Morgunblaðið - 20.03.1994, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 20. MARZ 1994
Jir ■ N N M A UGL ÝSINGAR
Fóstrur
Fóstrur óskast á leikskólann Lönguhóla,
Höfn í Hornafirði. Bæjarfélagið útvegar hús-
næði og greiðir flutningskostnað.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma
97-81315 og félagsmálastjóri
í síma 97-81222.
LANDSPÍTALINN
Reyklaus vinnustaður
RANNSOKNASTOFA I
BLÓÐMEINAFRÆÐI
Staða deildarlæknis er laus til umsóknar við
rannsóknastofu í blóðmeinafræði. Staðan
veitist til 1 árs frá 1. júní nk.
Upplýsingar veita Sigmundur Magnússon,
forstöðulæknir, og Brynjar Viðarsson, deild-
arlæknir.
LYFLÆKNINGADEILD
Deildarlæknar
Stöður deildarlækna (reyndra aðstoðar-
lækna) eru lausar til umsóknar við lyflækn-
ingadeild Landspítalans frá 1. júlí eða eftir
samkomulagi.
Umsóknir berist til Þórðar Harðarsonar, pró-
fessors, lyflækningadeild Landspítalans, fyrir
1. apríl nk.
Nánari upplýsingar veita Þórður Harðarson,
prófessor, sími 601000, Erna Milunka Kojic
og Gerður Gröndal, deildarlæknar, sími
601000 (kalltæki).
Hjúkrunarfræðingur
Staða hjúkrunarfræðings í 60% næturvaktir
við lyflækningadeild 11 -B er laus til umsóknar.
Um er að ræða almenna lyflækningadeild,
opið frá mánudegi til föstudags (5 daga deild).
Upplýsingar gefa Anna Hafsteinsdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601235 og
Bergdís Kristjánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601300.
HANDLÆKNINGADEILD 4 (13-D)
Nú eru lausar tvær stöður hjúkrunarfræðinga
við handlækningadeild 4. Deildin er 25
sjúkrarúm, tvískipt almenn skurðlækninga-
og þvagfæraskurðlækningadeild. Hjúkrun á
deildinni er því mjög fjölbreytt.
Góður aðlögunartími eftir þörfum hvers og
eins með vönum hjúkrunarfræðingum. Unnið
er 12 tíma vaktir þriðju hverja helgi eða 8
tíma vaktir aðra hverja helgi. Starfshlutfall
er eftir samkomulagi.
Upplýsingar veita Hrafnhildur Baldursdóttir,
hjúkrunardeildarstjóri, í síma 601350 og
Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í síma 601366 eða 601300.
Umsóknir berist til skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra fyrir 1. apríl nk.
RANNSOKNASTOFAI
MEINEFNAFRÆÐI
Deildarmeinatæknir óskast í 100% starf á
Rannsóknastofu Vífilsstaðaspítala frá 25.
apríl 1994.
Upplýsingar gefur Guðbjörg Sveinsdóttir í
síma 601816.
RIKISSPÍTALAR
Ríkisspítalar eru eínn fjölmennasti vinnustaöur á Islandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sér fyrir markvissri
meðferð sjúkra, frœðslu heilbrigöisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrlr og með,
09 leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Sumarstörf 1994
Eftirfarandi sumarstörf hjá Kópavogskaup-
stað fyrir sumarið 1994 eru laus til umsóknar:
Almenn störf:
1. Verkamenn í almenn störf; garðyrkju,
malbikun, gangstéttagerð, almenna jarð-
vinnu, hreinsun, ýmis viðhaldsstörf og á
íþróttavelli.
2. Vinnuvélastjórnendur til afleysinga (rétt-
indi áskilin).
3. Flokksstjórar við garðyrkjustörf og á
íþróttavelli.
4. Aðstoðarmenn á leikvelli.
5. Afleysingamenn við Sundlaug Kópavogs.
Vinnuskólinn:
Ráðningartími júní-júlí.
1. Yfirflokkstjórar.
2. Flokkstjórar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Fannborg
2 (Félagsheimilinu), 2. hæð, opið kl. 12.00-
16.00. Nánari upplýsingar eru veittar í símum
41562 og 41563.
Umsóknum skal skila á sama stað fyrir 18.
apríl 1994.
Starf
ferðamála-fulltrúa
lausttil umsóknar
Héraðsnefnd Skagfirðinga auglýsir laust til
umsóknar starf ferðamálafulltrúa Skagfjarð-
ar. Um er að ræða fullt starf með aðsetri í
Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki.
Starfið krefst frumkvæðis, sjálfstæðis og
þekkingar á ferðamálum.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem
fyrst eftir 1. maí nk. Frekari upplýsingar í
síma 95-35737 og á skrifstofu héraðsnefnd-
arinnar í Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki,
þar sem tekið er á móti umsóknum um starf-
ið til 31. mars 1994.
Héraðsnefnd Skagfirðinga,
Stjórnsýsluhúsinu Sauðárkróki,
550 Sauðárkrókur (sími 95-35737).
Efnafræðingur
Óskum að ráða efnafræðing eða mann með
sambærilega menntun/þekkingu í starf sölu-
fulltrúa hjá einu af stærstu og traustustu
þjónustufyrirtækjum landsins.
Starfssvið:
1. Sala og markaðssetning á efnavör-
um.
2. Ráðgjöf um notkun og gerð hreinlætisáætl-
ana.
3. Gerð áætlana um innkaup og birgðastýring.
4. Samningagerð við erlenda birgja og innkaup.
Við leitum að duglegum og framsæknum
manni sem getur starfað sjálfstætt og axlað
ábyrgð.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar „Sölufulltrúi 061 “ fyrir 26. mars nk.
Fulltrúastaða við
Bankamannaskólann
- fræðslumiðstöð bankamanna
Samband íslenskra bankamanna, SÍB, óskar
að ráða fulltrúa til starfa að starfsfræðslu-
málum bankamanna. SÍB hefur tekið við
rekstri Bankamannaskólans, fræðslumið-
stöðvar bankamanna, samkvæmt sérstöku
samkomulagi sambandsins og banka og
sparisjóða og verður meginhlutverk fulltrú-
ans að sinna málefnum skólans.
Meðal verkefna eru eftirfarandi:
- Skipulagning námskeiðahalds skv. ákvörð-
un fræðslunefndar skólans.
- Boðun námskeiða og skráning þátttakénda.
- Frágangur kennsluefnis og umsýsla
námsgagna.
- Reikningshald skólans, þ.m.t. færsla
bókhalds.
Leitað er að fjölhæfum einstaklingi, sem er
vanur að vinna sjálfstætt. Góð, hagnýt
menntun er áskilin. Nauðsynlegt er að starfs-
maðurinn hafi gott vald á íslenskri tungu,
hæfni í einu Norðurlandatungumáli og
nokkra enskukunnáttu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Sambands íslenskra bankamanna.
Umsóknir ber að senda Sambandi íslenskra
bankamanna og er umsóknarfrestur til 6.
apríl 1994.
Nánari upplýsingar veitir Vilhelm G. Kristins-
son, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra
bankamanna.
BORCARSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
Á Borgarspítalanum eru lausar stöður
hjúkrunarfræðinga á nokkrum deildum og til
sumarafleysinga. Á spítalanum vinnur stór
hópur hjúkrunarfræðinga sem leggur metnað
sinn í að veita sem besta hjúkrun. Mikið er
lagt upp úr góðri samvinnu, tækifærum til
símenntunar og þróun hjúkrunar.
Möguleiki á leikskólaplássi.
Nánari upplýsingar veitir Erna Einarsdóttir
hjúkrunarframkvæmdastjóri starfsmanna-
þjónustu í síma 696356.
Öldrunarlækningadeildir
Á deild B-4, sem er öldrunarlækningadeild
með lyflækningar og bæklunarskurðlækning-
ar sem sérgreinar, eru lausar stöður hjúkrun-
arfræðinga nú þegar og til sumarafleysinga.
Starfshlutfall samkomulagsatriði.
Endurhæfinga- og
taugalækningadeildir
Á deild EN-61 sem skiptist upp í heilablóð-
fallseiningu, verkjaeiningu og almenna
taugaeiningu eru lausar stöður hjúkrunar-
fræðinga nú þegar og til sumarafleysinga.
Starfshlutfall samkomulag.
Á deild EN-62 sem skiptist upp í almenna
endurhæfingaeiningu, gigtareiningu og heila-
og mænuskaðaeiningu eru lausar stöður
hjúkrunafræðinga nú þegar og til sumar-
afleysinga. Starfshlutfall samkomulag.
Sjúkraliðar
Á deildum B-4, B-5 og EN-61 eru lausar stöð-
ur sjúkraliða nú þegar og til sumarafleys-
inga. Starfshlutfall samkomulagsatriði. Einn-
ig vantar sjúkraliða til sumarafleysinga á
Hvítaband, öldrunardeild og E-62.
Nánari uplýsingar veita Anna Birna Jensdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
696358 og Erna Einarsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri starfsmannaþjónustu, í
síma 696356.