Morgunblaðið - 23.04.1994, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
51
mmm
mmm
STÆRSTA
TJALDIÐMEÐ
HX
FRA LEIKSTJORA „ROCKY“ OG „KARATE KID“
Luke Perry (úr Beverly Hills þáttunum) Stephen Baldwin Cynthia Geary
Þetta er mynd, byggð á sannri sögu um Lane Frost, sem varð goð-
sögn í Bandaríkjunum. Lane varð ríkur og frægur og var líkt við
James Dean. Koniu- elskuðu hann, menn öfunduðu hann og enginn
gat sigrað hann.
Sýnd kl.5,7,9og11.
TOMBS-
TOIXIE
Einn aðsóknar-
mesti vestri fyrr
og síðar í Banda-
ríkjunum.
★ ★★ S.V., Mbl.
★ ★ ★Ó.H.T., Rás 2.
Sýnd kl. 4.40, 6.50,
9 og 11.15.
Bönnuð innan
16 ára.
BLEKKING
SVIK
MORÐ
Sýnd kl. 5, 7,
9 og 11.
Bönnuð innan
14 ára.
Styrkurinn afhentur
FRIÐRIK Karlsson tekur við styrk frá Eurocard á Is-
landi úr hendi Mörthu Eiríksdóttur, forstöðumanns mark-
aðssviðs fyrirtækisins.
A
Eurocard á Islandi
styrkir Dyflinn-
arferð Friðriks
EUROCARD á fslandi hefur ákveðið að styrkja Friðrik
Karlsson, höfund lagsins Nætur, til Dyflinnarfarar og
þátttöku í Evrópusöngvakeppninni, sem haldin verður
laugardaginn 30. apríl, eftir viku.
Vitna leitað
Lögreglan í Reykjavík lýs-
ir eftir vitnum að árekstri
sem varð við umferðarljós á
mótum Sæbrautar og tengi-
brautar við Skúlagötu um
klukkan 17 síðdegis 22. mars
síðastliðinn.
Þar rákust saman Subaru
og Peugeot-bílar og er
ágreiningur um aðdraganda
óhappsins.
Vitni eru beðin að snúa
sér til rannsóknadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík.
------» ♦ ♦-------
■ FRAMBOÐSLISTI
Framsóknarflokksins í
Siglufirði við bæjarstjómar-
kosningar 28. maí 1994 hef-
ur verið ákveðinn og skipa
hann: Skarphéðinn Guð-
mundsson, Freyr Sigurðs-
son, Guðrún Ólöf Pálsdótt-
ir, Kristinn Bogi Antons-
son, Pétur Bjarnason, Ás-
dís Magnúsdóttir, Sverrir
Jónsson, Páll Ágúst Jóns-
son, Herdís Erlendsdóttir,
Aðalbjörg Þórðardóttir,
Þorsteinn Sveinsson, Þor-
geir Bjarnason, Sigríður
Björnsdóttir, Hilmar Þór
Zóphoníasson, Sigurður
Jón Gunnarsson, Þorsteinn
Bjarnason, Karólína Sig-
urjónsdóttir og Ásgrímur
Sigurbjörnsson.
Cterkurog
kj hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ItoirpmMafotfo
Friðrik sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þessi
styrkur væri sér afar mikil-
vægur, enda væri þátttaka
í keppninni mjög dýr. „Þrátt
fyrir að Ríkissjónvarpið hafi
verðlaunað mig með mynd-
arlegu framlagi, þá hefur
kostnaðurinn reynst miklu
meiri en svo að það hafi
nægt. Ég ákvað að reyna
að gera lagið sem allra best
úr garði og fékk til þess
írskan útsetjara, en sú
ákvörðun jók mjög kostnað-
inn.“
SÍMI: 19000
Eftir sama leikstjóra og Betty Biue.
Stórskemmtileg og fyndin spennumynd um ótrúlegt ferðalag þremenninga, sem
fátt virðast eiga sameiginlegt.
Aðalhlutverk: Yves Montand (síðasta kvikmynd þessa vinsæla leikara),
Oliver Martinez og Sekkou Sall. Leikstjóri: Jean-Jacques Beineix.
Sýnd kl. 5 og 9.
PÍANÓ
Þreföld Óskarsverðlaunamynd.
Sýnd kl. 4.50,6.55, 9 og 11.05.
Far vel frilla mín
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð innan 12 ára.
KRYDDLEGIN HJÖRTU
Aðsóknarmesta erlenda myndin f
Bandaríkjunum frá upphafi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hetjan Toto
Sýnd kl. 9. Bönnuð innan 12 ára.
LÆVÍS LEIKUR Pottþéttur spennutryllir
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Þátttakendur á innanhússknattspyrnumóti lögreglumanna. Morgunblaðið/Ámi Heigason
Lögregluöldungar 1 fotbolta
Stykkishólmi.
12. öldungamót lögreglumanna í innanhúss-
knattspymu var háð í Stykkishólmi dagana
15. og 16. april sl. Þar voru mættir til leiks
lögreglumenn víða að en stjórn mótsins var
í höndum lögreglumanna úr Lögreglufélagi
Gullbringusýslu. Alls voru' 20 riðlar á
keppnisskrá og að lokum seinustu atrennu
var efnt til smáhófs þar sem sigurvegarar
voru heiðraðir. Mót þetta fór fram í íþrótta-
höllinni í Stykkishólmi. Mótsgestir héldu til
á Hótel Stykkishólmi og hóteli Eyjaferða
hf. Rúmlega 60 þátttakendur vom á þessu
móti og kepptu.
- Árni.
Kosið um sameiningu í tveim hreppum Dalasýslu
Skarðshreppur samþykkti
en Saurbæjarhreppur felldi
SKARÐSHREPPUR mun sameinast Dalabyggð en Saur-
bæjarhreppur ekki er niðurstaða kosninga sem fram
fóru á síðasta vetrardag í hreppunum tveimur. Mun
Saurbæjarhreppur því standa einn utan Dalabyggðar af
hreppum Dalasýslu. í kosningunum um sameiningu sveit-
arfélaganna í nóvember síðast liðnum felldu þessir tveir
hreppar tillögu um sameiningu þeirra sjö hreppa sem
nú eru í Dalasýslu.
íbúar Skarðshrepps sam-
þykktu sameininguna með
19 atkvæðum gegn 14. Alls
voru 40 á kjörskrá, 34
greiddu atkvæði en var einn
seðill var auður.
Ólafur Eggertsson, hrepp-
stjóri Skarðshrepps, segir
ástæðu þess að íbúar hrepps-
ins samþykktu nú sameining-
una vera að margir hafi talið
að hreppurinn stæði ver að
vígi ef hann sameinaðist ekki
Dalabyggð, sérstaklega þeg-
ar tillit er tekið til þess að
fyrirhugað er að færa fleiri
verkefni frá ríkinu yfir til
sveitarfélaganna þó svo að
hann segist ekki búast við
að sameiningin breytti miklu
fyrir sveitarfélagið.
í sveitarstjórnarkosning-
um í vor verður kosið til
hreppstjórnar hins nýja
hrepps sem hlotið hefur nafn-
ið Dalabyggð og veður hann
formlega sameinaður þann
11. júní. Eru það Suðurdala-
hreppur, Haukadalshreppur,
Laxárdalshreppur, Hvamms-
hreppur, Fellsstrandarhrepp-
ur og nú Skarðshreppur sem
sameinast.
Fleiri fylgjandi
sameiningu nú en i
nóvember
íbúar Saurbæjarhrepps
felldu hins vegar tillögur um
sameiningu með 41 atkvæði
á móti sameiningunni en 32
með henni. Á kjörskrá voru
81 _og af þeim kusu 73.
Ólafur Gunnarsson, odd-
viti Saurbæjarhrepps, segir
að nú séu mun fleiri fylgj-
andi sameiningu hreppanna
en í nóvember, þó ekki hafí
það dugað til. Hann segir að
fyrir kosningamar hafi það
legið fyrir að Skarðshreppur
myndi samþykkja sameining-
una og það hefði vafalaust
haft áhrif á íbúa Saurbæjar-
hrepps.
Ástæðu þess að Saurbæ-
ingar neituðu að sameinast
Dalabyggð segir hann að
hreppurinn sé meira einangr-'
aður samgöngulega séð en
hinir hrepparnir og hafi
menn því lært að vera sjálf-
stæðir. Ekki sé þó loku fyrir
það skotið að hreppurinn
sameinist Dalabyggð síðar
þó ekkert væri farið að ræða
þau mál enn.