Morgunblaðið - 21.04.1994, Qupperneq 1
104 SIÐUR B/C/D
89. tbl. 82. árg.
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þróa gler-
augu gegn
heymæði
London. Reuter.
BRESKIR sjóntækjafræðingar
hafa þróað gleraugu sem verja
þá sem þjást af heymæði fyrir
ónæmisvöldunum. Gleraugun
skýla augunum og litlar dælur
sjá til þess að blása lofti, sem
hefur verið síað, að augunum.
Sjóntækjafræðingarnir segja
gleraugun hafa verið prófuð í Bret-
landi og á Nýja-Sjálandi og reynst
vel. Segja þeir ennfremur mögulegt
að setja sjóngler eða litað gler í
umgjarðirnar.
Gleraugun verða fljótlega sett á
markað í Bretlandi og seld í verslun-
um Duncan og Todd, sem eiga heið-
urinn að uppfinningunni.
Tsj ernobyl-verið
Tvö óhöpp
í vikunni
Kiev. Reuter.
TVÖ tæknileg óhöpp urðu í
Tsjernobyl-kjarnorkuverinu í
Úkraínu á mánudag og þriðjudag
á sama tima og alþjóðlegir eft-
irlitsmenn voru þar að störfum.
Koma þau sér afar illa fyrir úkra-
ínsku stjórnina, sem vill fá að reka
verið áfram.
Ekki varð vart neinnar geislunar
vegna óhappanna en annað þeirra
var skráð sem einn á sjö stiga skala
yfir kjarnorkuslys. Eftirlitsmenn frá
IAEA, Alþjóðakjamorkumálastofn-
uninni, hafa verið að skoða Tsjerno-
byl-verið í tíu daga en í nýlegri
skýrslu segir, að rekstur þess sé
hættulegur. Verða niðurstöður ferð-
arinnar ræddar á fundi í Vín í dag.
Á síðasta ári breytti úkraínska
þingið fyrri ákvörðun sinni um að
loka kjarnorkuverinu og bar við orku-
skorti í landinu en samkvæmt nýleg-
um samningi Bandaríkjanna og
Úkraínu verður því lokað þegar fund-
ist hafa aðrar orkulindir.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
UTSYNITIL STRUTS AF HAMRABELTIIEIRIKSJOKLI
Ciinton boðar aukna
hörku gegn Serbum
Washington, Moskvu, Brussol. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti boðaði í gær aukna hörku gegn
Bosníu-Serbum vegna árása þeirra á múslimabæinn Gorazde í Bosn-
íu, meðal annars að gripið yrði til aukinna loftárása á sveitir þeirra
en aðildarríki Atiantshafsbandalagsins samþykktu það fyrir sitt leyti
í gær. Clinton lét þung orð falla um aðgerðir Serba undanfarnar
vikur og sagði að snerist þeim ekki hugur og sýndu raunverulegan
friðarvilja yrðu þeir að gjalda fyrir það dýru verði.
Sáttum í Suður-Afríku
fagnað á Vesturlöndum
Jóhannesarborg, Lundúnum. Reuter.
RÁÐAMENN á Vesturlöndum fögnuðu í gær samkomulagi helstu flokka
Suður-Afríku sem felur í sér að Inkatha-frelsisflokkurinn lætur af and-
stöðu sinni við þingkosningamar 26.- 28. þessa mánaðar. Samkomulag-
ið vekur vonir um að kosningarnar leiði ekki til mikilla blóðsúthellinga.
„Þetta vekur
miklar vonir um
friðsamlegar
kosningar,"
sagði John Maj-
or, forsætisráð-
herra Bretlands,
og talsmaður
bandaríska ut-
anríkisráðuneyt-
isins sagði að
sarrikomulagið yrði vonandi til þess
að mannskæðum átökum milli fylgis-
manna Inkatha og Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC) myndi loksins linna.
„Samkomulagið er mikilvægur lið-
Ht
ur í því að tryggja þátttöku allra
Suður-Afríkumanna í kosningunum
og í uppbyggingu lýðræðislegrar
Suður-Afríku eftir afnám kynþátta-
aðskilnaðarins,“ sagði talsmaður
franska utanríkisráðuneytisins.
Erlendir fjárfestar voru þó varkár-
ir og bíða með að Qárfesta í Suður-
Afríku þar til eftir kosningarnar.
ANC sigurstranglegt
Fréttaskýrendur telja að Afríska
þjóðarráðið fái um 55-65% atkvæð-
anna í kosningunum. Heimildarmenn
í Jóhannesarborg segja að forystu-
menn ANC geri ráð fyrir að fá 57%
atkvæðanna og líti á meira fylgi sem
stórsigur.
Fréttaskýrendurnir sögðu að Ink-
atha hefði tapað miklu fylgi með
hótun sinni um að sniðganga kosn-
ingarnar og njóti nú aðeins verulegs
stuðnings i héruðum Zúlú-manna,
KwaZulu og Natal. Talið er að ANC
hafi tvöfalt meira fylgi í KwaZulu
en Inkatha.
Nelson Mandela, leiðtogi ANC, er
líklegur til að verða fyrsti blökku-
maðurinn til að gegna embætti for-
seta Suður-Afríku. Hann sagði á
fundi með hvítum bændum í gær að
eignarréttur þeirra yrði viitur eftir
kosningarnar. Forystumenn ANC
höfðu áður sagt að 30% bújarðanna
myndu skipta um eigendur ef flokk-
urinn næði meirihluta. Um 60.000
hvítir bændur eiga 87% af jörðunum.
Clinton sagðist myndu beita sér
fyrir því að Bosníu-Serbum yrðu
sett sömu skilyrði og við Sarajevo
um brottflutning stórskotaliðs 20
kílómetra út frá Gorazde og fjórum
öðrum griðarsvæðum Sameinuðu
þjóðanna (SÞ). Sagði Bandaríkja-
forseti það kalla á fjölgun í gæslu-
sveitum SÞ í Bosníu og aukinn
flutning hjálpargagna.
Ennfremur sagðist Clinton
myndu knýja á um að efnahagsleg-
ar refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum
í Serbíu í Belgrad yrðu hertar. Loks
sagðist Bandaríkjaforseti ætla taka
frumkvæði að „öflugum pólitískum
aðgerðum" til þess að stöðva Bosn-
íudeiluna. Með því er talið að hann
sé að koma til móts við Borís Jelts-
ín Rússlandsforseta sem hvatti til
þess í gær að haldinn yrði leiðtoga-
fundur Bandaríkjanna, Rússlands
og Evrópusambandsins um lausn
stríðsins.
Bosníu-Serbar virtu ekki í gær
samkomulag um vopnahlé í
Gorazde sem þeir undirrituðu á
þriðjudagskvöld við fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) því í gær
skutu þeir þremur eldflaugum á
sjúkrahús í Gorazde með þeim af-
leiðingum að 10 sjúklingar biðu
bana og 15 særðust, að sögn full-
trúa alþjóðlegra hjálparstofnana.
Einnig biðu 8 flóttamenn í húsi við
hlið sjúkrahússins bana. Þá sóttu
skriðdrekasveitir Bosníu-Serba aft-
ur inn að Gorazde og virtist skot-
færaverksmiðja í miðborginni vera
skotmark þeirra. Fregnir hermdu
að stórskotahríð hefði dunið dag-
langt á Gorazde og alls hefðu 44
manns, aðallega óbreyttir borgarar,
beðið bana og 137 særst.
Andreij Kozyrev utanríkisráð-
herra Rússlands sagði í gær að
Rússar myndu ekki styðja lofthern-
að gegn Bosníu-Serbum fyrr en SÞ
og stjórnvöld í Washington, Moskvu
og í Evrópusambandinu hefðu mót-
að sameiginlega afstöðu til Bosníu-
deilunnar.
Þjóðveijar
þjóra mest
Berlín. Reuter.
ÞJÓÐVERJAR hafa skotist
frani úr Frökkum sem mestu
áfengisneytendur heims, sain-
kvæmt nýrri skýrslu þýska
heilbrigðisráðuneytisins.
I skýrslunni segir að neysla
áfengra drykkja jafngildi því að
hvert mannsbarn í Þýskalandi
hafi drukkið 12,1 lítra af hreinu
alkóhóli í fyrra. Jafngildir það
því að áfengisneysla á inann
hafi þrefaldast frá 1950. Meðal-
talsneyslan nam 140 lítrum af
bjór á mann, 27 lítrum af borð-
vínum og 10 lítrum af öðrum
áfengistegundum.