Morgunblaðið - 18.10.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 1994 7
FRÉTTIR
Rjúpnaveiðin
hófst um helgina
Tvær
skyttur
villtust
BJÖRGUNARSVEITIR á höfuð-
borgarsvæðinu leituðu að ijúpna-
skyttu við Kleifarvatn sl. laugar-
dagskvöld. Maðurinn fannst
skammt frá bíl sínum um kl. tvö
um nóttina. Hann var dálítið hrufl-
aður og þurfti að leita aðstoðar
læknis. Björgunarsveitir höfðu þá
leitað hans í um 5 tíma með að-
stoð leitarhunds. Þyrla var kölluð
til um miðnættið.
Síðdegis á sunnudaginn stóð til
að hefja leit að rjúpnaskyttu við
Þingvelli. Um kl. 19 eða um hálf-
tíma eftir að óskað var aðstoðar
björgunarsveita kom maðurinn
fram við þjónustumiðstöðina á
Þingvöllum.
Fjöldi manna fór á ijúpnaveiðar
um helgina, en veiðitíminn hófst
á laugardag. Talið er að á annað
hundrað skyttur hafi verið við
veiðar á Holltavörðuheiði. Veiði
var misjöfn.
Húsvíkingar fjölmenntu á
rjúpnaveiði
Húsvíkingar fjölmenntu sem
áður til ijúpna hina fyrstu
leyfilegu veiðidaga og var veður
frekar hagstætt á sunnudeginum
en frekar leiðinlegt fyrsta daginn.
Heiðarlönd eru hvít og fengur
misjafn.
Þeir sem mest fengu voru við
gangnamannskofa að Þeistareykj-
um á Reykjaheiði. Tóku þeir dag-
inn snemma og fengu þónokkrir
20 til 30 ijúpur. En þeir sem voru
í næsta nágrenni Húsavíkur fengu
margir lítið og sumir ekki neitt.
Sá sem mest fékk fyrsta daginn
var Haukur Eiðsson en hann veiddi
50 ijúpur.
Mest mun nú vera um ijúpur á
Reykjaheiði en lítið mun hafa sést
og veiðst í Kelduhverfi og Mý-
vatnssveit. Sumir landeigendur
hafa alveg friðað sín lönd og sam-
staða er um að leyfa ekki að skot-
ið sé í Aðaldalshrauni.
-----♦ ♦ ♦---
Ný rekstr-
amefnd
áSogni
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur
skipað Sigmund Sigfússon, geð-
lækni á Akureyri, formann rekstr-
arnefndar réttargeðdeildarinnar á
Sogni í Ölfusi. Sigmundur tekur
við af Páli Sigurðssyni, ráðuneytis-
stjóra í heilbrigðisráðuneytinu.
Deilur hafa verið innan stofnunar-
innar, sem m.a. leiddu til þess að
hjúkrunarforstjóri lét af störfum í
ágústmánuði.
í nýrri rekstrarnefnd sitja
ásamt Sigmundi, Sigríður Páls-
dóttir hjúkrunarfræðingur, skipuð
af heilbrigðisráðherra, Kjartan
Ólafsson, tilnefndur af Ölfís-
hreppi, Gísli Páll Pálsson, tilnefnd-
ur af dómsmálaráðherra, Páll
Jónsson tannlæknir, tilnefndur af
stjórn Sjúkrahúss Suðurlands.
Guðjón Magnússon, skrifstofu-
stjóri, mun fara með málefni rétt-
argeðdeildarinnar innan heilbrigð-
isráðuneytisins.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Thor Vilhjálmsson sýndi
nýliðunum júdótökin
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
UM nokkurt skeið hafa júdóáhuga-
menn á Sauðárkróki komið saman
og stundað æfingai-, en sérstök
júdódeild Ungmennafélagsins
Tindastólsvarstofnuð nýlega. For-
maður er Karl Lúðvíksson íþrótta-
kennari, en segja má að Jón Oðinn
Oðinsson, júdóþjálfari á Akureyri,
sé guðfaðir deildarinnar, svo vel
sem hann hefur stutt við bakið á
þeim fáu sem stundað hafa þessa
íþrótt vestan Tröllaskaga. Júdó-
deildin gekkst fyrir kynningu til
að höfða sérstaklega til þeirra sem
eldri eru, en áhugi hinna yngri er
miklu meiri. Var leitað til Thors
Vilhjálmssonar, nthöfundar, og
hann beðinn að segja frá sinni
reynslu sem júdómaður, en Thor
hóf æfingar um fertugt en hefur
nú svart belti og æfir enn, orðinn
69 ára gamall. Thor viðheldur með
því bæði andlegu og líkamlegn at-
gervi svo sem sjá mátti er sást
undir iljar heimamanna þegar hinn
69 ára gamli unglingur tók þá júdó-
tökum. Kynningin tókst vel og
sagði Karl, að þegar hefðu komið
nýir menn til að reyna sig en rúm
væri fyrir fleiri og yrðu í vetur
tvær æfingar í viku fyrir hvorn
hóp.
í samráði við framleiðendur hafa bætiefnin í |
m. a. verið prófuð með frábærum árangri á eftirtöldum
hifreiðategundum: ^ðjjjjfi^
02) Í O VOIA
iiii”- á Shell-i|(«ðvuiHim
í allir tijóta góðs aí:
BETRA3ENSIN
S<díii Bctra SIiHI-Ihmisih a biliiin
ií lurstu Slirll-stöd.
l!ei>liiloi» iiotkun laimar |iór ríkulc
BETRIBILL
Skógrækt meó Skeljungi