Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
Alúðarþakkir
fœri ég öllum sem glöddu mig með heimsókn-
um, skeytum og gjöfum í tilefni af 100 ára
afmœli mínu 6. janúar síðastliðinn.
Þuríður Pálsdóttir.
ára afmœlistilboð
‘TóCvusktóCi ísíands er um þessar muncíir 5 ára
og býður af því tiCefni einstalýt afnuzCistiCboð:
Skrifstofutækninám
með 20% afslætti
mm
Bókfærsla
Ritvinnsla, Word fyrir Windows
Tölvubókhald
Tölvureiknir, Excel
Verslunarreikningur
Gagnagrunnur
Tollskýrslugerð
Windows og stýrikerfi
....aðeins
kr. 3990 á mánuði
Tölvuskóli Islands
Sími 67 14 66 vopið til kl. 22
Verðið miðast við jafnar afborganir í 24 mánuði
Andmæli við óhróðri
Ljósrit af áritun Jökuls á Tæmdan bikar.
Við undirrituð systkini biðjum
Morgunblaðið góðfúslegast að
birta eftirfarandi:
Það er stundum rétt að leiða hjá
sér lygar, söguburð, róg og dylgj-
ur. En svo svívirðilega hefur Jó-
hanna Kristjónsdóttir veist að
minningu látins föður okkar og
bróður og vanheiðrað móður okkar
að við, eftirlifandi börn Þóru Ein-
arsdóttur og Jakobs Jónssonar,
getum ekki hugsað okkur að móð-
ir okkar, sem lést 9. janúar s.l.,
verði jarðsungin án þess að and-
mæii okkar komi fram.
Ofurkapp Jóhönnu Kristjóns-
dóttur í svívirðingum og slúðri fór
ekki framhjá þeim sem sáu neðan-
greindan sjónvarpsþátt. Hlakkandi
og hlæjandi hnykkti hún á óhróðr-
inum um fjölskyldu okkar og
skemmti sér auðsjáanlega hið
besta þarna handan við öll mörk
velsæmis og siðferðis. Slík fram-
koma dæmir sig vitanlega sjálf.
Bókin er fyrst og síðast vitnisburð-
ur um hugarfar og innræti höfund-
arins enda byggð á trúnaðarbroti
gagnvart látnu fólki og persónu-
legum árásum á þá sem hafa ekki
lengur aðstöðu til að svara fyrir
sig. Við erum þess þó fullviss að
minning foreldra okkar og orðstír
bíður engan hnekki í hugum þeirra
fjölmörgu skyldmenna, vina og
velunnara sem þau eignuðust í
einkalífi og farsælu starfi í fjöl-
marga áratugi auk þess sem ótal
ritverk þeirra feðga standa sem
ólyginn minnisvarði um þá sjálfa.
Okkur er ljúft að votta hvenær
sem er og frammi fyrir hveijum
serrt er að ævinlega munum við
búa að þeim kærleika sem foreldr-
ar okkar auðsýndu okkur og verð-
ur aldrei fullþakkaður; umhyggja
þeirra fyrir bömum sínum og hvort
öðru og hjálpsemi ómæld voru
hornsteinar fjölskyldulífs. Þau voru
okkur kjöifesta frá fyrstu tíð með-
an þeim entist líf og heilsa. Þau
hjálpuðu ætíð langt umfram það
sem með nokkurri sanngirni er
unnt að ætlast til af foreldrum.
Þau eiga annað skilið en líf þeirra
sé skrumskælt í eldhúsreyfara og
jafnvel lagst svo lágt að hafa uppi
þau ósannindi að foreldrar okkar
hafi lagt á okkur hendur og verið
okkur vondir. Og satt að segja
þykja okkur tímarnir með eindæm-
um úr því ber nauðsyn til að veija
opinberlega gott og fallegt heimili
og kærleiksríka foreldra. Við,
systkinin fjögur sem eftir lifum,
tökum heils hugar undir orð Jök-
uls sem hann skrifaði til foreldra
sinna á titilblað einnar bókar
sinnar: „Til mömmu og pabba, á
jólunum 1951. Ykkur fæ ég aldrei
fullþakkað allt sem þið hafið lagt
á ykkur, til að gera líf mitt gott
og farsælt. Guð blessi ykkur. Jök-
ull.“
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir,
Svava Jakobsdóttir,
Þór Jakobsson,
Jón Einar Jakobsson.
Yfirlýsing
í sjónvarpsviðtali í Stöð 2 milli
jóla og nýárs var Jóhanna Krist-
jónsdóttir spurð um andsvör ætt-
menna Jökuls Jakobssonar, bróð-
ur míns, við bók hennar Perlur
og steinar og var svar hennar á
þá leið að hún hefði rætt bókina
við mig lengi í haust. Þessi um-
mæli er ekki hægt að skilja á
annan veg en þann að mér hafi
verið kunnugt um innihald
bókarinnar og efnistök og jafnvel
lagt blessun mína yfir þann
óhróður sem hún eys yfir for-
eldra mína og bernskuheimili.
Hið sanna er að Jóhanna Kris-
tjónsdóttir hafði óvænt samband
við mig að fyrrabragði sl. haust.
Hún kallaði mig til hálftíma við-
tals út á Kastrupflugvöll í Kaup-
mannahöfn þar sem hún átti leið
um. Erindi hennar reyndist vera
það eitt að segja mér frá því að
bókin væri væntanleg og mundi
hún þar leiðrétta ýmsar „mis-
sagnir“ um Jökul sem hún taldi
lifa með þjóðinni. Handritið að
bókinni var þá komið í prent-
smiðju og er skemmst af að segja
að ég hef hvergi komið nálægt
verkinu, hvað þá samþykkt það
og vissi ekki á hveiju var von
fremur en systkini mín, enda
ekki leitað til okkar eftir heimild-
um. Svar Jóhönnu Kristjónsdótt-
ur í umræddu sjónvarpsviðtali er
ekki unnt að skoða öðruvísi en
sem lævísa viðleitni til að gera
mig samábyrga fyrir bókinni og
hlýt ég að lýsa andúð á óheilind-
um hennar í minn garð.
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir,
Kaupmannahöfn.
>
>
I
I
>
>
>
Hœsta ávöxtun
meöal óbundinna innlánsreikninga
í bönkum og sparisjóbum!
Raunávöxtun Sparileiöar 3 hjá íslandsbanka 7 993 var 4,2%.
Enginn annar óbundinn reikningur hjá bönkum og sparisjóöum gaf
jafn háa ávöxtun þennan tíma.
Sparileiö 3 er alltaf laus til ráöstöfunar. Engin þóknun reiknast af
útteknu fé sem staöiö hefur inni 12 mánuöi eöa lengur.
Taktu markvissa stefnu í sparnaöi.
Þaö borgar sig aö spara á
Sparileiöum í íslandsbanka.
ÍSLAN DSBAN Kl
>
>
>
>
>
>