Morgunblaðið - 21.04.1994, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Einbeittu þér við vinnuna í
dag. Þér gæti staðið til
boða aukinn frami í starfi
svo þú ættir ekki að slá
slöku við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vonbrigði vegna vinar geta
dregið úr áhuga þínum á
að fara út í kvöld, en þú
ættir samt að grípa þau
tækifæri sem gefast.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Fjölskyldan hefur forgang
og nú er ekki rétti tíminn
til að bjóða heim gestum.
Þér bjóðast ný tækifæri í
vinnunni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einhver ágreiningur getur
komið upp í vinnunni í dag.
En þótt sambandið við
starfsfélaga sé erfitt eru
ástvinir samrýmdir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einmitt þegar horfur í pen-
ingamálum virðast fara
batnandi geta komið upp
ðvænt útgjöld. Þú nýtur
kvöldsins heima.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <j$
Þú vilt gleðjast með góðum
vinum í dag, en einhver
vinanna er eitthvað miður
sín. Þú gætir talað hann til.
V°g *
(23. sept. - 22. október)
Þróun máia á bak við tjöld-
in er þér hagstæð í dag.
Varastu ágreining við ætt-
ingja. Slappaðu af í kvöld.
uSporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það gengur á ýmsu í félags-
lífinu í dag. Sumir vinanna
geta skapraunað þér, aðrir
reynast betur og kvöldið
verður gott.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þótt ekki gangi allt að ósk-
um i dag verður þér vel
ágengt og þú kemur ár
þinni vel fyrir borð. Ovænt
tækifæri býðst.
Steingeit
|^(22. des. - 19. janúar)
Einhver spenna ríkir í sam-
bandi þínu við tengdafólk
og breyting getur orðið á
ferðaáætlun, en þú
skemmtir þér í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) Öy*
Erfitt getur verið að semja
um fjármálin í dag og ein-
hver gæti krafið þig um
gamla skuld. En fjölskyldan
bætir þar úr.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Gerðu ekki lítið úr áhuga
máli ástvinar. Félagi hefur
ágæta hugmynd sem þú
ættir að ljá eyra. Kvöldið
verður skemmtilegt. ^
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradv'ól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
SFÓSA AÐHUGSð Ufld f>£TT4
AtÚS/t eKWIfniNÖ/ M *
\ÆLDOe MEIZ _ r r
HAUS VEtSfl
LJÓSKA
TIL t>Ýefli./eKU(S/AJS T
* LElÐIHHt
AÐ -PL V/P KDflflUM þflHGttt>
EU þ'fl 6EWR HUNOéÞtO tífl J
_____^LíriP —.
HALPtp 'flraflflfl T_____'
yihifloiqfly\Xj
FERDINAND
Æ\T
SMAFOLK
skólabíllinn
ekki kom-
inn ennþá?
loIööidÍB bunqo ijj
' IF THE BU5 HAD\
come,i'd beon
IXANPl'PBEHALF
WAV T0 50HOOL
BV NOU), AND I
WOULDN'T DE
HERE F0R VOU
T0ASKME!
Ef hann væri kominn væri
ég í honum og ég væri
kominn hálfa leiðina í
skólann núna, og ég væri
ekki hér svo þú gætir
spurt mig!
CRAB0V FLAKE5 fOR
BREAKFA5T A6AIN, HUH?
Leiðindaflögur í morgunmat einu
sinni enn, ha?
' O
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Alan Truscott, bridsdálkahöfundur
New York Times, segir vamarbrellu
austurs hér að neðan lengi hafa geng-
ið undir nafninu „keisarabragðið".
Sjálfur telur Truscott „forsetabragð"
meira réttnefni, því eini spilarinn sem
hann hefur heimildir um að hafi náð
því við spilaborðið er fyrrum forseti
bandaríska bridssambandsins, Bar-
bara Nudelman.
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ ÁKG
¥ ÁK432
♦ 75
♦ D87
Vestur Austur
♦8742 ... ♦ 653
♦ D VG10875
♦ G106 ♦ Á83
♦ K9643 + Á2
Suður
♦ D109
♦ 96
♦ KD942
♦ G105
Vestur Norður Austur Suður
— 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: lauffjarki.
Áður en lengra er haldið ætti les-
andinn að mynda sér skoðun um
möguleika AV í vörninni.
Nudelman hélt á spilum austurs.
Hún tók fyrsta slaginn á laufás og
sendi tvistinn til baka á kóng makk-
ers. Þrátt fyrir innkomuleysið fann
vestur enga góða ástæðu til að skipta
um lit og spilaði laufþristinum í þriðja
slag.
Nudelman var með fullt vald á
hjartalitnum og sá að sagnhafi yrði
að fá einhveija slagi á tígul. Ef hann
ætti mannspilin, KDG, var lítil voi) í
vörninni, en kannski átti makker eitt
af þremur. Ef það var gosinn, var
nauðsynlegt að fjarlægja tígulásinn
strax til að tryggja makker innkomu
á gosann. Svo Nudelman henti tígul-
ásnum í þriðja laufið!
„Keisarabragð" er í rauninni fyrir-
taksnafn á þessari stórbrotnu vörn,
því það má með sanni segja að AV
hafi tekið laufslagi sína með keisara-
skurði.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Gata Kamsky (2.695) er einn
öflugasti skákmaður heims og
einn af þremur skákmönnum sem
bæði er í fjórðungsúrslitum FIDE-
heimsmeistarakeppninnar og
PCA-keppninnar. En bjartsýnin
verður honum stundum að falli
eins og í þessari skák við Larry
Christiansen (2.555) á banda-
ríska meistaramótinu í desember.
Kamsky lék síðast 35. Hdl-d7??,
en eftir 36. Hd8 eða 35. Hd5
væri staðan ennþá tvísýn.
Það er ekki alltaf gott að tvö-
falda hrókana á sjöundu línunni.
Nú losnar svarti hrókurinn úr prí-
sundinni með miklum tilþrifum:
35. - Hxb3!, 36. Hb7 (Eftir 36.
axb3 - a2, 37. Hdl - Bbl fær
svartur nýja drottningu) 36. —
Hb2!, 37. Ha7 - Hxa2, 38. h3 -
Rf6, 39. He3 - Hc2, 40. Hexa3
— Hxc4 og endataflið er nú unnið
á svart. Kamsky var þó ekki á
því að játa sig sigraðan og það
„tók Christiansen 58 leiki til viðbót-(
- ar að-knýja liann til .uppgjafar. .