Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 13 Páll Sigurðsson. Nýjar bækur Fertugasta sýning á Elínu Helenu FERTUGASTA sýning á leikritinu Elínu Helenu eftir Árna Ibsen verður í dag fimmtudaginn 13. janúar. Leikfélag Reykjavíkur frum- sýndi verkið í byrjun október á Litla sviði Borgarleikhússins, og fékk sýningin góða dóma gagnrýnenda og hafa áhorfendur tekið henni vel. Elín Helena segir frá uppgjöri ungrar íslenskrar konu við föður, móður og móðursystur. í fortíð sinni finnur Eiín Helena fyrir óupp- gerðum atvikum og reynir að grennslast fyrir um hvað hafi gerst. Hún fer vestur um haf og heimsækir amerískan föður sinn, Rikka, fyrrum hermann á Kefla- víkurflugvelli, og Helenu móður- systur sína. Heima kveður hún móður sína, Elínu, fyrrverandi konu Rikka. Ingunn Ásdísardóttir leikstýrir verkinu, en Guðrún S. Haralds- dóttir gerir leikmynd. Lárus Björnsson hannar lýsingu, en Hilmar Örn Hilmarsson hljóðmynd. Það eru þau Hanna María Karls- dóttir, Margrét Helga Jóhanns- dóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson sem fara með hlutverk í sýningunni. Enn eru eftir nokkrar sýningar og verða þær næstu í kvöld, fimmtudagskvöld, á morgun, föstudag 14. janúar, og laugardag 15. janúar. (Fréttatilkynning) Sigrún Edda Björnsdóttir í hlutverki sínu í Elínu Helenu. Ritgerðar- safn um lögfræði- leg efni Út er komin ný bók eftir dr. Pál Sigurðsson prófessor við laga- deild Háskóla íslands. Er hér um að ræða annað bindið af ritgerðar- safni hans, Lagaþáttum. Þetta bindi hefur að geyma nítján þætti um lögfræðileg málefni, sem bók- arhöfundur hefur samið á alllöngu árabili og sem flestir hafa birst áður, en jafnframt eru nokkrar greinar frumbirtar í bókinni. í bókinni eru m.a. átta greinar um erlendan rétt og samanburðar- lögfræði, þ.e. um megindrætti í rétti Englendinga, Frakka, Þjóð- veija, Svisslendinga, Bandaríkja- manna, Kínverja og Grænlend- inga. Þá eru í bókinni ítarlegar greinar um valin efni úr fjármuna- rétti, svo sem um misneytingu sem ógildingarástæðu í samningarétti og um þróun réttarreglna um skaðabætur á sviði sjóréttar. Bókin sem er 468 bls. er prentuð í Steinholti hf. en útgef- andi er Háskólaútgáfan. Hún verður fyrst um sinn einkum til afgreiðslu í Bóksölu stúdenta við Hringbraut og hjá Fræðafé- lagi laganema, sem einnig ann- ast dreifingu hennar. veðrabrigða, á svipaðan hátt og minningarnar eru sífellt að taka á sig nýjar myndir. Innandyra eru minningar augnabliksins gripnar á svipaðan hátt; kisan í gluggakistunni, hús- bóndinn í stofunni, yngsti bróðir- inn að blása á kertið á afmælistert- unni. Hinn daufgræni litur eldhús- innréttingarinnar er enduivakinn í stöplum verkanna, og vatnið bendir enn og aftur til hverfulleik- ans. Á loftinu er loks fest í tíma svipmynd áhyggjulausrar æsku; dúkkur, vagn, seivíettur, sendi- bréf. Gestinum er ekki boðið inn í þennan heim, heldur aðeins leyft að gægjast þar inn í örskotsstund - enda ekki hans minningaheimur. Það er sterkur heildarsvipur yfir þessari sýningu, sem er fyrst og fremst helguð persónulegum minningum, sem eru útfærðar á sannfærandi hátt. Sú staðreynd, að verkin munu breytast yfir sýn- ingartímann og þar með heildar- mynd sýningarinnar, segir ef til vill mest um eðli minninganna, sem standa okkur sífellt fyrir hug- skotssjónum. Sýningin „Bernskuminningar“, sem Dröfn Guðmundsdóttir hefur sett upp í Stöðlakoti við Bókhlöðu- stíg, stendur til sunnudagsins 23. janúar, og er vel þess virði að líta inn í þetta skemmtilega hús. ARANGUR Sveinn Andri Sveinsson, borgarfulltrúi, hefur sýnt að hann hefur kjark til að hrinda í framkvæmd nauðsynlegum sparnaði og nýjungum til hagsbóta fyrir alla Reykvíkinga. ^^Jndir forystu Sveins Andra hefur afkoma SVR batnað um 200 milljónir króna. Liður í þessum ánægjulegu umskiptum var sú staðfasta ákvörðun hans að framfylgja þeirri stefnu Sjálfstæðisflokksins að breyta SVR í hlutafélag. ^^Jndir forystu Sveins Andra var ákveðið að innleiða mánaðarkort hjá SVR og hefja á næstunni næturakstur strætisvagna um helgar. Sveinn Andri hefur á kjörtímabilinu verið í forystu fyrir sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu og stóreflt samtök þeirra. ^^yrir atbeina Sveins Andra yfirtóku Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu akstur fatlaðra skólabarna, bættu þjónustuna og lækkuðu tilkostnað um 25%. f^Sveinn Andri stóð fyrir því að greiða fyrir umferð í borginni með því að takmarka akstur vinnuvéla á * helstu stofnbrautum á aðalumferðartíma. Yfirgnæfandi meirihluti Reykvíkinga hefur sýnt með afstöðu sinni í kosningum að hann styður hugmyndir Sveins Andra um sameiningu Reykjavíkur við nágrannasveitarfélög. Sameining er mikilvægt skref í átt að aukinni hagræðingu í rekstri sveitarfélaga. Við neðangreindir sjálfstæðismenn lýsum stuðningi okkar við framboð Sveins Andra Sveinssonar borgarfulltrúa í prófkjöri sjálfstæðismanna. Garðar HalldórssOn, húsameistari rtkisins Vala Thoroddsen, frú Þór Sigfússon, hagfræðingur Margrét Theódórsdóttir, varaborgarfulltrúi Ásgeir Pétursson, hrl. fyrrv. alþingismaður og bæjarfógeti Þorgrímur Þráinsson, rithöf. og ritstj. Gísli Halldórsson, forseti Ólympíun. íslands Hannes H. Garðarsson, fyrrv. form. Óðins Guðmundur Hallvarðsson, alþingismaður Sólveig Pétursdóttir, alþingismaður Eyjólfur Sveinsson, aðstoðarm. forsætisráðh. Hulda Valtýsdóttir, varaborgarfulltrúi Ásgeir Thoroddsen, hæstaréttarlögmaður Bogi Ingimarsson, hrl. form. Sjálfstæðis- félags Htíða- og Holtahverfis Gunnar G. Schram, lagaprófessor Magnús Jónasson, framkvæmdastjóri sr. Þórir Stephensen, staðarhaldari Margrét S. Einarsdóttir, forstöðumaður Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður SUS Ingólfur Sveinsson, varaborgarfulltrúi Barði Friðriksson, hæstaréttarlögmaður Þórarinn Sveinsson, læknir, formaður Sj álfstæðisfé lags Háaleitishverfis Lára Margrét Ragnarsdóttir, alþingism. Jón Sigurðsson, form. íþróttafél. fatlaðra.. Ágætu sjálfstæðismenn. Stjórnmálamaður sem sýnir frumkvæði og framkvæmdavilja mætir gjarnan mikilli andstöðu þeirra sem standa gegn öllum breytingum í framfaraátt og vilja hjakka í sama gamla farinu. Látum ekki áróður og aðgerðir andstæðinga Sjálfstæðisflokksins villa okkur sýn. Kjósum Svein Andra í eitt af efstu sætunum. Stuðningsmenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.