Morgunblaðið - 20.01.1995, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 1995 23
AÐSENDAR GREINAR
Krókur á
móti bragði
Átök um yfirráð yfir Stálsmiðjunni
ÞANNIG hljóðar
fyrirsögn í Morgun-
blaðinu 6. janúar, trú-
lega ritstjórnargrein.
Mig langar að rekja
atburðarásina í sögu
Smiðjunnar frá því ég
kom þar til starfa
1958, þá getur fólk
dæmt sjálft um hvem-
ig peningavaldið get-
ur hjálpað mönnum
fram og uppá við í
lífnu án þess að meta
mannkosti.
Stálsmiðjan var
1958 traust og gott
fyrirtæki, stofnað
1933 af Hamri og
Héðni til að annast fyrst og fremst
viðgerðir á skrokki og grófari bún-
aði skipa, þá var allur byrðingur
hnoðaður og gufuvélar í skipum.
Ástmundur Guðmundsson,
bróðir Sveins í Héðni, var ráðinn
fulltrúi móðurfyrirtækjanna og
rak hann smiðjuna þannig að hún
öðlaðist mikið traust út á við.
Ástmundur var eftirminnilegur
maður, stór og myndalegur. Hann
ýtti ekki þeim frá sér sem honum
líkaði við.
Fyrsta vetrardag 1973, þá kom-
inn á sjötugsaldur, verður hann
fyrir áfalli og lifir ekki mörg ár
eftir það.
í ársbyijun 1974 er Gunnar H.
Bjamason verkfræðingur ráðinn
framkvæmdastjóri, en hann hafði
unnið á teiknistofunni frá 1959.
Gunnar sýndi fljótt að hann var
maður til að taka við þessu trausta
fyrirtæki, duglegur og áræðinn og
hann beið ekki eftir verkefnunum,
hann sótti þau. Það má kannski
segja að hæst hafi risið starfsemi
Stálsmiðjunnar þegar smíðaður
var dráttarbáturinn Magni fyrir
Reykjavíkurhöfn, fyrsta stálskipið
sem byggt var á Islandi.
Þessi tólf ár sem Gunnar var
framkvæmdastjóri var verkefna-
staðan mjög góð, aldrei verið betri,
en uppúr stendur smíði penstokka
(þrýstivatnspípur) við Sigöldu-
virkjun, sem Gunnar sótti til
Portúgals sem undirverktaki hjá
Sorefame. Þeir lögðu til stálið,
rúmlega 1.000 tonn, og í fram-
haldi af þessu verki fengum við
smíði og uppsetningu á penstokk-
um fyrir Hrauneyjarfossvirkjun
sem undirverktaki hjá ítölsku fyr-
irtæki og var þetta um 1.800 tonn
af stáli. Bæði þessi verk gáfu Stál-
smiðjunni góðan hagnað. Önnur
verkefni sem voru í gangi um þetta
leyti voru uppsetning á hreinsi-
stöðvum fyrir Straumsvík, bygg-
ing sanddæluskipsins Sandeyjar
II, Kröfluvirkjun, verk fyrir
Grundartanga, uppsetning sýru-
verksmiðju fyrir Áburðarverk-
smiðjuna o.fl. En
Adam var ekki lengi í
Paradís.
Hamar hf. lagði
niður reksturinn í
Borgartúninu 1985 og
keypti Héðinshelm-
inginn í Stálsmiðjunni
og borgaði með sínum
hlut í Járnsteypunni
og einhverjar milljónir
í peningum. Síðan
flutti Hamar starfsemi
sína í húsakynni Stál-
smiðjunnar án þess að
auka nokkuð á hús-
næðið. Þrengdi þetta
talsvert að starfsem-
inni sem fyrir var,
einnig að skrifstofu og stjómar-
liði. Gunnari H. Bjamasyni var
sagt upp ásamt tveimur öðram á
skrifstofunni. Tæknideildin hélt
velli, enda er það heili fyrirtækis-
ins eins og Gunnar sagði einu sinni
á góðri stundu.
Skúli Jónsson og hans fólk hef-
ur nú stjórnað um tíu ára skeið
Hvað kom í veg fyrir
samninga, spyr Jóhann
Indriðason, „var þetta
ef til vill valdníðsla“?
og fór fyrirtækið í greiðslustöðvun
snemma á árinu 1994 og má sjálf-
sagt segja að staðan sé nokkuð
góð fyrir nýja menn að taka við,
miðað við niðurstöður nauðasamn-
inga, einkum stuðningsyfirlýsingu
Reykj avíkurhafnar.
Þar sem Darrahópurinn var
kominn með meirihluta hlutafjár
í Stálsmiðjunni og uppfyllti skil-
yrði til nauðasamninga, hvað kom
þá í veg fyrir að semja við þá?
Var þetta ef til vill bara valdníðsla?
Hötundur er fyrrverandi
starfsmaður í Stálsmiðjunni í 33
ár, seinnipartinn sem
yfirverkstjóri.
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opið á laugardögum
kl. 11 - 16
Jóhann
Indriðason
á Bóndadagi
Blómaverslanir, blómaframleið'
**wm AðvlT
«■ l't6öu'S°’'s'!!^íírt!SS
agð90“° .•■■flllSSSÖ*
0-
~!S*»***
K\\Ut V\at\
waw**roí_
ÓNa'sf'w A89--\ "V n\\soet
PHÍI398--'M
súpuW „am\e»en4ttW-
u4^etttt4oro \ eC
e«*#',a,a . . \ So
\ m
i
0PH3 0LL KV0LD TIL KL. 23
GLÆSIBÆ • LAUGALÆK • BORGARKRINGLU • ENGIHJALLA • MIÐBÆ Hafnarfirði