Morgunblaðið - 21.04.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
7
Þróttur byggir
íþróttahús
BORGARRÁÐ og skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar hafa samþykkt
teikningar að nýju íþróttahúsi íþróttafélagsins Þróttar við Sæviðar-
sund. Ekkert er því að vanbúúaði fyrir félagið að hefja framkvæmd-
ir. Áætlaður kostnaður við bygginguna er 95 milljónir.
SVONA kemur íþróttahúsið sem íþróttafélagið Þróttur fyrirhugar
að byggja við Sæviðarsund til með að líta út. Framkvæmdir hefjast
að öllum líkindum i sumar.
Unglinga-
fargjald
I strætó
STJÓRNARNEFND um al-
menningssamgöngur hefur
tekið ákvörðun um að taka
upp sérstök unglingafargjöld
frá og með næsta mánudegi.
Gjaldið nær til unglinga frá
12 ára fram til 1. júní það ár
sem 16 ára aldri er náð. Hvert
fargjald kostar 50 krónur, en
einnig verður hægt að fá
keypt farmiðaspjöld með 20
miðum á 900 krónur.
Farmiðarnir verða til sölu í
skiptistöðvunum á Hlemmi,
Lækjartorgi, Grensás og í Mjódd
og einnig í upplýsingaþjón-
ustunni í Ráðhúsinu og í af-
greiðslum sundstaða.
Tveir nýir
sýslumenn
Dómsmálaráðherra hefur skip-
að sýslumenn til að starfa á Pat-
reksfirði og á Blönduósi.
Þórólfur Halldórsson hdl hefur
verið skipaður sýslumaður á Pat-
reksfirði frá 1. maí í stað Stefáns
Skarphéðinssonar sem hefur verið
skipaður sýslumaður í Borgarnesi.
Kjartan Þorkelsson sýslumaður í
Olafsfirði hefur verið skipaður sýslu-
maður á Blönduósi frá og með 25.
apríl í stað Jóns ísberg sem lætur
af störfum vegna aldurs.
----»-♦.♦-..
Ráðuneyt-
isstjóri
fær lausn
Ólafur Steinar Valdimarsson,
ráðuneytisstjóri í samgönguráðu-
neytinu, hefur beðist lausnar frá
störfum af heilsufarsástæðum frá
og með 1. september nk. og hefur
forseti íslands fallist á lausnarbeiðn-
ina, segir í fréttatilkynningu frá
samgönguráðuneytinu.
----» ♦ ♦---
Vilja leggja
Islandstorg
Frá Hólmfríði Matthíasdóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins í Barcelona.
BORGARYFIRVÖLD í Barcelona
hafa ákveðið að stefna að því að
opna sérstakt Islandstorg í borg-
inni, en á því torgi yrði gosbrunn-
ur líkur þeim sem er í Perlunni.
Vonast er til að hægt verði að
leggja hornstein torgsins á lýð-
veldisafmælinu í júní nk.
Forsaga mátsins er sú að borgar-
ráðsmaður í Barcelona hreifst af
gosbrunninum í Perlunni þegar hann
var staddur á íslandi í fyrrasumar
og þegar nýtt torg í Barcelona var
á dagskrá lagði hann til að ámóta
gosbrunnur yrði settur upp á því
torgi og það nefnt íslandstorg. Það
var vélsmiðjan Héðinn sem átti veg
og vanda af uppsetningu gosbrunns-
ins og hefur meðal annars verið leit-
að til Héðins um upplýsingar. í kjöl-
far þeirrar athugunar kom í ljós að
engir tæknilegir vankantar eru á því
að setja brunninn upp, en meðal
annars hefur komið upp sú hugmynd
að íslenskir aðilar tækju sig saman
um að gefa Barcelonaborg gosbrunn-
inn.
Heildarkostnaður við torgið, sem
heita myndi Placa d’Islandia, er áætl-
aður um 200 millj. peseta, um 100
millj. ísl. kr., og er þá gosbrunnurinn
ekki meðtalinn.
Vonast er til að hægt verði að
leggja homstein torgsins í júní, eins
eru í byrjun næsta ars. .uiinói
Þróttur hafði ráðgert að byggja
gervigrasvöll á íþróttasvæði sínu, en
nú hefur verið hætt við þær fram-
kvæmdir. íþrótta- og tómstundaráð
hafði samþykkt að veita 52 milljón-
um til byggingar vallarins. Ákveðið
hefur verið að þessum styrk verði
varið til byggingar íþróttahússins.
Til viðbótar mun borgin að öllum
líkindum veita 24 milljónum til bygg-
ingarinnar, en borgin greiðir 80%
af áætluðum byggingarkostnaði
íþróttamannvirkja.
Með nýja húsinu er stefnt að því
að skapa þeim sem iðka knattspyrnu
og tennis mjög góða aðstöðu, en auk
þess verður í húsinu aðstaða til allr-
ar almennrar íþróttaiðkunar.
Við afgreiðslu málsins í skipulags-
nefnd var tekin ákvörðun um að
lækka húsið eilítið frá upphaflegum
teikningum og færa til bílastæði.
Þetta var gert vegna óska íbúa í
nágrenni hússins. Óskum um að
húsið verði staðsett með öðrum
hætti á lóðinni var hins vegar hafn-
að í skipulagsnefnd.
Hvað fœrðu fyrir
mikil innlánsviðskipti
í bankanum þínum...
...annað en vexti?
Til mikils aö vinna meö Vildarþjónustu íslandsbanka!
Vildarþjónustu íslandsbanka njóta þeir viöskiptavinir sem eiga mikil og góö
innlánsviöskipti viö bankann; aö lágmarki 500.000,- kr. í samanlögöum
innstϚum.
Þú hefur beinan aögang aö þjónustufulltrúa. Forgangsverkefni hans er aö veita
persónuiega þjónustu og þekkja viöskipti þeirra sem eru í Vildarþjónustunni og
vera þeim innanhandar um hvaöeina sem varöar dagleg samskipti viö bankann.
Þú fœrö afhent nafnspjald þjónustufulltrúans meö beinu símanúmeri hans. Eftir
lokun tekur símsvari viö skilaboöum sem þjónustufulltrúinn afgreiöir síöan strax
aö morgni.
Þú fœrö yfirlit reglulega yfir viöskipti þín í bankanum.
VILDARÞJONUSTA
ISLANDSBANKA
Þar aö auki spararöu þér umtalsveröar fjárhœöir árlega vegna niöurfellingar
ýmissa þjónustugjalda eins og eftirfarandi dcemi sýnir:
Yfirdráttarheimild 200.000 kr., 50% nýting 9.000,-
Tólf tékkhefti 3.300,-
Þrjú skuldabréf meö einni afborgun á ári í innheimtuþjónustu 2.175, -
Mánaöarleg innheimta á húsaleigu 5.820,-
Greiöslukort, árgjald 1.750,-
Viöskiptayfirlit 190,-
Samtals: 22.235,-
Efþú vilt fá meira en vexti fyrir mikil innlánsvidskipti
skaltu kynna þér Vildarþjónustu íslandsbanka;
menn hafa skipt um banka fyrir minna!
wngnfl .iutlö<jl!öjq2
■tzilnótiutaM 00.00 .no-
-6ðV ,ionótnu()ioM f ð.d .lugnöpmoe
■mfiot.nupioM.. -íifumilm-
mu óollcjH .iuttö(jotnnem?l63
—fflli—ynlxuH ?unhiA íinihnnhiiti'. ípfcaid
.I S L A N DS BAN Kl
. -n,,,KDU ,n<wgoia luötugic ,n<
--.nat..mi-«u<í4idvdii .biouiiaJjJp.óI—Ofl.OE-----------b6»M nogwmgpiA oo^tg po