Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR1994 H 33 JMtogunÞIafetfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Beðið eftir nafn- vaxtalækkun Bankar og sparisjóðir lækk- uðu ekki vexti af óverð- tryggðum lánum í fyrradag, eins og búizt hafði verið við, nema að óverulegu leyti. Vextir af óverðtryggðum lánum eru nú um fjórum prósentustigum hærri en vextir af verðtryggðum lánum. í samtali við Morgun- blaðið fyrir rúmri viku, sagði Sighvatur Björgvinsson, við- skiptaráðherra, að vaxtastefna ríkisstjórnarinnar hefði ekki náð fram að ganga fyrr en nafnvext- ir hefðu lækkað. Og viðskipta- ráðherra bætti við: „Það eru engin rök, sem standa lengur til þess að nafnvextirnir lækki ekki.“ Um 40% af heiidarútlánum bankakerfisins eru óverðtryggð en 34% útlánanna eru verð- tryggð. Það er því augljóst, að ekki er nema hálfur sigur unn- inn, þótt vextir af verðtryggðum útlánum hafi lækkað um tvö prósentustig vegna þeirra að- gerða, sem ríkisstjórn og Seðla- banki hafa gripið til. Nafnvextir verða að lækka líka til þess að hægt sé að segja, að markmið ríkisstjórnarinnar í vaxtamálum hafi náð fram að ganga. Vegna yfirlýsinga talsmanna bankanna í nóvember og desem- ber var gengið út frá því sem vísu, að nafnvextir mundu lækka verulega um áramót. Það gerðist ekki. Þær skýringar voru m.a. gefnar á því, að það væri tæknilega erfitt að framkvæma slíka vaxtabreytingu um ára- mót. Þess vegna var gengið út frá því sem vísu, að vaxtalækk- unin mundi koma til fram- kvæmda nú í þessari viku. Það gerðist heldur ekki. Hvað veld- ur? Bankarnir höfðu viss rök fyr- ir því, að lækka ekki nafnvextina til jafns við lækkun vaxta af verðtryggðum lánup fyrr en í byijun þessa árs. Ástæðan var það misgengi á milli verð- tryggðra innlána og óverð- tryggðra útlána, sem hefur vald- ið miklum erfiðleikum í rekstri bankanna á undanförnum miss- erum. Þau rök eru ekki lengur fyrir hendi. í forystugrein Morgunblaðs- ins hinn 4. desember sl. var fjall- að um þennan þátt málsins og þar sagði m.a.: „Nú um næstu áramót verður hins vegar breyt- ing á þessu fyrirkomulagi, sem losar banka og sparisjóði úr þeirri spennitreyju, sem þeir hafa verið í af þessum sökum. Þar að auki hafa þeir nú samn- inga við Seðlabanka, sem draga verulega úr áhættu þeirra af framangreindu misgengi. Við- skiptamenn þessara lánastofn- ana geta kyngt því, að raunvext- ir óverðtryggðra útlána verði jafn háir og þeir eru nú fram til áramóta en ekki lengur. Um áramót hlýtur sú krafa að verða gerð til banka og sparisjóða að þeir lækki nafnvextina veru- lega.“ Sú ákvörðun bankanna að halda nafnvöxtum að mestu óbreyttum fyrstu 20 daga hins nýbyijaða árs þýðir að skuldarar óverðtryggðra lána greiða gífur- lega fjármuni til bankanna um- fram það, sem skuldarar verð- tryggðra lána gera. Þótt rök geti verið fyrir því, að einstaka óverðtryggð útlán beri háa vexti, svo sem greiðslukortalán og önnur slík neyzlulán, eru engin rök fyrir því, að 40% allra útlána bankakerfisins beri raun- vexti, sem eru fjórum prósentu- stigum hærri en á verðtryggðum útlánum. Bankamir hafa notið skiln- ings almennings á undanförnum misserum í umræðum um hið háa vaxtastig, Nú þegar raun- vextir verðtryggðra útlána hafa lækkað svo mjög og ekki eru lengur fyrir hendi þau efnislegu rök, sem skýrðu háa nafnvexti fram til áramóta, er fyrirsjáan- legt að alvarlegur trúnaðar- brestur verður á milli bankanna og viðskiptamanna þeirra og bankanna og stjórnvalda, sem hafa gert vaxtalækkun að grundvallaratriði í efnahags- og fjármálastefnu sinni. Það fer ekkert á milli mála, að vaxtalækkunin í nóvember gjörbreytti öllum viðhorfum í efnahags- og atvinnumálum landsmanna. Það fer heldur ekk- ert á milli mála, að hún gjör- breytti hinu pólitíska andrúmi í landi og styrkti stórlega stöðu ríkisstjórnarinnar. Stjórnar- flokkarnir eiga nú mikið undir því, að ekki komi bakslag í vaxtastefnu þeirra. Raunar hef- ur það svo mikla pólitíska þýð- ingu fyrir þá báða, að þegar engin efnisleg rök eru lengur fyrir hendi hjá bönkunum til þess að halda hinu háa nafn- vaxtastigi, hlýtur óbreytt stefna bankakerfisins að leiða til harðra átaka á milli þeirra og stjórnvalda. Raunar gaf við- skiptaráðherra það fyllilega í skyn í samtali við Morgunblaðið hinn 4. janúar sl., þegar hann sagði um nafnvextina, að kannski þyrftu bankarnir „handleiðslu ríkisstjórnarinnar í því kerfi eins og verðtryggða kerfínu". Þegar á allt þetta er litið er afstaða bankakerfisins til nafn- vaxtalækkunar á fyrstu vaxta- breytingardögum þessa árs óskiljanleg. Það er beðið eftir nafnvaxtalækkun. Utanríkisstefna á lýðveldisafmæli II Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Þegar Alþingi samþykkti aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu gerðu kommúnistar árás á Alþingishúsið. Haldiðí úrelt sjónarmið Byggðir á simnanverðum Yestfjörðum einangrað- ar frá því á sunnudag Víða mjólkurlaust og rafmagn stopult MJÓLKURLAUST var orðið víða í þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum þar sem veður hefur hamlað samgöngum á sjó og landi undanfarna daga. Flóabáturinn Baldur hefur ekki getað lagst að á Brjánslæk í þijá daga en von var á Arnarfelli til Tálknafjarðar í gærkvöldi eftir að skipið hfaði veirð teppt á ísafirði í tvo sólarhringa. Flugleiðir hafa ekki flogið til Vestfjarða síðan á sunnudag og bíða 200 manns eftir fari til Isafjarðar en 40 til Patreksfjarðar og Þingeyrar. Tugir rafmagnsstaura og línustæða hafa fallið í fjórðungnum vegna ísing- ar og hvassviðris. Varaaflstöðvar hafa víða séð fyrir rafmagni og var rafmagn skammtað í byggðum við Djúp og rafmagnslaust hefur verið í meira en 2 daga í Mýrar- og Nauteyrarhreppum. 12 ára spennistöð í 15 fermetra einingarhúsi á steyptum sökkli fauk um koll við Patreksfjörð í gær á þriðja degi einhvers mesta hvassviðris sem fólk þar um slóðir rekur minni til og náði hámarki í gærmorg- un þegar björgunarsveitarmenn sinntu 23 útköllum vegna foktjóns. Óveðup á Vestfjörðum 200 manns bíða eftir / .... flugfari til ísafjarðar "—/ Boiungarvík \ Bildudálur rfyálkfiatiölður é! " Svá k fjbröur y Byggðalína slitnaði á Gufu- dálshálsi og aðalflutnings- lína Mjólkárvirkjunar slitnaði í Breiðdal.^ v \ 7 _____________ H'öim|ý(k Brotnir rafmagnsstaurar í Dýfafirði. Þakplötur fuku. 23 hjálparbeiðnir bárust vegna foktjóna, rúðubrota og þakplötufoks. Spennistöð á steyptum sökkli fauk um koll. >' Aj\ U i i J . Tf eftir Björn Bjarnason Á Þorláksmessu var friðarganga að venju frá Hlemmi niður í Austur- stræti. Sjónvarpsmenn fóru á stúf- ana og ræddu við nokkra gamla herstöðvaandstæðinga, þótt þeir hafi áreiðanlega ekki gefið rétta mynd af viðhorfum alls þorra göngumanna. Einn þeirra sagði, að nú væru þeir búnir að ganga Var- sjárbandalagið af sér, það væri úr sögunni og þess yrði ekki langt að bíða að Atlantshafsbandalagið (NATO) hlyti sömu örlög. Um árabil börðust Samtök her- stöðvaandstæðinga fyrir málstað Varsjárbandalagsins í umræðum um öryggis- og varnarmál á Is- landi. Ekki eru nema rúm 10 ár liðin síðan áróðursmeistarar Sovét- stjórnarinnar í Moskvu vitnuðu með velþóknun í málflutning herstöðva- andstæðinga um að hér á landi væru kjarnorkuvopn og notuðu þær iygar til að hóta Islendingum með sovéskum kjarnorkuvopnum. Síðan kyijuðu herstöðvaandstæðingar þann söng, að loka þyrfti herstöð- inni á Miðnesheiði, af því að hún gerði ísland að skotmarki í yfirvof- andi hernaðarátökum. Þessi áróður var svo magnaður, að viðtöl birtust í stúdentablöðum við námsmenn, sem töldu ekki taka því að hefja framhaldsnám vegna yfirvofandi gjöreyðingar. Þeir lifa enn í horfnum tíma og halda í úrelt sjónarmið, sem segja að NATO sé að hverfa úr sögunni. Hvarvetna í nýfijálsum ríkjum Evr- ópu eru óskir um að tengjast banda- laginu. Vandi þess felst fremur í því að rökstyðja neikvæð svörgagn- vart umsóknarríkjum en að beijast fyrir eigin lífí. Þéir eru fáir stjórn- málaflokkarnir í Evrópu um þessar mundir, sem eru í sömu stöðu og Alþýðubandalagið. Þar var ályktað á flokksþingi fyrir nokkrum vikum að ísland ætti að fara úr NATO. Samþykktin var að vísu gerð í óþökk flokksformannsins, Ólafs Ragnars Grímssonar, sem situr við völd í flokknum eins og gísl forn- eskjuafianna. Brengluð viðhorf Það hefur staðið þátttöku íslend- inga fyrir þrifum í alþjóðlegu sam- „Umræður um öryggis- og varnarmál eru miklu opnari en áður bæði á trúnaðarstigi innan ut- anríkismálanefndar Al- þingis og á opinberum vettvangi. Þetta er gleðileg þróun og hún ætti að stuðla að víð- tækari sátt um þennan mikilvæga málaflokk.“ starfi, hve pólitísk viðhorf margra til alþjóðamála eru brengluð. Þar hefur- Alþýðubandalagið farið fremst í flokki síðustu áratugi, stundum með stuðningi vinstri arms Framsóknarflokksins og nú síðast Kvennalistans. Skaðvæn áhrif þessa birtast í ýmsum myndum. Tjónið sem Hjörleifur Guttormsson olli til dæmis með ofsóknum í garð Alusuisse og álversins í Straumsvík, þegar hann var iðnaðarráðherra, verður seint eða aldrei bætt. Sagan sýnir, að Alþýðubandalag- ið hefur ætíð snúist gegn hveiju skrefi, sem stigið hefur verið til að efla samstarf Islands við önnur ríki. Við atkvæðagreiðsluna á Alþingi um aðildina að EES á síðasta ári var flokkurinn hinn eini, sem var óskiptur gegn henni. Afstaða Al- þýðubandalagsins til NATO enn í dag staðfestir einungis, að sömu öflin hafa undirtökin í flokknum og á þeim tíma, þegar málflutningi hans var sérstaklega fagnað í mál- gögnum Sovétstjórnarinnar. Þeir Hjörleifur, Steingrímur J. Sigfús- son og Svavar Gestsson geta ef til vill sótt einhveija huggun í þá stað- reynd, að þá var Mr. 0. Grímsson í miklum metum hjá Belski ofursta, áróðursmeistara Rauða hersins. Málefnalegar umræður Á undanförnum mánuðum hefur töluvert verið rætt um samskipti utanríkisráðherra við utanríkismálanefnd vegna viðræðna við Bandaríkjastjórn um varnarmál. Vegna óska Bandaríkjamanna var farið með einstök atriði viðræðnanna sem trúnaðarmál, enda báru þær þess töluvert merki, að innan bandaríska stjórnkerfisins væru menn ekki á einu máli um viðfangsefnið. Með hliðsjón af meðferð ís- lenskra varnar- og öryggismála allt frá því að lýðveldi var stofnað hér fyrir tæpri hálfri öld er með öllu ástæðulaust að saka utanríkisráð- herra um lögbrot vegna framgöngu hans gagnvart utanríkismálanefnd í þessu máli. Þveixa móti skal full- yrt, að umræður á vettvangi utan- ríkismálanefndar um þessar við- ræður við Bandaríkjamenn og efn- isþætti þeirra hafi verið meiri en um nokkurn annan þátt í varnar- samstarfi íslendinga og Banda- ríkjamanna á lýðveldistímanum. Náið samstarf Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks í varnarmálum er hefðbundið, þótt nokkur misbrestur hafi orðið á tím- um vinstri stjórna. Þar hefur Al- þýðubandalagið átt sæti og þá hef- ur ekki aðeins verið forðast að ræða um varnarmál í utanríkis- málanefnd Alþingis heldur einnig í ríkisstjórninni sjálfri. Hafa utanrík- isráðherrar slíkra stjórna stundum hreykt sér af því, að ráðgast ekki um varnir þjóðarinnar við Alþýðu- bandalagið, þótt ráðherrar þess sætu í ríkisstjórn. Umræður um öryggis- og varnarmál eru miklu opnari en áður bæði á trúnaðarstigi innan utanrík- ismálanefndar Alþingis og á opjn- berum vettvangi. Þetta er gleðileg þróun og hún ætti að stuðla að víð- tækari sátt um þennan mikilvæga málaflokk. Þeirri staðreynd verður ekki haggað, að Islendingar þurfa að gæta varanlegra varnarhags- muna sinna. Það er mikilvægur lið- ur við gæslu þessara hagsmuna, að sem flestir átti sig á eðli þeirra. I raun stendur það skynsamleg- um umræðum um alþjóðamál á Alþingi helst fyrir þrifum, að þar skuli nokkrir menn enn vera fastir í hinu gamla fari og ríghalda í úr-. elt viðhorf. Skoðanir þeirra ber að sjálfsögðu að virða eins og ann- arra, þær eiga hins vegar ekkert erindi til þeirra, sem vilja glíma við vanda líðandi stundar með framtíð- arhagsmuni lands og þjóðar í huga. Að sögn Jónasar Sigurðssonar, aðalvarðstjóra lögreglu á Patreks- firði, rauk veður upp að nýju um klukkan sjö í gærmorgun þriðja daginn í röð. Meðálhraði á Kvígind- isdal yar ellefu vindstig í gærmorg- un en í hviðum fór vindhraði upp í það mesta sem fólk man eftir að sögn Ingveldar Hjartardóttur fréttaritara Morgunblaðsins. Björg- unarsveitinni Blakki bárust alls 23 hjálparbeiðnir vegna foktjóna, rúðu- brota og þakplötufoks. 70 m2 af járni fuku af þaki frystihúss Meðal annars flettust um 70 fer- metrar af þakjárni af fiskverkuninni Straumnesi og mikið af plötum fauk einnig af frystihúsinu Odda, að sögn Jónasar Sigurðssonar. Þá fauk skreiðarhjallur og skúr skammt ut- KJARADEILA sjómanna og út- vegsmanna er í enn meiri hnút nú eftir viðræðuslit í fyrrinótt en áður hefur verið og ekkert augljóst framhald í augsýn að inati deiluaðila. Útvegsmenn munu eiga fund með forsætis- og sjávarútvegsráðherra fyrir há- degi í dag og gera þeim grein fyrir stöðu deilunnar en verkfall sjómanna á fiskiskipum liefur staðið frá því í upphafi ársins. Sjómenn hafa boðað til félags- fundar í dag. Kristján Ragnars- son, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir illt í efni og ekkert framhald á mál- inu á meðan sjómenn gerir kröf- ur um fiskverð sem sé ekki á færi útvegsmanna að verða við, þar sem þær beinist gegn fisk- kaupendum. Guðjón A. Kristjáns- son, formaður Farmanna- og fiskimannasambands íslands, segir að á meðan útvegsmenn fallist ekki á að sameiginleg nefnd aðila liafi raunverulegt úrskurðarvald varðandi þátttöku í kvótakaupum þá sé tómt mál að halda áfram viðræðum. Að auki séu allar sérkjaraviðræður aðila strand, ekkert hafi miðað í þeim efnum, heldur hafi útvegs- menn þvert á móti dregið til baka hluti sem þeir hafi verið búnir að leggja fram fyrir áramót. an við bæinn, en hvort tveggja hafði staðið af sér öll veður frá 1942. Spennistöð, sem að sögn Kristjáns Haraldssonar orkubússtjóra á ísafirði, var reist 1981-1982, í rammgerðu 15 fermetra einingar- húsi á steyptum sökkli, og þjónaði einu hverfi í Patreksfjarðarbæ, fauk um koll og er húsið ónýtt. Spennir í stöðinni skemmdist og varð raf- magnslaust í um 20 húsum í bænum af þeim sökum. Ingveldur Hjartar- dóttir sagði að svo mikið hefði geng- ið á í hviðunum að hún myndi vart annað eins og langt væri síðan ill- viðri hefðu staðið svo lengi á Pat- reksfirði að mjólkurlaust yrði í bæn- um en þannig var ástandið orðið í gær og fleiri vörur var farið að skorta í verslanir, meðal annars tóbak. Baldur hefur ekki getað lagst að í Brjánslæk frá því á sunnudag Kristján Ragnarsson sagði að staðan í deilunni væri mjög slæm og ylli útvegsmönnum miklum von- brigðum með hliðsjón af þeim sam- ræðum sem hefðu farið fram hjá sjávarútvegsráðherra um helgina. Þá hefðu verið lagðar línur varð- andi úrlausn sem lýst hefði verið yfír að gæti gengið og menn myndu beita sér fyrir. Síðan hafí málið smám saman verið að skýrast og hafi endað í beiðni um hreina fis- kverðsákvörðun, sem eigi að vera meðalverð alls fiskverðs sem greitt sé í landinu, auk þess sem sjálf- virkni sé innibyggð í kerfið. „Gagn- vart okkur er þetta fráleitt með öllu því við erum engir umboðsaðilar vegna veðurs auk þess sem flug hefur legið niðri frá þeim degi. Tugir staura lágu í Dýrafirði Ekki var vitað til þess að teljandi tjón hefði orðið á Tálknafirði og Bíldudal en þar var þó mikið hvass- viðri og sífelldar truflanir á raf- magni sem barst frá varaaflstöð á Patreksfirði. Helga Jónasdóttir á fyrir fiskvinnsluna til samninga um fiskverð. Við erum alls ekki í því hlutverki og meðal annars þess vegna urðu menn sammála á sunnu- dag að það væri tilgangslaust fram- hald þessara samninga og niður- stöðu í þeim ef fiskverð yrði haft uppi,“ sagði Kristján. Hann sagði að þetta væri kjarni málsins og ylli því að mati ríkis- sáttasemjara og deiluaðila væri til- gangslaust að halda áfram, enda væru gerðar kröfur á hendur út- vegsmönnum sem þeir gætu alls ekki orðið við og hefðu ekkert um- boð til þess að fjalla um. Málið hefði ekki áður verið jafn slæmri stöðu. Tálknafirði sagði að rafmagnstrufl- anir væru algengt vandamál í norð- austanveðrum á staðnum vegna seltu sem fylgdi særoki. Einnig á Tálknafirði var mjólk farið að skorta. Hvassviðri var mikið við Dýra- fíörð en mjög erfitt símasamband var þangað í gær og gekk treglega að afla upplýsinga þaðan. Morgun- Skýr ákvæði Guðjón A. Kristjánsson sagði að sér fyndist það mjög slæmt að samningsaðilar þeirra hefðu ekki treyst sér til að fá endanlega niður- stöðu varðandi þann farveg sem málið hefði farið í eftir viðræður aðila við sjávarútvegsráðherra á sunnudag. Sjómenn hefðu fallist á að ræða um kærunefnd fyrir til- mæli ráðherra. Tillögur sjómanna gerðu ráð fyrir upplýsingasöfnun um fiskverð og hvað væru eðlileg viðmið í þeim efnum. Nefndin hefði fjórar vikur til að komast að niður- stöðu um hvort um óeðlilegt upp- gjör væri að ræða. Ef hún næði ekki saman um það hvaða fiskverð eðlilegt sé að miða við eigi að mipa við landsmeðaltal. Fiskifélags ís- lands. Sjómenn geti ekki sætt sig við annað en skýr ákvæði þannig að nefndarskipunin verði ekki orðin tóm. Þá hafi útvegsmenn heldur ekki fallist á að oddamaður væri í nefndinni né að málið færi í gerðar- dóm ef samkomulag yrði ekki. „Við viljum fá enda í þessi mál. Við vilj- um ekki vera að dunda í dómskerf- inu í þijú, fjögur eða fimm ár. Þarna segja þeir að við séum að ákveða fiskverð, en það er bara alls ekki rétt,“ sagði Guðjón. Hann sagði að ef útvegsmenn hugsuðu svona um þessa nefnd blaðið náði þó tali af Sigurði Gunn- arssyni, umsjónarmanni Orkubús Vestfjarða i Dýrafirði, þar sem hann var að reisa við fallna rafmagns- staura til að koma á sambandi við á sveitalínunni og vonaðist hann til að rafmagn kæmist á til sveitabæja við fjörðinn að mestu eða öllu leyti í gærkvöldi. Ekki hafði Sigurður haft fregnir af foktjóni við fjörðinn en þó höfðu borist fregnir af þak- plötufoki við Núpsskóla og Klukku- land. Á Flateyri hafði hvassviðrið ekki valdið teljandi vandræðum, að sögn Magneu Guðmundsdóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins þar, að öðru leyti en því að mjólk var á þrotum vegna ófærðar á sjó og landi. Djúp- bátur var þó væntanlegur á morg- un. Varaaflstöðvar gátu annað raf- orkuþörf á Flateyri án þess að grípa þyrfti til skömmtunar. Fært milli byggða við Djúp Fært var á milli ísafjarðar, Bol- ungarvíkur og Súðavíkur að sögn lögreglu á ísafirði þrátt fyrir há- vaðarok og snjókomu. Heiðar voru kolófærar eins og undanfazna daga. Vinnupallar höfðu fokið til við hús á ísafirði. Rafmagn var skammtað frá varaaflsstöðvum á fyrrgreindum stöðum og til Súgandaíjarðar þar til síðdegis í gær að viðgerð lauk en enn var þó rafmagnslaust í Naut- eyrarhreppi. Kristján Haraldsson orkubússtjóri á ísafirði sagði við Morgunblaðið að rafmagnstruflanir mætti meðal annars rekja til þess að byggðalína Landsvirkjunar hefði slitnað á Gufudalshálsi og önnur aðalflutningslina Mjólkárvirkjunar hefði slitnað í Breiðdal. Með dísilvél- um hafði verið hægt að sjá fyrir um 75%-af orkuþörf og voru fyrir- tæki og hús með rafhitun látin njóta forgangs. Ekki sá í gær fyrir enda á rafmagnsleysi víða í sveitum á Vestfjörðum, en tugir staura voru brotnir í Dýrafirði og í Nauteyrar- hreppi vegna ísingar og sagði Krist- ján að fyrir rætur þess vanda yrði ekki komist fyrr en rafstrengir yrðu allir lagðir í jörð. Einnig hafði frést af rafmagnsleysi á bæjum í Ketildöl- um og við Tálknaíjörð. væri hún bara orðin tóm. Að auki hefði ekki þokað í einu einasta máli í sérkjaraviðræðunum og útvegs- menn hefðu meira að segja dregið til baka mál sem hefðu verið frá- gengin að stórum hluta fyrir ára- mót eins og hvað varðaði söltun um borð. Til viðbótar væru útvegsmenn með kröfur um að skiptaprósenta gæti hækkað og lækkað, sem þýddi. kauplækkun og einnig að hætt yrði að greiða veikindi af staðgengils- launum. Málið væri í pattstöðu, það væri engin sjáanleg lausn. „Þó við höfum farið að tilmælum sjávarút- vegsráðherra að reyna að finna þessu farveg eins og útvegsmenr voru að biðja um þá þýðir það ekk það að við ætlum að standa upp með einhveija nefndarónefnu sem klárar ekki nokkurn einasta skapað- an hlut,“ sagði Guðjón. Sjómenn funda í Bíó- borginni SAMTÖK sjómanna hafa boð- að til fundar um stöðuna í kjaradeilu sjómanna og út- vegsmanna í Bíóborginn við Snorrabraut klukkan 14.00 í dag, fimmtudag. Á fundinum fara forystu- menn samtakanna, Guðjón A. Kristjánsson, Helgi Laxdal og Óskar Vigfússon yfir gang mála og stöðuna í deilunni og síðan verða opnar umræður. Sam- kvæmt upplýsingum frá SSÍ er búizt við fjölda sjómanna á fundinn, meðal annars frá Ak- ureyri, Akranesi, Suðurnesjum og víðar, viðri til ferðalaga. Verkfall sjómanna á fiskiskipaflotanum hefur staðið frá því í ársbyrjun Deilan í illleysanlegnm hnút eftir viðræðuslit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.