Morgunblaðið - 25.06.1994, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Smáfólk
SOMETIMES I LIE AWAKE AT N16HT, AND I
A5K,"U)HO, U/HY, WHAT ANP UJHERE?"
THEN A VOICE C0ME5 BACK TO ME THAT 5AY5,
''WAIT A MINUTE..I THINK YOO'VE L05T ME"
liliillilliiiil
fCs—^ w
Wmm
mmm,
Stundum ligg ég vakandi á nóttunni og spyr: „Hver, Þá talar rödd til mín sem segir „Andartak, ég
hvers vegna, hvað og hvar?“ held að þú hafir misst af mér.“
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Yfirlýsing um
sjálfstæði ogfrelsi
Frá Þörhalli G. Ólafssyni:
„VIÐ fólkið á Lýðveldinu íslandi
erum þakklát almáttugum Guði fyr-
ir blessun þá sem hann hefur gefið
til þessa dags og með vitneskju um
þörf okkar fyrir áframhald á hans
blessun fyrir okkur og komandi kyn-
slóðir. Með hugann hjá fólki heims-
ins og þeirra mannréttindum lýsum
við því hér með yfir að við erum
fijálst fólk. Við lýsum þessa stjóm-
arskrá helgaða þeim sannleika að
allar persónur eru skapaðar jafnar
og eru þannig knúnar af Guði með
óneitanlegum réttindum. Við gemm
stjórnarfyrirkomulag fólksins að
fólkinu og fyrir fólkið til þess að
fresli og lýðræði sé okkar og kom-
andi kynslóða.
1. og 2. grein óbreytt. 3.gr. For-
seti íslands og alþingsmenn skulu
vera þjóðkjörin. 4. og 5. grein
óbreytt. 6. gr. Kjörtímabil forseta
og alþingismanna hefst 1. ágúst og
endar 31. júlí að fjórum árum liðn-
um. Forsetakjör og kjör alþingis-
manna fer fram á sama tíma eða í
júní eða júlí það ár, er kjörtímabilið
endar. 7. gr. óbreytt. 8. gr. Nú verð-
ur sæti forseta lýðveldisins laust eða
hann getur ekki gengt störfum um
sinn vegna dvalar erlendis, sjúkleika
eða af öðrum ástæðum, skulu þá
forseti sameinaðs alþingis og forseti
hæstaréttar fara. með forsetavald,
Forseti sameinaðs alþingis stýrir
fundum þeirra. Bf ágreiningur er
þeirra í milli ræður forseti samein-
aðs alþingis. 9. og 10. gr. óbreytt.
11. gr. Forseti verður leystur frá
embætti, áður en kjörtímabil hans
er lokið, ef það er samþykkt með
meiri hluta atkvæða við þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sem til er stofnað
að kröfu alþingis, enda hafi hún hlot-
ið fylgi 3/4 hluta þingmanna í sam-
einuðu þingi. Þjóðaratkvæðagreiðsl-
an skal þá fara fram innan tveggja
mánða, frá því að krafan um hana
var samþykkt á alþingi, og gegnir
forseti eigi störfum frá því að al-
þingi gerir samþykkt sína þar til er
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar
eru kunn. Nú hlýtur krafa alþingis
eigi samþykki við atvkæðagreiðsl-
una, skal þá alþingi þegar í stað
rofið og efnt til nýrra kosninga. 12.
gr. óbreytt. 13. gr. Forsetinn lætur
ráðherrana framkvæma sitt vald.
Ráðuneyti hefur aðstetur í Reykja-
vík. Ráðherra má ekki vera alþingis-
maður, né hafa með höndum launuð
störf í þágu opinberra stofnanna eða
einkaatvinnu fyrirtæka. 14. gr. For-
seti ber ábyrgð á stjórnarfram-
kvæmdum öllum. Ráðherraábyrgð
er ákveðin með lögum. Alþingi getur
kært ráðherra fyrir embættisrekstur
þeirra. Landsdómur dæmir þau mál.
15. gr. Forseti skipar ráðherra og
veitir þeim lausn. Hann ákveður
Qölda þeirra og skiptir störfum með
þeim. Ráðherrar skulu staðfestir af
alþingi. Ráðherraefni skal gera grein
fyrir sinni eftirlöngun á stuttum
tíma. Alþingi mun síðan á opnum
tíma anna spumingum áður en at-
kvæði um ráðherrann verður gefið.
16. gr. óbreytt. 17. gr. Ráðherra-
fundi skal halda um nýmæli í lögum
og um mikilævg stjórnarmálefni.
Svo skal og ráðherrafund halda ef
einhver ráðherra óskar að bera þar
upp mál. Forsetinn stjórnar ráð-
herrafundinum. 18. gr. Sá ráðherra
sem mál hefur undirritað, ber það
að jafnaði upp fyrir forseta, áður
en hann ber það upp við ráðherra-
fund. 19. til 23. gr. óbreytt. 24. gr.
Forseti lýðveldisins getur rofið al-
þingi, og skal þá stofnað til nýrra
kosninga, áður en tveir mánuðir eru
liðnir, frá því er það var rofið, enda
komi laþingi saman eigi síðar en fjór-
um mánuðum eftir að það var rofið.
25. gr. óbreytt. 26. gr. Ef alþingi
hefur samþykkt lagafrumvarp, skal
það lagt fyrir forseta lýðveldisins til
staðfestingar eigi síðar en tveim vik-
um eftir að það var samþykkt og
veitir staðfestingin því lagagildi. Nú
synjar forseti lagafrumvarpi stað-
festingar og fær það þó að engu að
síður lagagildi ef það fær tvo þriðju
atkvæða alþingis. 27. til 50. gr.
óbreytt. 51. gr. Forsetinn og ráð-
herrar eiga samkvæmt embættis-
stöðu sinni sæti á alþingi, og eiga
þeir rétt á að taka þátt í umræðum
eins oft og þeir vilja, en gæta verða
þeir þingskapa.
Allt annað í stjómarskránni er
óbreytt. Þessar breytingar breyta
stjórnarskránni í Lýðveldisstjórnar-
skrá í eitt skipti fyrir öll.
Til hamingju með tímamótin ís-
lendingar og megi Guð almáttugur
vera með ykkur öllum.
ÞÓRHALLUR GUNNLAUGUR
ÓLAFSSON,
15450 Dixie Highway, Holly,
. Michigan 48044.
Annað bréf til Rögn-
valds Hannessonar
Frá Birni S. Stefánssyni:
ÉG ÞAKKA þér skilmerkilega grein-
argerð hér í blaðinu 8. júní um það
hveiju umhverfissveiflur ráða um
viðfang fiskistofna. Þar rökstyður
þú frekar það sem ég hafði eftir þér
um örlög þorsksins við Nýfundna-
land. Ég benti á að rök þín væru
andstæð rökum forstjóra Hafrann-
sóknastofnunar og skoraði á þig að
tilgreina dæmi, ef þú vissir, þar sem
fram kæmi af hálfu Hafrannsókna-
stofnunar sami skilningur og þú lýst-
ir. Þar sem þú víkur ekki orði að
Hafrannsóknastofnun í svari þínu
vil ég með aðeins einni tilvitnun sem
varðar kjama málsins vekja frekar
athygli á því hversu ólíkt þú ályktar.
Þú segir: „Allur varanlegur afli
byggist á því að grisja fiskistofna
hæfilega, m.a. út frá fæðuframboði
og afráni eldri fiska á ungviði." Ég
veit ekkert dæmi þess að Hafrann-
sóknastofnun hafi metið hvað sé
hæfileg grisjun eða metið reglur um
möskvastærð með tilliti til þess.
Veizt þú nokkurt dæmi þess? Fisk-
veiðiráðgjöf sem sniðgengur þennan
kjarna málsins getur ekki verið mik-
ils virði.
BJÖRN S. STEFÁNSSON.