Morgunblaðið - 21.04.1994, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
51
Ég hitti Óskar alltof sjaldan síð-
ustu 4-5 árin af kringumstæðum
sem erfitt var að ráða við.
Ég þakka Óskari Ólasyni sam-
starfið, góða viðkynningu og ein-
læga vináttu og sendi eiginkonu
hans, Astu Einarsdóttur, börnum
þeirra hjóna og fjölskyldu allri inni-
legar samúðarkveðjur.
Guðmundur Hermannsson.
Það var rétt fyrir miðnætti 14.
apríl, að Einar Óskarsson hringdi
til mín og sagði mér að faðir hans,
Óskar Ólason, hefði látist þá um
kvöldið. - Mér kom þetta mjög á
óvart, Óskar hafði verið hress og
kátur alveg fram á hið síðasta, ég
vissi að hann var nýkominn úr
þriggja vikna fríi á Kanaríeyjum
með konu sinni. Hann var ávallt
skörulegur í framgöngu og glæsi-
legur maður, bar ekki aldurinn utan
á sér og hefði eftir útiliti að dæma
getað verið 1 til 2 áratugum yngri,
enda þótt hann ætti aðeins rúm tvö
ár í áttrætt. Óskar stundaði dag-
lega sund og ég trúi því, að sú
íþrótt hafi átt stóran þátt í því,
hversu heilsugóður og hress hann
hafi verið fram á hið síðasta. En
kallið gerir engin boð á undan sér.
Þótt það sé erfitt fyrir aðstandend-
ur að missa mann í fullu fjöri svona
fyrirvaralaust, segja sumir, að þeir
geti einskis óskað frekar heldur en
að falla frá skyndilega, þegar þeir
séu komnir aldurslega „á tíma“
heldur en að kveljast á sjúkrahúsi
mánuðum eða árum saman. - Þeir,
sem eru trúaðir, óttast ekki kallið.
Þannig held ég, að hafi verið farið
með Oskar Ólason.
Ég hafði þekkt Óskar í yfir þijá
áratugi eða allt frá því Ragnhildur
systir mín giftist Einari, syni hans.
Töluvert samband var á milli okkar
í gegnum árin og gerði ég mér fljótt
grein fyrir því, að þarna var um
mjög vandaðan mann að ræða.
Meginhluta starfsævi sinnar vann
hann við lögreglustörf í Reykjavík
eða frá árinu 1943 og þar til honum
bar að hætta lögum samkvæmt,
þar sem hann hafði náð sjötugu.
Þar af var hanri yfirlögregluþjónn
frá árinu 1966. Ekki var komin
þreyta í Óskar þótt sjötugur væri,
og var hann fullur starfsorku. Mörg
síðustu árin gætti hann ásamt öðr-
um fyrrverandi yfirmanni lög-
gæslu, Guðmundi Kjærnested,
fyrrum skipherra, hliða utanríkis-
ráðuneytisins, annar fyrir hádegi
og hinn síðdegis. Gerðu þeir það
báðir svo að stofnuninni hefur ver-
ið til mikils sóma. Þessu starfi
gegndi Óskar til næstsíðasta dags.
Óskar var ekki vanur að gorta
af sínum eigin verðleikum eða
ágætum, hann var að því leyti hlé-
drægur. - Um síðustu áramót gerði
ég ákveðin viðvik fyrir Óskar og
konu hans. Þegar því var lokið,
sýndi Óskar mér heiðursmerki og
skjöl, sem honum hafði hlotnast í
löngu starfi sínu hjá lögreglunni,
bæði frá innlendum sem og erlend-
um þjóðhöfðingjum ásamt ljós-
niyndum frá ýmsum atburðum og
atvikum úr starfssögu hans. Ljóst
var mér þá sem og áður, að hann
var sáttur við það ævistarf, sem
hann hafði valið sér.
Óskar var fæddur í Reykjavík
7- nóvember 1916 og voru foreldr-
ar hans hjónin Óli Vigfússon, sjó-
máður í Reykjavík, og kona hans
Gréta Þorsteinsdóttir. Oskar stund-
aði nám í Héraðsskólanum á
Laugarvatni, sótti námskeið fyrir
lögreglumenn í Reykjavík, sat í
sænska lögregluskólanum í Stokk-
hólmi í sex mánuði árið 1946.
Lengra var nám hans ekki.
Hinn 7. febrúar 1939 gekk Ósk-
ar að eiga eftirlifandi konu sína,
Astu, dóttur Einars Gíslasonar,
málarameistara í Reykjavík, sem
ættaður var frá Bygggarði á Sel-
tjarnarnesi, og konu hans Kristínar
Ériðsteinsdóttur, sjómanns í
Reykjavík. Börn þeirra eru tvö:
Ágústa, stjórnarráðsritari, gift Jó-
hanni Gunnari Þorbergssyni, lækni
í Garðabæ, syni Þorbergs heitins
Kjailanssonar, kaupmanns í
Reykjavík og eftirlifandi konu
hans, Guðríðar Siguijónsdóttur,
systur Sigurgeirs Siguijónssonar
hrl.; Einar, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, kvæntur Ragnhildi,
sjúkraliða, dóttur Ásgeirs heitins
G. Stefánssonar, framkvæmda-
stjóra í Hafnarfirði og eftirlifandi
konu hans, Sólveigar Björnsdóttur.
Óskar verður kvaddur hinstu
kveðju frá Dómkirkjunni næstkom-
andi föstudag. Við hjónin sendum
Ástu og öðrum aðstandendum okk-
ar innilegustu samúðarkveðju.
Hrafnkell Ásgeirsson.
Hann fór í kallið sjálfur, tafar-
laust, undanbragðalaust og með
fullri reisn og virðingu fyrir þeim,
sem til þurfti að fara. Þannig hafði
hann innprentað okkur, sem hann
stjórnaði, að fara í köllin. En í það
kall, sem sjálfur Himnafaðir kallar
í, mætir maður sjálfur. Óskar var
heima, hafði verið í vinnu um dag-
inn og nokkrum dögum áður ný-
kominn tíl landsins frá sólarlandi,
er hann kenndi verkja fyrir bijósti.
Hann sagði konu sinni að hann
ætlaði að leggja sig og sjá hvort
þetta liði ekki hjá, en áfallið var
það stórt á hans hjarta að þrátt
fyrir bestu læknismeðferð varð
ekki við ráðið.
Hann hét fullu nafni Óskar Guð-
finnur Sigurður Ólason, fæddur í
Reykjavík 7. nóvember 1916 og var
því 77 ára er hann lést. Hann
stundaði nám við Héraðsskólann á
Laugarvatni og við Stýrimanna-
skólann í Reykjavík. Gerðist lög-
regluþjónn í Reykjavík í april 1943.
Árið 1939 giftist Óskar eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Ástu Einars-
dóttur og eignuðust þau tvö börn,
Ágústu, sem gift er Jóhanni Gunn-
ari Þorbergssyni, lækni og Einar,
sem kvæntur er Ragnhildi Asgeirs-
dóttur.
Það var tvennt, sem ég vissi að
var Óskari kærast í lífinu, það var
fjölskylda hans og lögreglustarfið.
Fjölskyldunni unni hann, sem hann
mátti og var þar alla tíð heill og
óskiptur. En sem lögregluþjóni og
félaga kynntist ég Oskari vel.
Fyrstu kynni mín af honum urðu
þegar ég mætti hjá honum í yfir-
heyrslu, sem lögregluþjónn og
vitni, árið 1958, en þá vann Óskar
sem rannsóknarlögregluþjónn á
Fríkirkjuvegi 11. Hann var í hálf-
skiptu herbergi með öðrum rann-
sóknarlögregluþjóni. Þá fann ég
hversu vandvirkur Óskar gat verið
við rannsóknir alvarlegra slysa-
mála.
Síðar á starfsævinni þegar leiðir
okkar lágu saman við störf, þá
fann ég vel, hvað þessi ár við rann-
sóknir umferðarslysa höfðu haft
djúp áhrif á hann.
Óskar var maður myndarlegur,
í hærra lagi, þéttur á velli og í lund,
hraustur og reglusamur. Við unn-
um saman meira og minna í 20
ár og vil ég nú rifja það upp. Ég
man ekki eftir því að hann hafi
látið mig, sem aðstoðarmann, vita
í eitt einasta sinn að hann væri
veikur. Hann mætti alltaf til vinnu.
Mig langar til að vitna í meðmæli,
sem Óskar fékk frá Hannesi Frið-
steinssyni, skipstjóra á varðskipinu
Þór árið 1942 en þar segir Hannes
um Óskar, „að þann tíma sem Ósk-
ar Ólason hefur verið með mér á
varðskipinu Þór eða um tveggja
ára bil, hefur hann reynst sérstak-
lega duglegur og í hvívetna reg-
lusamur við starf sitt“. Það er eink-
ar ánægjulegt að geta tekið heils-
hugar undir þessi orð að leiðarlok-
um eftir langt og afar ánægjulegt
samstarf.
Óskar var skipaður aðalvarð-
stjóri árið 1963 og yfirlögreglu-
þjónn árið 1966. Þáverandi lög-
reglustjóri setti hann yfir umferð-
armálin. Umferðardeildin, sem
hafði verið í gamla Skátaheimilinu
og Sverrir Guðmundsson, aðalvarð-
stjóri hafði stýrt, færðist nú í kjall-
ara aðallögreglustöðvarinnar, álmu
við Snorrabraut. Sverrir varð að-
stoðaryfirlögregluþjónn og var með
Óskari þar til sá er þessar línur
ritar,_tók við af Sverri, og starfaði
með Óskari þar til hann lét af störf-
um sökum aldurs um áramót 1986-
1987.
Þá hafði Óskari verið sýndur
margskonar sómi, sæmdur heiðurs-
merkjum og orðum en ég held að
honum hafi þótt vænst um þegar
forseti Lýðveldisins sæmdi hann
riddara hinnar íslensku Fálkaorðu.
í umferðarmálunum var Óskar á
heimavelli, þar þekkti hann til.
Hann lagði allt sem hann mátti í
starfið, sama hvar það var eða
hvert hann þurfti að fara. Hann
ætlaðist til mikils af okkur, „sínum
mönnum“, til að vinna að forvörn-
um og slysavörnum í umferðinni.
Mæta varð á fundum og tala við
fólk. Hitta eldri borgara, bjóða
þeim á stöðina og fræða þá um
hætturnar í umferðinni, ekki bara
þá eldri, ekki síður þá yngri, börn-
in. Eða mótorhjólaökumennina,
sem hann bauð á lögreglustöðina
eða ökumenn, sem þurftu endur-
þjálfun. Ég gæti talið lengi upp þau
atriði, sem Óskar stakk uppá að
gerð yrðu til varnar slysum í um-
ferðinni. Hann var sjálfur með í
þessu af lífi og sál. Éinnig þegar
hægri umferðin varð 1968, þá var
mikið unnið að fræðslu og fyrir-
byggjandi starfi fyrir breytinguna
og síðan við breytinguna sjálfa og
mánuðina á eftir. Margir spáðu því
þá að illa færi og slysum í umferð
myndi fjölga en reyndin varð önnur
vegna þrotlauss starfs þeirra er að
umferðarmálum störfuðu, og þar
var Óskar Ólason í forystunni.
Óskar vildi styrk umferðardeild-
arinnar sem mestan. Hann, ásamt
yfirlögregluþjónum umferðardeilda
lögreglunnar í Kaupmannahöfn og
Ósló, stofnaði til samvinnufunda
urii umferðarlöggæslumál og í dag
hittast yfirmenn umferðardeilda
lögreglu í höfuðborgum allra Norð-
urlandanna á fundi árlega og skipt-
ast á heimsóknum. Oft heyrði ég
Óskar ræða það af þunga, hve efla
þyrfti umferðardeildina í Reykjavík
af mannskap og tækjum. Þá komu,
sem högg, rök um fjölda slysa,
eignatjón og jafnvel dauðsföll í
umferðinni. Hvar var þá brýnna
að efla löggæsluna? Ég man það
eins og gerst hafi í gær, þegar
Óskar frétti á síðastliðnu ári að
seld hefðu verið tvö lögreglumótor-
hjól og ekki fengin ný í staðinn,
hve honum sárnaði og hann hvatti
mig til að gæta þess að standa
vörð um að til væri mannskapur
og tæki til að umferðarlöggæslan
væri í lagi.
Því hann vissi af eigin raun að
þeir menn, sem væru við rannsókn-
ir eða í almennri deild lögreglunn-
ar, hefðu nægum öðrum störfum
að sinna og þá vildu umferðarmálin
sitja á hakanum.
Við, sem unnum með Óskari,
munum margar skemmtilegar
stundir, þær verða ekki tíundaðar
hér heldur geymast í minningunni
um góðan dreng, sem var kappsam-
ur umferðarlögregluþjónn, vildi öll-
um vel og var léttur og skemmtileg-
ur félagi á góðum stundum.
Lögreglumenn, yfirstjórn og sér-
staklega við félagarnir í Umferðar-
deildinm kveðjum nú foringja og
félaga, og þökkum honum sam-
vinnu og forystuna og biðjum hon-
um guðs blessunar. Astu, Ágústu,
Einari og öllum nánustu aðstand-
endum sendum við hlýjar og inni-
legar samúðarkveðjur.
Magnús Einarsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Á niot'gun kveðjum við hinstu
kveðju Óskar Ólason, fyrrverandi
yfirlögregluþjón.
Að loknu farsælu ævistarfi í lög-
reglunni í Reykjavík, þar sem hann
að verðleikum naut mikils trausts
og frama, réðst hann í hlustastarf'
sem móttökustjóri í utanríkisráðu-
neytinu þar sem við samstarfsmenn
hans höfum notið samvinnu og vin-
áttu hans um margra ára skeið.
Persónulega þótti mér mikill fengur
að fá tækifæri til að endurnýja
kynni við Óskar, en í barnæsku
naut ég þess að kynnast honum á
heimili mínu er þeir faðir minn og
hann voru samstarfsmenn í Rann-
sóknarlögreglunni í Reykjavík og
samgangur var milli heimilanna.
Samviskusemi og myndugleiki
voru Óskari eðlislæg og við það
bættist hlýtt hjartalag. Hann leysti
fumlaust úr öllum málum, sem
hann tók að sér og aldrei beið hann
morguns með það sem ljúka mátti
í dag. Hann hafði lifandi áhuga á
öllu umhverfi sínu jafnt þjóðmálum
sem velferð samferðamanna sinna
og fór þar ekki í manngreinarálit.
Hjálpsemi hans var við brugðið og
nutu hennar jafnt samstarfsmenn
sem og þeir fjölmörgu, sem daglega
eiga erindi við ráðuneytið. Sérstaka
nærgætni og skilning sýndi hann
þeim, sem aðstoðar utanríkisþjón-
ustunnar þurftu að leita þegar al-
varlega bjátaði á hjá ættingjum
erlendis. Veit ég að margir minn-
ast Óskars með miklum hlýhug
vegna þessa. Ungum starfsmönn-
um ráðuneytisins var hann sem
föðurímynd, svo annt lét hann sér
um velferð þeirra.
Óskar kom gjarnan auga á bjart-
ari hliðar mála og lagði ávallt gott
til. Hann kunni að gleðjast á góðri
stund og naut samverustunda
starfsfólks og lagði vel af mörkum
til að glæða þær lífi. Slíkur sam-
starfsmaður auðgar tilveru allra
sem hann fá að umgangast og fyr-1
ir það erum við þakklát. Betri sam-
starfsmann var erfitt að hugsa sér
og er nú skarð fyrir skildi þegar
hann svo fyrirvaralaust er kvaddur
á brott.
Fyrir hönd samstarfsfólks í utan-
ríkisráðuneytinu og fjölmargra kol-
lega okkar sem nú starfa erlendis
og geta því ekki fylgt Óskari síð-
asta spölinn, flyt ég frú Ástu, börn-
um þeirra og öllum ástvinum ein-
lægar samúðarkveðjur.
Þorsteinn Ingólfsson.
VÖNDUÐ VÖRUMERKI
GOTT VERÐ
Svefnpokar kr. 1.510,- Tjöld kr. 4.768,-
Hornhillur kr. 952,- Baðvigt kr. 708,- Gufu-
straujárn kr. 1.820,- Brauðrist kr. 1.900,-
Samlokugrill kr. 1.582,- Matarstell kr.
1.588,- Gullhringar kr. 1.114,- Silfur kr.
475,- Úr kr. 793,- Eldhúsklukka kr. 596,-
Hárblásari kr. 874,- Ferðatöskusett kr.
3.178,- íþróttavörur, garðyrkjuáhöld, verk-
færi, leikföng gjafavara í úrvali o.fl. o.fl.
Listinn frír
PÖNTUNARSÍMI 52866
RM B.MAGNUSSONHF.
HÓLSHRAUNI2 ■ SIMI 52866 ■ P.H.410 ■ HAFNARFIROI
I
I
\ ~
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I