Morgunblaðið - 20.01.1995, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Fórnarlömb jarðskjálftans í Japan rúmlega 4.000
Tj ónið í Kobe metið
á 3.400 milljarða
Gasský
gætu hafa
skapað al-
heiminn
Lundúnum. The Daily Telegraph.
GRÍÐARSTÓR gasský, sem kunna
að hafa skapað alheiminn, hafa fund-
ist með hjálp geimsjónaukans
Hubbie.
„Þetta eru ský úr hreinu vetni,“
sagði Chris Impey, prófessor við
Arizona-háskóla, annar af höfundum
greinar um þetta fyrirbæri í vísinda-
tímaritinu Nature. „Þau umlykja
Vetrarbrautina og ná að minnsta
kosti háifa leiðina til næstu stóru
stjömuþoku, Andrómeduþokunnar,
milljón ljósára leið.“
Fundurinn er óvæntur þar sem
hingað til hefur verið talið að algjört
tóm sé á svæðunum milli stjömuþok-
anna.
Skýin fundust í Hubble-sjónauk-
anum þegar verið var að rannsaka
dulstirni, eða kvasa, á jaðri alheims-
ins. Geislamir frá dulstimunum
veiktust lítillega þegar þeir fóru í
gegnum skýin og afhjúpuðu þannig
tilvist þeirra.
Talið er að þetta sé frumgas, sem
hafí skapað stjörnuþokumar og eigi
eftir að skapa óteljandi þokur til við-
bótar þegar fram líða stundir.
„Vetnið er afar þunnt,“ sagði Im-
pey. „Við getum jafnvel ekki sagt
til um lögun skýjanna. Þéttleiki
þeirra er aðeins milljónasti af þétt-
leika sýnilegra vetnisskýja sem fylla
Vetrarbrautina og sköpuðu stjöm-
urnar.. .
Og skýin eru algjörlega hrein. Þau
hafa ekki vott af þyngri efnum eins
og járni. Það sýnir að þau hafa aldr-
ei orðið fyrir kjarnasamruna og að
engin stjörnuþoka skapaði þau. Þessi
ský hljóta að hafa verið til næstum
frá upphafi tímans."
Tókíó. Kobe. Reuter.
HAGFRÆÐINGAR sögðust í gær
telja, að tjónið af völdum jarðskjálft-
ans í Kobe og nágrenni í Japan sl.
þriðjudag, næmi 50 milljörðum doll-
ara, jafnvirði 3.400 milljarða ís-
lenskra króna. Til samanburðar nam
tjón af völdum jarðskjálftans í Los
Angeles í fyrra 20 milljörðum doll-
ara.
í gær höfðu fundist lík 4.015
manna sem fórust í skjálftanum og
587 var enn saknað, að sögn lög-
regluyfírvalda. Er skjálftinn sá
mannskæðasti í Japan frá 1923 er
140.000 manns týndu lífi í Tókíó
og Osaka í Stór-Kanto skjálftanum
svonefnda. Árið 1948 biðu 3.895
manns bana í Fukui-skjálftanum í
Japan.
Björgunarmenn eiga enn mikið
starf fyrir höndum við leit að fólki
í húsarústum. Vonast var til að tug-
ir sérþjálfaðra svissneskra leit-
arhunda, sem komið var með til
Kobe í gær, myndu auðvelda þeim
leitina.
Það jók þó vanda þeirra í gær,
að eldar kviknuðu að nýju víða í
borginni í gærmorgun en slökkvi-
liðsmönnum hafði tekist að ráða
niðurlögum flestra þeirra þegar á
daginn leið.
Deilt á stjórnvöld
Vatnslaust er að mestu í Kobe
og urðu slökkviliðsmenn að leggja
slöngur út í ár. Stór hluti borgarinn-
ar var enn rafmagnslaus í gær,
þriðja daginn í röð.
Hátt í þijú hundruð þúsund
manns, eða einn sjötti íbúa, hafast
við í neyðarskýlum þar sem vistin
hefur verið köld.
Japönsk stjómvöld þykja hafa
brugðist fálmkennt og illa við ham-
förunum. Fjölmiðlar sögðu í rit-
stjómargreinum, að svo virtist sem
ekki væra til neinar skýrar áætlanir
um viðbrögð við náttúrhamföram.
Einkafyrirtæki hafa bragðist
mun betur við og sent hvers kyns
hjálpargögn, allt frá stóram raf-
stöðvum og hitaofnum til vatns og
matvæla.
Reuter
SAMGÖNGUR eru enn að miklu leyti lamaðar í borginni Kobe
í Japan vegna jarðskjálftans sl. þriðjudag. Bæði þar sem götur
hafa farið í sundur og vegna þess að hús hafa hrunið niður á
þær. Á myndinni má sjá háhýsi sem fallið hefur á hliðina og
lokað sex akreina hraðbraut.
ARGENTÍNA AUSTURRÍKI ASTRALÍA BANDARÍKIN BELGÍA BÓLIVÍA BRASILÍA BRETLAND
„ _ __ .. n
5 -••
AFS vill gera öllum kleift að gerast
SKIPTINEMAR
Þess vegna býður félagið mjög viðráðanleg greiöslukjör.
Dreifa má greiðsium á allt að 18 mánuði.
Enn eru nokkur sæti laus næsta sumar.
«1»
M
2
8
s
gUpplýsingar og umsóknarblöð fást á skrifstofu AFS á íslandi,
Laugavegi 59, 3. hæð, milli kl. 10 og 16 virka daga.
Sími 91-25450.
» Sími 91-25450. Alþjoðleg fræðsla og samskipti
PORTÚGAL PARAGUAY MEXÍKÓ LETTLAND JAMAÍKA ÍTALÍA INPÓNESÍA HOLLAND GVATEMALA
AFS Á ÍSL4NDI
D
>
Z
s
O
SO
X
a
of
Yíir 25 lönd eru í boði
í öllum heimsálfum.
Ógleymanleg reynsla.
Eykur þroska
og víðsýni.
Cagnlegt
tungumáianám.
50 ára reynsla af
nemendaskiptum.
Brottför tvisvar á ári. i
Tvísýnt ein-
vígi í 18
sjómílur
BANDARÍSKU skútustjórarnir
Dennis Conner og Kevin Mahaney
háðu tvísýnt einvígi í undankeppni
Ameríkubikarsins í siglingum við
San Diego sl. miðvikudagskvöld.
Eftir 18‘/2 mílna kappsiglingu hafði
Mahaney betur og sigldi skútunni
Unga Ameríka yfir marklínuna 18
sekúndum á undan Stars & Stripes.
Mahaney hefur tekið forystu í
flokki veijenda með þrjú stig og er
ósigraður. Hefur hann tvisvar sigrað
kvennasveitina á skútunni America3
og Conner einu sinni.
Conner tókst um síðustu helgi að
rétta hlut sinn gagnvart konunum.
Tapaði hann fyrir þeim í fyrstu við-
ureign keppninnar en daginn eftir
sigraði hann konurnar örugglega.
í fyrstu lotum undankeppninnar
keppa tvær skútur innbyrðis og hlýt-
ur sigurskútan eitt stig. Keppir hver
þeirra þrisvar gegn hinum. Tekur
hver lotan við af annarri og í hverri
þeirra fjölgar stigum fyrir sigur.
Skútan Nýja Sjáland er efst sjö
báta í áskorendaflokki með fjögur
stig. Hefur Russell Coutts skútu-
stjóri stýrt henni til sigurs gegn öll-
um skútunum fjórum sem hann hef-
ur att kappi við til þessa.
Harðir
bardagar
í Bihac
BARDAGAR í Bihac, griða-
svæði múslima í Norðvestur-
Bosníu, hafa verið að aukast
síðustu daga og standa þeir á
milli stjórnarhersins og mú-
slimskra uppreisnarmanna,
sem njóta stuðnings Serba í
Krajina í Króatíu. Hafa þessar
tvær síðarnefndu fylkingar
ekki undirritað vopnahlés-
samninginn. Til vopnavið-
skipta hefur einnig komið suð-
ur og suðaustur af Bihac.
Gerir lítið úr
ágreiningi
YASSER
Arafat, leið-
togi PLO,
Frelsissam-
taka Palest-
ínumanna,
reyndi að
gera sem
minnst úr
ágreiningn-
um við ísra-
elsstjórn um nýbyggðir gyð-
inga á Vesturbakkanum á
fundi með Yitzhak Rabin, for-
sætisráðherra ísraels, í gær. Á
blaðamannafundi í Erez á
Gaza hétu þeir báðir að standa
að næsta stigi friðaráætlunar-
innar en samkvæmt því eiga
Palestínumenn að fá yfirráð
yfir öllum Vesturbakkanum.
Miklir
mannskaðar í
snjóflóðum
TALIÐ er, að 200 manns hafi
farist og um 400 er saknað
eftir mikil snjóflóð í Kasmír-
héraði á Indlandi. Raunar þyk-
ir víst, að manntjónið sé miklu
meira því að ófært er til ýmissa
staða þar sem vitað er um
skaða. Féilu mörg flóð á þjóð-
veginn milli Srinagar og
Jammu og hrifu líklega með
sér fimm fólksflutningabif-
reiðar.
Margir Bret-
ar illa læsir
EINN af hveijum sjö Bretum
er varia læs eða skrifandi og
á bágt með einfaldan reikning.
Kemur þetta fram í skýrslu,
sem birt var í gær, og það
vekur athygli, að margt fólk
á þrítugsaldri er verr á vegi
statt en foreldrarnir.
Shírínovskíj
vill verða for-
seti
VLADÍMÍR
Zhírínovskíj,
leiðtogi þjóð-
emissinna í
Rússlandi,
hefur til-
kynnt, að
hann ætli að
bjóða sig fram
í forsetakosn-
ingunum í
júní á næsta ári. Flokkur hans,
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn,
fékk flesta menn kjörna á þing
í kosningunum 1993. Kosið
verður aftur til beggja deilda
þingsins í desember á þessu ári
en Zhírínovskíj vill flýta for-
setakosningunum.
Zhírinovskíj