Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innaníands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Svipuð viðhorf í Norður-Noregi og á Islandi Athyglisvert er að sjá, hvað viðhorf í Norður-Noregi til sjávarútvegsþátta ESB-samn- ings Norðmanna eru áþekk þeim sjónarmiðum, sem fram hafa komið hér á landi. í Morgunblað- inu í gær birtust viðtöl við rit- stjóra Fiskaren, sem er norskt tímarit um sjávarútvegsmál og skrifstofustjóra hjá Samtökum fískseljenda í Noregi, þar sem viðhorfum manna í Norður-Nor- egi er lýst. Erik Rakoczy, skrifstofustjóri Norges Raafísklag, segir m.a. í samtali við Morgunblaðið: „Af tvennu illu teljum við að það hefði verið betra að eiga við tollayfírvöld í Evrópu og hafa stjóm á eigin hafsvæðum en að semja um að aðrir fari með stjóm þeirra ... Við teljum það afar varasamt að gefa frá sér kvóta- réttindi. Þá þykir okkur að sjálf- sögðu slæmt að ESB-togurum sé hleypt inn í norska landhelgi. Við megum ekki gleyma því, að samanborið við ESB-lönd er Noregur einstætt land að því leyti, að ástand fískistofna í norskri landhelgi er nokkuð gott. Við vitum, að í Evrópu vilja menn komast í slíka stofna. Vægi Noregs gagnvart öðmm ESB-þjóðum er lítið og við höf- um ekki trú á, að þau loforð sem gefín hafa verið um, að Noregur ráði einhveiju um veiðar hér við land, muni standa. Sú hefur nú þegar orðið raunin. Loforðið um engan físk til ESB varð að nokk- ur þúsund tonna veiði og svo mætti áfram telja.“ Nils Torsvik, ritstjóri Fiskar- en, sagði í samtaii við Morgun- blaðið í gær: „Andstaða útgerð- armanna kemur fyrst og fremst til af því, að yfírráðarétturinn yfír lögsögunni fer úr hendi Norðmanna ... Ég hef ekki heyrt útgerðarmenn og sjómenn segja nokkuð jákvætt um samninginn. Það hefur meira að segja gengið svo langt, að þeir útgerðarmenn, sem vom fylgjandi ESB-aðild hafa snúizt gegn henni. Á hinn bóginn hafa nokkrir stjómmála- menn í Norður-Noregi, sem áður vom andvígir aðild, lýst ánægju með samninginn." Torsvik bætti því við, að andstæðingar aðildar virtust vera sannfærðir um mikl- ar breytingar til hins verra 1. júlí 1998, þegar aðlögunartíma Noregs lýkur. Þau viðhorf, sem hér hefur verið lýst frá Norður-Noregi, til ESB-samninga Norðmanna em ákaflega lík þeim sjónarmiðum, sem fram hafa komið hér á ís- landi um þennan samning. Það er margt líkt með íslenzku sam- félagi og því samfélagi, sem er í Norður-Noregi. Fólk hugsar á svipaðan veg enda eiga Islend- ingar og íbúar Norður-Noregs sömu hagsmuna að gæta. Þótt sjávarútvegur vegi ekki þungt í þjóðarbúskap Norðmanna skiptir hann öllu máli í Norður-Noregi alveg eins og hér á íslandi. And- staðan við aðild Norðmanna að Evrópusambandinu var mest í Norður-Noregi á sínum tíma og hún á áreiðanlega eftir að verða mest þar nú. Hver og einn tekur afstöðu til mála af þessu tagi út frá eig- in hagsmunum. Þótt stjómmála- menn í Noregi túlki samningana á þann veg, að þeir séu Norð- mönnum hagstæðir, er ljóst, að fólkið í Norður-Noregi er annar- ar skoðunar. Þótt stjómmála- menn í Noregi telji samningana hagstæða fyrir norskan þjóðar- búskap mundu þessir samningar aldrei ná fylgi hér á íslandi. Þeir sem nú eru að heíja baráttu fyrir aðild íslands að ESB á grundvelli þeirra samninga, sem Norðmenn hafa gert ættu því að hugsa sinn gang svolítið bet- ur. MENN GET- • ur greint á um listir, og þá bók- menntir alveg sér- staklega. Það er jafn- vel deilt um Boris Pastemak og ljóðlist hans. Mér hefur fundizt hún sérlega merkileg, og þá ekkisíður mikilvæg allt frá því ég kynntist henni fyrst. Pastemak var mikið skáld. Robert Frost segir skáldskapur sé það sem eftir verði þegar ljóð er þýtt. Og það skilar sér mikill skáldskapur í þýðingum á ijóðum Pastemaks. En samt var ég að lesa í bókmenntarit- inu TLS í Bretlandi að Isaiah Berl- in, sá mikilsvirti hugsuður, taldi sig þurfa að taka upp hanzkann fyrir Pastemak og ljóðlist hans vegna niðrandi orða sem brezkur prófessor hafði látið falla um verk skáldsins. Mér skilst Nabokov hafí ekkiheldur þótt mikið koma til skáldskapar Pastemaks, en slíkt þurfti víst ekki að taka hátíðlega þvíað Nabokov hafði einnig afgreitt Dostojevskf sem heldur ómerkilegan spennu- sagnahöfund. Og Stríð og friður væri einnig viðeigandi lesning handa lítt menntuðum skólastrák- um(!) Don Kíkóti væri auk þess ein- hver leiðinlegasta bók sem nokkum tíma hefði verið skrifuð; já, kannski sú allra leiðinlegasta(l) Þá skilst mér einnig á Berlin að Tolstoj hafí þótt lítið koma til Ibsens og Flau- berts; Goethe hafí ekki átt uppá pallborðið hjá honum og þvísíður Wagner. Loks minnir mig Berlin hafí klykkt út með því að benda á að T. S. Eliot hafí ungum þótt lítið til Miltons koma. Prófessorinn hefur að sjálfsögðu leyfi til að hafa hvaða skoðanir sem er á Pasternak, segir Berlin, en hitt er fráleitt að ekki sé ástæða til að minnast skáldsins á verðugan hátt þegar hundrað ár voru frá fæðingu hans. FRÆGÐIN •er ekki fugl á hendi. Hún er duttl- ungafull og sízt af öllu ástæða til að taka hana alltof hátíð- lega. Það er þannig ekki einu sinni víst að einn meistari geti skilið annan. Þannig skilst mér að Hugo Wolf, sem skrifaði tónlistargagn- rýni í Vín, hafí haft harla lítinn skilning á verkum Brahms. Sá síð- amefndi særði hann eitt sinn og eftir það lagði Wolf hatur á þennan gamla meistara frá Hamborg sem var 27 ámm eldri en hann. Sumar svívirðingar Wolfs um Brahms vom svo hastarlegar að ritstjóri Wiener Salonblatt treysti sér ekki að birta gagnrýnina nema ritskoðaða. Slæmt var það sem birtist, en hálfu verra það sem lá óbirt(!) Þessi meistari sönglaganna gekk svo á fund feðra sinna kalinn á viðkvæmu hjarta eftir miklar andlegar hrell- ingar. Hann dó á geðveikrahæii í Vínarborg 1903, sex ámm síðaren Brahms. ÞAÐ HEFUR ÁVALLT •verið sérkennilegt samband milli Þjóðveija og Austurríkis- manna, hefur Atli Heimir sagt mér. Þannig hefur hinum síðar- nefndu tekizt að koma þeirri skoðun inn hjá almenningi að Hitler hafí verið heimablindur Þjóðveiji, en Beethoven Vínarbúi(!) Með það í huga em svofelld ummæli Wald- heims Austurríkisforseta fyrrver- andi í senn skemmtileg og athyglis- verð, Það er aiveg sama hvemig ormurinn byltir sér, hann verður alltaf ormur(!) Hið sama á við um snillingana. Engin gagnrýni breytir verkum þeirra. BANDARÍSKI GAGN- • rýnandinn H. L. Mencken var einskonar páfí á ámnum fyrir kreppuna. Ég þekki aðvísu ekki verk hans en hef einungis lesið um þau áhrif sem hann hafði á þessum ámm þar vestra. Það er með ólík- indum að slíkur maður sem hafði samskonar fyrirlitningu á fíöldan- um eða mergðinni (hjarðmenninu) og Kirkegaard og Nietzsche og dáðist að Dreiser, Sinclair Louis og Conrad skyldi allsekki geta metið Thomas Mann, Hemingway og Faulkner eða fundið neitt bitastætt í verkum þeirra. En þannig er af- staða margra til bókmennta, annað- hvort — eða(!) Og þá ekkisízt þeirra sém um þær fjalla og eiga að hafa þroskað með sér hlutlægt mat og góðan smekk. En hlutlægni er fáum gefín. Og hugarfar sitt verða menn að þroska einsog annað. Ekkisízt gagnrýnendur, svo mikil sem freist- ing þeirra er. Mér þykja þær at- hugasemdir Menckens skemmtileg- ar að Dante hafi sent alla helztu föðurlandsvini samtíðar sinnar á ítalíu til helvítis, Cervantes hafi eyðilagt Spán með lýsingum sínum og lofsungnar hetjur Shakespeares hafí allar verið útlendingar, en trúð- amir og fíflin Englendingar; Goethe hafi verið hliðhollur Nepoleon, eng- inn hafí verið skeinuhættari kristn- inni en hinn sannkaþólski Rabelais og írinn Swift, sem dr. Johnson var lítt hrifínn af að söjgn Boswells, hafí fyrst gengið frá Irum en síðan Bretum og haft á pijónunum fyrir- ætlanir um að ganga frá öllu mann- kyni í ritum sínum!! En til þess entist honum víst ekki aldur, þótt afkastamikill hafi verið. M (meira næsta sunnudag) HELGI spjall * V + REYKJAVIKURBREF IMORGUNBLAÐINU I DAG, laugardag, er frá því skýrt, að Grandi hf. hafi keypt hlut ríkis- sjóðs í Þormóði ramma hf. á Siglufírði en sá hlutur nam 16,2%. Brynjólfur Bjamason, forstjóri Granda hf., sagði í samtali við Morgunblaðið af þessu tilefni, að ráðizt hefði verið í þessi kaup vegna þess, að stjómendur Granda hf. hefðu trú á stjómendum Þormóðs ramma og rekstri þess fyrirtækis. í þessu sambandi er ástæða til að benda á athyglisvert viðtal, sem birtist í sérblaði Morgunblaðsins um sjávarútveg, Ur ver- inu, miðvikudaginn 9. marz sl. við Ólaf H. Marteinsson, sem er annar af fram- kvæmdastjómm Þormóðs ramima hf. Grundvallarhugsun í rekstri fyrirtækisins lýsir Ólafur H. Marteinsson á þennan veg: „í upphafí hvers kvótaárs skipuleggjum við, hvemig við ætlum að nýta veiðiheim- ildir okkar. Við reynum að dreifa veiðinni á allt árið, því það dugar ekki að moka upp fiskinum þó vel veiðist í einhvem tíma og hafa svo ekkert að gera hluta úr árinu.“ Síðar í viðtalinu segir framkvæmda- stjóri Þormóðs ramma hf.: „Við erum sér- hæfðir í þorski og vinnum hann nánast einvörðungu á Bandaríkjamarkað. Við höfum gert það lengst af og teljum okkur fá mest út úr því að vinna fískinn sem mest og ná þannig sem allra hæstu verði. Við flytjum ekkert út óunnið og allur okk- ar fískur kemur til vinnslu hér á Siglu- fírði. Við höfum haft þá stefnu að leggja rækt við fiskvinnsluna, en það hafa komið tímar, þar sem sumir hafa nánast lagt físk- vinnsluna af og flutt meira og minna allt utan ferskt. Hér hafa menn metið það þannig, að heppilegra sé að leggja rækt við fiskvinnsluna og halda hér uppi ein- hverri atvinnu. Við erum reyndar að sinna ákveðnum mörkuðum líka en þar er ekki hægt að hlaupa inn og út eins og mönnum þykir henta. Það verður að leggja áherzlu á stöð- ugt framboð, því fari menn út vegna skammtíma hagnaðar til dæmis, getur reynzt ógjömingur að komast inn á mark- aðinn á ný.“ í sjávarplássum víða um land hafa hvað eftir annað risið deilur vegna þess, að út- gerðarmenn hafa flutt fískinn út ferskan með þeim rökum, að þannig fái þeir hærra verð fyrir hann og enginn geti krafizt þess af þeim, að þeir landi aflanum til vinnslu hér, þegar svo sé. í ljósi þeirra röksemda vekur sjónarmið forráðamanna Þormóðs ramma hf. athygli enda hefur þessi afstaða bersýnilega gefízt vel eins og fjárfesting Granda hf. er glöggt dæmi um. Á undanfömum árum hafa Evrópu- markaðir tekið við af Bandaríkjamarkaði, sem þungamiðjan í útflutningi okkar á sjávarafurðum. Þeir sem starfa við sölu sjávarafurða í Bandaríkjunum hafa hvað eftir annað varað við því, að menn loki sölumöguleikum í Bandaríkjunum með því að sjá viðskiptavinum þar, sem kannski hafa keypt íslenzkan físk í áratugi, ekki fyrir þeim físki, sem þeir þurfa á að halda. Þess vegna er fróðlegt að kynnast þeim sjónarmiðum, sem liggja til grundvallar reksturs Þormóðs ramma hf. að fyrirtækið hlaupi ekki inn og út af mörkuðum eins og því hentar, heldur leggur það áherzlu á að rækta tengsl við viðskiptavini sína til frambúðar. Ekki er ósennilegt, að vel- gengni þessa fyrirtækis í Siglufirði bygg- ist að hluta til á því grundvallarviðhorfí, sem hér hefur verið lýst og er mjög ólíkt því, sem þekkist í alltof mörgum sjávarút- vegsfyrirtækjum í landinu. I samtalinu við Verið lýsir Ólafur H. Marteinsson því, hvemig forráðamenn .Þormóðs ramma hf. leitist við að hagnýta sér kvótakerfið út í yztu æsar og segir: „Við höfum lagt gríðarlega vinnu undanf- arin tvö ár í að endurskipuleggja fyrirtæk- ið og laga reksturinn að þeim möguleikum, sem kvótakerfíð gefur. Þar eru stærstu þættimir annars vegar síminnkandi veiði- heimildir og hins vegar aukin sókn á úthaf- Laugardagur 19. marz Skáli Útívistar á Fimmvörðuhálsi í klakaböndum. Skálinn er í 1.100 m hæð yfir sjávarmáli og yfir vetrartímann hriktír oft í en þegar veður gengur niður má sjá mögnuð listaverk. Ljósmynd/SigurOur Sigurðarson. ið. Fyrir þremur árum var öll velta þessa fyrirtækis í bolfiski, nú eru 40% veltunnar í bolfíski. Hitt er í rækju og laxi. Þetta var eina leiðin til þess að bregðast við kvótasamdrættinum, að snúa sér að ein- hveiju öðm til að afla fjár. Lykilatriði í þessu em gildandi lög um stjórnun físk- veiða með framseljanlegum aflakvótum. Fyrir utan það að vernda fiskistofnana var þessu kerfí ætlað að fækka í flotanum og leiða til hagræðingar. Við höfum lagt okk- ur fram um það að vinna í anda þessa kerfís og ég held, að okkur hafí tekizt það ágætlega, enda er afkoman viðunandi og um nokkum hagnað að ræða. Gengisfell- ingarnar tvær í fyrra og seint á árinu 1992 em famar að hafa áhrif í afurðaverð- inu og auka framlegðina, sem er betri en gert var ráð fyrir í upphafí." Fordæmi? HINGAÐ TILhefur ekki verið mikið um það, að traust út- gerðarfyrirtæki fjárfesti í öðmm útgerðarfyrirtækjum í öðmm landshlutum, þótt flogið hafi fyrir á undanfömum misserum, að forráðamenn Granda hf. gætu hugsað sér slíkar fjárfest- ingar og þá aðallega rætt um Vestfirði í því sambandi. Einnig var um skeið rætt um slík eignatengsl á milli Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækis á Tálknafírði. Spurn- ing er hins vegar, hvort þessi fjárfesting Granda hf. í Þormóði ramma hf. geti ver- ið vísbending um hvemig standa megi að endurskipulagningu sjávarútvegs í sjávar- plássum og landshlutum, þar sem miklir erfíðleikar steðja að. Um þessar mundir er mikið rætt um vanda Vestfírðinga og fyrirhugaðar em ráðstafanir til þess að ýta undir uppstokk- un í vestfirzkum sjávarútvegi með því að gefa fyrirtækjum kost á víkjandi lánum, þegar um sameiningu er að ræða. Er hugs- anlegt að til viðbótar slíkum aðgerðum kæmi fjárfesting öflugra sjávarútvegsfyr- irtækja annars staðar á landinu í fyrirtækj- um í sömu grein á Vestfjörðum? Vel má vera, að Vestfírðingum mundi ekki hugnast slík fjárfesting fyrirtækja utan Vestljarða en hvers vegna ættu þeir að vera andsnúnir því, ef það getur orðið til þess að efla sjávarútveginn á nýjan leik í þessum landshluta? Það segir að vísu nokkra sögu um hrepparíg, að dæmi eru um það, að hið nýja útgerðarfyrirtæki í Bolungarvík flytji afla skipa sinna frekar frá Bolungarvík en að selja hann fyrirtæk- inu, sem keypti frystihús Einars Guðfínns- sonar hf., þótt svipað yerð sé í boði og nokkrir tugir Bolvíkinga atvinnulausir! Það verður auðvitað engu bjargað, þar sem slík viðhorf ráða ferðinni. Það er alls ekki ólíklegt að það geti verið báðum aðilum til stuðnings, að slíkar fjárfestingar eigi sér stað á milli lands- hluta eins og í tilviki Granda hf. og Þor- móðs ramma hf. Þegar Vestmanneyingar íhuguðu þátttöku í atvinnurekstri á Tálknafírði lágu ákveðin rekstrarleg rök, því til grundvallar í sambandi við veiðar og vinnslu. Vestfírðingar hafa staðið höllum fæti undanfarin ár vegna þess, að þeir hafa byggt svo mjög á þorskveiðum og niður- skurðurinn hefur verið mestur í þorski. Nú eru margir kunnáttumenn þeirrar skoð- unar, að karfastofninn sé að hruni kominn og jafnvel grálúðan líka. Jafnframt standa vonir til, að þorskveiðar geti aukizt á ný á næstu árum. Þá kann dæmið að snúast við. Þá kunna fyrirtæki, sem hafa byggt mjög á karfa að standa frammi fyrir um- talsverðum erfíðleikum og það gæti orðið þeim styrkur að hafa fjárfest í fyrirtækjum á Vestfjörðum, sem byggjast fyrst og fremst á þorski. Þau væru því ekki bara að fjárfesta til þess að hlaupa undir bagga með Vestfirðingum heldur einnig til þess að búa í haginn fyrir framtíðina, þegar aðstæður kunna að breytast. Allt er þetta umhugsunarefni fyrir for- ráðamenn sjávarútvegsfyrirtækjanna víða um Iandið og ekki ólíklegt að þetta for- dæmi Granda hf. geti orðið öðrum til eftir- breytni með ýmsum hætti. Kvótakerfið o g stöðug- leikií rekstri HER AÐ FRAMAN var þess getið, hvemig forráða- menn Þormóðs ramma hf. hafa lagt áherzlu á að nýta kvótakerfið til hins ýtrasta og þá möguleika, sem það býður upp á í rekstri fyrirtækisins en jafnframt sagði Ólafur H. Marteinsson í fyrrnefndu viðtali: „Við erum stöðugt að meta stöðu okkar og það er algjört frumskilyrði, að fískveiðistjóm- unin, hvaða leið, sem farin er, gildi til margra ára eða áratuga. Óvissa af því tagi, sem hér hefur viðgengizt er alveg óþolandi. Á hveiju ári eru nýjar reglur en ég met það svo, að við fáum ekki betra kerfi en það, sem við höfum í dag. Óánægj- an með fiskveiðistjórnunina er fyrst og fremst vegna þess hve aflinn er lítill, en það hefur ekkert að gera með fískveiði- stjómunina í raun.“ Auðvitað er Ijóst, að forráðamenn sjáv- arútvegsfyrirtækja hagnýta sér eftir beztu getu þær reglur sem snúa að þeirra at- vinnugrein hveiju sinni. Enginn getur gagnrýnt þá fyrir það. Það er líka skiljan- legt að óvissa um framtíðina í þeim eftium sé óþolandi fyrir stjórnendur sjávarútvegs- fyrirtækja. Raunar á það við í öllum fyrir- tækjarekstri í hvaða atvinnugrein sem er. Þess vegna m.a. er sá árangur, sem náðst hefur á undanförnum áram í efnahagsmál- um svo þýðingarmikill. Stöðugt verðlag, lækkandi vextir, viðskiptahallinn þurrkað- ur út, allt eru þetta forsendur fyrir því að hægt sé að reka fyrirtækin með eðlileg- um hætti. Það er hins vegar alveg ljóst, að á með- an stór hluti þjóðarinnar sættir sig ekki við, að útgerðinni hafí verið afhent millj- arðaverðmæti fyrir ekki neitt í formi end- urgjaldslauss aðgangs að takmarkaðri auðlind landsmanna allra verður þessi óvissa áfram við lýði. Þeirri óvissu er hins vegar hægt að eyða. Ef samtök útgerðar- manna láta af ósveigjanlegri andstöðu við einhvers konar gjaldtöku, sem nú fer fram fyrir opnum tjöldum á milli útgerðarmanna sjálfra er áreiðanlega hægt að ná málam- iðlun um önnur atriði. Það er t.d. spuming, hvort þjóðin á að segja við útgerðina: þið greiðið okkur leigugjald í sameiginlegan sjóð fyrir afnot af fiskimiðunum. Það er ykkar mál hvem- ig þið hagið fískveiðistjómuninni að öðra leyti. Eina skilyrðið, sem við setjum er að þið hlítið ákvörðunum fiskifræðinga og ríkisstjórnar um aflahámark. Að öðra leyti komið þið ykkur saman innbyrðis um, hvemig þið hagið veiðunum. Er þetta grundvöllur málamiðlunar? Hvers vegna ætti Alþingi og ríkisstjóm að setja ná- kvæmar reglur um það, hvemig haga á fiskveiðum? Hvaða miðstýringarárátta er það? Þeir sem gera út og verka físk era bezt til þess fallnir að skipuleggja sinn eigin rekstur. Hins vegar á rekstur þeirra ekki að byggjast á því, að þeir fái mikil verðmæti fyrir ekki neitt. Umræður um þetta mál hafa farið út í rangan farveg, þegar menn era sí og æ að leita að nýjum kerfum eða tjasla upp á þau, sem fyrir era. Fyrir þjóðina alla, sem sameiginlega á þá auðlind, sem fiskimiðin eru, er fullnægjandi að útgerðin greiði gjald fyrir afnot af fiskimiðunum og að það sé tryggt að þar fari ekki fram rányrkja. Að öðra leyti eiga þeir sem sækja sjóinn og verka fiskinn að gera það upp sín í milli, hvemig skipulag veiða og vinnslu er að öðra leyti. Það er einkennileg mótsögn í því, að þrátt fyrir gífurlegan niðurskurð á afla er augljóslega mikil grózka í íslenzkum sjávarútvegi. Með því er átt við, að það er mikið um að vera í fyrirtækjum í þess- ari atvinnugrein. Nýir menn hafa komið til sögunnar á undanfömum áram. Þeir era að gjörbréyta rekstri fyrirtækjanna. Ný viðhorf hafa ratt sér til rúms eins og sjá má á tilvitnuðum ummælum Ólafs H. Marteinssonar. íslenzkir útgerðarmenn eru að leita nýrra leið með því að sækja á fjarlæg mið. Líklega eru miklir upp- gangstímar framundan í íslenzkum sjávar- útvegi á næstu áram. Hin miklu umskipti í sjávarútvegsfyrirtækjum við erfíðar að- stæður eru vísbending um að þjóðarbú- skapurinn er að byija að rétta úr kútnum. „Það er t.d. spuraing, hvort þjóðin á að segja við útgerðina: þið greiðið okkur leigugjald í sam- eiginlegan sjóð fyrir afnot af fiskimiðunum. Það er ykkar mál hvernig þið hagið fiskveiðistj ór nun- inni að öðru leyti. Eina skilyrðið, sem við setjum er aðþiðhlítið ákvörðunum fiskifræðinga og ríkisstjórnar um aflahámark. Að öðru leyti komið þið ykkur saman innbyrðis um, hvernig þið hagið veiðunum. Er þetta grundvöllur málamiðlunar?" <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.