Morgunblaðið - 25.06.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 29
MINNINGAR
MESSUR
HORÐUR ROBERT EYVINDSSON
-4- Hörður Róbert
* Eyvindsson
fæddist á Seyðis-
firði 31. desember
1944 og þar ólst
hann upp. Hann
lést á heimili sínu
í Vestmannaeyjum
19. júní síðastlið-
inn. Róbert var
sonur hjónanna
Emils Torshamar,
f. 21.10. 1920, d.
19.9. 1976, og Jór-
unnar Emilsdóttur
Torshamar, f. 21.1.
1919, annar í röð-
inni af níu systkinum. Hann
fluttist til Vestmannaeyja og
árið 1974 kynntist hann konu
sinni, Guðrúnu Víglundsdótt-
ur, f. 11.3. 1950, en hún lést
18.10. 1993. Þau eignuðust
tvær dætur, Helenu Ósk, f.
25.12. 1977, og Birgittu írisi,
f. 24.2.1981. Fyrir átti Guðrún
tvo syni og gekk Róbert þeim
í föðurstað. Róbert stundaði
almenn verkamannastörf og
einnig sjómennsku. Utför hans
fer fram frá Landakirkju í
dag.
ELSKU Robbi, enn sannast mál-
tækið, sem segir að oft sé stutt á
milli hláturs og gráts. Hver hefði
trúað því á miðvikudaginn var, er
þú varst hérna hjá okkur svo hress
og kátur, að þetta væri í síðasta
sinn sem þú kæmir hingað til okk-
ar í mat? Alexander litli, sem þótti
svo vænt um þig, á eftir að sakna
þín mikið. Hann talaði mikið um
Robba sem sagði í hvert sinn sem
þeir hittust: „Ætlar þú að sofa hjá
mér í nótt? Hvar eru náttfötin?“
Það var áfall fyrir okkur öll á
sunnudagskvöld þegar það fréttist
að hann Robbi væri farinn frá
okkur, 49 ára gamall, bráðkvaddur
í svefni. Margar
spurningar vakna, en
engin eru svörin.
Gurra fór í október
og Robbi núna, stutt
er milli ungra hjóna,
og börnin og öldruð
móðir í sorg skilja
ekkert í neinu. Guð
hefur kallað þau til sín
og ætlar þeim eitt-
hvert hlutverk hjá sér.
Okkur þótti öllum
vænt um hann Robba.
Hann var rólegur,
glaðlyndur, glettinn,
hjálpsamur og alltaf
glatt á hjalla þar sem hann var.
Hann var góður vinur vina sinna.
Robbi á aldraða móður sína í lífi,
Jórunni Emilsdóttur Tórshamar.
Hann var annar í röðinni af níu
systkinum.
Elsku bróðir, mágur og frændi,
við kveðjum þig að sinni, en við
hittumst alveg örugglega aftur,
þótt síðar verði.
Við sendum börnum og öllum
aðstandendum innilegustu samúð-
arkveðjur.
Ósvald, Salbjörg og börn.
Okkur langar að minnast mágs
okkar og svila, Harðar Róberts
Eyvindssonar, í fáeinum orðum.
Það kom eins og hvert annað reið-
arslag þegar hann lést svona
skyndilega og ekki óraði okkur
fyrir því þegar við sátum heima
hjá honum við kaffiborðið fyrir
nokkrum dögum að Robbi, eins
og hann var kallaður í daglegu
tali, færi svona fljótt frá okkur,
hann sem var með svo mikla fram-
tíðardrauma fyrir dætur sínar.
Hann var nýbúinn að byggja upp
fallegt heimili fyrir þær, en þær
höfðu misst móður sína og hann
eiginkonu fyrir rúmum átta
mánuðum og gerði hann allt sem
í hans valdi stóð til að bæta þeim
móðurmissinn.
Robbi var hæglátur að eðlisfari,
hann fór ekki geyst, en verkin
hans töluðu sínu máli. Hann var
þúsundþjalasmiður, hvort sem það
var að smíða, vinna við vélar eða
endurnýja eitthvað og hafði hann
gert upp þó nokkrar íbúðir sem
og byggt einbýlishús, enda bar
heimili hans vott um mikla vinnu
og þá fagmennsku sem fylgdi hon-
um alla tíð, en þótt hann væri
ekki lærður til þessara verka, lék
allt í höndunum á honum.
Robbi var barngóður og hænd-
ust börn fljótt að honum og alltaf
gátu þau komið og beðið Robba
að laga hitt eða þetta. Þau sakna
hans sárt. Eins var hann boðinn
og búinn til að fara í bílaviðgerðir
og smíðar fyrir aðra í fjölskyld-
unni. Robbi var vel liðinn á vinnu-
stöðum því ef hann gat ekki bjarg-
að því sem þurfti, þá voru nú ekki
margir sem gátu það.
Við spyijum okkur oft, þegar
sorgin knýr dyra, hver sé til-
gangurinn með þessu lífi, en þegar
stórt er spurt þá er oft fátt um
svör. Elsku Helena og Birgitta,
við vitum að nú er sorgin mikil
hjá ykkur, að vera búnar að missa
bæði pabba og mömmu með svona
stuttu millibili. Ykkur finnst þetta
eflaust óréttlátt, sem það er, en
við vonum og biðjum Guð að
styrkja ykkur og vemda og hjálpa
ykkur að sjá lífið í nýju ljósi. Við
vonumst til þess að tíminn eigi
eftir að koma með birtu og yl í
hjörtu ykkar. Einnig vonum við
að Jórunn, móðir Robba, og systk-
ini hans fái styrk í sorg sinni.
Við þökkum Robba samfylgdina
og minnumst hans með hlýju og
eftirsjá.
Ragnheiður, Jóhanna,
Sóley og fjölskyldur.
+ Leo Guð-
mundsson bif-
reiðarstjóri fædd-
ist í Holtsseli í
Eyjafjarðarsveit
24. nóvember
1910. Hann andað-
ist á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Akureyri 8. maí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Guð-
mundsson og Mar-
grét Jóhannes-
dóttir. Hann átti
þrjá bræður,
Gunnar (látinn), Höskuld (lát-
inn) og Aðalstein. Fyrri kona
Aðalsteins var Þóra Friðriks-
dóttir. Þau skildu. Börn þeirra
voru: Friðrik, Gestur Kristján,
Matthías (látinn), Reynir (lát-
inn), Svanhildur Rósa og Anna.
Seinni kona Aðalsteins var
Gyða Jóhannesdóttir og lifir
hún mann sinn. Börn þeirra
voru: Jóhannes Pétur (látinn),
Benedikt Gissur, Hreiðar, Ólaf-
ur Jón, Gyða Sólrún (látin), Leó
Viðar, Fríður og Kristján
Snær. Stjúpdóttir Leós, dóttir
Gyðu, er Hólmfríður Sigurðar-
dóttir. Leó var jarðsettur frá
Akureyrarkirkju 20. maí síð-
astliðinn.
ÓÐUM fækkar í þeirri kynslóð
manna sem voru brauðryðjendur í
uppbyggingu landsins.
Einn þeirra er Leó Guðmundsson
sem nú er látinn. Lífið strauk hon-
um ekki alltaf mjúklega um kinn,
því mikið þurfti hann að leggja á
sig til að sjá fjölskyldu sinni far-
borða. Lói starfaði bæði til sjós og
lands, en lengst af hjá Olíufélagi
íslands eða í 45 ár. Meðal starfa
hans hjá Olíufélaginu voru viðgerð-
ir og viðhald á mið-
stöðvarkerfum og
einnig útkeyrsla á
bensíni. Starfssvæði
hans var frá
Hvammstanga og
austur til Vopnafjarð-
ar. Það þurfti meira
en meðalmann til að
sinna þessum störf-
um, því ekki var um
átta stunda vinnudag
að ræða á þessum
árum.
Iðulega þurfti hann
að .yfirgefa íjölskyldu
sína til að sinna við-
gerðarbeiðnum sem upp komu.
Hann var þá ekki að velta fyrir sér
hvort um ófærð væri að ræða eða
ekki, heldur lagði hann ótrauður
af stað í hveija ferðina á eftir ann-
arri, því hann mátti ekki vamm
sitt vita ef einhver var hjálpar-
þurfi. Eitt slíkt útkall gat tekið
nokkra sólarhringa og var þá ekki
mikið um hvíld að ræða.
En Lói var annálað hraustmenni
og baráttumaður mikill og sigraði
alltaf að lokum. Oft komst hann í
mikla erfiðleika þegar hann var að
sinna starfi sínu að vetrarlagi. Þá
var ekki um annað að ræða en
grípa til skóflunnar og moka sig
áfram klukkutímum saman. En
hann var ekki einn á ferð því góða
skyggnigáfu hafði hann, og góðar
vættir fylgdu honum hvert sem
hann fór. Sagði hann mér frá atvik-
um þar sem skyggnigáfan kom
honum til góða. Huldukonu átti
hann að vini sem vitjaði hans reglu-
lega. Ekki hafði gamli maðurinn
hátt um þessa hæfileika sína.
Lói eignaðist fjórtán börn með
tveim konum, sex með fyrri kon-
unni og átta með tengdamóður
minni, Gyðu Jóhannesdóttur, en
hún átti eina stúlku fyrir. Lánsam-
ur var hann þegar Gyða kom til
hans og tók við rekstri heimilisins
í Aðalstræti 14, því hann var mikið
að heiman vegna starfs síns og
ekki voru launin há á þessum árum.
En Gyða sá við því með mikilli
vinnu og sparnaði. Gyða og Lói
bjuggu allan sinn búskap í Aðal-
stræti 14, þar til fyrir nokkrum
árum að flutningur þaðan varð
ekki umflúinn, og fluttu þau þá í
Aðalstræti 3 en þar býr dóttir
þeirra Fríður ásamt eiginmanni sín-
um Júlíusi Fossberg. Þau ásamt
börnum þeirra hjóna eiga miklar
þakkir skildar fyrir þá umhyggju
sem þau báru fyrir Gyðu og Lóa.
Lói bar mikla umhyggju fyrir
fósturdóttur sinni Hólmfríði. Þegar
ég kvæntist henni tók hann mér
opnum örmum og myndaðist fljótt
góður vinskapur á milli okkar. Börn
okkar hjóna nutu einnig mikillar
hlýju afa síns.
Nú er tómlegt að litast um í litlu
íbúðinni í Aðalstrætinu, þar sem
við hjónin komum svo oft til að
spila „manna“ við tengdamömmu.
Þá sat gamli maðurinn í stólnum
sínum í stofunni og fylgdist með
okkur. Nú er stóllinn hans auður
og Lói kominn til Guðs.
Guð blessi Gyðu og börnin.
Sigurður Þórarinsson.
LEGSTEINAR
Flutningskostnaður innifaiinn.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Fóið mynaalistann okkar.
720 BQrgcarfirSi eysfra, sími 97-29977
LEÓ GUÐMUNDSSON
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti
Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Sr. Jakob Á.
Hjálmarsson prédikar. Sr.
María Ágústsdóttir þjónar fyr-
ir altari. Kammerkór Dóm-
kirkjunnar syngur. Organisti
Jakob Hallgrtmsson. í mess-
unni verður fermd Valgerður
Árnadóttir, Njálsgötu 102,
Reykjavík.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Messa kl. 10. Einsöngur Dúfa
Einarsdóttir. Organisti Kjart-
an Ólafsson. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl.
14 á Jónsmessuhátíð Viðey-
ingafélagsins. Prestur sr.
Þórir Stephensen staðarhald-
ari. Organisti Jakob Hall-
grímsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arin-
bjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa
kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Kl. 17 tónleikar Hljóm-
skálakvartettsins.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10. Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa ki.
11. Organisti Pavel Manasek.
Prestur sr. Lárus Halldórs-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Messa
kl. 11. Prestur séra Flóki
Kristinsson. Einar Clausen
syngur stólvers. Kór Lang-
holtskirkju (hópur 3) syngur.
Organisti Bjarni Þ. Jónatans-
son.
LAUGARNESKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Flautuleikur:
Guðrún S. Birgisdóttir.
Drengjakór Laugarneskirkju
syngur. Bjöllusveit Laugar-
neskirkju leikur. Síðasta
guðsþjónusta'Ronalds Turner
organista. Prestur sr. Ólafur
Jóhannsson.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Orgel- og kórstjórn
Reynir Jónasson. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Ræðuefni: Hver
dæmir? Hver er saklaus?
Prestur sr. Ingólfur Guð-
mundsson. Organisti Hákon
Leifsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Vegna
sumarleyfa er fólki þent á
aðrar messur í prófastsdæm-
inu. Samkoma Ungs fólks
með hlutverk kl. 20.30. Org-
anisti Daníel Jónasson. Sr.
Gísli Jónasson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 20.30.
Prestur sr. Hreinn Hjartar-
son. Organisti Pétur Maté.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organ-
isti Elías Davíðsson. Sr. Vig-
fús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Sumarferð
Hjallasóknar að Strandar-
kirkju, Þorlákshöfn og Hjalla
í Ölfusi. Rútuferð frá Hjalla-
kirkju kl. 12.30. Guðsþjónusta
í Strandarkirkju kl. 14. Hafa
þarf meðferðis nesti til mið-
dagskaffis. Þátttaka tilkynnist
í síma 46716 og 43909. Sr.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Örn
Falkner. Sr. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 20. Altarisganga. Sr. Val-
geir Ástráðsson predikar.
Kvennakórinn Seljur leiðir
safnaðarsöng. Sönghópurinn
Smávinir syngur. Organisti
Sigrún Steingrímsdóttir.
Sóknarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Hámessa kl. 10.30. Messa kl.
14. Ensk messa kl. 20.
Laugardaga messa kl. 14 og
ensk messa kl. 20. Aðra rúm-
helga daga messur kl. 8 og
kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Alla rúmhelga
daga messa kl. 18.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN
Fíladelfía: Almenn samkoma
kl. 20. Ræðumenn Carolyn
pg Indriði Kristjánsson frá
ísafirði.
FÆR. sjómannaheimilið:
Samkoma sunnudag kl. 17.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11 í umsjá sr.
Braga Friðrikssonar prófasts.
Organisti Þóra V. Guðmunds-
dóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta kl. 11. Organ-
isti Kristjana Ásgeirsdóttir.
Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga
daga messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
kl. 8.30. Rúmhelga daga
messa kl. 8.
SKÁLHOLTSKIRKJA: Messa
4. sunnudag eftir þrenningar-
hátíð kl. 14. Síra Jónas Gísla-
son vígslubiskup predikar og
kveður staðinn og söfnuðinn.
Organisti Hilmar Örn Agnars-
son. Sóknarprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 20.30. Org-
anisti Gróa Hreinsdóttir.
Baldur Hrafn Sigurðsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarmessa kl. 11 árdegis.
Fermdur verður Kristján
Snorrason frá Bethesda,
Maryland í Bandaríkjunum,
p.t.a. Sólvallagata 34, Kefla-
vík. Barn verður borið til skírn-
ar. Kór Keflavíkur syngur,
organisti og stjórnandi Einar
Örn Einarsson. Sóknarprest-
ur.
KAÞÓLSKA kapellan, Kefla-
vík: Messa kl. 16.
HVALSNESKIRKJA: Sumar-
og fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Barn borið til skírnar.
Leikmenn knattspyrnuliðsins
Reynis í Sandgerði taka þátt
í guðsþjónustu með bæna-
og ritningalestri. Organisti
Ester Ólafsdóttir. Hjörtur
Magni Jóhannsson.
SELFOSSKIRKJA: Helgistund
kl. 14. Sr. Kristján E. Þorvarð-
arson þjónar fyrir altari. Sr.
Svavar Stefánsson prédikar.
Kór og organisti Hjallakirkju í
Kópavogi sjá um söng og
undirleik. Sr. Svavar Stefáns-
son.
GAULVERJABÆJARKIRKJA:
Messa kl. 14. Sr. Úlfar Guð-
mundsson.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa kl.
20.30. Ath. breyttan messu-
tíma. Svavar Stefánsson.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í
FLÓA: Messa kl. 14. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Dvalar-
heimilið Höfði: Messa kl.
12.45. Björn Jónsson.
BORG ARPREST AKALL:
Guðsþjónusta verður í
Borgarneskirkju kl. 11. Messa
sem átti að vera á dvalar-
heimili kl. 14 fellur niður.
Sóknarprestur.