Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994 Minning Krisljana Hrefna Ingólfsdóttir frá Víðir- hóli, Hólsfjöllum bjuggu öll sín hjúskaparár í Reykja- vík. Helgi var þriðji í röð sex barna Magneu og Helga Kr. Tveir elstu bræður Helga eru látnir; Magnús sem fæddur var árið 1923, lést 1978, og Sveinn, fæddur 1924, lést árið 1985. Eftirlifandi systkini Helga eru: Halldór, fæddur 1927, Elísabet, fædd 1929 og yngst er Sveina, fædd 1931. Helgi kvæntist sinni ágætu konu, Önnu Guðmundsdóttur, þann 3. febrúar árið 1949. Foreldrar hennar eru María Helgadóttir frá Isafirði og Guðmundur Ástráðsson úr Reykjavík. Börn Helga og Önnu eru fimm. Þau eru: María, fædd 1949, gift Friðriki G. Gunnarssyni. Þau eiga þrjár dætur. Helgi, fæddur 1951, Inga Lára, fædd 1954, gift Ólafi H. Jónssyni. Börn þeirra eru þijú. Björk, fædd 1957, gift Sigurði Haukssyni. Þau eiga eina dóttur. Yngstur er Guðmundur Rúnar, fæddur 1970. Reykjavíkurborg naut starfs- krafta Helga nánast alla hans starf- sævi eða í samtals 44 ár. Hann hóf starfsferilinn hjá Borgarhagfræð- ingi árið 1946 en réðst til starfa hjá Slökkviliði Reykjavíkur 1952. Helgi átti margar ánægjulegar minningar frá þessum árum sem hann gaf okkur hinum hlutdeild í. Að loknu tíu ár starfi brunavarðar gerðist hann húsnæðismálafulltrúi hjá Félagsmálastofnun borgarinn- ar. Víst er að mörgum skjólstæð- ingi þeirrar stofnunar hefur hann reynst styrk stoð þau ár sem hann starfaði þar, því Helgi átti erfitt með að sitja aðgerðalaus ef hann sá að virkilegs stuðnings var þörf. Þessi eiginleiki hans birtist í ýmsum myndum, t.d. gagnvart einstökum sjúklingum sem hann kynntist er hann dvaldi á spítölum. Síðustu sautján starfsár sín vann Helgi við endurskoðun hjá endur- skoðunardeild Reykj avíkurborgar. Hann hætti störfum 1. mars 1990, réttu ári áður en hann gekkst und- ir sína aðra hjartaaðgerð. Fyrstu kynni mín af Helga, tengdaföður mínum, eru mér minn- isstæð. Tæpast fullsprottinn ung- lingurinn, með lubbann niður á herðar, hélt einn góðviðrisdag ásamt konuefninu á vit foreldra hennar í fallegan gróðurreit fjöl- skyldunnar rétt ofan við Reykjavík. Þar gekk ég til móts við hann, há- an, sólbrúnan og myndarlegan mann. Hafi kvíði verið fyrir þessum fyrsta fundi hvarf hann strax við þægilegt viðmótið og hlýtt handtak- Svövu höfðu stofnað sínar fjölskyld- ur og eignast eigin bifreiðir, hófst uppbygging allra húsanna þriggja og nú rýkur aftur úr bæjunum, kaffisopinn bíður gesta og gang- andi og þreyttir gangnamenn fá aftur húsaskjól og næturgreiða. Nú iðar dalurinn af mannlífi yfir sumartímann og litlir afkomendur ganga um bæjarstétt og búa sér leikvöll á stekkjargrundu. Örlögin réðu því, að við hjónin eignuðumst hús systkinanna á Efri Brettingsstöðum, þar sem þau gengu ekki heil til skógar og áttu þangað ekki afturkvæmt. Þar höf- um við notið sumardvalar ásamt frændfólkinu og reynum að halda uppi merki þessa heiðursfólks sem Efri Brettingsstaði byggðu. ið. Helgi fræddi mig fljótt á því að hann ætti alténd nokkuð í mér því móður mína hefði hann flutt á fæð- ingardeildina og jafnframt orðið fyrstur til að tilkynna föður mínum fæðingu þessa síðar tengdasonar síns! Frásögn Helga af því hvernig sá gróðurreitur sem við vorum stödd í hafði sprottið upp af einstakri elju- semi og þrautseigju tengdaföður hans var nákvæm og einlæg. Þegar frá leið varð mér ljóst að í rauninni upplýsti hann strax á okkar fýrsta fundi hvaða mann hann hafði að geyma og hvaða gæði lífsins hann setti í öndvegi. Það var skýrt í hans huga að til þess að lítið fræ yrði að sprota og sproti að stöndugu tré þurfti mikla aðgætni og umönnun. Það viðhorf hans náði í óeiginlegri merkingu einnig til manna og dýra. Framar öllu öðru setti Helgi fjöl- skyldu sína og heimili. Hann fagn- aði fólki sínu af einlægni í hvert sinn er það birtist í Fornastekknum. Barnabörnin hændust að honum og nutu þess ríkulega að vappa í kring- um afa í garðinum og fræðast m.a. um gróðurinn og fuglana. Helgi var óþreytandi að miðla fróðleik og draga fram svipmyndir af þeim tíma er hann hafði lifað. í frásögnum hans var enginn maður án nafns, hús án götuheitis og númers, fugl án heitis, slík var nákvæmni hans jafnt til orða sem verka. Margra góðra eiginleika og verka Helga mætti enn minnast. Sum verka hans eru auðsæ, svo sem trjá- rækt og annar afrakstur handtaka hans í garðinum, fallegt og snyrti- legt húsið, handgerðir silfurmunir, útskornir tréstokkar, skrautritaðir pappírar, skreytingar af ýmsu tagi og svo mætti áfram telja. Dýrmæt- ust er þó minningin um góðan og heiðarlegan mann sem skilur eftir sig ljúfar minningar. Blessuð sé minning Helga Helga- sonar. Ólafur H. Jónsson. Kveðja frá barnabörnum Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfír minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum.) í Flatey bjó fjölskylda Svövu þar til haustið 1962 að systkinin flytj- ast suður og setjast að á Kópavogs- hæli. Foreldrar þeirra voru orðin sjúk og gátu ekki annast þau lengur. Svava átti yndisleg ár á Kópa- vogshæli. Lengst af bjó hún á „sam- býli“ hælisins ásamt Páli bróður sínum. Hinir bræðurnir tveir höfðu þá flust aftur norður yfir heiðar. Umönnum systkinanna var til fyrir- myndar, allt var gert til að þeim liði sem best. Starfsfólkið þar á bestu þakkir skildar. Á þessum árum eignaðist Svava góða vinkonu, Guðrúnu Pétursdótt- ur. Þær deildu saman herbergi í mörg ár og fór vel á með þeim. Við vitum að Guðrún saknar vinar í stað. Svava var vinsæl, félagslynd og alltaf svo ljúf og glöð. Hún hafði yndi af tónlist og átti gott safn af hljómplötum sem hún naut að hlusta á. Síðustu árin bjó Svava í litla húsinu við Kópavogsbraut 9 ásamt Eyrúnu, Sveini og Marel. Þar var alltaf notalegt að koma og viljum við þakka af alhug Evu, Sigur- björgu, Guðrúnu og Herdísi fyrir alla þá hlýju og ástúð sem þær sýndu Svövu alla tíð. Að leiðarlokum þökkum við Svövu allar fallegu jólagjafirnar sem hún valdi sjálf af mikilli kost- gæfni. Þær geymum við til minn- ingar um hana. Innilegar samúðarkveðjur send- um við bræðrum Svövu, öllum vin- um hennar og ættingjum. Erla Björnsdóttir, Örn Guðmundsson. Væn kona, hver hlýtur hana, hún er miklu meira virði en perlur. Hjarta manns hennar treystir henni. Hún gjörir honum gott og ekkert illt alla ævidaga sína. Hún sér um ull og hör og vinnur fúslega með höndum sínum. Hún fer á fætur fyrir dag, skammtar heimil- isfólki sínu. Hún hefur augastað á akri og kaupir hann, af ávexti handa sinna plantar hún víngarð. Hún gyrðir lendar sínar krafti og tekur sterklega til armleggjunum. Hún finnur, að atvinna hennar er arðsöm; á lampa hennar slokknar eigi um nætur. Hún opnar munninn með speki og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar. Hún vakir yfir því sem fram fer á heimili hennar, og etur ekki letinnar brauð. Gefið henni af ávexti handa hennar, og verk hennar skulu lofa hana í borgarhliðun- um. (Orðskviðir Salómons) Hinn 10. þessa mánaðar andaðist á Hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akur- eyri móðursystir mín, Kristjana Hrefna Ingólfsdóttir, rúmlega 79 ára að aldri. Hún var fædd á Gríms- stöðum á Hólsfjöllum 13. nóvember 1914, elst 15 systkina. Foreldrar hennar voru Ingólfur Kristjánsson bóndi og Katrín María Magnúsdótt- ir kona hans sem bjuggu á Gríms- stöðum og Víðirhóli. Hún byrjaði fljótt að taka ábyrgð og vinna utan húss og innan á sínu stóra bernsku- heimili enda afar dugleg og ve| verki farin. Rúmlega tvítug giftist Hrefna eftirlifandi eiginmanni sín- um, Pálma Jónassyni frá Helga- stöðum í Reykjadal. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar bæði stund- uðu nám á Laugum í sömu sveit, hún á Hússtjórnarskólanum og hann á Alþýðuskólanum. Þau hjón bjuggu lengst af í Reykjadal, fyrst á Helgastöðum en byggðu sér síðan nýbýlið Pálmholt úr sömu jörð. Þar fæddust börn þeirra og ólust upp við mikið ástríki foreldra sinna. Börn Hrefnu og Pálma eru: Snjólfur Hörður, Hreiðar, Magnús, Brynja María og Inga Jónasína. ÖIl eru þau foreldrum sínum til hins mesta sóma. Mjög gestkvæmt var jafnan í Pálmholti og þrátt fyrir miklar annir húsfreyju við bústörfin var ætíð tími til að taka vel á móti gestum og veita þeim af höfðings- skap. Síðustu árin bjuggu þau á Akureyri, áttu þar notalegt heimili allt þar til Hrefna þurfti vegna veik- inda að fara á Hjúkrunarheimilið Hlíð þar sem hún naut frábærrar umönnunar til hinstu stundar. Hrefna og Pálmi voru einstak- lega hamingjusöm hjón alla tíð. Það kom ekki síst fram í þeirri um- hyggju sem Pálmi sýndi Hrefnu í langvinnum veikindum hennar síð- ustu árin svo að einstakt var. Ást- vinir Hrefnu hafa mikið misst við fráfall hennar. Ég og fjölskylda mín vottum Pálma, börnum hans og fjölskyld- unni allri okkar dýpstu samúð og minnumst Hrefnu með innilegu þakklæti og virðingu. Guð varðveiti Hrefnu Ingólfsdóttur sem nú hefur fengið lausn frá nærfellt tíu ára veikindum og öðlast fögnuð í dýrð páskahátíðarinnar. Áslaug Sif Guðjónsdóttir. Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 27. mars nk., fylgir blaðauki sem heitir Páskar. í þessum blaðauka verður fjallað um páskahátíðina og siði sem henni tengjast. Þar verður að finna uppskriftir að páskamat og tertum, heimatilbúnum páskaeggjum og páskaskrauti. Litið verður inn hjá fjölskyldu sem býður til páskamorgunverðar og forvitnast um páskasiði í útlöndum, svo fátt eitt sé nefnt. Þeim sem hafa áhuga á að auglýsa í þessum blaðauka, er bent á að tekib er viö auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 21. mars. Nánari upplýsingar veita Agnes Erlingsdóttir, Helga Guðmundsdóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn auglýsingadeildar, í síma 69 1111 eða símbréfi 69 1110. - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.