Morgunblaðið - 23.04.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
21
Göngustígur fyrir
blinda í Öskjuhlíð
SAMÞYKKT hefur verið í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar að leggja
sérstakan göngustíg fyrir blinda í Oskjuhlíð. Stigurinn verður malbikað-
ur og meðfram honum kantsteinn, sem nýtist til leiðsagnar fyrir þá
sem nota hvíta stafinn. Jafnframt verður komið fyrir hljóðmerkjum
við göngustíginn til að auka á fjölbreytileika þess sem skynjað er á
leið um stíginn.
Tilgangurinn er að auðvelda
blindu fólki að njóta þeirrar útivistar-
paradísar sem Oskjuhlíðin er. Miðað
er við tvær aðkomur að stígnum,
annars vegar að Vesturhlíð og hins
vegar við Perluna. Á báðum stöðum
verða upphleypt kort og skýringar á
blindraletri, sem gefur til kynna hvað
stígurinn hefur upp á að
bjóða. Stígurinn verður um 1,5 km
langur og að hluta til verður notast
við stíg sem búið er að leggja. Mögu-
leiki er á að tengja þennan stíg að
Blindrafélaginu Hamrahlíð 17, sem
er viðbótarhringur upp á 1,6
km. Áætlaður kostnaður við lagn-
ingu göngustígs í Öskjuhlíð er tæpar
6,7 milljónir króna.
Saga verslunar og kaupmennsku í Hafnarfirði
Bjarni riddari í öndvegi
Höfuðstaður verslunar
RITNEFND bókarinnar og forystumenn Verslunarmannafélags
Hafnarfjarðar: Jón Egilsson, Adolf Örn Kristjánsson, Unnur
Helgadóttir, Gunnbjörn Svanbergsson, Sólveig Haraldsdóttir og
höfundurinn, Lúðvík Geirsson. Morgunblaðið/Emilía
ÚT er komið ritið Höfuðstaður
verslunar. Saga verslunar og
kaupmennsku í Hafnarfirði í
sex hundruð ár eftir Lúðvík
Geirsson blaðamann. Ritið er
gefið út i tilefni þeirra tíamóta
að þann 24. apríl eru liðin 200
ár frá því að Bjarni riddari
Sívertsen tók yfir rekstur
gömlu konungsverslunarinnar
í Akurgerði við Hafnarfjörð.
Bjarni hóf fyrstur Islendinga
sjálfstæða verslun í Hafnar-
firði, en þar var einn helsti
verslunarstaður landsins um
aldaraðir.
Bjarni riddari sem hefur verið
kallaður „faðir Hafnarfjarðar" er
í öndvegi í ritinu. Um hann og
fríverslunina er langur kafli, enda
er mikil áhersla lögð á sögu frí-
verslunar að sögn höfundarins,
Lúðvíks Geirssonar. Ýmislegt
kemur í ljós við upprifjun ferils
Bjarna.
Lúðvík Geirsson sagði á blaða-
mannfundi í tilefni útgáfunnar að
ritið væri „heildarsaga verslunar
og mannlífs í Hafnarfirði í 600
ár“ og ítarlegasta ritið um efnið.
Margar hinna fjölmörgu mynda
hafa ekki birst áður og að auki
eru teikningar og skýringarmynd-
ir. Lúðvík sagði að ritið flokkaðist
ekki undir „vísindalega sagn-
fræði“ heldur væri það meira „í
blaðamennskustíl".
Dagskrá og sýning
I dag klukkan 14 verður sér-
stök dagskrá fyrir framan Síverts-
enshúsið í Hafnarfirði þar sem
torginu verður gefið nafn og
fyrstu eintök ritsins afhent. Opn-
uð verður sýning á mörgum hlut-
um sem voru í eigu Bjarna og
Rannveigar Filippusdóttur konu
hans.
í ritnefnd áttu sæti auk höfund-
ar Gunnbjörn Svanbergsson, Jón
Egilsson og Unnur Helgadóttir.
Útgefandi ritsins sem er 375 blað-
síður er Verslunarmannafélag
Hafnarfjarðar. Prentun og prent-
vinnsla var unnin í Prisma hf. í
Hafnarfirði. Útsöluverð bókarinn-
ar er 5.900 krónur.
Á myndinni eru frá vinstri: Páll Siguijónsson frá ístaki hf., Magnús
Þór Torfason, Bergþór Björgvinsson, Alfreð Hauksson, Sveinbjörn
Pétur Guðmundsson og Ágúst Valfells frá Steypustöðinni.
Stærðfræðikeppni
framhaldsskólanna
NÝLEGA lauk síðari hluta stærðfræðikeppni framhaldsskólanna. Fyrri
hluti keppninnar fór fram í október og tóku þá liðlega 400 nemendur
þátt en um 30 nemendur fóru í lokakeppnina.
Sigurvegari var Alfreð Hauksson,
Menntaskólanum í Reykjavík. í öðru
sæti var Sveinbjörn Pétur Guð-
mundsson, Menntaskólanum á Akur-
Tryggingagjald
Hugbúnað-
ariðnaður í
lægri flokk
MEIRIHLUTI efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis leggur til
að tryggingagjald, sem fyrirtæki
í hugbúnaðariðnaði greiða í ríkis-
sjóð, lækki. Jafnframt hækki
gjaldið almennt hjá fyrirtækjum
um 0,05%.
Tryggingagjald er í tveimur flokk-
um. Fyrirtæki í hærri gjaldflokki
greiða 6,35% en fyrirtæki í lægri
gjaldflokki greiða 2,85%. Efnahags-
og viðskiptanefnd hefur undanfarið
fjallað um frumvarp fjármálaráð-
herra um að fyrirtæki í veitinga-
rekstri og bílaleigur færist í lægri
gjaldflokk en jafnframt hækki al-
menna hlutfallið í lægri flokknum í
2,95%. Meirihluti nefndarinnar
leggur nú til að fyrirtæki í hugbúnað-
ariðnaði færist einnig í lægri gjald-
flokkinn, en almenna hlutfallið hækki
í 3% til að ríkissjóður verði ekki af
tekjum.
eyri, og í 3.-4. sæti Magnús Þór
Torfason, Menntaskólanum í Reykja-
vík og Bergþór Björgvinsson,
Menntaskólanum að Laugaivatni.
Efstu keppendum var boðið að
taka þátt í Norðurlandakeppni í
stærðfræði sem fer fram skriflega
en niðurstöður hafa ekki borist enn.
íslendingar áttu Norðurlandameist-
ara á síðasta ári, Bjarna V. Halldórs-
son, en hann er nú útskrifaður úr
framhaldsskóla og tekur því ekki
þátt í keppninni. Öll vinna við land-
skeppnina og Norðurlandakeppnina
er unnin í sjálfboðavinnu af félögum
íslenska stærðfræðifélagsins og Fé-
lags raungreinakennara í framhalds-
skólum, en Steypustöðin og ístak eru
styrktaraðilar keppninnar, kosta
verðlaun og önnur útgjöld.
jjarlfnn
wm
mmmmmmm
Loksins er nýja breiðskífa
dúettsins ROXETTE komin i
verslanir. Crashl Boom!
Bang! er samfelld
tónlistarveisla og
sannkallaður klassagripui
Tryggóu þér eintak í einun
grænum!
:
8
o er engin tilviljun ao *
ja Pink Floyd-platan «
beint á toppinn í
itlandi og
ndarikjunum. Frábær '1
ita hvernig sem á ®
na er litibf ii
upp
I - F *A
Kringlunni Simi: 600930 • Stó
mmmmgm
Lougavegi 26 Stmi: 600926 Laugav
mmv&ÆA
0®S6