Morgunblaðið - 25.06.1994, Síða 5

Morgunblaðið - 25.06.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 5 FRÉTTIR Landssamband smábátaeig- enda í mál við ríkið LANDSSAMBAND smábátaeigenda hyggst leita réttar síns fyrir dómstól- um vegna meintra brota hins opin- bera á „stjómarskrárbundnum rétt- indum á borð við eignarrétt, rétt til atvinnu og jafnræðisreglu," að sögn Arthurs Bogasonar fonnanns lands- sambandsins. Daginn sem breytingar á lögum um fiskveiðistjórnun komu á prent, 31. maí sl, var Tryggva Gunnarssyni hrl. falið að fara með málið fyrir hönd smábátaeigenda. „Þeir smábátar sem lentu í afla- markskerfinu samkvæmt lögunum sem tóku gildi 1. janúar 1991 hafa misst tæplega 70% aflaheimilda sinna á þeim skamma tíma sem lið- inn er síðan,“ segir Arthur. Hann segir að engir aðrir_ hafi þurft að líða slíka skerðingu. Ástæðan er hve þungt þorskafli vó í aflaheimildum smábáta. Mikill niðurskurður á þors- 'kveiðiheimildum hefur því komið verst niður á þeim. Að sögn Arthurs hefur Hagræðingarsjóður ekki bætt þennan skaða. Aðalfundur landssambandsins 1991 samþykkti að fara í mál við ríkið ef smábátaeigendur fengju ekki leiðréttingu sinna mála eftir pólitísk- um leiðum. Þetta var ítrekað á stjórnarfundi í ágúst í fyrra. „Við endurskoðun fiskveiðilaganna á þingi í vor var ekkert gert til að leiðrétta aflamark smábáta og því ekkert annað að gera en framfylgja samþykktum Landssambandsins," sagði Arthur. Það er skoðun Arthurs að með setningu laga um stjórnun fiskveiða hafi stjórnarskrárbundin réttindi smábátaeigenda verið brotin. Skoðanakönnun DV Fylgi stjórn- arinnar fer vaxandi RÍKISSTJÓRNIN nýtur fylgis 42,7% kjósenda, ef aðeins er litið til þeirra sem afstöðu tóku í skoð- anakönnun DV, sem blaðið birti í gær. Fylgi ríkisstjórnarinnar hefur ekki verið meira í könnunum blaðsins frá því á síðari hluta árs- ins 1991. Niðurstöður skoðanakönnunar- innar eru að 36,8% eru fylgjandi ríkisstjórninni, 49,5% andvíg, óákveðnir eru 11,7% og 2% neita að gefa upp afstöðu sína. Miðað við könnun blaðsins í mars hefur fylgi ríkisstjórnarinnar aukist um 6% og um 7,1% miðað við könnun blaðsins í desember. Aukið fylgi stjórnarflokkanna Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur bæta við fýlgi sitt í könn- un blaðsins, miðað við síðustu kannanir þess. Niðurstöðurnar benda til þess að ef gengið yrði til kosninga nú fengi Alþýðuflokk- ur 13,3% atkvæða (15,5% í síðustu kosningum), Framsóknarflokkur 20,7% (fékk 18,9%), Sjálfstæðis- flokkur 39,4% (fékk 38,6%), Al- þýðubandalag 12,7% (fékk 14,4%) og Kvennalisti 13,6% (fékk 8,3%). Mest fylgisaukning er því hjá Kvennalista, miðað við síðustu kosningar, eða um 5,3%. Úrtak í könnuninni var 600 manns og var jöfn skipting milli kynja og milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. ------» ♦ ».:-- Umferðarmál á þjóðhátíð Nefnd skipuð RÍKISSTJÓRNIN skipaði í gær nefnd til þess að endurskoða. skipulag og stjórnun umferðar við Þingvelli þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. Rannsókn nefndarinnar á m.a. að beinast að því hvað fór aflaga og hvers vegna og hvað gera þarf til úrbóta með tilliti tii stórhátíða. Þeir sem skipaðir voru í nefnd- ina eru: Guðmundur Árnason, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu, formaður, Jón Birgir Jónsson, ráðuneytisstjóri í samgönguráðu- neytinu, Stefán P. Eggertsson, verkfræðingur, tilnefndur af dóms- og kirkjumálaráðherra, og Stefán Hermannsson, borgarverk- fræðingur. Forsætisráðherra hefur beint þeim tilmælum til nefndarinnar að hún hraði störfum sínum eins og auðið er. \yikomin ■ Gróðurvinin ■ 1 er í Mörkinni 1 ■ ■ Tréogrannar m m Lauftré • Skrautrannar • Barrtré • Ráðleggjum um plöntuval. • Sendum plöntur hvert á Iand sem er. • Gerum ræktunarsamninga til lengri tíma. • Auðvelt að semja um hagstæð kjör ef um stærri kaup er að ræða. Góð lausn fyrir fyrirtæki, félagasamtök, húsfélög og bæjarfélög. • Viðerum austast í Fossvoginum. • Harðgerðar, stórar og fallegar plöntur eru aðalsmerki okkar. Þið fáið vel ræktuð lauftré, skrautrunna og barrtré í miklu úrvali. • Nú er komið þriðja veggspjaldið með myndum og upplýsingum um tré og runna. Tréognmnar Tréognmnará Tréognmnaráíslandi tauftró Skrautninnar Barrtií ÍLMBJÖRK EÐA BIRKI (Betula pubescens) — 25 sm SITKAGRENI (Picea sitchensis) — 15 sm — 10 sm • Nú er rétti tíminn til að huga að vali og kaupum á skógarplöntum. SÍBERÍULERKI (Larlx sibinca) STAFAFURA 200.000 skógarplöntur • Biðjið um vandaðan garðræktarbækling með plöntulista. SÆKIÐ SUMARIÐ TIL OKKAR GROÐRARSTOÐIN STJÖRNUGRÓF18, SÍMl 814288 Gróðrarstöð án opinberra styrkja • Sumarblómog Qölærar plöntur • Opið um helgina frákl.9-18 Gísli B.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.