristjón 100 ára
Fjölmargir ættingjar og vinir
Kristjóns Ólafssonar hús-
gagnasmíðameistara heiðruðu
Yngsti afkomandinn gestir afmælisbarns
dagsins Kristjóns Ólafssonar voru á öllum
aldri. Hér sést Krisfjón heilsa yngsta af-
komanda sínum, eins árs gömlu langafa-
barni sínu, Kára Kjartanssyni.
hann á föstudag, þegar hann hélt
upp á hundrað ára afmæli sitt á
heimili dóttur sinnar og tengda-
sonar.
Kristjón starfaði við
iðn sína í yfir sextíu ár
en hann nam trésmíðar
sem sveinn hjá Eyvindi
Árnasyni líkkistusmið.
Athygli vakti þegar Kris-
tjón á 81. aldursári smíð-
aði eftirlíkingar af hús-
gögnum Jóns Sigurðsson
forseta. Á síðustu árum
hefur hann dvaiist á
dvalarheimili aldraðra
við Dalbraut og sér til
ánægju hefur hann mál-
að og tekið saman vísur,
sögur og ættartölur.
Afmælislagið leikið, en nokkrir afkomenda Kristjóns, sem allir
eru í tónlistarnámi, tóku með sér hljóðfærin í afmæli langafa og
léku meðal annars fyrir hann afmælissönginn.