Morgunblaðið - 21.12.1994, Side 57

Morgunblaðið - 21.12.1994, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ STÆRSTA TJALDIÐ MEÐ Jólamynd 1994 GÓÐUR GÆI frá leikstjóra Driving Miss Daisy, Bruce Beresford. Frábær grínmynd um nakta, níræða drottn- ingarfrænku, mislukk- aðan, drykkjusjúkan kvennabósa og spillta stjórnmálamenn. Valinn maður í hverri stöðu: Sean Connery (James Bond, Hunt for Red October), John Lithgow (Raising Cain), Joanne Whalley Kilmer (Scandal), Louis Gossett Jr. (Guardian), Diana Rigg (Witness for the Prosecution) og Colin Friels. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Diana Louis __ m GOSSEITJR RIGG l _., .. Joanne L VVHAL1JE\'-KILMER COXNERY ★★★ó.T. Rás2 ★ ★★ G.S.E. Morgun- pósturinn ★★★ D.V. H.K msm Komdú og sjáðu THE MASK, skemmti legustu, stórkostlegustu, sjúklegustu, brjáluðustu, bestu, brengluðustu, fyndnustu, fáránlegustu, ferskustu, mergjuðustu, mögnuðustu og eina mestu stórmynd allra tíma! Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.l.16ára. (Frá sömu aðilum og gerðu „Nightmare on Elmstreet 1.") Ljúfar minningar TONLIST III j 6 m |> I a l a MINNINGAR 3 Söngur: María Björk, Guðrún Gunnarsdóttir, Erna Gunnars- dóttír, Egill Ólafsson, Björg- vin Halldórsson og Eyjólfur Kristjánsson. Bakraddir: Mar- ía Björk, Eyjólfur Kristjáns- son, Ema Guimarsdóttír og Pétur Hjaltested. Píanó, h(jómborð, strengir og hyóðritun: Pétur Ifjalt- ested. Trommur og ásláttarh(jóðfæri: Gunnlaugur Briem. Bassi: Jóhaim Ás- mundsson. Gítar. Þor- steinn Magnússon. Pedalgítar: Kristinn Sigmarsson. Klassísk- ur gítar: Tryggvi Hiibner. Saxofónn og flauta: Sigurður Flosa- son. Útsetning á strengjum í Vinuiinn og Áðuroft ... :Ólaf- ur Gaukur. Aðrar út- setningar, h(jóðblönd- un og stjóm upptöku: Pétur Iljiiltested. Hug- mynd og efnisval: Mar- ía Björk. Hönnun um- slags: Sjöundi himinn. Útgefandi: IRjódsmiðj- an. Dreifing: Japis hf. 41.31 mín. verð 1.999 kr. EINS OG nafnið bendir þá er hér um að ræða þriðju plötuna í samnefndri röð. Færð eru upp á geisladisk tíu gömul og gróin dægurlög og tvö ný. Bláu augun þín, sjálft upphafsstef bítlaaldar á íslandi, er fyrsta lag plöt- unnar og henni lýkur með !_s_ nýlegu lýðveldishátíðarlagi Valgeirs Skagfjörð, Þetta fagra land. Flytjendur eru í fremstu röð íslenskra dægur- lagasöngvara og tónlistar- manna. Pétur Hjaltested hef- ur borið veg og vanda af gerð þessara platna og sækir í sig veðrið með hverri nýrri. Hugmynd og efnisval er eignað Maríu Björk sem auk þess syngur fimm lög, ýmist ein eða í félagi við aðra. Þessi plata höfðar tví- mælalaust til þeirra sem eiga minningar tengdar dægur- lögum frá undanförnum þremur til fjórum áratug- um. Töffarar og skvísur þessara ára eru nú á virðu- legum aldri og farin að ró- ast. Búningur laganna tek- ur mið af því og er bæði smekklegur og áferðarfal- legur, án þess að vera væm- inn. Mörg lögin bera suðræn- an keim, með klassískum gít- arhljóm og ásláttarhljóðfær- um í bland við kröftugan blástur Sigurðar Flosasonar. Þótt lögin komi úr ýmsum áttum þá hefur tekist að gera plötuna þannig að hún ber heildstæðan svip. Eftirminnilegast þykir undirrituðum lagið Áður oft ég hef, sem Erna Gunnars- dóttir syngur. Þar fer saman skemmtileg út- setning þeirra Péturs og Ólafs Gauks og frá- bær flutningur söngv- ara og undirleikara. Það þarf töluvert áræði til að endur- vinna lög sem sungist hafa inn í hug og hjörtu heilla kynslóða og tengjast uppruna- legum flytjendum að því er manni fínnst óijúfanlegum bönd- um. Minningar 3 bera þess vott að þetta er hægt að gera kinn- roðalaust. Þessi plata vekur ýmsar minning- ar. Meðal annars mundi ég eftir manni sem þoldi ekki bítlalög í upprunalegri gerð en lagði við hlustir þegar „þýskir listamenn“ fluttu lög eftir þá fé- laga Lennon og McCartney á gömlu gufunni. Mér flaug svona í hug hvort Pétur Hjaltested væri sestur á bekk með James Last, Klaus Wunderlich og öðrum slíkum, sem endurvinna uppáhalds- lög afmarkaðra hópa þannig að þau hugnist fjöldanum. Guðni Einarsson MARGIR helstu dægurlagasöngvarar landsins hefja upp raust sína á Minn- ingum 3. Söngvararnir eru María Björk, Egill Ólafsson, Erna Gunnars- dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Björgvin Halldórsson og Eyjólfur Kristjánsson. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 57 BURTON hjá aðalsöguhetjum myndarmnar. Hrekkjavaka um jólin TIM Burton fékk hugmynd að brúðumyndinni „The Nightmare before Christm- as“ fyrir tólf árum, þegar hann var teiknari hjá Walt Disney-kvikmyndaverinu. Hann var óánægður með „hreina og klára“ stefnu Disney og vildi stofna sína eigin skrítnu og skemmtilegu veröld, þar sem myrkur og hrekkjabrögð réðu ríkjum. „Það sem kveikti þessa hugmynd hjá mér var sú staðreynd að ég elska hátíð- ir, þá sérstaklega jólin og hrekkjavökuna. Því ekki að slá þessu saman í eitt?“ segir Burton. „Ég kynnti sjón- varpsstöðvum hugmyndina, en enginn sýndi henni áhuga svo ég lagði hana á hilluna í rúmlega áratug.“ Burton sneri sér að því að leikstýra, en þessi skuggalegi og skrítni heimur var aldrei langt undan, eins og sést á myndum hans: Leðurblöku- manninum eða „Batman“. „Edward Scissorhands“ og „Beetlejuice". Það var ekki fyrr en hann var orðinn mik- ilsvirt nafn í Hollywood að honum tókst að koma mynd- inni að hjá Touchstone-kvik- myndaverinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.