Morgunblaðið - 21.04.1994, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
53
var þér mikið kappsmál að allir
gætu notið góðs af Harðavelli, litla
húsinu þínu í Reynishverfinu í Mýr-
dal, og svo sannanlega hefur öll fjöl-
skyldan notið þess að vera þar á
sumrin og er það líka það eina sem
tengir okkur enn við okkar feðra-
slóðir. Þökk sé þér.
Anna mín, þegar ég kvaddi þig
i seinasta sinn fyrir u.þ.b. hálfu ári
vissi ég undir niðri að við ættum
ekki eftir að hittast aftur í þessu
jarðlífi. Þú baðst mér og mínum
Guðs blessunar en sagðir svo í lok-
in: „Og passaðu þig svo á Þjóðverj-
unum.“ Það var þér líkt. Það er
sárt að geta ekki fylgt þér seinasta
spölinn en minning þín lifir með
mér alla tíð.
Við hjónin sendum systrum þín-
um, Sigríði og Ásdísi, svo og allri
fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum Guð að
blessa ykkur öll.
Þegar kvöldsins hörpuljómar
hverfa út í mýrka nótt.
Innst í sál þér unaðsómar
endurhljómi sofðu rótt.
(Sv.A.S.)
Blessuð sé minning Önnu Kjart-
ansdóttur.
Ingibjörg Jóhannsdóttir og
Þórir Gunnarsson, Prag.
Með örfáum orðum langar mig
til þess að kveðja föðursystur mína,
Önnu Kjartansdóttur, sem lést 12.
apríl sl. Anna frænka, eins og ég
kallaði hana alltaf, var mikil kjarna-
kona og í kringum hana ríkti aldrei
nein lognmolla. Anna var vel gefin
kona og hjartahlý, sem sýndi sig
best í því að hún mátti aldrei neitt
aumt sjá, hvorki hjá mönnum né
málleysingjum.
í minningunni man ég fyrst eftir
henni frænku minni þegar ég í barn-
æsku fór í heimsókn til hennar á
Farsóttahúsið í Reykjavík þar sem
hún bjó og starfaði sem hjúkrunar-
kona. Þar var ætíð vel tekið á móti
manni og einhveiju góðgætinu
gaukað að manni.
Þegar Anna lét af störfum sem
hjúkrunarkona hafði hún fest kaup
á sumarbústað austur í Reynis-
hverfi í Mýrdal, þar sem hún var
fædd og uppalin og átti sá staður
hug hennar allan. í æsku var ég
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
dvelja hjá henni í bústaðnum
kannski tvær til þijár vikur í senn
yfir sumartímann ásamt systrum
hennar, Sigríði og Ásdísi, að
ógleymdri ömmu Ingibjörgu. Þessi
tími austur í Mýrdal á þessum árum
er mér ógleymanlegur og hefur
tengt mig tilfinningaböndum við
Mýrdalinn.
Elsku frænka, ég vil þakka þér
fyrir þær góðu samverustundir sem
ég átti með þér gegnum tíðina og
bið guð um að vernda þig og geyma.
Kjartan O. Jóhannsson.
íslaiulskosiur
Afnuvli
Verð frá^DOO kr. á mann
614849
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími620200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð iíillegir
síilir og mjög
góð þjónusta.
Upplýsingar
ísima22322
FLUOLEIDIR
HÉTEL LIIFmillR
>f?h cWÁhs t’ rrttvrV rrifh fion
t
Elskuleg móðir okkar,
SIGRÍÐUR DÝRLEIF JÓNSDÓTTIR,
er lést ÍVífilsstaðaspítala 13. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 22. apríl kl. 1 5.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Félag astma- og
ofnæmissjúklinga.
Ellen Þóra Snæbjörnsdóttir,
Búi Snæbjörnsson.
t
Elskulegur maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINN KRISTJÁNSSON,
Seljahlíð 7C,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 22. apríl kl. 13.30.
Úndína Árnadóttir,
Rafn Sveinsson, Kristin Jónsdóttir,
Sveinn B. Sveinsson, Sigurlaug Hinriksdóttir,
Matthías Sveinsson, Sjöfn Magnúsdóttir,
Árni V. Sveinsson, Margrét Sigmundsdóttir,
Ingibjörg H. Sveinsdóttir, Pétur Kjartansson,
Kristján A. Sveinsson, Gullveig Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN PÁLSSON
vélstjóri,
Reynigrund 28,
áður Laugabraut 17,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju
föstudaginn 22. apríl kl. 14.00.
Guðný Jónsdóttir, Rúnar Pétursson,
Sumarrós Jónsdóttir,Svavar Ágústsson,
Jóna Maja Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir okkar og föðursystir,
ANNA KJARTANSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Selvogsgrunni 11,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 22. apríl kl. 15.00.
Sigrfður Kjartansdóttir,
Ásdís Kjartansdóttir,
Kjartan Haraldsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓSKAR ÓLASON
fyrrverandi yfirlögregluþjónn,
Bergstaðastræti 12A,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á
morgun.föstudaginn 22. apríl, kl. 13.30.
Ásta Einarsdóttir,
Ágústa Óskarsdóttir, Jóhann Gunnar Þorbergsson,
Einar Óskarsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Við þökkum öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS S. ÖFJÖRÐ,
Fossheiði 48,
Selfossi.
Fanney Magnúsdóttir,
Jóhanna Guðjónsdóttir, Bjarni Olesen,
Guðlaug Guðjónsdóttir, Þór Valdimarsson,
Magnús Guðjónsson, Ásdfs Styrmisdóttir,
Birgitta Guðjónsdóttir, Hafsteinn Jakobsson
og barnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
TRYGGVI JÓNSSON
skipstjóri,
Staðarbakka, Arnarstapa,
Snæfellsnesi,
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju
laugardaginn 23. apríl kl. 13.30.
Sætaferð frá Umferðarmiðstöðinni
sama dag kl. 9.00.
Jarðsett verður að Hellnum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svanborg Tryggvadóttir,
Guðrún Tryggvadóttir, Konráð Gunnarsson,
Lárus Tryggvason, Ólöf Svavarsdóttir,
Jón Tryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför, eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÖNNU HELENU BENEDIKTSSON
fædd ELLENDERSEN,
Arnarhrauni 13,
Hafnarfirði.
Ingvaldur Benediktsson,
Vilborg Ingvaldsdóttir.Larbi Chelbat
Erlendur Ingvaldsson, Fjóla Reynisdóttir,
Svana Ingvaldsdóttir, Gústaf Hannesson
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til ættingja, vina og
fólksins í dreifbýlinu fyrir auðsýnda
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, bróður okkar
og vinar,
HARALDAR PÁLS ÞÓRÐARSONAR,
Staðarbakka 34.
Sérstakar þakkir til Jökla, Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og Coldwater.
Ingibjörg S. Kristjánsdóttir,
Kárl Þórðarson, Þóra Þórðardóttir,
Þórunn Þórðardóttir,
Sigurþór, Kristrún
og fjölskyldur þeirra.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og
langafa,
ANTONÍUSAR ÓLAFSSONAR
Berunesi.
Hanna Antoníusdóttir, Sigurbjörn Guðmundsson,
Stefama Antoniusdóttir,
Anna Antonfusdóttir, Ólafur Eggertsson,
Óskar Antoníusson,
Svava Júliusdóttir, Gunnar Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUNNARS E. MAGNÚSSONAR,
Álfaskeiði 75,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunar-
fólks St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Ásthildur Magnúsdóttir,
Ragnheiður Gunnarsdóttir, Ásgeir Bjarnason,
Magnús Gunnarsson, Elísabet Karlsdóttir,
Sigurður Gunnarsson
og barnabörn.
Lokað
Skrifstofur ráðuneytisins verða lokaðar föstudag-
inn 22. apríl frá kl. 13.00-15.00 vegna útfarar
ÓSKARS ÓLASONAR, móttökustjóra.
Utanríkisráðuneytið.