Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 ATVINNU Ai 1( :/ YSINGAR „Au paiA' í Þýskalandi Góð þýsk fjölskylda í Essen óskar eftir „au pair“ stúlku ekki yngri en 20 ára. Má ekki reykja. Nokkur þýskukunnátta nauðsynleg. Upplýsingar í síma 91-33240. Verkstjóri Fyrirtæki á Reykjavíkursvæðinu óskar eftir að ráða verkstjóra í saltfiskvinnslu. Umsækj- andi verður að geta starfað sjálfstætt og eiga gott með að umgangast fólk. Skilyrði fyrir ráðningu er reynsla og þekking á Baader-440 flatningsvél. Umsækjandi þarf að geta hafið störf fljótlega. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 25. mars merktar: „V - 11707“. ár ST. JÓSEFSSPÍTALI LANDAKOTI Deildarlæknir Staða deildarlæknis við lyflækningadeild Landakotsspítala er laus til umsóknar. Deild- in er 18 rúma almenn lyflækningadeild en sérstök áhersla er lögð á lyflækningar krabbameina og meltingarsjúkdóma. Þá eru starfræktar innan deildarinnar tvær hjúkrun- ardeildir fyrir aldraða. Vaktir, sem eru fimm- skiptar, eru sameiginlegar mað handlækn- ingadeild. Staðan veitist frá 1. maí 1994 til 6 eða 12 mánaða. Umsóknir sendist til yfirlæknis lyflækninga- deildar, sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 604300. Sölumaður Heildverslun með matvörur óskar að ráða sölumann til starfa. Starfið felst í söluheim- sóknum í verslanir og stofnanir á Stór- Reykjavíkursvæðinu, auk söluferða út á land. Æskilegt er að umsækjendur séu reglusam- ir, sjálfstæðir og hafi reynslu af sölustörfum eða úr verslun. Umsóknir með helstu upplýsingum skulu sendar til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 25. mars nk. merktar: „H - 123“. Með allar umsóknir verður farið sem trúnað- armál. Fjármálastjóri Öflug félagasamtök óska að ráða fjármála- stjóra í fullt starf. Verksvið fjármálastjóra er m.a. fjármálastjórn, bókhald, félagaskrá og innheimta félagsgjalda. Áskilin er góð bók- halds- og tölvukunnátta. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar auglýsingadeild Morgunblaðsins merktar: „K - 13790“ fyrir 29. mars nk. Sölumenn óskast Þjónustuskrá Reykjavíkur og nágrennis óskar eftir kraftmiklum og drífandi sölumönnum. 3ja mánaða verkefni. Mjög góð sölulaun. Kvöldsala Heimilisklúbburinn óskar eftir að ráða vana sölumenn í síma- og húsasölu til að selja Heimiliskortið. Góð sölulaun fyrir góðan árangur. Upplýsingar í síma 682768 alla virka daga frá kl. 9.00 til 17.00. Sjúkrahús Suðurnesja, Grindavík Reyklaus vinnustaður. Sjúkraliðar Sjúkrahús Suðurnesja auglýsir eftir sjúkralið- um til sumarafleysinga og í fastar stöður á hjúkrunardeild aldraðra, Grindavík. í Grindavík er vinnuaðstaða góð, starfsandi góður og umhverfi hlýlegt. Áhugasamir sjúkraliðar hafi samband við Ernu Björnsdóttur, hjúkrunarforstjóra, í síma 92-20500, eða Eddu Báru Sigurbjörnsdóttur, deildarstjóra, í síma 92-67600. Sölufulltrúi óskast Silfurlax hf., sem stundar hafbeit á laxi, ósk- ar eftir starfsmanni í útflutningsdeild fyrir- tækisins sem staðsett er í Reykjavík. Starfið er fyrst og fremst tengt þjónustu við erlenda viðskiptaaðila fyrirtækisins, umsjón með út- flutningi og að halda utan um upplýsingar tengdar honum. Hæfniskröfur eru: • Að viðkomandi hafi reynslu af útflutningi á bæði ferskum og frystum fiskafurðum. • Að viðkomandi hafi mjög góð tök á enskri tungu bæði í ræðu og riti. Æskileg er einnig kunnátta á öðru evrópsku tungu- máli svo sem þýsku og/eða frönsku. • Að viðkomandi geti unnið yfirvinnu og á óhefðbundnum vinnutíma svo sem á kvöldin og um helgar, sérstaklega yfir sumartímann. • Að viðkomandi komi vel fyrir og eigi gott með samskipti við annað fólk. í boði er fjölbreytt og lifandi framtíðarstarf. Kjör byggjast á hæfni og reynslu umsækjanda. Áhugasamir sendi umsóknir ásamt upplýs- ingum um menntun, fyrri störf og umsagna- raðila til fyrirtækisins fyrir 25. mars nk. Silfurlaxhf., pósthólf603, 121 Reykjavík. RAÐAUGÍ YSINGAR Félags matreiðslumanna verður haldinn í Þarabakka 3 í sal IOGT þriðjudaginn 29. mars kl. 14.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Aðalfundur Vörubifreiðastjórafélagsins Þróttar verður haldinn 24. mars 1994 kl. 20.00 í Borgartúni 33. Dagskrá skv. 29. gr. félagslaga. Endurskoðaðir ársreikningar liggja frammi á skrifstofu félagsins frá og með 18. mars 1994. Stjórnin. Aðalfundur Landssamtaka foreldrafélaga leikskóla verður haldinn í Hinu húsinu, Brautarholti 20, 3. hæð, mánudaginn 21. mars 1994 kl. 20.00. Stjórnin. Styrktarfélag vangefinna Aðalfundur félagsins verður haldinn í Bjarkar- ási mánudaginn 28. mars nk. kl. 20.30. Dagskrá: Venjulega aðalfundarstörf. Önnur mál. Kaffiveitingar. Stjórnin. Málverkauppboð Óskum eftir myndum fyrir næsta málverka- uppboð. Fyrir viðskiptavin okkar leitum við að góðum verkum eftir Jón Stefánsson og Ásgrím Jónsson. Vinsamlegast hafið sam- band sem fyrst. Opið virka daga frá kl. 12-18. Oaé&í BORG við Austurvöll, sími 24211. íbúðtil leigu á Flórfda Fullbúin 3ja herbergja íbúð til leigu í Orlandó, Flórída, á góðu verði. íbúðin er stað- sett skammt frá flugvellinum, 20-30 mín. akstur, og er laus í maí, júní, júlí og ágúst. íbúðin er í snyrtilegu hverfi, með tveimur sundlaugum, tennisvelli og leiksvæði fyrir börn. Það er stutt í allar helstu verslanir og skemmtigarða auk úrvals af golfvöllum allt í kring. Nánari upplýsingar veita Hlynur eða íris í síma 901-407-657-1461. Til sölu Til sölu er mb Öxarnúpur ÞH-162, sem er 17 brl. eikarbátur smíðaður 1979. Báturinn er með 200 hestafla Cummings-aðalvél. Til greina koma skipti á stærri báti. Friðrik J. Arngrímsson hdl. , löggiltur skipasali, Ingólfsstræti 3, Reykjavík. Sími 625654.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.